Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1999, Síða 2
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999
Langþráöur draumur da Vincis rætist:
Risavaxinn brons-
hestur á fætur
- eftir 500 ár í dvala
Risavaxinn
bronshestur
lista- og vís-
indamannsins
Leonardo da
Vincis, lista-
verk sem pant-
að var fyrir meira en fimm hund-
ruð árum en meistaranum tókst
aldrei að ljúka við, verður afhjúp-
aður í Mílanóborg á Ítalíu í haust
sem gjöf frá Bandaríkjamönnum
til ítölsku þjóðarinnar.
Árið 1482 pantaði Lodovico
Sforza, greifinn af Mílanó sem þá
var eitt ríkasta og öflugasta borg-
ríkið á Norður Ítalíu, bronsstyttu
í líki hests af listamanninum Le-
onardo da Vinci. Verkið átti að
vera til minningar um föður
Sforza og skyldi það vera stærsta
stytta af hesti sem nokkurn tím-
ann heföi litið dagsins ljós. Leon-
ardo tók til starfa og vann við
verkefnið í 17 ár, teiknaði fjölda
skyssa og smíðaði líkön. Hug-
mynd hans var að gera styttuna,
sem átti að vera rúmlega 7 metrar
á hæð eða um 4 mannshæðir,
gegnheila í einu lagi en um 80
tonn af bronsi hefði þurft til þess.
Leirlíkan í fullri stærð var reist
í garði utan við höll greifans en
þegar franskar hersveitir réðust
inn í Mílanó og bundu enda á yfir-
ráð greifans var líkanið eyðilagt
þegar bogaskyttur notuðu það sem
markskífu. Var svo hesturinn
fastur á pappírnum næstu aldirn-
ar og sagan segir að da Vinci hafi
verið mjög vansæll með vöggu-
dauða hinnar stórhuga áætlunar.
Hugmynd Leonardos
var að gera styttuna,
sem átti aðvera
rúmlega 7 metrar á
hæð eða um 4
mannshæðir, gegn-
heila í einu iagi en um
80 tonn af bmnsi hefði
þurft til þess.
Hamskipti hests: Af pappír í
brons
Fimm öldum síðar, nánar tiltek-
ið árið 1977, las svo fyrrverandi
flugmaður og áhugamyndhöggvari
sér til mn dapurlegan endinn á
stórhuga áætlunum greifans og
meistarans. Hann ákvað í kjölfarið
að koma hestinum á lappimar,
safnaði fé og stofnaði sérstakt fyr-
irtæki til að annast verkið. Mynd-
höggvarinn Nina Akamu var ráð-
inn árið 1997 til að hafa yfirumsjón
með lokafrágangi stythmnar og í
lok síðasta mánaðar lauk loksins
smíðinni þar sem nútímatækni og
hugvit gerði draum eins mesta vís-
indamanns veraldarsögunnar að
veruleika.
Hinn nýbyggði hestur er úr
bronsi með grind úr ryðfríu stáli
og kostaði 6 milljónir dollara eða
um 440 milljónir íslenskra króna.
Hann er 15 tonn að þyngd, 7 metr-
ar á hæð, 9 metrar á lengd og 2 á
Svona hugsaði da Vinci sér hestinn sinn fyrir fimm hundruð árum. í núverandi mynd er hann nokkuð öðruvísi, til
dæmis er riddarinn horfinn og gæðingurinn ekki alveg jafnhnarreistur.
breidd og á að vera algerlega jarð-
skjálfta- og veðurheldur. Hér er
sem sé ekki um neina dúkku að
ræða. Styttan verður afhjúpuð við
hátíðlega athöfn í Mílanó 10. sept-
ember næstkomandi, nákvæmlega
500 árum eftir innrás Frakkanna
inn í borgina.
-fin
Tölvuborð + stóll = tölvustóll!
- sniðug og smekkvís finnsk hönnun
Finnar hafa
ávallt staðið
framarlega í
hönmrn á hvers
konar húsbún-
aði. Hinn ný-
stárlegi tölvu-
stóll frá hinu framsækna Valvomo-
hönnunarfyrirtæki ber smekkvísi
Finnanna órækan vott en þar er á
Hér sést ungur snáði máta sig við
græju vikunnar.
ferðinni hvort tveggja sæti og tölvu-
borð.
Mubblan heitir Netsurfer
Classic og er ætluð til þess að gefa
þeim sem þreyttir eru á hefðbundn-
um skrifborðum og skrifborðsstól-
um kærkomna hvíld frá gamaldags
og púkó vinnuaðstöðu.
Myndin af þessum kostagrip
skýrir sig best sjálf. Notandinn hall-
ar sér aftur á bak, tyllir höndum og
fótum á þar til gerðar hvílur og dæs-
ir af vellíðan i afslappaðri stöðu á
meðan fingurnir leika um lykla-
borðið.
Tölvustólinn er leðurklæddm' á
stálgrind og eru arm- og fóthvílum-
ar, sem og halli sætisbaksins, still-
anleg eftir þörfum hvers og eins.
Eins og einkennir vandaða hluti er
verðið allhátt, 275 þúsund krónur,
en sú tala ætti þó síður en svo að
fara öfugt ofan í þá sem ekki setja
það fyrir sig að borga, og það vel,
fyrir það sem skiptir jú mestu máli:
Gæðin. -fin
Augnlinsur valda blindu
Niðurstöður
hollenskrar
könnunar
benda til þess
að ekki sé
æskilegt að
nota mjúkar
augnlinsur í meira en sólarhring
samfleytt þar sem samfelld notk-
un í lengri tíma geti leitt til
blindu.
Að sögn vísindamannanna
sem að könnuninni standa er
þeim sem ekki taka augnlinsum-
ar úr á nóttunni hættara en öðr-
um við að fá glærubólgu, sjald-
gæfan sjúkdóm sem veldur bólgu
og sýkingu í ytra vegg augans.
Könnunin, sem tók yfir þriggja
mánaða tímabil árið 1996 og náði
til allra augnlæknisfræðinga í
Hollandi, leiddi í ljós að hættan á
sjúkdómnum var 3,3 prósent
hærri hjá þeim sem notuðu
mjúkar augnlinsur en þeim sem
notuðu stífari linsur sem gegn-
dræpar eru á gastegundir. Hætt-
an varð 20 sinnum meiri ef notk-
unin var allan sólarhringinn.
Þeir sem nota augnlinsur yfir-
leitt eru hins vegar 80 sinnum
liklegri til að fá þennan alvarlega
sjúkdóm en þeir sem ekki nota
augnlinsur.
Það ætti sem sé að vera fyrir-
hafnarinnar virði að kippa lins-
unum úr augunum fyrir svefn-
inn...
Yngingarlyfið
estrógen
Kvenhormónið
estrógen styrk-
ir ekki aðeins
bein og minnk-
ar hættuna á
hjartasjúkdóm-
um hjá konum, heldur gerir það þær
einnig unglegri. Þetta eru niðurstöð-
ur tveggja þýskra vísindamanna
sem gerðu könnun á sambandi þess
að vera unglegur og hás estrógen-
magns i blóði.
Könnunin fór þannig fram að vís-
indamennirnir giskuðu á aldur eitt
hundrað kvenna og báru ágiskanim-
ar saman við raunverulegan aldur
kvennanna og magn estrógens í
blóöi þeirra. Báðum vísindamönn-
unum virtust konur með hátt
estrógen vera yngri og konur með
lægra estrógen vera eldri en þær í
raun voru og var munurinn á áætl-
uðum og raunverulegum aldri allt
að átta ár í báðar áttir.
Þegar konur nálgast tíðalok
minnkar magn estrógens í blóði
þeirra. Hægt er að auka það aftur
með sérstakri hormónameðferð sem
hefur í för með sér áðurnefnda kosti
estrógens en einnig ýmsar auka-
verkanir, svo sem hættu á krabba-