Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 12
+ I ! „Það er bara tvennt í tilverunni sem er ofaukið, það er krabbamein og músík." Þetta sagði Þórbergur Þórðarson einhvern tímann í geðvonskukasti. Hann hefði því líklega haft lítinn áhuga á öllum tónlistartímaritunum sem hægt er að kaupa í íslenskum bókabúðum. Fókus vonar að margir séu Þórbergi ósammála og fór því á stúfana og tékkaði á úrvalinu. Hvað er í músí Rock Sound Hvaö? Nýtt rokk- blaft 1 þyngri kantinum en hefur líka áhuga á léttara rokki. Hefur ekki alveg fundift sinn tón og virkar fremur ftatt. Fyrlr? Þá sem fóru á Donington fyrir þrem árum en á Glastonbury í ár. um Metal Hammer Hvaö? Traustasta metal- blaðið. Er fjölbreytt og fylgist vel bæði með nýjung- um og eldri meisturum. Fyrir? Þá sem fíla metal og vilja fylgjast meö. Ekki fyrlr? Sævar Örn tískulöggu. Kerrang Hvaö? Fyrsta þungarokks- blaðiö og á viö svipaðan höf- uðverk að etja og Melody Maker, verður s.s. unglinga- legra með hverju árinu. Fjallar nær einvörðungu um nýjustu tískubylgj- urnar í þungarokkinu og er fljótt að gleyma því hvað þótti flott í fyrra. Fyrlr? Unga þungarokksaðdáendur. Biggi: „Eg les aöallega Q og er hrifnastur af því. Þeir taka á svo mörg- um stefnum og gera það án hroka. Ég les það spjaldanna á milli og það er fullt af góðum greinum. Ég fletti öðrum blöðum, eins og NME og Melody Maker, en maður er farinn að gera það sjaidnar." Almenn rokk- og svalt stöff Jónsi: „Ég les aldrei mús- íkblöð, nema stund- um eitt sem heitir Mix og er svona stúdíó-eitthvað; hljóð-eitthvað. Mér finnst þessi tónlistarblöö bara auglýsingar og krapp og þar fyrir utan hef ég engan áhuga á að lesa um eitthvert erlent tónlistarfólk." Select Hvaö? Glanstímarit sem lýtur sömu lögmálum og NME og MM (að „hæpa og dissa" á vTxl) en kemur út einu sinni í mánuði. Sæmi- legasta blað með ágætum föstum liðum eins og „her- bergið mitt'' (heima hjá poppara) en plötugagnrýnin er fyrirsjá- anleg. Umfjöllun um bíómyndir er stutt- araleg en hnitmiðuö. Fyrlr? Þá sem eru 15-24 ára og vilja vita hvernig er að búa ! London. Hvaö er blaölö I raun? Bravó fyrir stálp- aða því plaköt af goöunum fylgja. Spin Hvaö? Svalt amerískt mán- . aðarrit frá austurstöndinni um vinsæla músik, jafnt sem neöanjaröartónlist, og ýmis önnur hugöarefni ungs fólks. Þó auglýsinga- farganið sé alltaf yfirþyrm- andi í amerískum tímaritum má alltaf finna ! Spin gðöar, nýstárlegar og ná- kvæmar greinar. Fyrlr? Þá sem vill fylgjast meö því hvað þenkj- andi amertsk ungmenni eru að spá. Athygllsverö staöreynd: Þegar eyðni-sjúkdómur- inn komst I hámæll lofaði blaöið að fjalla um sjúkdóminn og nýjustu rannsóknir á honum í hverju blaði þartil lækning fyndist. Þ6 engin var- anleg lækning hafi fundist er Spin hætt með greinarnar. Melody Maker Hvaö? MM er elsta tónlist- arblað í heimi, byrjaði að koma út árið 1926. Það er vikublaö eins og NME og gefið út af sömu aðilum en NME hefur skriðið fram úr á síðustu árum hvað varðar gæði og útbreiöslu. Upp- setningin og tóninn í MM verður ung- lingablaðslegri með hverju árinu. Fyrlr? Fólk á bilinu 15 til 24 ára, sem ekki fær nóg af poppskrifunum í NME. Týpískt á forsíöu: "Gump Freiheit: is it all over?" Ray-Gun Hvaö? Vesturstrandarblað sem vakti mikla athygli fyrir nýstárlegt en illlæsilegt út- lit. Hefur orðið „venjulegra" I útliti I seinni tíð en efnis- tökin eru þau sömu; ágæt umfjöllun um fræga jafnt sem óþekkta jaðarpoppara ! bland við greinar og viðtöl við svala listamenn. Fyrlr? Þá sem eru jafnhrifnir af útliti og innihaldi og vilja vita hvað er „heitt". íslandsvlnlr? Já. David Carsons, sem ber ábyrgð á hundakúnstunum í útlitinu, hélt fyrirlestur i Há- skólanum í fyrra. Q Hvaö? Vinsælasta (mest selda) poppblaðiö 1 Bret- landi. Fjallar á víðum grund- velli um dægurtónlist, jafnt á yfirborðskenndan og djúp- spakan hátt. Fyrir? Fólk yfir 25 sem fílar dægurtónlist á víðum grundvelli og nennir enn að fylgj- ast með. Týpisk smágreln: „Gump Freiheit: Where are they now?" Mojo Hvaö? Vel skrifað, ná- kvæmt og skemmtilegt upprifjunarblaö um tónlist j og tónlistarmenn gærdags- ins. Fyrlr? Fullorðna múslkpæl- ara sem eru ekki enn þá komnir í klassík eða djass. Týpísk 6 síöna greln: „The story of Gump Freiheit." Fyrir pabbana Zoo Hvaö? Danskt poppblað sem er ágætt miðað við hve Danir eru slappir i poppinu. Viðtöl og gagnrýni eru ágæt en heildarsvipur- inn fremur flatur. Fyrlr? Popp- og rokkáhuga- fólk sem vill ekki lesa um popp og rokk á dönsku. Helstl ókostur? Síðasta blað kost- aöi hátt i 2000 kall en einhver lummulegur safndiskur fylgdi reyndar með. New Musical Express Hvaö? Þegar sagt er að Bretland sé mlðpunktur poppbransans er þaö ekki síst aö þakka vikublaöinu NME sem leggur línurnar og hampar og rægir popp- ara á víxl. Blaöið hefur tek- iö við forystuhlutverkinu af Melody Maker og er oftast i því áhugaverð lesning þótt hún sé oft lituö af innan- hússákvöröunum um þaö hvaö eigi aö vera svalt þá vikuna. Fyrlr? Poppáhugafólk og þá sem treysta sér ekki sjálfir til aö ákveða hvað er svalt. Týpískt á forsiöu: “Gump Freiheit: The new hope of pop?" Rolling Stone Hvaö? Blaö sem stendur fast á þvi að rokkið hafi ekki borið sitt barr eftir aö hippatímabilinu lauk en reynir að vera opið fyrir nýrri tónlist. Kemur þó upp um sig í plötudómunum. Fyrlr? Þá sem deila lífs- skoðunum blaðsins. Record Collector Hvað? Timarit sem segir þér hvað gömlu plöturnar þínar kosta. Teknir eru fyrir ýmsir misgamalgrónir popparar og kafað í katalókinn þeirra. Einnig nördaleg viötöl við ellismelli. Fyrlr? Plötusafnara og aðra nörda. Athygllsverö staöreynd: Samkvæmt blaðinu er 6 laga tveggja platna e.p.-smáskifa með Thor's Hammers (Hljómum) 45. verð- mætasta plata í heimi. Jón Ólafsson: „Ég les mjög mikið af músík- blöðum, sérstaklega blaðið Keyboard, nafniö segir allt sem sem segja þarf. Það er blað fyrir fagidíóta og ég kaupi mikið af svona græju- blöðum. Tækniframfarirnar eru svo miklar í þessum bransa og maður reynir að fylgjast með. Svo les ég Sound of Sound og Future Music og stundum Q, sérstaklega ef ég er í flugvél. En yfir það heila þá kaupi ég þessi blöð grimmt og eyði allt of miklum peningum í þetta. Þetta eru lika blöð sem er ekki hægt að finna á biðstofum hjá tannlæknum og þeir mættu alveg bæta úr því. Annars er ég alltaf að bíða eftir ís- lensku græjublaði sem myndi þá heita Græjur og gellur.“ + 12 f Ó k U S 13. ágúst 1999 U2JU3-1 ng iaffáúultisi) jÚÍJÚÚuJu Oí) ÍJJj'Jj'J-'ÚUJJp Þossi: „Jockey Slut er uppáhaldsblaðið mitt. Umíjöllunin er almenn og blaðamennimir eru ekki fastir í einni tegund tónlistar. Svo detta inn alls konar skemmti- legir hlutir; menning heitir það víst, er það ekki? Jockey Slut er með mest djúsí greinar fyrir minn smekk en ef ég vil meiri sérfræðiúttekt á danstón- list tékka ég á Musik eða Mixmag. Ég skoða öll þessi tónlistarblöð, eigin- lega allt nema Melody Maker og NME. Mað- ur verður svo skítugur á puttanum af þeim.“ Páll Óskar: „Ég les Q af því að þeir eru kúl. Þeir hafa líka ofsalega hvassan bresk- an húmor sem > kemur stundum við kaunin á þeim sem eru til umfjöll- unar. En það góða við þetta blað er að þeir segja alltaf sannleikann og stund- um er sá sannleikur sár en hann er alla vega vel orðaður hjá þeim í Q. Ég blaða samt ofsalega sjaldan í gegnum NME og alla þá vitleysu. Q er líka þannig að þeir hafa alla flóruna og gera öllu jafnhátt undir höfði.“ The Vibe Hvaö? Fjallar um R&B og léttrapp á froðulegan hátt og er stútfullt af auglýsingum. Fyrlr? Þá sem finnst fataauglýs- ingar skemmtileg- ar og vilja lesa um tónlistina sem er á Mono og FM. XXL Hvaö? Sér- fræðingunum finnst þetta besta rapp- blaöið. Fullt af athyglisverðum greinum og oft dýpra kafað en í öðrum rappblööum. Lítill glamúr og harðara útlit. Fyrlr? Fyrir þá lengst komnu í hipp hopp-kúlturnum. Mixmag Hvaö? Það danstónlistar- blað sem selst best enda fjallar það um danstónlist- ina sem heyrist á „mein- strím“-útvarpsstöðum. Fullt af litmyndum af fullu og sveittu fólki að dansa. Fyrlr? Fólk sem fer út að skemmta sér og er ekki með sérfræðiþekkingu. Passar ekkl á: Biðstofu hjá útfararstofu. Knowiedge Hvaö? Drum and bass-blað sem kíkir örlítiö út fyrir sitt hólf. Miðað við fallandi gengi tónlistarstefnunnar gæti það orðið skammlíft. Fyrlr? Sanntrúað drum and bass-áhugafólk. Jákvæöur punktur: Frír diskur í hverju blaði með þvi heitasta í D&B-inu. Á jaðrinum Songlines Hvað? Nýtt timarit sem set- ur fókusinn á heimstónlist. Er gefið út af sömu aðilum og gefa út Gramophone svo öll vinnubrögð eru fýrsta flokks. Fyrir? Heimstónlistaraðdá- andann auövitað. Blaze Hvaö? Stórt blað um þá hipp hoppara sem lengst hafa náð. Efnlsval ræðst eingöngu af vin- sældum og ekki er reynt að hafa vit fýrir lesendum. Fyrlr? Þá sem vilja vita allt um Puff Daddy og Jay-Z. The Source Hvaö? Biblia þeirra sem segja hipp hopp-iö vera menningu. Auk þess að fjalia um hipp hopp og rappara fjallar blaðiö um svarta menningu og samfé- lag. Hlið viö hlið er þvi kannski viðtal við GZA og grein um ástandið í Rúganda. Byrjaði vel en hefur verið að tapa gæðum, helst vegna síaukins magns af aug- lýsingum. Fyrlr? Rappáhugamenn og þá sem vilja fræðast um forsögu og umhverfi rappsins. Ekkl fyrlr? Guöna Ágústsson. Urb Hvaö? Mjög gott amerískt danstónlistarblað sem sér tónlistina með amerískum augum. Fjallar um alla danstónlist, þ.á.m. rapp, á jákvæðan hátt og er laust við hæp/diss-móral ensku blaðanna. Fyrlr? Þá sem vilja fylgjast með allri flórunni í dans- tónlist og nenna ekki að taka þátt i leik ensku popppressunnar. Muzik Hvaö? Kafar dýpra en Mixmag og gefur þvi lítiö eftir í vinsældum. Var fyrsta tímaritið sem fjallaði ein- göngu um danstónlist og hefur haldið forystuhlut- verki sínu. I byrjun er erfitt að komast inn í blaðið Wire Hvaö? Fjallar um tón- list sem enginn ann- ar hefur áhuga eða nennu til aö fjaila um. Toppblað þegar kemur að til- raunatónlist og avant garde. Fyrir? Þá sem fíla súran djass, fram- sækna klassík og þroskaða raftónlist. Ekkl fyrlr? Ja, eigin- lega alla aöral CMJ (New Music Monthly) Hvaö? Mánaðartímarit sem gæti verið blað frá X-inu, músiklega séð. Ameriskt indi-rokk sem sagt í háveg- um haft en aðeins kíkt á aðra tónlist. Ágæt viötöl en máttlaus gagnrýni. Helsti kostur CMJ er frír safndiskur sem fylgir með, með i kringum 20 tóndæmum af nýrri tónlist en veikleiki að efnistökin anga oft af því sem hljóm- plötufyrirtækin vilja „plögga". Fyrlr? Þá sem vilja fýlgjast meö því „ferskasta" i rokkinu og finnst gott að fá tóndæmi með. (svona svipað og að lesa leiðbeiningar fýrir bif- vélavirkja) en með aukinni þekkingu á danstón- listinni fer blaðið að virka. Fyrlr? Fólk sem fer út að skemmta sér og er með sérfræðiþekkingu. Ekkl fyrlr? Þá sem þekkja ekki muninn á „gara- ge“ og „speed garage". Addi Fannar: „Ég les nú bara aldrei svona blöö eöa kaupi þau alla vega ekki. Það er í mesta lagi aö ég fletti þeim ef þau eru fyrir framan mig og ég hef ekkert annað að gera.“ Samkvæmt skatt- skýrslum er skelfiskurinn Jón Ólafsson með 79 þúsund kall í laun á mánuði. Fyrir þennan pening er hægt að gera ýmislegt skemmtilegt eins og Fókus komst að raun um. Fyrir 79 þúsund kall á mánuði gætir þú: • Keypt 220 pakka af sígarettum. • Keypt 31 eintak af safnplötunni Þó líði ár og öld með Björgvini Halldórssyni. • Leigt 225 nýjar vídeóspólur og 225 gamlar meö. • Verið áskrifandi að Stöð 2 í 21 viku. • Farið 79 sinnum á nýju Star Wars-myndina ef þú keyptir minnsta popp, minnstu kók og rúsínupoka líka. • Keypt 6 grömm af góðu f} kóki, 16 grömm af spítti eða 52 , A, í grömm af hassi ef þú fengir það á góðum díl. • Fengiö einkadans í 70 mínútur á Club Clinton. 1 u • Keypt 973 I af 95 okt. bensíni. A því kæmistu 6.420 km á Grand Cher- okee-jeppanum þinum (ef þú ækir eins og maður), eða næstum þvi 5 sinnum hringveg- inn. • Keypt allra sæmilegasta hnakk eða hey fyr- ir hest í heilan vetur. • Drukkið 316 bjóra á ódýrasta pöbbnum i bænum. Ef þú værlr meö 79 þúsund kall á mánuöl og gerölr ekkert annað vlð penlnglnn (því konan þín héldl þér uppl) tækl þaö þlg: • 5.274 ár að hafa efni á að kaupa 25% i Fjárfestingarbanka atvinnulífsins. • 738 ár að vinna fyrir góðu landi í Garðabæ. • 42 ár aö safna fýrir 40 milijóna króna ein- býlishúsi. • 31 ár að vinna þér inn 30 milljónir sem þú myndir svo nota til að fjármagna feril efnilegr- ar söngkonu. ^ • 6 ár að safna fyrir dýrasta Grand Cherokee-jeppanum. • 18 mánuði að vinna þér inn fyrir leiguflugi með þyrlu frá inn- fenntum skíöakofa í Ölpunum. • 4 mánuði aö láta gera 500 • - • eintök af geisladiski sem tekinn hefði verið upp með lág- marks-upptökukostnaði. • 2 vikur að vinna fyrir einum degi i Laxá i Kjós. • 16 tíma að vinna fyrir þokkaleg- um vindli í mafíuherberginu á Rex. • 8 tíma að safna fýrir 30 miða sundkorti. • 100 mínútur að vinna fýrir farinu til Keflavikur með rútu. H 13. ágúst 1999 f Ó k U S 13 f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.