Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 11
Þegar Alanis Moríssette gerði síðustu plötu sannaði hún að af toppnum er bara hægt að fara niður. Söngkonan tekur gengisfellingunni með jafnaðargeði og er með margt á prjónunum. Alanis þarf ekki að æfa hlutverk G Alanis Morissette varð án efa ein allra skærasta stjarna poppsins þegar hún gaf út plötuna „Jagged Little Pill“ árið 1995. Platan seldi ein 25 milljón eintök og Alanis stóð í tón- leikaferðalögum í tvö ár. Eftir töm- ina skrapp hún til Indlands og fann andlegan frið en sneri aftur í hring- iðuna í fyrra með „Supposed Former Infatuation Junkie", langa og mis- jafna plötu sem hlaut ekki nærri því sömu vinsældir og fyrsta platan. Úrklippubók Alanis kann því ágætlega að hafa fallið af stallinum og er með ýmis jám í eldinum. Hún mun leika Guð í næstu mynd Kevins Smith, sem þekktastur er fyrir myndirnar „Clerks“ og „Chasing Amy“. Myndin heitir „Dogma", en hefur þó ekkert með danska kvikmyndatiskustílinn að gera. Alanis hefur einnig tekið upp nýtt lag fyrir myndina sem heit- ir „Still". „Lagið gerði mig mjög spennta og ég hugsa mér gott til glóðarinnar með mina næstu plötu,“ segir Alanis og er ánægð með nýja lagið. Áður en næsta plata kemur mega aðdáendur kanadíska söngfuglsins eiga von á öðram glaðningi sem er bók. „Ég er alltaf að skrifa eitthvað hjá mér, einhver orð. Sumt verður að ljóðum eða textum, annað að dagbók- ardúlliríi og sumt ætti kannski best heima í raslinu,“ segir Alanis og bæt- ir við: „Bókin verður eins konar úr- klippubók með ýmsum yfirlýsingum og afhjúpunum." Alanis er Guð Auk úrklippubókarinnar er Alanis með kvikmyndahandrit í handraðan- um: „Það kemur eflaust einhvem timann að því að kvikmynd verði gerð eftir því,“ segir hún. í verkinu fjallar Alanis um samband karls og konu og allra innri þáttanna sem tog- ast sífellt á í samskiptum kynjanna. En hvemig ætli sú kanadíska búi sig undir það að takast á við hlutverk Guðs? „Það eina sem maður getur gert er að undirbúa sig ekki neitt," segir hún og útskýrir: „Ég og Kevin Smith trú- um því að Guð sé hver og einn, að Guð búi í hverjum manni. Því segir það sig sjálft að það er ekki þörf á neinum undirbúningi og ég þarf ekki að æfa mig. Þar fyrir utan er þetta lít- ið hlutverk." Trukkur fullur af glossi Dogma verður frumsýnd í haust en næsta mál á dagskrá hjá Alanis er sex vikna tónleikatúr um Bandaríkin með Tori Amos. Það verða engir prímadonnustælar á söngkonunum því þær segjast bera mikla virðingu hvor fyrir annarri. Tori segir þær svo miklar pæjur að þær verði að taka með sér tvo sérstaka trukka til að lifa túrinn af; annar verði fullur af eð- alvírii, hinn af glossi. BMW Compact Sport Edition Grjótháls 1 söludeild 575 1210 Glæsilegur BMW sportbíll! Glæsilegur BMW, hlaðinn aukahlutum og búnaði, með aksturseiginleika sem aðeins BMW státar af. Sérstakur búnaður: • M-leður/tau áklæði á sætum • M-leðurklætt stýri • M-fjöðrun • M-spoilerar allan hringinn • 10 hátalara hljómkerfi • Þokuljós • Fjarstýrðar samlæsingar og ræsivörn BMW ánægja og öryggi: • BMW útvarp með geislaspilara • ABS og ASC+T spólvörn • 4 loftpúðar, 5 höfuðpúðar • Vökva- og veltistýri • Frjókornasía í loftræstingu 1 .948.000 kr. Engum líkur 13. ágúst 1999 f Ó k U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.