Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 15
bíódómur Star Wars, Episode 1: The Phantom Menace Glerperlan UIlJIJ^ George Lucas. Kvikmyndataka: David Tattersall. Tónlist: John Williams. Aðalhlutverk: Liam Neeson, Ewan McGregor, Natalie Portman, Jake Lloyd, Ahmed Best. Nýja Stjömustríðsmyndin virk- ar - en ekki sérlega vel án sam- hengis við eldri myndirnar. Til þess er hún of tíðindalítil og vant- ar bæði meiri átök og sterkari hug- hrif. Þegar serían öll liggur fyrir verður óneitanlega skrýtið að upp- lifa hina eiginlegu opnun heildar- verksins í 4. þætti; hina uppruna- legu Stjörnustríðsmynd. Ég er að tala um atriðið þegar Logi geim- gengill gengur út í eyðimörkina á plánetunni Naboo eftir að fóstur- foreldrar hans hafa verið myrtir og horfist í augu við forlög sín - ef tU vUl í líki sólanna tveggja sem skína á plánetuna; sjálfan Máttinn og skuggahliðar hans. Engu slíku er til að dreifa í The Phantom Menace, aðallega vegna þess að að- alpersónuna vantar. Þetta þarf þó ekki að koma að sök því miklir sagnabálkar á borð við þennan og tU dæmis sumar íslendingasögur taka sér oft góðan tíma að segja frá aðstæðum og undirrótum þeirra at- burða sem mynda meginuppistöðu frásagnarinnar. Einhver kann líka að benda á að Lucas hafi aUtaf hugs- að sér seríuna svona, þ.e. byrja í verkinu miðju og fara síðan á vit baksögunnar. En á móti kemur að myndin er kynnt sem fyrsti hluti verksins, upphaf linulegrar frásagn- ar sem hefst með eingetnum pUti og endar með uppgjöri foðurs og sonar. Jedi-riddarinn Qui-Gon Jinn (Neeson) og lærlingur hans Obi- Wan Kenobi (McGregor) eru sendir að plánetunni Naboo til að semja við Viðskiptasambandið sem sett hefur plánetuna í hafnbann út af toUadeUu. Þeir verða þess áskynja að eitthvað annað býr undir og þegar hermenn Viðskiptasam- bandsins hemema plánetuna tekst þeim að komast undan með drottn- inguna Amidala (Portman). Þau halda tU plánetunnar Coruscant þar sem cdheimsþingið situr, tU að fá stuðning þess. Vegna skorts á varahlutum þurfa þau að droppa við á plánetunni Tattooine þar sem Jinn rekst á ungan pUt, Anakin (Lloyd) að nafni. Jinn verður sann- færður um að drengstaulinn sé hinn útvaldi, sá sem koma muni jafnvægi á Máttinn og færa heim- inum varanlegan frið. Aðrir Jedar, þar á meðal Obi-Wan og meistari Yoda, eru ekki jafh sannfærðir. Yoda gefur meira að segja í skyn að í drengnum búi öfl sem gætu leitt hann yflr í skuggahliðar Máttar- ins. Þingið reynist gagnslaus kjaftasamkunda þar sem hæst ber valdabrölt þingmannsins Palpatine (sem við vitum að verður síðar hinn Uli keisari). Hann þykist vUja hjálpa drottningunni en sterklega er gefið i skyn að hann sé á bak við aUt plottið. Jedámir og drottningin snúa síðan aftur til Naboo og hyggjast reka hemámsliðið af höndum sér. Verður úr því Ör- lygsstaðabardagi mikUl. Hér skortir fátt upp á hina sjónrænu veislu, stjörnu- stríðsheimur Lucasar hefur aldrei fyrr verið jafn kynn- gimagnaður og blæbrigða- ríkur. AUt er þetta þó frek- ar eðlUeg þróun en einhvers konar bylting, eldri myndimar standast ágætlega samanburðinn. Hins veg- ar vantar nokkuð upp á skemmti- lega persónusköpun, nauðsynlega eftirvæntingu og hinn ljúfa hroU óvissu og uppgötvana sem er aðaU ævintýrasagna. Flýtibragur ein- kennir frásögnina líkt og Lucas telji nóg að gefa eiginleika persón- anna í skyn i stað þess að varpa ljósi á þær með ítarlegri hætti. Líkt og í fyrri myndunum tekst vel að koma því tU skUa að þetta er gam- aU heimur með mikla sögu en stundum líður myndin fyrir það að verið er að leggja upp atburði næsta og þamæsta hluta. Neeson er traustur sem hinn stóiski Jedi sem fer sínar eigin leiðir. McGregor stendur sig einnig vel en persóna hans, Obi-Wan, er of óljós og tU hliðar í frá- sögninni tU að ná að setja mark sitt á hana. Mér þykir þó lík- legt að honum verði gerð betri skil í næstu myndum. Portman hefur til að bera sjaldgæft innra öryggi af svo ungri leikkonu að vera en það er ekkert við hinn unga en knáa Ll- oyd sem gefur hið minnsta til kynna hver Anakin muni að lokum verða þannig að gjörvUeiki hans er eingöngu tU umræðu en ekki tU sýnis, ef undan er skUin mikU kappreið sem fram fer á Tattooine og er ein besta sena myndarinnar. Tölvuséníin og leikarinn Ahmed Best skapa sameiginlega Jar Jar Binks, nokkurs konar hirðfifl myndarinnar, tæknin er álíka un- aðsleg á að horfa og persónan er þreytandi auk þess sem auðvelt er að sjá hið rasíska upplegg hennar, sem er eins og ættað úr Kipling eða gamaUi Tinnabók. Það verður þó ekki af Lucasi tek- iö að Stjömustríðssagnabálkurinn er eitt af stórvikjum nútímafrá- sagnarlistar. Þetta er endurvinnsla minna úr goðsögnum, ævintýmm og trúarbrögðum þar sem flestir ættu að geta fundið einhvers konar samhljóm. Sá hljómur klingir ef tU vUl ekki mjög djúpt í sálinni og það væri svo sem hægt að eyða löngu máli í að þrasa yfir þeirri stöðnuðu heimsmynd sem blasir við. En þó að þessi perla sé aðeins úr gleri skín hún engu að síður skært og það er bara þokkalega gaman að njóta ljómans af henni um stund. Ásgrímur Sverrisson Besta lið allra tíma nú fáanlegt á myndbandi Allir leikirnir! Öll mörkin! Sendum i póstkröfu PÓSTKRðFUSÍMI: SB8 5333 VIDEOHOL L Á p”''nu toncli _ LÁGMÚLA 7 SÍMI 568 53 33 13. ágúst 1999 f Ó k U S 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.