Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 6
 Nexus VI, var vitstola í skólanum. Ég fékk popp og kök en snerti ekki við því „Þarna um dagiim hef ég verið vit- stola i Digranesskóla i Kópavogi að bíða eftir að komast á Stjörnustrfð á níu-sýn- ingu um kvöldið. Ég hafði gífurlegan áhuga á Star Wars, var búinn að fá myndasöguna á dönsku og haföi leikið mér í Star Wars-leik allt sumarið þó ég ætti ekkert dót. Maður þurfti bara ímyndunaraflið enda var ég tiu ára. Ég fór með mömmu og ömmu og sat á fremsta bekk á svölunum. Ég fékk popp og kók en snerti ekki við því. Mér fannst þetta besta mynd sem ég hafði séð. Ég man ekki hvað ömmu fannst en mömmu fannst gaman, kannski mest gaman að fylgjast með því hvað ég var spenntur. Hef ég séð nýju myndina? Já, en bara sex sinnum. Ég var á frumsýn- ingunni í Kanada en fór ekki með hóp- feröinni til Halifax heldur kom ég mér sjálfur til Toronto. Af hveiju? Nú, það eru miklu betri bíó þar. Ég vil Ieyfa fólki aö ákveöa sjálft hvort sú nýja er betri eöa verri en sú fyrsta en hún er þó alla vega mynd sem allir verða að sjá.“ Nýja bíó frumsýndi Stjörnustríð (Star Wars) á Is- landi kl. 14.30, föstudaginn 20. október 1978, ekki nema rúmlega ári á eftir frumsýningunni í Bandaríkjunum. Mikill viöbúnaður var í Nýja bíói, m.a. var ekki svarað í síma, miðasalan hófst klukk- an eitt og bíóinu þótti ástæða til að hækka miða- verðið i tilefni myndarinnar, sem auglýst var sem .frægasta og mest sótta mynd allra tíma". Ágætt framboö var í öðrum bíóum þennan dag. Háskóla- bíó sýndi Saturday Night Fever og Stjörnubíó Close Encounters Of The Third Kind. Gamla bíó var með Kjarnorkudrenginn (The Bionic Boy) og bíóin í Hafn- arfirði létu ekki sitt eftir liggja. Hafnarfjarðarbíó bauð upp á Some Like It Hot með Marilyn Monroe og Bæjarbíó sýndi Á valdi eiturlyfja: .Raunsæja og ágætlega leikna kvikmynd um skyn og skúrir í poppheiminum vestanhafs." Ef fólk vildi komast á ball þennan dag hefði verið hægt að velja á milli þess að sjá TTvoli I Klúbbnum, Geimstein í Stapa, Galdrakarla í Sigtúni eða Kid Jensen í Hollywood. Ekki bauð svo Ríkissjónvarpið upp á neitt slor: Prúðuleikarana, Kastljós og Sálfræði, stórmynd með James Mason frá 1968. Hún fermeð eitt að S.O.S.-kabarett sem ^ ,A Vfj v yj ■ t 1 tvífarar Það hafa heyrst ýmsar samsæriskenningar um dagana og margar vitlausari en sú að Hillary Clinton og Ástþór Magnússon séu ein og sama manneskjan. Ef myndimar af þeim eru skoðaðar vel má sjá hversu gífurlega lik þau eru. Eflaust muna margir eftir myndinni sem Ástþór á af sér að taka í höndina á Bill. Fyrst Ástþóri var hleypt inn í Hvíta húsið getur þá ekki eins verið að hann hafi falið sig í fataskáp Hillary og klætt sig upp sem hún á meðan aðrir meðlimir Friðar 2000 tóku forsetafrúna í gíslingu? Auðvitað er það möguleiki - eða hefur einhver séð Ástþór nýlega? Besta leiðin til að ná árangri í friðarbaráttu er auðvitað að þykjast vera hægri hönd valdamesta manns heims og það ætti að vera Ástþóri auðvelt því dæmin sýna að ekki hefur Bill mikinn áhuga á „konunni sinni“ í rúminu. Málin munu fyrst fara að vandast þegar „Hillary" kemur til íslands. Kristjana er fædd og alin upp á Selfossi. Hún er mjög ánægð með það enda náði hún því að vera ung- lingur þegar alvöru-sveitaballa- menning var enn við lýði. „Núna er stemningin allt öðru- vísi. Skemmtistaðir hafa dúkkað upp í bænum og það er aðeins á rétt- arböllum sem hægt er að fá nasaþef- inn af gamla sveitaballastuðinu,“ segir Kristjana sem er orðin þrítug og einu ári betur. Fyrir viku var S.O.S.-kabarettinn frumsýndur í Loftkastalanum. Þar leikur Kristjana eitt af aðalhlutverk- unum, léttlynda konu sem er öll af vilja gerð til að gera öðrum til hæf- is. í byrjun vikunnar birtist misgóð gagnrýni á verkið í ýmsum fjölmiðl- um. Ertu ósátt viö dómana? „Þeir voru ekki nógu góðir. En þá er líka hægt að spyrja sig hversu mikið mark maður á aö taka á dómi einhvers eins blaðamanns á ein- hverju blaði. Sjálf færi ég ekki upp á svið ef ég væri óánægð með það sem ég væri að gera. Ég nenni að minnsta kosti ekki að vera neinn „crowd pleaser“,“ segir Kristjana en allir gagnrýnendurnir voru sam- mála um að hér væri á ferðinni hörkusöngkona. Enda er hér um að ræða hámenntaða dömu. Draumur um jazzklúbba Eftir stúdentinn fór hún í Söng- skóla Reykjavíkur og þegar hún hafði útskrifast þaðan sem klassísk söngkona eftir sex ár fór hún til Hollands og útskrifast næsta vor sem jazzsöngkona úr Konunglega tónlistarháskólanum í Den Haag - fyrsta íslenska konan sem það gerir. Margir muna kannski eftir henni sem aðstoðarkonu Skara Skrípó fyr- ir nokkru og hún er líka konan sem söng á jazzjólalagageisladiskinum sem kom út fyrir jólin 1996. Núna er Kristjana í eins árs leyfi frá skólanum og hefur haft nóg að gera við sönginn. Fyrir utan þátttök- una í S.O.S.-kabarett hefur hún haldið þrénna tónleika með Stór- sveit Reykjavíkur, tekið þátt í jazzhátíðum, komið fram á Múlan- um og næst á dagskrá er jazz- og blúshátíð á Selfossi þar sem hún mun koma fram ásamt tríóinu Ein- ari Scheving, Þórði Högnasyni og Agnari Má Magnússyni. Svo sér hún líka um morgunþátt Útvarps Suður- lands með vinkonu sinni, Soffíu Stefánsdóttur. „Draumur minn er að enda í þeirri stöðu að geta unnið fyrir mér með söng á jazzklúbbum víða um heim. Mig langar að ferðast út um allt og hugsanlega læt ég bara verða af því fyrst ég er enn bamlaus og frjáls minna ferða. Leiklistin er nokkuð sem ég ætla ekki að leggja fyrir mig þó mér fmnist frábært að prófa hana. Það er þroskandi og skemmtilegt að reyna sem flest,“ segir Kristjana. Pínulitlir og sætir strákar Eftir frækilega frammistöðu sel- fyssku hljómsveitarinnar Skíta- mórals undanfarin misseri eru allir Selfyssingar nú spurðir hvort það geti verið að þeir þekki þessar sveitaballahetjur. Og Kristjana fær sömu spumingu: „Ég held nú þaö. Þeir voru í bekk með litlu systur minni. Þegar þeir vora tólf ára, pínulitlir og sætir, vann ég í félagsmiðstöð unglinga á Selfossi og þar fengu þeir að aefa sig einu sinni í viku, blessaðir. Ég get því sagt með góðri samvisku að þeir hafi byrjað ferilinn hjá mér.“ -ILK 6 f Ó k U S 13. ágúst 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.