Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1999, Blaðsíða 2
18 MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1999 Sport i>v HM úrslit Stangarstökk kvenna: Stacy Drigila, Bandar.........4,60 Anzhela Balakhonova, Úkr......4,55 Tatiana Grigorieva, Ástr......4,45 Zsusanna Szabo, Ungveijl......4,40 Vicole Rieger-Humbert, Þýskal. . 4,40 Pavla Hamarckova, Tékkl.......4,40 Daniela Bartova, Tékkl........4,40 Jelena Belyakova, Rússl.......4,35 Kellie Suttle, Bandar.........4,35 Elmarie Gerryts, S-Afríku.....4,25 Alejandra Garcia, Argent......4,25 Vala Flosadóttir, íslandi .... 4,25 Þóra Edda Elisdóttir, Islandi 4,15 Emma George, Ástralía.........4,15 Yvonne Buschbamn, Þýskal. ... 4,15 Dana Cervantes, Spáni ........4,15 20 km ganga karla: Bya Markov, Rússlandi......1:23,34 Jefferson Perez, Equador .... 1:24,19 Daniel Garcia, Mexikó .....1:24,31 Kúluvarp karla: C.J. Hunter, Bandar..........21,79 Oliver Sven Buda, Þýskal.....21,42 Aleksandr Bagach, Úkr........21,26 Fýrsta gullið til Rússa Rússinn Rya Markov hlaut fyrstu gullverðlaunin á heimsmeistara- mótinu í frjálsum íþróttum en hann har sigur úr býtum í 20 km göng- unni. Hann kom í mark á 1:23,34 klukkustundum og varð tæpri mín- útu á undan næsta manni. Hér held- ur hann á fána heimalands síns eft- - Vala í 12. sæti og Þórey í 13. sæti Vala Flosadóttir hafn- aði í 12. sæti í stangar- stökki á heimsmeistara- mótinu í öjálsum íþrótt- J um sem hófst í Sevilla um helgina. Vala stökk 4,25 metra en Þórey Edda EIís- dóttir varð í 13. sæti með stökk upp á 4,15 metra. Þetta er annar besti árangur Völu og Þóreyjar á þessu ári. Segja má að Vala hafi verið í miklu basli i allri stangar- stökkskeppninni. Hún fór yfír 4 metrana í þriðju tilraun og það sama gerðist þegar hún fór yfir 4,15 og 4,25 metrana. Hún átti svo ágæta fyrstu til- raun við 4,35 metrana en hin- ar tvær gengu ekki. í annarri tilraunin passaði atrennan ekki og í þeirri þriðju hætti hún viö uppstökkið. Ekki var búist við miklu af Þóreyju Eddu enda hún búin að eiga við bakmeiðsh að stríða um hríð. Þórey stóð sig engu síður ágætlega. Hún fór vel yfir byrjunarhæðina, 4 metra og 4,15 metrana í fyrstu tilraun en felldi svo 4,25 í þrí- gang. Heimsmeistari varð Stacy Dragila frá Bandaríkjunum. Hún jafnaöi heimsmet Emmu George frá Ástralíu með því að fara yfir 4,60 metra er þar með fyrsti heimsmeistari í þessari grein. Anzhela Balak- honova frá Úkraínu varð önn- .ur með 4,55 metra. Hún felldi tvívegis 4,60 metra og lét þá hækka ránna i 4,65 metra sem hún hún felldi einnig. Líka fyrsti meistarinn innanhúss Dragila varð einnig fyrsti heimsmeistari innanhúss í stangarstökki en hún sigraði á heimsmeistaramótinu í Par- ís fyrir tvehnur árum. „Það hvarflaði aldrei að mér að geta unnið fyrsta heimsmeistaratitilinn utan- húss eftir að hafa unnið fyrsta titilinn innanhúss. Ég ætlaði mér að reyna að stökkva hátt og komast yfir 4,59 metrana. Þetta var mjög spennandi keppni," sagði hin 23 ára gamla Dragila sem fékk 30.000 dollara í verðlaun fyrir heims- metsjöfhunina. Meiðslin háðu George Emma George hafhaði í 14. sæti með stökk upp á 4,15 metra en hún felldi þrívegis 4,35 metra. Lengi vel var óvíst hvort George gæti keppt á mótinu vegna meiðsla í baki en hún harkaði af sér og mætti til leiks í Sevilla. Geor- ge, sem setti heimsmet með því að stökkva 4,60 metra í febrúarmánuði, náði sér hins vegar aldrei á strik og komu meiðslin í bakinu í veg fyrir það. -GH ir sigurmn. Emma George frá Ástralíu fer hér yfir 4,15 metrana en hærra komst hún ekki. -GH á minni myndinni fagnar Stacy Dragila heimsmeistaratitlinum. Kúluvarp: Sigurkast í lokaumferð hjá Hunter C.J. Hunter frá Bandaríkjun- um kom, sá og sigraði í kúlu- varpi karla en 21,79 metra kast tryggði honum heimsmeistara- titilinn. Hlaupadrottningin Marion Jones sá eiginmann sinn inn- sigla gullverðlaunin þegar hann kastaði 21,79 metra i loka- umferðinni og komst þar með fram úr Þjóðverjanum Oliver- Sven Buder. Úkrainumaðurinn Aleksandr Bagach, sem sviptur var gullverðlaununum á heims- meistaramótinu í Aþenu fyrir tveimur árum vegna lyfjaáts, hafhaði svo í þriðja sætinu. Fyrsti heimsmeistaratitillinn Þetta er fyrsti heimsmeist- aratitilinn sem fellur Hunter í skaut og þegar úrslitin voru ráðin fagnaði hann ógurlega enda oftar en ekki í skugganum á afrekum eiginkonu sinnar sem hefur verið ósigrandi á hlaupabrautinni. -GH Vésteinn Hafsteinsson landsliðsþjálfari: Ekki nógu gott Vésteinn Hafsteinsson, landsliðs- þjálfari í frjálsum íþróttum, var ekki alltof kátur þegar DV náði tali af honum í Sevilla í gær en Vala Flosadóttir, Þórey Edda Elísdóttir og Guðrún Amardóttir höfðu þá all- ar lokið keppni á mótinu. „Það verður að segjast eins og er að þetta er náttúrulega ekki nógu gott. Ef við byxjum á Þóreyju þá stökk hún betur tæknilega en hún hefur verið að gera í sumar og hún var frekar óheppin að fara ekki yfir 4,25 metrana því hún var hásbreidd frá því. Árangur Þóreyjar er samt það jákvæðasta hingað til hjá okkur. Það var spurning hvort hún gæti keppt vegna meiöslanna í bakinu sem hafa verið að plaga hana. Vala var í vandræðum allan tímann og þetta var bara ekki hennar dagur. Samt sem áður er þetta næstbesta mótið hennar í sumar. Hún hefúr ekki verið að gera neitt meira en þetta utanhúss og hver sem ástæðan er fyrir því að hún stekkur betur innanhúss veit ég ekki. Við þurfum að kafa ofan í þetta því þetta er búið aö gerast tvö ár í röð hjá henni. Miðað við það sem Vala hefur verið að gera undanfarið er þessi hæð í sjálfu sér svipað því sem maður reiknaði með hjá henni en ég bjóst kannski við aö hún færi 4,35- 4,40. Þetta er alsterkasta stangar- stökkskeppni sem fram hefur farið sem sést best á því að sjö fóru yfir 4,40 metrana. Þessi árangur Völu er undir væntingum en það þýðfr ekk- ert að svekkja sig á þvi heldur keyra þetta áfram. Guðrún er eins og Vala aö ná sínum næst- besta árangri í sumar en eins og hún sagði sjálf er hún bara ekki betra en þetta eins og staðan er í dag. Ástæðuna má rekja til langvarandi meiðsla í hásin og hún er búin að vera á þessu róli 55,5 sek. í 6-7 hlaupum í sumar. Guðrún hefur ekki getað undirbúið sig eins og hún hefði viljaö," sagði Vésteinn. -GH C.J. Hunter er hér í sigurvímu eftir að hafa tryggt sér heimsmeistaratitilinn i kúluvarpi með því að varpa kúlunni 21,79 metra. Reuter Guðrún úr leik - 2. besti tími hennar í Guðrún Amardóttir hefúr lokið þátttöku á heimsmeistaramótinu. Hún komst ekki áfram í 400 metra grindahlaupinu en undarásir voru á dagskrá í gær. Guðrún kom í mark á 55,45 sekúndum og varð í 5. sæti í sínum riðli og með 19. besta tímann en 16 komust áfram í milliriðla. Guðrún átti 17. besta tímann af þeim 28 stúlkum sem kepptu í gærmorgun. Hún hljóp á 8. braut og var hæg á fyrstu 200 metrunum en þrátt fyrir ágætan endasprett varð 5. sætið niðurstaðan. sumar dugöi skammt Þess má geta að íslandsmet Guðrúnar er 54,59 sekúndur en best hefúr hún hlaupið á þessu ári á 55,31 sekúndu. Það voru mikil vonbrigði fyrir Guðrúnu að komast ekki áfram í milliriðla en á þeim tveimur heimsmeistaramótum sem hún hafði keppt á fyrir þetta mót komst hún í milliriðla þrátt fyrir að hlaupa á lakari tíma en í gær. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.