Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1999, Blaðsíða 8
28
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1999
Sport
DV
Vanir
spennu
í hörkuspennandi leikjum og stóðu því uppi sem sigurvegarar
KR-ingar lögðu
Framara, 2-1, í
hörkuspennandi
úrslitaleik íslands-
mótsins i 5. flokki
karla í knatt-
spyrnu sem fór
fram á velli HK í
Fagralundi á laug-
ardag.
KR-ingar byrj-
uðu leikinn betur
og átti Teódór El-
mar Bjamason skot
í stöng snemma í
leiknum. Framarar
léku þó vel og skor-
uðu fyrsta mark
leiksins og þar var
að verki Heiðar
Júlíusson sem
skoraði með skoti eftir homspyrnu.
Fram var því yfir í hálfleik en
KR-ingar
gáfust
ekki upp
heldur
börðust
áfram og
var það
Skúli
Frið-
geirsson
sem jafn-
aði leik-
inn um
miðjan
siðari
hálfleik.
Eftir það
var leik-
urinn í
járnum
en
skömmu fyrir leikslok skoraði Teó-
dór Elmar úrslitamarkið og tryggði
KR þar með sigurinn.
Framarar eiga skilið hrós þar
sem þeir léku fráhærlega i
leiknum en liðin tvö. em ótrú-
lega jöfn að getu. Til að mynda
fór úrslitaleikurinn hjá B-liðum
liðanna 0-0 og því varð úrslitaleikur
A-liðanna algjör úrslitaleikur því
það lið er ynni hann, stæði uppi
sem íslandsmeistari.
Stóðust taugatitringinn
Í3. flokki kvenna kepptu KR og
ÍBV til úrslita á Ásvöllum í gær.
Leikurinn var hörkuspennandi og
taugatitringur greinilega mikill hjá
báðum liðum því bæði lögðu
áherslu á að verjast vel og því var
lítið um marktækifæri.
Eftir venjulegan leiktíma var
staðan því 0-0 og þurfti að grípa til
framlengingar. KR-stúlkur
voru ákveðnari og skoruðu
eftir 5 mínútur og þar var að
verki Hólmfríður Magnús-
dóttir. Aðeins mínútu síðar
bætti Anna Berglind Jóns-
dóttir við öðru marki KR og
innsiglaði þar með sigur-
inn.
ÍBV-stúlkur reyndu hvað
þær gátu til að jafna
leikinn og áttu nokkur
ágæt færi en náðu ekki að
skora að þessu sinni þrátt
fyrir góðan leik.
Bikarmót 16 ára og yngri í frjálsíþróttum fór fram um helgina:
KR-ingar stóðu uppi sem sigurvegarar í 5. flokki karla í knattspyrnu eftir geysilega spennandi úrslitaleik er þeir unnu Fram, 2-1.
KR íslandsmeistari í 3. flokki kvenna og 5. flokki karla:
Börðust áfram
Helgi Mar Pétursson og Teó-
dór Elmar Bjarnason, KR-ingar,
voru að vonum ánægðir eftir að
titillinn var í höfn.
„Ég var alveg pottþéttur á því
að við myndum vinna þetta. Ég
vissi að við myndum vinna á síð-
ustu mínútunni. Þetta hefur
gerst áður og við hættum aldrei.
Á Shellmótinu lentum við undir,
2-1, í úrslitaleik. Það er
skemmtilegast að spila boltanum
og náttúrulega að skora og gefa
góðar sendingar. Á fóstudaginn
æfðum við hornspyrnur og auka-
spymur og hvernig við ættum
að skipuleggja leik okkar aðeins
betur. Við byrjum alltaf illa og
síðan bara kemur þetta,“ sagði
Helgi Mar.
„Maður er vanur að spila
svona leiki. Það var bara mjög
gaman að skora úrslitamarkið
og mér leið bara vel. Ég er búinn
að æfa í fjögur ár og stefni á at-
vinnumennsku," bætti Teódór
við.
KR-stúlkur fögnuðu ákaft er þær
sigruðu ÍBV, 2-0, í úrslitaleik
íslandsmótsins í 3. flokki kvenna.
Úrslit
- úr bikarkeppni 16 ára og
yngri á Laugarvatni
1. FH...............113,5 stig
2. ÍR-A ........-. . . . 103,5 stig
3. UMFA/Fjölnir.......80,5 stig
4. HSK.......................77 stig
5. UMSB ..............71,5 stig
6. ÍR-B ..............53,5 stig
7. ÚÍA.....................52,5 stig
íslandsmet setti Ágústa
Tryggvadóttir, HSK í kúluvarpi
er hún kastaði 12,75 metra.
Umsjón
íris B. Eysteinsdóttir
Enn vinnur FH
hjálpuðu
KR-stúlkur ákváðu að prófa að
flétta hver aðra fyrir einn leik
fyrr í sumar. Fléttumar virtust
hjálpa og síðan hafa þær mætt 15
mínútum fyrr í alla leiki til að
flétta hver aðra.
„Á Pæjumótinu vorum við all-
ar með fléttur í einum leik og
síðan höfum við ekki tapað,“
sagði Sólveig Þórarinsdóttir fyr-
irliði sem er í miðjunni á mynd-
inni fyrir ofan ásamt markaskor-
uranum Hólmfríði Magnúsdótt-
ur og Önnu Berglindi Jónsdótt-
ur.
„Mér líður mjög vel núna.
Þetta er mikið spennufall og létt-
ir. Við áttum eiginlega fyrri hálf-
leikinn og svo kom kafli í seinni
hálfleik þar sem við duttum nið-
ur en við rifum okkur upp í
framlengingu og það dugði sem
betur fer. Það var mjög mikið
um kýlingar í leiknum. Við ætl-
uðum nefnilega ekki að fá á okk-
ur mark. Það er góð liðsheild og
góður mórall í liðinu og það
hjálpaði," sagði Sólveig.
Bikarkeppni 16 ára og yngri fór
fram í roki og rigningu á Laugar-
vatni um helgina og það vom enn
einu sinni FH-ingar sem stóðu
uppi sem sigurvegarar. í öðm sæti
hafnaði A-lið ÍR og sameiginlegt lið
Fjölnis og UMFA var í þriðja sæti.
FH tefldi fram mjög sterku liði
þar sem breiddin vai- mikil. FH-
ingar hafa verið framarlega í frjáls-
íþróttum í sumar og hafa staðið sig
vel á flestum vígstöðvum. Um síð-
ustu helgi urðu þeir bikarmeistar-
ar fullorðinna og fyrr í sumar
unnu þeir meistaramótið.
Mótið fór fram samhliða keppni
fuliorðinna í fjölþraut á glæsileg-
um velli þeirra HSK-manna. Eitt
íslandsmet féll í
bikarkeppninni
en það var
heimakonan
Ágústa Tryggva-
dóttir sem setti
glæsilegt met í
kúluvarpi er
hún kastaði 12,75
metra. Reyndar
var Sigrún Fjeld-
sted fyrr til að
bæta gamla met-
ið en hún
kastaði kúlunni
lengst 12,50
metra og bætti þar með íslands-
metiö, en Ágústa kastaði enn
lengra og eignaði sér metið. Ágústa
keppti samhliða bikarkeppninni í
fjölþraut fullorðinna og stóð sig
með miklilli prýði þrátt fyrir að
vera aðeins 16 ára gömul. Hún
hafnaði i öðru sæti með 4219 stig
sem er aðeins 9 stigum lakara en
sigurvegarinn í sjöþraut, Vilborg
Jóhannsdóttir hlaut.
„Mótið gekk mjög vel fyrir sig og
var haldið á mjög góðum velli á
Laugarvatni. Að vísu var veðrið
frekar óhagstætt, rigning á köflum
og nokkuð hvasst. Það hafði heil-
mikil áhrif á árangur hjá krökkun-
um. Það stóðst tímaseðill og fram-
kvæmd vel,“ sagði Kári Jónsson úr
mótsstjórn i lok mótsins en honum
fannst krakkamir taka veðrinu
vel.
„Þau voru mjög jákvæð. Það var
frábært að heyra þau tala sín á
milli og segja að þetta væri jafnt
fyrir alla. Árangurslega stendur
þetta kúluvarp og hvað þessir
krakkar era mörg mjög efnileg
uppúr. Það er meiri breidd en mað-
ur hefur séð lengi. Þarna vora að
koma inn yngri krakkar en 16 ára
og þar af leiðandi var þetta
skemmtileg heild sem kom útúr
þessu. FH er samt greinilega með
langmesta breidd," sagði Kári.
Stúlkurnar tilbúnar að hlaupa af stað í langhiaupi.