Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1999, Síða 10
30
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1999
Sport
i>v
Gunnar Gunn-
arsson fagnaði
sigri í keppn-
inni en hér set-
ur hann „Trúð-
inn“ í bakkgír-
inn og bjargar
sér frá veltu
með því að
botna hann.
DV-myndir JAK
Gunnar Pálmi Pétursson heldur fyrsta sæti stigakeppninnar í götubflaflokki
en hann hafnaði í þriðja sæti keppninnar.
Gekkupp
- hja Gunnari
„Ég get ekki verið annað en
ánægður með árangur dagsins,
fysta sætið í götubílaflokkinum og
yfir allan pakkann," sagði Gunnar
Gunnarsson sem sigraði í keppn-
inni.
„Þetta leit ekki vel út í morgun,
vélin sem við vorum að setja í bíl-
inn í gærkvöldi lekur vatni inn í
vélina, upp með stud-boltum, sem
var verið að setja í hana. Við leist-
um vatnstappana á blokkinni til að
minnka vatnsþrýstinginn svo að
það gekk aðeins betur en samt höf-
um við þurft að skipta þrisvar um
olíu á vélinni í dag.
Það var ekkert rosa „aktion" í
fyrstu tveimur þrautunum, þraut
númer tvö var bara rugl. Svo fór
Gunnarssyni
þetta að síga í rétta átt hjá mér.
Fimmta, sjötta og sjöunda brautir
voru góðar hjá ménx
Ég held að það hafi verið
langflottast hjá mér þegar ég fór í
fimmtu brautina. Ég fór á afturhjól-
unum upp meira en helminginn af
brekkunni. í fjórðu þraut fannst
mér hann vera að fara aftur fyrir
sig, rak hann í bakkgírinn og steig
hann í botn, bara með nítóinu og
öllu.
Þessi sigur er ekki síst að þakka
aðstoðarmönnum mínum sem stóðu
sig afbragðsvel, einnig aðstoðar-
mönnum Sigurðar Þ. Jónssonar sem
aðstoðuðu mig líka. Þeir eiga heiður
skilið, þetta er þeirra sigur líka.“
sagði Gunnar.
Vigdís og Gísli við henglana af Arctic Trucks-bflnum eftir keppnina. Jeppinn
verður vafalaust eins og nýr eftir þrjár vikur þegar lokaumferð
íslandsmeistaramótsins fer fram á Hellu. *
Hrakfarr
„Þetta fór illa hjá mér í dag“ sagði
Gísli G. Jónsson sem var kominn
með góða forystu að keppninni
hálfnaðri.
„Ég brýt hásinguna í sundur í
fimmtu braut og þá kemur mikil
spenna upp þar sem ég missi af
sjöttu braut og fer aftur fyrir í þeirri
sjöundu. Þetta eykur spennuna í
mótinu, þvi sem eftir er af því,“
sagði Gísli. Arctic Trucks-jeppinn
hans fór nokkrar veltur í fimmtu
brautinni. „Maður bara horfði inn i
drifiö," sagði Gísli.
Eftir þetta varð hamagangur í
öskjunni hjá Gísla og aðstoðarmönn-
um hans sem freistuðu þess að sjóða
hásinguna saman. Það tókst.
Veltir aftur
' Gísli veltir svo aftur í síðustu
brautinni og var sú velta óhugnanleg
á að horfa. Þegar starfsmenn keppn-
innar koma að bílnum kalla þeir
strax á sjúkrabíl. Þeim sýndist önn-
ur hendi Gísla vera undir veltibúr-
inu, þar sem bíllinn liggur á hvolfi.
Bandið sem á að halda höndum öku-
mannsins innan veltibúrsins hafði
slitnað.
„Ég vissi alveg af mér allan tím-
ann sem bíllinn var að velta niður.
Ég verð að viðurkenna það, að ég
vankaðist aðeins, fékk á mig slynk
en vissi af mér allan tímann og þett-
að var allt i lagi. Þegar maður snýst
marga hringi í einu, þá ringlast mað-
ur.. Ég var hálffastur í bílnum eftir
veltuna, það var sandur á mér og ég
var hálfþvingaður. Ég náði ekki að
losa beltin alveg strax en var allt í
lagi,“ sagði Gísli.
„Ég vO bara þakka strákunum
fyrir að hafa staðið sig mjög vel með
í dag, þeir voru snöggir að laga bíl-
inn, það var alveg ótrúlegt," bætti
Gísli við.
-JAK
Haraldur Pétursson stóð sig vel á Mussónum. Hann lenti í fjórða sæti keppninnar og er þriðji í stigakeppninni til
heimsmeistaratitils.