Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999
21
Sport
Gunnar til Roda
Gunnar Einarsson knattspyrnumaður
er kominn á ný til hollenska A-deildar-
liðsins Roda en hann var leigður til Ven-
lo í B-deildinni seinni hluta síðasta tíma-
bils. Gunnar var í leikmannahópi Roda
þegar liðið sigraði Nijmegen, 4-3, í fyrra-
kvöld. -VS
Genk með sýningu
Genk burstaði Standard Liege, 4-0, í belgísku A-deildinni í
knattspymu í gærkvöld, í vígsluleik á nýjum velli félagsins.
Öll mörkin komu í fyrri hálfleik, Hendrickx gerði tvö og
Horvath tvö, og kom eitt þeirra eftir homspymu Bjarna
Guðjónssonar, sem lék vel í stöðu hægri bakvarðar. Þórður
Guðjónsson spilaði á miðjunni hjá Genk, var ekki áberandi en
þó mjög virkur í miðvallarspilinu. -KB/VS
„Svekkjandi"
„Það var svekkjandi að fá ekki að
minnsta kosti stig gegn Rangers. Við vor-
um mikið betri á löngum köflurn," sagði
Ólafur Gottskálksson, markvörður Hib-
ernian, sem lék mjög vel gegn skosku
meisturunum á laugardag eins og frám
kemur á bls. 20. -VS
STy) ítalía
Bologna - Torino..............0-0
Fiorentina - Bari.............1-0
1-0 Chiesa (46.)
Inter Milano - Verona.........3-0
1-0 Vieri (16.), 2-0 Vieri (53.), 3-0
Vieri (65.)
Juventus - Reggina ...........1-1
1-0 Inzaghi (30.), 1-1 Kallon (47.)
Lecce - AC Milan..............2-2
0-1 Weah (55.), 1-1 SDavino (60.), 1-2
Shevchenko (70.), 2-2 Lucarelli (81.)
Perugia - Parma ..............1-1
1-0 Olive (46.), 1-1 Stanic (77.)
Piacenza - Roma ..............1-1
O-l Totti (13.), 1-1 Stroppa (82.)
Venezia - Udinese ............1-1
0-1 Muzzi (54.), 1-1 Maniero (71.)
Lazio - Cagliari .........í kvöld
ÞÝSKAUMP
Kaiserslautern - Bielefeld . . . 0-2
0-1 Labbadia (51.), 0-2 Meissner (87.)
Schalke - Hamburger SV .... 1-3
1-0 Wilmots (31.), 1-1 Hollerbach (45.),
1-2 Kovac (54.), 1-3 Hoogma (58.)
Bayern Miin. - Unterhaching . 1-0
1-0 Cruz (40.)
Stuttgart - Leverkusen ..1-2
1-0 Zoldo (26.), 1-1 Pontes (44.), 1-2
| Beinlich (77.)
Wolfsburg - Hansa Rostock . . 2-0
1-0 Weiser (11.), 2-0 Nowak (43.)
Hertha Berlín - Bremen...1-1
1-0 Aracic (10.), 1-1 Bogdanovic (75.)
Freiburg - 1860 Munchen . . . 3-0
1-0 Zkitischwili (44.), 2-0 Gunes (80.),
3-0 Slimane (88.)
Ulm - Dortmund .............0-1
0-1 Bobic (11.)
Frankfurt - Duisburg........2-2
1-0 Salou (24.), 1-1 Osthoff (37.), 2-1
Gie-Mien (47.), 2-2 Wolters (75.)
Hamburger 3 2 1 0 8-3 7
Frankfurt 3 2 1 0 8-4 7
Leverkusen 32104-1 7
Wolfsburg 3 2 0 1 5-3 6
Dortmund 3 2 0 1 3-2 6
Hertha 3 1 2 0 7-4 5
Bielefeld 3 1 2 0 4-2 5
Freiburg 3 1116-4 4
Bayern M. 3 1 1 1 3-4 4
Schalke 3 1113-4 4
1860 M. 3 1 0 2 5-6 3
Unterhach. 3 1 0 2 24 3
Rostock 3 1 0 2 6-9 3
Kaisersl. 3 1 0 2 3-6 3
Bremen 3 0 2 1 1-2 2
Duisburg 3 0 2 1 24 2
Ulm 3 0 1 2 2-6 1
Stuttgart 3 0 12 1-5 1
Santa Cruz, hinn 18 ára gamli piltur
frá Paraguay, tryggði Bayem sinn
fyrsta sigur á tímabilinu með glæsi-
legu marki gegn nágrönnunum og
nýliðunum í Unterhaching. Uppselt
var á leikinn, áhorfendur 63 þúsund,
enda í fyrsta skipti sem þessi lið
mætast' i deildakeppninni.
Bayern Miinchen hefur sektað
franska bakvörðinn Bixente Lizar-
azu um 400 þúsund krónur fyrir að
slá félaga sinn, Lothar Mattháus, á
æfingu á fostudaginn. Mattháus segir
aö allir séu yfírspenntir vegna
slæmrar byrjunar liðsins á tímabil-
inu, þeirrar verstu i átta ár.
Frankfurt nýtti ekki gullið tækifæri
til að taka hreina forystu í deildinni
og mátti sætta sig við 2-2 jafntefli
gegn Duisburg í gær. Bachirou Sal-
ou skoraði þar sitt fjórða mark fyrir
Frankfurt í fyrstu þremur um-
ferðunum. Frankfurt hafði unniö sex
deildaleiki í röð, fjóra síðustu í fyrra
þegar liðiö bjargaði sér frá faíli á
ævintýralegan hátt, og tvo fyrstu á
þessu tímabili.
Helgi Kolviðsson lék fyrri hálfleik-
inn með Mainz sem tapaði, 3-0, fyrir
Cottbus í B-deildinni.
-VS
Fyrsta umferðin í ítölsku knattspyrnunni:
Marcelo Salas tryggði Lazio 1-0 sigur á
Manchester United í leik liðanna um Stórbikar
Evrópu í Mónakó á fóstudagskvöldið. Lazio var
mun betri aðilinn og Alex Ferguson, stjóri
United, spáði liðinu ítalska meistaratitlinum eft-
ir leikinn.
Brian Laudrup skoraði eitt marka Ajax í
0-3 sigri á Cambuur í hollensku A-deild-
inni. Feyenoord vann Heerenveen, 3-1,
og PSV sigraði Fortuna Sittard, 2-1.
Stórveldin þrjú, Feyenoord, PSV og
Ajax, byrja því öll vel og hafa öll
fullt hús stiga eftir þrjár umferð-
ir. Willem II er 1 fjórða sætinu
með 7 stig.
Katrín Jónsdóttir og
stöllur hennar í Kolbotn
steinlágu fyrir toppliðinu
Asker, 4-0, í norsku A-
deildinni á laugardag-
Helgi Sigurósson lék
síðustu 22 mínúturnar
með Panathinaikos sem
sigraði Ionikos, 1-0, í 2, um-
ferð grisku bikarkeppninnar.
AGF tapaði fyrir Silkeborg, 2-0, í dönsku A-
deildinni í gær. Ólafur H. Kristjánsson lék á
miðjunni hjá AGF en Tómas Ingi Tómasson
var ekki með. Önnur úrslit: Bröndby-Herfólge
2-2, Esbjerg-AB 0-1, Vejle-Viborg 2-3, OB-AaB
2-2. AB er efst með 16 stig en Bröndby og AaB
koma næst með 13 og Herfölge með 12.
Morten Olsen var í gær ráðinn þjálfari
danska landsliðsins í knattspyrnu, frá og
með 1. júlí á næsta ári, og þá tekur hann
við af Bo Johansson. Ráðningin er miðuö
við að Danir komist i úrslitakeppni EM
næsta sumar en að öðrum kosti hættir Jo-
hansson eftir undankeppnina í haust.
Arnar Þór Viöarsson átti þokkalegan
leik á miðjunni hjá Lokeren þegar liðið
gerði jafntefli, 0-0, við nýliðana í Geel í
belgísku A-deildinni í fyrrakvöld. Þjálf-
aralaust lið Lokeren lék illa og forseti
félagsins refsaði leikmönnum með þvi
að láta þá mæta á aukaæfingu í gær-
morgun.
Club Brugge er eina liðið með fullt hús
stiga í Belgíu, hefur 12 stig eftir 0-2 sig-
ur á Aalst. Anderlecht gerði óvænt 3-3
jafntefli heima við Lommel og er með
10 stig, eins og Westerlo. Síðan koma
Gent og Lierse meö 9 stig og Genk
með 8 stig. Lokeren er í þriðja
neðsta sætinu með 2 stig eftir fjór-
ar umferðir.
Paris SG tapaði i gærkvöld sínum
fyrsta leik í frönsku A-deildinni á
tímabilinu, 1-0 gegn Lyon. Sonny
Anderson skoraði sigurmarkið.
Mónakó náði í staðinn forystunni í
deildinni með 3-0 sigri á Troyes og
skoraði David Trezeguet tvö mark-
anna. Mónakó, Paris SG, Lyon og
Auxerre hafa 10 stig hvert á
toppnum i Frakklandi en Nantes
og Strasbourg eru með 9 og
Bordeaux með 8 stig.
-KB/VS
Christian Vieri a
fleygiferð f leiknum
gegn Verona í gær.
Reuter
Verona
Christian Vieri sló
gegn í fyrsta leik sín-
um með Inter Milano
í gær þegar liðið
sigraði Verona
sannfærandi, 3-0, j
í fyrstu umferð
ítölsku A-deildar-
innar.
Vieri, sem Inter keypti frá Lazio í sumar, skoraði öll þrjú
mörkin og gaf til kynna að hann og Inter ætluðu sér stóra hluti
í vetur. Ronaldo kom inn á sem varamaður hjá Inter um miðj-
an síðari hálfleik, fyrir Ivan Zamorano, og mínútu síðar kom
þriðja og síðasta markið frá Vieri.
„Ég er mjög ánægður með þennan afgerandi sigur eftir
alla þá gagnrýni sem við fengum á undirbúningstímabihnu,"
sagði Marcello Lippi, þjálfari Inter.
Önnur ný stjarna í Mílanóborg, úkraínski miðherjinn And-
reij Shevchenko, byrjaði líka á að skora. Hann gerði seinna
mark meistara AC Milan sem máttu sætta sig við jafntefli, 2-2,
gegn nýliðum Lecce.
Enrico Chiesa leysti meiddan Gabriel Batistuta af hólmi og
tryggði Fiorentina 1-0 sigur á Bari. Parma, enn i sárum eftir að hafa
fallið fyrir Glasgow Rangers í slagnum um sæti í meistaradeildinni,
slapp fyrir horn gegn Perugia þegar Mario Stanic jafnaði metin seint í
leiknum. Juventus mátti sætta sig við jafntefli á heimavelli gegn nýliðum
Reggina i gærkvöld. -VS
sigri á
Bland í noka
Vieri
- skoraði öll
mörk Inter í
Bið hjá Guðjóni
Það skýrist ekki fyrr en síðar i vikunni hvort Lokeren
í Belgíu fái Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfara í knatt-
spymu, til sín til viðræðna um þjálfarastööuna hjá félag-
inu. Georges Leekens, nýrekinn landsliðsþjálfari Belga,
er enn fyrsti valkostur og hvort hann verður ráðinn eða
ekki kemur i ljós eftir nokkra daga en forseti Lokeren
er fjarverandi fram eftir vikunni.
Verði Leekens ekki ráðinn vill forseti Lokeren semja
við Guðjón en samkvæmt heimildum DV er hann mjög hrif-
inn af hugmyndum íslendingsins um þjálfun og segir þær fara
vel saman við sínar.
Guðjón mun hafa fengið vilyrði frá Knattspymusambandi íslands
um að losna þaðan þann 9. september, eða eftir leikinn við Úkraínu,
ef honum verður boðin þjálfarastaðan hjá Lokeren. Hann myndi þó
væntanlega stýra landsliðinu gegn Frökkum í október. -KB/VS
Eyjólfur fer
í uppskurð
- í dag og missir af landsleikjunum
Eyjólfur Sverrisson, einn burða-
rása landsliðsins í knattspyrnu,
verður skorinn upp á hné í Berlín í
dag. Hann missir þar með af lands-
leikjunum við Andorra og Úkraínu,
og væntanlega einnig leiknum í
Frakklandi í október. Þá verður
hann ekki með Herthu Berlín í
tveimur fyrstu umferðunum í meist-
aradeildinni.
„Það var ekki um annað að ræða,
ég hef verið slæmur í hnénu í fimm
vikur og gat orðið ekki æft eða spil-
að án þess að fá sprautur. Það er
fúlt að missa af því sem er framund-
an hjá landsliðinu og Herthu en ég
verð frá í einar 4-5 vikur,“ sagði
Eyjólfur við DV í gærkvöld.
Hertha gerði 1-1 jafntefli við
Bremen á heimavelli á laugardag-
inn og Eyjólfur var að dómi
Berliner Zeitung annar tveggja
bestu leikmanna Herthu. Hann lék
allan tímann í vörn liðsins.
„Það var súrt að vinna ekki leik-
inn, við vorum mun betri og þeir
skoruðu algjört grísamark, boltinn
skrúfaðist af hausnum á einum
þeirra í markhornið hjá okkur,“
sagði Eyjólfur Sverrisson.
-VS
íþrótta- og Ólympíusamband íslands
auglýsir:
r r
Þjálfarastyrkir ISI
Verkefnasjóður íþrótta- og Ólympíusambands íslands
auglýsir hér með til umsóknar styrki fyrir íþróttaþjálfara
til að kynna sér þjálfun erlendis.
Veittir verða 8 styrkir, hver að upphæð kr. 50.000.
Við úthlutun verður leitast við að styrkja sem flestar
íþróttagreinar. Þjálfarar hvers kyns hópa (afreksmanna,
barna og unglinga o.s.frv.) koma jafnt til greina við
úthlutun. Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja um
styrkina. Umsóknum með lýsingu
á náms- og starfsferli, auk greinargóðra lýsingar á
fyrirhugaðri ráðstöfun styrksins og ávinningi
íþróttahreyfingarinnar af henni, skal skilað til skrifstofu
ÍSÍ, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fýrir
20. september nk.
Frekari upplýsingar veitir Kristinn Reimarsson,
sviðsstjóri Útbreiðslu- og þróunarsviðs á skrifstofu
ÍSÍ, eða í síma 581 3377.