Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Síða 5
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999 23 Sport Stjórnað með GSIVI Sigurður Grétarsson, þjálfari Breiða- bliks, var i leikbanni þegar lið hans tap- aði fyrir Vikingi, 1-0, í úrvalsdeildinni á fostudagdskvöldið. Hann tók þó þátt í leiknum með því að vera í GSM-sam- bandi við Jón Þóri Jónsson, aðstoðar- mann sinn, sem stýrði Blikum af vara- mannabekknum. -VS Fjögur mörk Aftureldingar Afturelding vann Hugin/Hött, 4-2, í fyrri leik liðanna í und- anúrslitum 3. deildar karla á laugardag en sigurvegarinn úr viðureignum liðanna tryggir sér sæti í 2. deild. Þorvaldur Árnason gerði 2 mörk og Halldór Halldórsson og Jón Rúnar Ottósson eitt hvor en fyrir austanmenn skoraði Hallur K. Ás- geirsson sem hefur gert öll 6 mörk liðsins í úrslitakeppninni. í hinum leiknum gerðu Njarðvík og KÍB 0-0 jafntefli. -ÓÓJ Att þátt í 11 í röð Grétar Ólafur Hjartarson hefur verið allt í öllu í sóknarleik Grindvíkinga í sumar. Grétar skoraði í sjötta leiknum í röð gegn Keflavik og hefur átt þátt í síð- ustu 11 mörkum liðsins, skorað 7 og lagt upp 4. Alls hefur Grétar skorað 10 mörk í sumar og lagt upp fjögur. -ÓÓJ Sindri byrjar vel Stelpumar í Sindra byrja úr- slitakeppni 1. deildar kvenna vel en liðið vann FH 3-0 á heimavelli á laugardag í 1. umferð. Það var Jóna Benný Kristjánsdóttir sem gerði þrennu fyrir Sindra í leikn- um. í hinum leiknum vann sameig- inlegt lið Þórs og KA lið RKV 2-1 á Akureyri. Lóa Björg Gestsdóttir skoraði fyrir RKV en Guðrún Við- arsdóttir skoraði fyrir Þór/KA en hitt markið var sjálfsmark gest- anna. -ÓÓJ Grétar Hjartarson og Scott Ramsey sáu um öll mörk Grindvíkinga Keflavík og fagna hér sigurmarki Grétars. DV-mynd E.ÓI. Keflavík2(l) - Grindavík 3 (1) Bjarki Guðmundsson @ - Ragnar Steinarsson, Marko Tanasic, Kristinn Guðbrandsson @ - Gestur Gylfason (Magnús Þorsteinsson 82.), Snorri M. Jónsson (Rútur Snorra- son 57.), Gunnar Oddsson, Zoran Daníel Ljubicic, Eysteinn Hauksson j © - Kristján Brooks, Þórarinn Kristjánsson. Gul spjöld: Tanasic, Zoran Daníel. mmM|M Albert Sævarsson - Sveinn Ari Guðjónsson (Hjálm- ASiÍMÍÉÉaiaM ar Hallgrímsson 75.), Guðjón Ásmundsson ©, Stevo l Vorkapic ©@, Bjöm Skúlason - Duro Mijuskovic, ðli Stefán Fló- | ventsson @, Sinisa Kekic @, Vignir Helgason (Ólafur Ingólfsson 75.) ; - Scott Ramsev ©(Jóhann Helgi Aðalgeirsson 89.), Grétar Ólafur Hjartarson @@. Gul spjöld: Albert, Óli Stefán, Vorkapic, Ramsey. Keflavík: Keflavik - Grindavik Keflavík - Grindavik Markskot: 8 13 Horn: 8 1 Áhorfendur: Um 650. j Völlur: Sæmilegur en blautur j Dómari: Jóhannes Valgeirs- 1 son sem dæmdi vel. Maður leiksins: Grétar Olafur Hjartarson, Grindavík Sannkallaður markvarðarhrellir, skoraði tvö og lagði upp eitt. BGÍ-'V- DEILD KARLA —------------ Tindastóll - Þór................4-1 Guðjón Jóhannsson, Sverrir Þór Sverrisson, Atli Björn E. Levy, Jos- eph Sears - Elmar Eiriksson. Léttir - Selfoss................2-1 Óskar Grétarsson, Þórir Ingólfsson - Jón Steindór Sveinsson. Völsungur - HK..................0-2 Eyþór Sverrisson, Stefán Guðjónsson. Ægir - Sindri...................0-7 Hermann Stefánsson 3, Ármann Björnsson 2, Pálmar Hreinsson, Alm- ir Mestovic. Leiknir R. - KS ................0-2 Haseta Miralem 2. Tindastóll 16 12 2 2 53-10 38 Sindri 16 8 7 1 26-5 31 Þór A. 16 8 3 5 30-24 27 KS 16 8 2 6 19-18 26 Selfoss 16 7 4 5 35-30 25 Leiknir R. 16 6 6 4 26-21 24 HK 16 5 4 7 27-35 19 Léttir 16 3 4 9 25-45 13 Ægir Völsungur 19-44 14-42 Tindastóll tryggði sér meistaratitil 2. deildar og sæti í 1. deild með ör- uggum sigri á Þórsurum. Sindri er með 1. deildarsætið í hönd- unum og dugar að vinna Létti eða Völsung. Ægir og Völsungur þurfa hins vegar nánast kraftaverk til að forðast fall í 3. deild. Grindavík - vann fyrsta sigurinn á Keflvíkingum á útivelli Grindvíkingar höfðu betur í slag sínum við Keflvíkinga í Keflavík á laugardaginn og fengu 3 dýrmæt stig í slagnum um að halda úrvafsdeild- arsæti sinu. Keflvíkingar dragast að sama skapi niður í botnpakkann í stað þess að berjast við Skagamenn um Evrópusæti sem hefði orðið raunin með sigri þeirra. Leikurinn var nánast í startholunum þegar Grétar hafði komið Grindvíkingum yfir, nánast eins og forgjöf tii Grind- víkinga. Grindvíkingar voru þó öllu beitt- ari upp við mark Keflvíkinga og áttu góðar rispur upp völlinn gegn fá- mennri vörn Keflvíkinga. Bjarki varði vel frá Grétari á 22. mínútu en Grétar átti mjög góðan leik í fram- línu Grindvíkinga. Eysteinn Hauksson jafnaði síðan fyrir heimamenn skömmu fyrir leik- hlé með góðu marki beint úr hom- spyrnu, annað mark hans í sumar frá hornfánanum, sem hlýtur að telj- ast einstakt. Keflvíkingar byrjuðu seinni háif- leikinn mjög sprækir og gerðu harða hríð að vörn Grindvíkinga sem hélt vel með Stevo Vorkopic sem kóng í ríki sínu. Þegar illa gekk fóru Keflvíkingar að missa einbeit- inguna og sendingar urðu ómark- vissar. Þetta skapaði usla í varnar- línu Keflvíkinga sem léku að vanda með 3 menn aftast en áttu að eiga stuðning miðjumanna vísan. Þegar boltinn tapast hins vegar á miðju- svæðinu er voðinn vis þegar miðju- menn sitja eftir eins og kom oft fyr- ir hjá Keflvíkingum. Annað mark Grindvíkinga kom einmitt eftir slík mistök þar sem fljótir framherjar Grindvíkinga, Grétar Ólafur og Scott Ramsey, léku í gegn og Scott lauk sókninni með marki á 64. mínútu. Keflvíkingar jöfnuðu jafnharðan með vítaspymu en Grétar Ólafur skoraði síðan sig- urmark Grindvíkinga eftir svipuð mistök á miðjunni og áður. Keflvík- ingar reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn en án árangurs og urðu að sjá á eftir stigunum til gestanna. Svekkjandi „Það var svekkjandi að tapa þess- um leik. Við héldum að við værum komnir út úr þessu. Það má segja að leikurinn í hnotskurn hafi verið að við vorum með boltann. Þeir vörð- ust vel og nýttu færin. Það er ekkert við því að segja. Ég æfi hornspyrnur og ég er svo sem ekki að hugsa um annað en að koma boltanum inn á hættuleg svæði, ekkert endilega að skora, en það er líka allt í lagi,“ sagði Eysteinn Hauksson, Keflavík. Léttir á okkur „Það léttir vissulega á okkur að ná í stigin hér í Keflavík. Við spiluð- um ágætlega eins og mér finnst við hafa verið að gera í undanfornum leikjum. Deildin er öll í einum hrærigraut þannig að við verðum að klára þá leiki sem við eigum eftir,“ sagði Guðjón Ásmundsson fyrirliði Grindvíkinga. -FÓ Víkingur 1(1) - Breiöablik 0 Gunnar S. Magnússon @@ - Arnar Hallsson, Gor- _____ don Hunter (Daníel Hjaltason, 24.), Sigurður Sig- hvatsson, Þorri Ólafsson - Hólmsteinn Jónasson @, Alan Prentice, Bjami Hall @ (Daníel HaQiðason 66.), Lárus E. Huldarsson - Jón Grét- ar Ólafsson @ (Þrándur Sigurðsson 77.), Sumarliði Ámason. Gul spjöld: Bjami, Sumarliði og Láras. MMHnnM Atli Knútsson @ - Hjalti Kristjánsson @, Ásgeir liÉjUiSiUaaB Baldurs @, Che Bunce, Guðmundur Ö. Guðmunds- son (Guðmundur K. Guðmundsson 45.) - Guðmundur Gíslason, Salih Heimir Porca, Hákon Sverrisson, Hreiðar Bjarnason - Marel J. Bald- vinsson (Pétur Jónsson 71.), Bjarki Pétursson (Atli Kristjánsson 66.). Gul spjöld: Bunce, Guðmundur Ö. og Porca. Víkingur: Vikingur - Breiðablik Markskot: 13 Horn: 2 Áhorfendur: 543. Vikingur - Breiðablik Völlur: Laugardalsvöllur Dómari: Egill Már Markús- son, mjög góður. Hvaö er grænt? - fallbarátta Blika hafin fyrir alvöru 0-A Grétar Hjartarson (3.) með w v góðum skalla fram hjá Bjarka í markinu eftir fyrirgjöf Sveins Ara Guðjónssonar frá hægra kanti. 0-0 Eysteinn Hauksson (41.) w v skoraði beint úr homspymu, Gunnar Oddsson stóð fyrir framan Albert markvörð og truflaði hann. 0-0 Scott Rasmey (64.) lék á v ^ Bjarka markvörð eftir að Grétar hafði stungið boltanum inn fyrir, eftir gott þríhymingspil þeirra. 0.0 Kristján Brooks (67.) af ^ ** öryggi úr vítaspymu eftir að Bjöm Skúlason felldi Þórarin Krist- jánsson innan vitateigs. 0-0 Grétar Hjartarson (75.) w sneiddi boltann fram hjá Bjarka markverði í fiærhomið eftir sendingu Scotts Ramseys frá vinstri. Maður leiksins: Gunnar S. Magnússon Stóð eins og klettur á milli stanganna og varði oft frábærlega. Breiðablik, sem horfði fram á bjarta tíð í upphafi .sumars, skellti sér af full- um krafti í botnbaráttu efstu deildar með tapi gegn Víkingum á fóstudag, 1-0. Vikingar byrjuðu leikinn betur, liðið gerði sér fulla grein fyrir erfiðri stöðu sinni og ætlaði sér sigur og ekkert annað. Víkingar sóttu bæði meira og markvissara og uppskáru mark frá Bjarna Hall fyrir leikhlé. Lengst af síðari hálfleiks virtust bæði lið sætta sig við stöðuna, Víkingar fóru varlega í sóknaraðgerðir sínar og áttu ekki í neinum vandræðum með að verjast máttlitlum sóknum Breiða- bliks, sem sótti ekki af krafti fyrr en fimm mínút- ur voru til leiksloka. Þá pökkuðu Víkingar í vörn- ina og Gunnar S. Magnús- son varði í tvigang meist- aralega frá Blikum. Víkingar eru engan veg- inn búnir að gefast upp í deildinni og hafa krækt sér í sjö stig af síðustu níu mögulegum. Blikar eru á hraðri niðurleið, hafa aðeins unnið einn leik af síðustu ellefu, tapað fjórum síðustu leikjum sínum og virðast ætla að gefa gríninu um þaö græna sem fellur á haustin nýtt líf. -ih 0.0 Bjarni Hall (44.) ýtti bolt- v v anum inn af marklínu eftir „skotsendingu" Sumarliða Ámasonar og fyrirgjöf Hólmsteins Jónassonar. ÞIN FRISTUND -OKKAR FAG V INTER Bíldshöföa 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.