Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Side 8
26 MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999 V Sport DV Landsmótið í Eyjum: „Kom ekki á óvart" Fyrir miðju er sigurvegarinn í flokki 12-13 ára, Tinna Jó- hannsd., GK. María Ósk Jónsd., GA, varð önnur og Eva Björk Halldórsdóttir, GSS, þriðja. U-18 ára landslið íslands sem keppti á EM fyrr í mánuðinum. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari, Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, Guðrún* Gunnarsdóttir, Erna Erlendsdóttir, Erna B. Sigurðardóttir, Elín A. Steinarsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Eifa B. Erlingsdóttir, Ásta B. Gunnlaugsdóttir, liðs- stjóri. Fremri röð frá vinstri: Bára Gunnarsdóttir, Fjóla Friðriksdóttir, Bryndís Jóhannesdóttir, María B. Ágústsdóttir, Elín Þorsteinsdóttir, fyrirliði, Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir, Rakel Logadóttir, Laufey Jóhannsdóttir og Erna S. Sigurðardóttir. Tinna Jónsdóttir úr GK er 13 ára og hefur leikiö golf í tvö ár. Hún hefur náð mjög góðum tökum á íþróttinni. „Ég varð íslandsmeistari 12 ára og yngri í fyrra og sumar vann ég þriðja flokkinn í meistarkeppni Keilis," sagði Tinna. Hún var ánægð með landsmótið í Eyjum og hvernig til tókst og hún segir að það hafi ekki komið sér á óvart að hún skyldi vinna í sínum flokki. „Ég ætla svo að halda áfram að spila golf og vonandi á ég eftir að bæta mig,“ sagöi Tinna að lokum. U-18 stúlknalandslið Islands stóð sig vel á EM: íslenska u-18 ára landslið íslands í stúlknaknatt- spyrnu ferðaðist nýverið til Ungverjalands þar sem það tók þátt í Evrópumóti. Þetta var í fyrsta sinn sem u-18 ára landslið kvenna keppti fyrir íslands hönd og stóðu þær sig með mikilli prýði. Þær unnu alla þrjá leiki sína, Eistland 11-0, írland 2-0 og Ungverjaland 9-0. Þessi árangur er meðal hins besta sem náðst hefur á al- þjóðlegum vettvangi í ís- lenskri knattspyrnu. Evrópumótið er styrk- leikaskipt og íslenska liðið byrjaði í neðsta styrkleika- flokki þar sem það hafði aldrei tekið þátt áður. Stúlk- urnar unnu sér þátttökurétt í fyrri milliriðil keppninnar en hann fer fram í Sviss 24.-30. október. Þar mæta ís- lensku stúlkurnar heima- stúlkum, Spáni og annað hvort Hvíta-Rússlandi, Slóvakíu eða Belgíu. Tvö efstu liðin úr riðlinum fara síðan áfram í síðari milliriðil en efstu tvö liðin úr honum komast í úrslita- keppni Evrópu. Ágætir möguleikar á að koast áfram „Ég held að við eigum jafna möguleika á við Sviss og Spán um að komast áfram. Við erum með mjög gott lið þannig að ég er nokkuð bjartsýnn á þetta,“ sagði Ólafur Guðbjörnsson, þjálfari liðsins, en hann var ánægður með árangurinn í Ungverjalandi. Keppa á móti strákum „Það hefur náttúrlega ekki verið áður svona styrk- leikaskipt keppni en það hefur samt örugglega ekkert íslenskt lið farið í gegnum riðil í Evrópumóti án þess að fá á sig mark. Ég held bara að gæðin á okkar fót- bolta sé miklu betri en þess- ara þjóða sem við kepptum við,“ sagði Ólafur. Liðið vonast til að æfa saman 4-5 sinnum í viku eftir að tímabilinu á íslandi lýkur til að vera reiðubúnar að keppa í milliriðlinum. Stúlkurnar munu auk þess taka þátt í Reykjavíkurmóti með 4. flokki karla til að fá æfíngaleiki til undirbún- ings. „Skemmtum okkur inni á vellinum" „Liðið náði bara að spila svo vel saman. Ég hef ekki hitt svo vel í sumar og þetta er eitthvað sem gerist bara einu sinni," sagði Bryndís Jóhannesdótt- ir, markahæsti leikmaður íslenska liðsins, um markaskorun sína á mótinu. „Inni á vellinum vorum við að skemmta okkur og berjast. Við náðum alveg ótrúlega vel saman, það bara gekk næstum allt upp hjá okkur. Þetta var allt bara alveg frábært, besta ferð sem ég hef farið lengi. Þetta var æðislegur hópur og allir alveg rosalega jafhir. Ég held við eigum möguleika á að kom- ast áfram ef við spilum svona bolta. Það byggir upp sjálfstraustið því við höf- um aldrei skorað neitt mikið. Við vitum núna að við getum þetta,“ sagði hin stórefnilega Bryndís sem leikur með ÍBV í úrvalsdeild kvenna en hún hefur skorað eitt mark í sumar. „Gott mót" Sigurbergur Sveinsson (í miðjunni), GK, sigraði í flokki 12-13 ára. í öðru sæti varð Arnar Vilberg Ingólfsson, GH, og Elfar Halidórsson, GA, varð þriðji. Sigurbergur Sveinsson úr GK er 12 ára og hefur spilað golf í ein fimm ár. Hann vann í sínum flokki á íslandsmótinu í fyrra. Hann sagðist hafa átt von á því að vinna íslandsmeistaratitlinn líka í ár. „Mótið var mjög gott,“ sagði þessi ungi og efnilegi kylfingur. „Ég ætla að halda áfram í golfinu og stefni að því að verða atvinnumaður. Ég er lika í handbolta í Haukum," sagði Sigurbergur. Verðlaunahafar í flokki 14-15 ára. Fyrir miðju er sigurvegarinn, Karl Har- aldsson, GV, Ingvaldur Ben Erlendsson, GSS, varð annar, og Magnús Lár- usson, GKJ, þriöji. „Byrjaði illa" y Karl Haraldsson er 15 ára Eyja- peyi og hefur stundað golf frá því hann var 6 eða 7 ára gamall. Hann sigraði í flokki 14-15 ára drengja á landsmótinu fyrir stuttu. „Það var Þorsteinn Hallgrímsson sem sagði mér að hætta í fótboltanum og ein- beita mér að golfinu og það gerði ég. Ég hef ekki áður unnið jafn- stóran titil og þennan. Ég byrjaði illa en á öðrum degi fór mér að ganga vel og var þremur höggum á eftir fyrsta manni þegar við byrj- uðum í dag. Mér tókst að vinna það upp og gott betur og sigra með tveimur höggum. Ég ætla að reyna að halda áfram á sömu braut, vinna mig upp í landsliðið og jafn- vel að komast í atvinnumennsk- una,“ sagði Karl. -ÓG Umsjón Púttln voru vel útreiknuð af kepp- endunum á Lands- mótinu í golfi sem haldið var í Vest- mannaeyjum um

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.