Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Side 10
28
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999
Sport
i>v
Iropar
áll Halldór Halldórssc
ogj aðstoðarökumaður hans\
Jóhannes Jóhannesson, á
Miisubishi Lancer eru fyrstir í|
rásröð á 20. alþjóðarallinu ser
fram\ fer daganna 2. til
septerrther næstkomandi.
Alls eru 31 aháfnir skráðar
til leiks, þar af er 21 íslensk. Sjö
áhafnir koma fr%Englandi, ein
frá Skotlandií Njíin frá
Frakklandi og ein frá Npregi.
Feðgarn vc Rúnar Jónsson og
Jón R. Ragnarsson eru aðrir
og fyrstur útlendinga er Bret
Ian Gwynne.
Túttugu ár eru nú liðin frá
þvi að Alþjóðarallið var haldið í
fyrsta sinn.
Ralíy Reykjavík mun verðá
gert betri skil í blaðintí á
miðvikudag.
-BG
Fyrsta umferð íslandsmótsins í körtuakstri var í gær:
Magnús magnaður
- náði góðri forystu í stigakeppninni i Kapelluhrauninu á sunnudaginn
20. Alþjóðarallið, sem er nefnt Rally Reykjavík, fer fram um næstu helgi en 31 keppandi tekur þátt í rallinu í ár.
ús og háðu æsispennandi einvígi frá upphafi hægfara keppendur. Guðbergur snarsnerist út
til enda og mátti vart á milli sjá, en Guðberg- af og tapaði miklum tíma og endaði í 18. sæti
Hugað að einum keppnisbílnum í fyrstu umferð íslandsmótsins í körtuakstri um helgina.
Fyrsta umferð íslandsmótsins í körtuakstri
(go-kart) var haldið á rallíkrossbrautinni í
Kapelluhrauni í gær. Allar eru körtumar með
sömu stærð af tvígengis mótor (125 rúmsenti-
metrar) og mega nota 12 keppnisdekk af sömu
gerð og að auki eru bílarnir vigtaðir og þyngd-
ir ef þurfa þykir.
Keppni þessi var hin besta skemmtun og
nokkuð ljóst að körtuakstur á mikla framtíð
fyrir sér ef rétt verður á málum haldið og
kostnaði haldið í
skefjum. Stofnkostn-
aður við kaup á
nýrri körtu og nauð-
synlegum varahlut-
um og búnaði er vart
meira en 500 þúsund.
Þarna fá menn út-
rás fyrir ökugleðina
*' á ódýran og
skemmtilegan hátt.
Allt er gert til að bíl-
arnir séu sem jafn-
astir, þvi fá hæfileik-
ar ökumanna að
njóta sín til fulln-
ustu. Mikið er um
framúrakstur og smástimpingar sem gerir
þetta nýja mótórsport hérlendis sérlega
skemmtilegt fyrir áhorfendur. Brautin var
regnblaut og reyndi það enn frekar á hæfni og
þor ökuþóranna.
Alls voru skráðar 27 körtur til leiks og var
raðað í rásröð eftir sérstaka tímatöku fyrr um
morguninn. Bestum tíma þar náði Guðbergur
Guðbergsson og á hæla hans kom síðan Magn-
ús Helgason og í þriðja sæti varð Björn Svein-
V björnsson. Eknar voru fjórar lotur, 15 hringir
í senn. Sigur í hverri lotu gefur 20 stig, annað
sætið gefur 17 og þannig koll af kolli.
Lota 1
Þar fóru þeir fremstir Guðbergur og Magn-
ur hélt forustunni alla hringina, Magnús varð
annar og Víðir Stefánsson þriðji.
Lota 2
Guðbergur og Magnús
fóru fremstir, Magnúsi tókst
með tilþrifum að komast
fram úr í þriðja hring og
börðust þeir um stund, þar
til þeir fóru að „hringa“
en Magnús varð heppnari, sveif út af og inn á
aftur án þess að tapa of miklum tíma og endaði
í 5. sæti.
Staðan ef
1. umferf
1. Magnús Helgason ......
2. Ólafur Baldursson ....
3. Halldór Sveinsson.....
4. Steinar Gíslason .....
5. Guðbergur Guðbergsson
6. Víðir Stefánsson .....
7. Viðar Helgason .......
8. Jóhann Þorgilsson.....
9. Þosteinn M Jónsson .. . .
10. Björn Sveinbjörnsson . .
Sigurvegari í riðlinum varð Steinar Gísla-
son, Ólafur Baldursson annar og Viðar Helga-
son þriðji.
Lota 3
Magnús Helgason náði strax forustu
sem hann hélt til enda. Guðbergur
þurfti að ræsa aftarlega sökum lélegs
árangurs í lotunni á undan en náði að
aka sig upp í þriðja sætið eftir mikil til-
þrif. Ólafur Baldursson hélt áfram að
safna stigum og endaði af öryggi í öðru
sæti. Fjórði varð Halldór Sveinsson.
Þar bar helst til tíðinda að tveimur
ökumönnum lenti saman með þeim
hætti að annar ók aftan á hinn og síð-
an hélt hann förinni áfram og yfír
keppinautinn endilangan og enduðu
báðir ósárir utan vegar.
Lota 4
Magnús tók örugga forustu í fyrsta
hring og hélt henni af miklu öryggi til
loka og sigraði örugglega. í öðru sæti
varð Halldór Sveinsson og Ólafur
Baldursson þriðji. Var nokkuð farið
að draga af sumum körtuknöpum
enda veður vott og aksturinn erfiður.
Urðu nokkrir að hætta keppni sökum
bilana.
Keppnishaldið gekk fljótt og vel fyr-
ir sig, helst má setja út á að möl vill
sópast inn á brautina til ama fyrir
keppendur auk þess sem körtumar eru mjög
lágar og þetta getur valdið skemmdum á þeim.
En þetta stendur allt til bóta. -BG
Badmíntondeild KR
Skráning er að hefjast fyrir veturinn 1999-2000.
Tímar verða á þriðjudögum, fimmtudögum og
föstudögum, kl. 18.55-20.30.
Þjálfari Jóhann Kjartansson
Upplýsingar gefa Óskar Guðmundsson
í síma 551-5881 & GSM 899-5861 og
Jóhann Kjartansson á fyrrgreindum dögum í KR.
Stjórnin