Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Blaðsíða 4
20
[
Það er ekki sama
Verð Ny
sem allir hlægja að...
nema samkeppnisaðilar
V. okkar! >
TARCA
Þvílík
Mulningsvél
Sannkölluð Draumavél
Myricia
að,
Racing
pentium®.„
Þetta er ekki venjuleg tölva! Hún
örgjörvanum og einstaklega vel hönnuð.
smáatriði er úthugsað. Vélin er framleidd af Fujitsu
sem er stærsti töívuframleiðandi Evrópu f dag!
Einstök gæði, öflugar vélar og ótrúlegt verð.
Pentium III / 450 MhZ
17" Fujitsu hágæðaskjár
64MB innra minni
8,4GB harður diskur
■ 8MB skjákort
• 32 hraða geisladrif
64 bita hljóðkort
• 80W hátalarar
• 56KB mótald
• 2 mánaða netáskrift
• Myricia lyklaborð
• Mús með skrunhjóli
• Öflugur hugbúnaðar-
pakki að verðmæti yfir
kr. 20.000,- fylgir vélinni.
Medion skrifanlegir geisladiskar.
Seldir 10 í pakka
fyrir aðeins 990,-
daga • Laugardaga
~ 00-17:00
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
Pentium og.
Ekki dvelja f fortíðinni. Veldu nýjasta örgjörvann frá Intel - það borgar sig!
TARCA
Ein sú öflugasta I skólann,
leikina eða vinnuna. Vélin
inniheldur Pentium III, nýjasta
örgjörvann frá Intel. Plll er
sérhannaður fyrir internetið!
Targa eru þýskar hágæðavélar
sem hafa hlotið lof fyrir góða
hönnun.
pentium®lif
« 450 Mhz Intel Pentium III
• BX Móðurborð
• 64 MB innra minni
• 8,4 GB harður diskur
• 8 MB ATI 3D RAGE skjákort
• 17"Targa skjár
• 40 hraða geisladrif
• Yamaha hljóðkort
• 200 W hátalarar
• 56 KB mótald
• 2ja mánaða internetáskrift
• Windows lyklaborð
• Targa mús
• Windows 98 uppsett og á CD
+
l Tölvur
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
Tölvur
LINUX-stýr ikerfið:
Draumur i dos
Flestir tölvunotendur hafa heyrt
minnst á hugtakið stýrikerfi. Þar er um
að ræða ákveðið hugbúnaðarkerfi sem
vélbúnaðurinn gengur á. Þessi hugbún-
aðarkerfi eru síðan nýtt til að keyra öll
þau forrit sem skrifuð eru með ákveðna
gerð af stýrikerfi í huga. Þannig er t.d.
um að ræða OS-stýrikerfi frá Macin-
tosh og Windows frá Microsoft. Stærsti
hluti heimilistölvuiðnaðarins notar nú
Windows-stýrikerfið og flest leikjaforrit
fyrir heimilistölvur eru skrifuð fyrir
þetta stýrikerfi. í hvert skipti sem fólk
kaupir forrit er það um leið að borga
leyfisgjald vegna notkunar á viðkom-
andi stýrikerfi og það er meðal annars
lykillinn að hrikalegu ríkidæmi Bill
Gates hjá Microsoft.
Blikur eru þó á lofti í þessum efnum
og þriðja stýrikerfið er að ná æ meiri út-
breiðslu. Umrætt kerfi heitir LINUX og
mun vera hægt að keyra það á mismun-
andi örgjörva eins og Pentium, sem
Windows notar, og Risc-örgjörva sem
Apple Computer notar í Macintosh. Það
sem meira er: LINUX er ekki í eigu
neins fyrirtækjarisa í tölvuheiminum og
ekki þarf að borga svo mikið sem krónu
fyrir réttinn til að nota þetta stýrikerfi.
Fólk nálgast kerfið einfaldlega í gegnum
Internetið og stöðugt eru „tölvugúrúar"
um allan heim að búa til viðbætur við
kerfið og setja inn á Netið.
Að sögn þeirra sem til þekkja mun
Linux verða annar vinsælasti netþjónn-
inn árið 2001, næst á eftir Windows 2000
þjóni Microsoft. Fullyrt er að LINUX sé
að mestu laust við þá galla sem hin
stýrikerfin hafa verið að burðast með
frá upphafi og það muni m.a. tryggja
auknar vinsældir. Þegar er farið að
skrifa forrit fyrir LINUX og þýða önnur
sem upphaflega voru skrifuð með t.d.
Windows-stýrikerfí í huga. Fer sú fram-
leiðsla ört vaxandi. Þar er bæði um að
ræða forrit til almennra heimilisnota
og á faglegum grunni.
LINUX finnsk uppfinning
Upphafsmaðurinn að LINUX-stýri-
kerfmu er Finninn Linus Torvalds sem
byrjað að skrifa stýrikerfíð samhliða
háskólanámi. LINUX-stýrikerfið er
byggt að mestum hluta á stýrikerfi sem
heitir Unix. í dag er Linus þessi eins
konar ritstjóri stýrikerfisins á Netinu
og ákveður hvaða viðbætur eru settar
inn í kjarna þess en fjöldi fólks kemur
að hönnun viðbóta í LINUX í dag.
Björn Davíðsson, einn af eigendum
Snerpu á ísafirði, hefur kynnt sér LIN-
UX-kerfið mjög náið og er trúlega sá Is-
lendingur sem mesta innsýn hefur í
það. Hann segir að í byrjun hafi stýri-
kerfið fyrst og fremst verið notað af
Internetþjónustuaðilum eins og Snerpu
og fleiri.
- frýs aldrei og
fæst ókeypis á
Netinu meöan
borga þarf stórar
upphæbir í
leyfisgjald á
öbrum rábandi
stýrikerfum
Björn Davíðsson.
Hægt að nota gömlu tölvurnar
„Við keyrðum alla okkar Intemet-
þjónustu á LINUX frá fyrsta degi. Þetta
kerfi er mjög vélarvænt. Það krefst ekki
mikils af vélinni sem það er keyrt á. Það
er t.d. hægt að setja það upp á gamlar
vélar sem nú eru komnar í geymslu,
eins og 486. Það fer léttilega í gang á 486
33 Mhz vél með 8 megabæta minni.
Kerfið keyrir grafískt umhverfi að vísu
ekki mjög hratt á slíkri vél en það fer í
gang. Það er einnig möguleiki fyrir þá
sem áhuga hafa á að skoða þetta að setja
upp á vélum sínum svokallaða tvískipta
ræsingu. Harða diskinum er þá skipt í
tvennt og LINUX og öðru stýrikerfí eins
og Windows komið fyrir á diskinum.
Þegar kveikt er á vélinni er hægt að
velja um hvort stýrikerfið er ræst.
Sýndartölva inni í LINUX
Þá er til nýtt skemmtilegt verkfæri
fyrir LINUX, sem krefst þó mikils
minnis, en það er WMWARE. Það sem
þetta forrit gerir er að keyra upp sýnd-
artölvu inni í LINUX-umhverfmu og á
þá tölvu er hægt að setja Windows 95.
Annars eru flestir hugbúnaðarpakkar
sem notaðir eru i Microsóft-umhverfmu
líka fáanlegir fyrir LINUX.
Ókeypis hugbúnaðarvöndull
Þar er kannski stærsti þátturinn hug-
búnaðarvöndul sem heitir STAROffice
sem er sambærilegur Microsoft Office-
hugbúnaðarpakkanum. Hann les t.d.
sömu gagnaskrár en helsti munurinn er
sá að í LINUX-heiminum er þetta meira
og minna gefins. SUN-fyrirtækið keypti
nýlega þýska fyrirtækið sem framleiddi
STAROffice en það hafði gefið pakkann
til einkanota en selt til atvinnurekstrar.
Sun tók hins vegar þá ákvörðun að gefa
pakkann án allra skilyrða. Auðvitað eru
þó alltaf einhverjar ástæður að baki
slíkum gjöfum á hugbúnaði. Menn lifa
þá á því að selja þeim sem nota búnað-
inn ýmsar sérlausnir.
Þó LINUX-hugbúnaður sé kannski
ekki alltaf ókeypis þá á slikur hugbúnað-
ur yfirleitt það sammerkt að uppskriftir
að þeim eru alltaf tiltækar. Menn geta
því breytt forritunum ef þeir vilja.“
- Er LINUX orðið boðlegt til al-
mennra nota?
„Það er að verða það núna. Ég vil
gjarnan líkja þessu við bíla. Þarftu að
vera bifvélavirki til að geta keyrt bíl-
inn? Ég álít að varðandi þær tölvur sem
eru á markaði í dag þurfi maður annað-
hvort að vera bifvélavirki eða vera til-
búinn til að fara með þær á verkstæði í
tíma og ótíma. Með LINUX þarf maður
ekki að vera bifvélavirki. „Bíllinn“ er
einfaldlega settur saman og síðan geng-
ur hann bara áfallalaust. Ef maður hins
vegar vill þá er hægt að fara ofan í
húddið og gera breytingar. Það er ólíkt
Microsoft-búnaðinum, þar eru hinir og
þessir hlutir í húddinu innsiglaðir.“
Algjörlega vandræðalaust
styrikerfi
- Gengm: LINUX-kerfið nokkum veg-
inn skammlaust?
„Það er meira en skammlaust. Það
gengur alveg viðstöðulaust, það frýs
aldrei. Það er alveg óþekkt að upp komi
svokallaðir bláskjáir. Hjá okkur keyra
þessar tölvur allan sólarhringinn aOt
árið um kring. Það þarf ekki að endur-
ræsa þær og einu tilfellin sem krefjast
endurræsingar er þegar skipt er um
kjarna í kerfinu og þegar endurbætur
eiga sér stað. Það er ekki óalgengt að
þessar tölvur gangi samfellt í hundruð
daga. Það er t.d. tölva hér i gangi sem er
búin að vera í gangi í 180 daga og það er
alls ekkert met. Þetta er því mjög
stöðugt stýrikerfi.
- Tekur LINUX þá ekki yfir stýri-
kerfamarkaðinn?
„Nei, það er langt frá því að ég sjá það
fyrir mér að LINUX verði einrátt á
markaðnum. Ég sé það þó fyrir mér að
þetta verði mjög áberandi stýrikerfi
næstu árin.“
- Ganga skjöl auðveldlega á milli
Windows og LINUX?
„Já, t.d. Word, Excel og slík gagna-
skjöl. Þau ganga líka betur á milli LINUX
og Windows en úr Windows í Macintosh.
Þannig er LINUX-umhverfið orðið mjög
nálægt Windows-umhverfinu sem menn
kannast við,“ sagði Björn Davíðsson.
Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um
LINUX og þannig hélt Skýrslutæknifélagið
ráðstefnu um þetta stýrikerfi 20. apríl sl.
Allan Cox, forritari í Bretland.i mætti m.a.
á þá ráðstefnu, en hann er talinn koma
næst Linus sjálfum í þessum LINUX-
heimi, sem sagt LINUX-maður númer tvö.
Hvað er hægt með LINUX?
Alla ritvinnslu og útreikninga er hægt
að framkvæma á Linux. Öll helstu forrit-
unarmál eru til fyrir Linux, sbr. C, C++,
java, perl, awk og fleiri, og má segja að
Linux verði fyrsta stýrikerfið sem verði
með fullkominn Java-stuðning. Fyrir
netþjónustu fylgir aragrúi forrita Linux.
Til margmiðlunar eru til forrit tO að
spUa helstu gerðir tónlistar og mynd-
banda og tU aUrar helstu ritvinnslu og
vinnslu með töflureikna má nefna forrit
eins og Applix og StarOffíce. Linuxgames
gefur góða yfirsýn yfir hvað er í boði í
sambandi við leiki.
Fyrir vísindamenn er Linux talinn
nánast fullkominn. í Linux er hægt að fá
fjöldann aUan af forritum tU að vinna
reikninga eins og Maple, Matlab,
Gnuplot og mörg önnur. Linux er talið
mun betra kerfi tU reikninga heldur en
önnur stýrikerfi því það getur samnýtt
marga örgjörva í einn útreikning og er
þetta nýtt óspart, t.d. í eðlisfræðiskor Há-
skóla íslands.
Mikið af hjálparefni er tU um þetta
stýrikerfi en það er reyndar tU í mörgum
útgáfúm. Það er meira að segja hafin
framleiðsla á „sérhönnuðum" lyklaborð-
um fyrir Linux. Það er fyrirtækið Cool-
keyboards sem það gerir en þekkt á þess-
um markaði eru Happy Hacker-lykla-
borðin.
Helstu dreifingaraðUar Linux eru Red
Hat og Caldera. Hér á landi eru eflaust
fjölmargir sem geta útvegað Linux en
hægt er að ná i þessi forrit ókeypis á Net-
inu og brenna þau inn á geisladisk fyrir
sig eða þá setja Linux upp beint af Net-
inu. Það krefst hins vegar mjög hraðrar
Intemettengingar. ÆskUegast er að þeir
sem hyggjast setja upp slíkt kerfi snúi
sér tU aðUa sem hafa af því einhverja
nasasjón. -HKr.
Með skrifstofuna í vasanum!
Strengur hf. og Króli, verkfræði-
stofa ehf., hafa nú hannað og markaös-
sett lausn fyrir veraldarvefinn
(WWW), NFServer lausnir sem keyra
á einkatölvu, lófatölvu (Palm PUot),
þráðlausum handtölvum og/eða
næstu kynslóð GSM-síma sem mun
bjóða upp á beintengingu við vefinn.
Þessi lausn gerir kleift að nálgast
öU gögn í Navision, hvort sem er upp-
lýsingar um birgðastöðu, viðskipta-
menn, lánardrottna og annað sem
Navision Financials geymir hverju
sinni. Vefrápari (WWW browser) er
notaður til að nálgast upplýsingarnar
með lágmarkstUkostnaði (innanbæjar-
símtali) hvar sem er í heiminum tU að
seija, kaupa, veita og skrá upplýsingar
og pantanir beint í Navision.
T.d. getur sölumaður nú setið í Jap-
an hjá viðskiptavini og sagt nákvæm-
lega tU um birgðastöðu, skráð pöntun
og prentað út í höfuðstöðvum á íslandi
þó enginn sé við á skrifstofu og birgð-
ir sifeUt að breytast. Einnig er þetta
besta leiðin til að skrá t.d. verkbók-
hald yfir vefinn hvaðan sem er fyrir
t.d. verkfræðistofur o.s.frv.
Samið um söluumboð í Bret-
landi, Sviss, Noregi og víðar
Fyrirtækin hafa nú unnið saman í tvö
ár með þehn árangri að nú eru fjölmarg-
ir sameiginlegir viðskiptavinir þeirra
komnir langt i tölvuvæðingu rekstrar-
þátta sem áður var erfitt að ná tU. „Hing-
að tU höfum við verið að einbeita okkur
að hlutum á borð við vörupantanir og af-
greiðslu í verslunúm og vöruhúsum með
handtölvum og þráðlausum kerfum. AUs
staðar þar sem starfsmenn eru að skrá
eitthvað á seðla „úti á gólfi“ og láta upp-
lýsingakerfið vita eftir á eigum við er-
indi. Þessu erum við að sinna hjá
nokkrum af öflugustu og þekktustu fyrir-
tækjum landsins, t.d. í Nýkaupsverslun-
unum og Aðfóngum hjá Baugi hf.“ sagði
Sigurður Hjalti Kristjánsson, iðnaðar-
verkfræðingur og framkvæmdastjóri
Króla, verkfræðistofu. Hann sagði að
hlutverkaskipting Króla, verkfræðistofu,
og Strengs væri skýr: „Við útvegum vél-
búnaðarlausnir sem gera vörustjórnun
hraðvirka og nákvæma með því að fram-
lengja upplýsingakerfin „út á gólf' eða
„út í bæ“ eins og við erum að kynna
núna. Strengur hefur hannað kerfin og
tengingarnar og með því að vinna saman
tekst okkur að ná markmiðum okkar
sem eru að gera upplýsingakerfm skil-
virkari hjá viðskiptavinunum" sagði Sig-
urður. Jón Heiðar Pálsson, sölustjóri
Strengs, tekur í sama streng: „Þeir búa
yfir reynslu og þekkingu á sínu sérsviði
sem nýtist okkur vel við þróun Navision-
kerfanna. Ég tel samstarf okkar mikil-
vægan þátt í þróun lausna sem nýtast
sameiginlegum viðskiptavinum okkar
við að ná árangri. Þessi Palm Pilot-lausn
er bylting! Nú er hægt að nálgast upplýs-
ingar og vinna í Navision Financials
hvar sem næst í GSM-samband. Strika-
merkjaiesarinn er innbyggður í tækið og
það er létt og meðfærilegt og kemst fyrir
í skyrtuvasanum. Siðan er til sterkari út-
gáfa af þessu tæki sem þolir frostið og
bleytuna. Ég tel að þessi samsetning
Symbol-vélbúnaðar og Navision Financi-
als bjóði upp á ófyrirséða möguleika við
að nýta tölvur og upplýsingakerfi á nýj-
um sviðum."
NFServer-lausnir gera mögulegt að
skrá og lesa gögn inn í Navision Fin-
ancials-bókhaldskerfi frá veraldarvefn-
um. Lausnin byggist einmitt á því að
ein Navision Financials-útstöð annar
mörgum notendum samtímis.
Búnar hafa verið til tvær pakka-
lausnir sem kunna samskiptamáta
NFServer. Önnur lausnin heitir
WebBroker en með þeirri lausn er unnt
að setja gögn úr Navision Financials á
hvaða vefsíðu sem er og einnig má skrá
gögn af vefsíðu inn í Navision Financi-
als með þeirri lausn. WebBroker-lausn-
in er hugsuð fyrir aðgang að afmörkuð-
um kerfum þar sem þörf er á fjarskrán-
ingu, s.s. verkbókarskráningu,
sölupantanir eða vefbúð.
Hin lausnin er ClientBroker en hugs-
unin á bak við hana er að geta stýrt sam-
skiptum við handtölvur með eða án
strikalesara. Þar er öll ferlisstýring for-
rituð úr Navision Financials og öll mið-
uð við jaðartæki með litla skjái og tak-
markaða eiginleika. Til eru útgáfúr sem
tengja má við handtölvuskanna frá Sym-
bol sem Strengur hefur þróað og sett upp
í samvinnu við Króla, verkfræðistofu
ehf., og vefaðgang fyrir Palm Pilot. Unn-
ið er að þróun NFServer-lausnar með að-
gangi um GSM-síraa, byggðan á sömu
tækni. NFServer-lausnir eru hannaðar
með þaö í huga að nýtast Navision-þró-
unaraðilum til þess að auka aðgengi að
upplýsingum og skráningu í Navision.
* leit.is
íslenska leitarvélin á Internetinu
Hvað villtu j
finna á j jiggj
Netinu? k €:
------ 5=0
tm