Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Qupperneq 3
m e ö m æ 1 i e f n i Soffía Hansen: Kvikmyndin Lífíd eftir vinnu Vlenn í svör Glanni Glæpui Aldamótatískai ituð á Flateyri Iverjir voru^j 1. október 1999 f Ókus Á morgun, kl. 14.30, er viturlegt að vera með stillt á Rás eitt. Töffarinn og költmaðurinn Hjálmar Sveinsson mun þá fjalla um fjöldamorðingjann Charles Manson. Fyrir þrjátíu árum ætlaði hippinn sá og melludólgurinn að flýta fyrir heimsenda með morðum. Hann sendi lærisveina sína út af örkinni og þeir hófust handa á ili kvikmyndaleikkonunnar Sharon Tate. Man- son leit ýmist á sig sem Jesúm Krist eða Sat- an. Þar sem óravegur er talinn á milli þeirra, milli boðskaparins um eilíft líf eða eilífa glöt- un, skapaðist algjör ringulreið I hugarfylgsnum Mansons. Nánar um það á morgun. Þetta er tæki vikunnar og Fókus mælir með því að sömu gæj- arnir og sendu okkur fótanudd- tækið á sínum tíma reddi sér umboðinu fyrir Nuddarann frá ConAir. Um er að ræða græju sem er hengd á baðkarið hjá ... . þér til að nudda, líkt og í heit- t um potti. Þeim sem eru áhuga- samir og geta ekki beðið eftir •f® að einhver flytji þetta inn er rétt að benda á heimasfðuna: www.conair.com en þarfást allar upplýsingar um græjuna. Og þetta er þokkalega málið: Fylla bílinn af al- vörugræjum. Við erum að tala um Panasonic In-Car DVD með öllu. Rándýrt auðvitað en ótrúlega þægi- legt fyrir alla þá sem einhvern tíma þurfa að bíða í bíl eftir maka, mömmu eða bara þá sem fíla að hanga í bíl. Það fer allavega ekkert fram hjá þér ef þú ert með bílinn fullan af svona græjum. Svo þarftu náttúrlega að labba eitthvað og þá er Sony Watchman Mini Television málið. Þetta er á stærð við sæmilegan GSM-síma og fer vel f vasa. Fínt fyrir þann sem vinnur fram eftir en er ekki al- veg tilbúinn að sleppa fréttum eða vill fylgjast með uppáhalds- þættinum sfnum. Eitt að lokum fyrir megrunarsjúka þjóðina sem fitnar og fitnar með hverjum deginum sam- kvæmt nýjustu könnunum. Tanita Ultimate Scale 2000 er málið til að — fylgjast með auk- ■ '' -o ’.tMh inni llkamsþyngd. Hún gerir nefni- lega meira en að gefa uþp kfló og grömm. Vigtin send- ir frá sér bylgjur upp um fótleggina og mæl- ir fituprósentuna með þvf að skoða endurvarp- ið frá líkamanum. Ef þú ert feit eða feitur og vilt ekki vera þannig lengur og ert kannski að gera eitthvað I málunum er allt f lági að taka þessa bara á Visa-rað. Eldar Ástþórsson í Skýjum ofar: Fimmtudagskvöld frá 20 til 22.10 Óli Palli í Rokklandi: Þriöjudagskvöld frá 22.10 til 23 Addi ofar í Skýjum ofar: Fimmtudagskvöld frá 20 til 22.10 Á myndina vantar Partyzone-pitlana sem fóru yfir á Rásina fyrir einhverj- um misserum. En þeir sjá um geggj- unina á laugardagskvöldum. Smári tarfur í Hamsatólg: Fimmtudagskvöld frá 23 til 00.10 Rás 2 hefur hafið afturhvarf til fortíðar en í upphafi var stöðin hugsuð sem tónlistarstöð sem myndi rúma jaðartónlist jafnt sem vinsældapopp. Hún gleymdi sér að- eins í nokkur ár og byggði upp öfl- ugt blaður-útvarp. Og því hefur það verið þannig á þessum áratug að X-ið hefur séð um að hýsa strák- ana á jaðrinum en nú er X-ið kom- ið í eigu Ameríkana og þeim hélst illa á jaðarpiltunum. Þeir eru allir farnir yfir á Rás 2. Náðu mörgu af því besta Rekja má breytingamar á Rás 2 til Óla Palla í Rokklandi og Magnúsar Einarssonar, tónlistarstjóra stöðv- arinnar. En þessum tveim herra- mönnum hefur tekist að kippa nán- ast öllum jaðarþáttum X-ins yfir til sín. Og þeir þættir sem komu ekki voru bara búnir til uppi á Rás 2 og fengnir ferskir stjómendur. Það er til dæmis einn jaðarþáttur á X-inu enn þá og það er Babilon en Hamsátólg á Rás 2 er einmitt svipað- ur hardcore-þáttur. Svo er það þátt- urinn Konsert þar sem spilaðar eru tónleikaupptökur eins og nafnið gef- ur til kynna. Og næstkomandi þriðjudagskvöld er auk þess sérstakt Hróarskeldu-prógramm kl. 21. Það er því margt að gerast í Efstaleiti. Þeir fyrstu sem fóru yfir voru Par- tyzone. Þeir stoppuðu að vísu á Mono áður en Stóri bróðir tók þá að sér. Partyzone er líka þáttur sem hefur átt það til að flakka á milli stöðva. En nú eru stjórnendur þátt- arins himinlifandi yfir að vera komnir til ríkisins og halda uppi danspartíi á laugardagskvöldum. Svo em það Sýrður rjómi og Drum & Bass þátturinn Skýjum ofar. Þeir fóru yfir nú í vikunni og eru án efa stærsti missir X-ins. Báðir þættirnir era merki um það besta sem hægt er að gera í útvarpi og stjórnendurnir virkilega duglegir drengir sem halda uppákomur með erlendum Dj-um og gera það sem þeir gera mjög vel. Kvölddagskrá X-ins Rás 2 er sem sagt bara komin með kvölddagskrána á X-inu og stimplar sig virkilega vel inn í haustið - setur sig á stall með mörgum af bestu ríkisstöðvum Evrópu - en þar hafa jaðartónlist- arþættir átt sinn fasta sess mörg, mörg ár. Það era því gleðitíðindi að Rás 2 sé loksins farin að sinna sínu hlutverki sem skyldi. Og und- ir það taka þeir sem sjá um nýju þættina. Þeir segjast auk þess vera ánægðir með að vera komnir yfir og að þeim sé vel tekið. En það hlýtur að teljast til tíðinda þar sem Rás 2 hefur í gegnum árin verið sérhönnuð fyrir miðaldra fólk sem nennir ekki að hlusta á Rás 1. Ef ég er ekki á Grand r rokk: Þá er ég á leiðinni þangað Eva María Jónsdóttir: Mig langar að prjóna barnaföt Eniga meniga: 12-13 Eg á enga peninga Bíó: Hreinir sveinar í leit að kynlífi Fyrir 10 árum leit rafvirkinn Birgir Sigurðsson út eins og Gaui litli. Nú er hann ekki bara búinn að fara í megrun heldur er hann líka farinn að mála og yrkja. Svona er nú hægt að taka sjálfan sig almennilega í gegn. Biggi í Konsert: Fimmtudagskvöld frá 22.10 til 23 Ari Steinn í Vélvirkjanum: ísar Logi í Vélvirkjanum: Mánudagskvöld Mánudagskvöld frá 22.10 til 23 Árni Þór í Sýrðum rjóma: Miðvikudagskvöld frá 23 til 00.10 Hildur Kristinsdóttir: Breakar af sér hárið í Ósló 4 Popp: Af því við höfum ekk- ert skárra að gera 10 f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók Einar Ólason af Evu Maríu. Um förðun sá Kristín Helgadóttir hjá Face. Ljoðskaldið Birgir tekur mið af nútímanum og býöur fólki upp á aö hringja í 570 77 25 til aö hlusta á 20 Ijóö sín. %*éfl nGyra „Ég sá mynd í Stjörnu- blói fyrir einu og hálfu ári sem fjallaði um svarta málarann Basquiat og eftir að ég sá hana þá hugsaði ég að ég yrði bara að prófa að mála sjálfur," segir hinn 39 ára gamli Birgir Sigurðs- son en hann hefur undanfarið sýnt mál- verk sín í Gullsól í Mörkinni. Sýningin ber heitið flæði og frustrasjónir og spannar lífshlaupið. „Ég á nefnilega 10 ára sjálfsræktarafmæli á þessu ári. Fyrir 10 áram var ég eins feitur og Gaui litli en síðan þá er ég búinn að vera að pæla í sjálfum mér og meira frá mér finna minn eigin kraft,“ segir Birgir um tilurð sýningarinnar. Birgir er gjörsamlega ólærður á sviði málara- listarinnar en segir að það að hann sé ekki búinn að fara i listaskóla setji honum engar hömlur. En hvað hafa aðrir sprenglœrðir listamenn sagt um sýninguna? „Það kom til dæmis einn lista- spekúlant á opnunina hjá mér og hann gaf verkunum mínum bara mjög góða dóma. Enda set ég ekkert frá mér sem ekki er gott og þess vegna hefur þetta líka tekið svona mörg ár,“ segir Birgir. Aðgengileg Ijóð Birgir er ekki bara að mála held- ur yrkir hann líka og á sama tima og málverkasýningin hefur staðið yfir hefur sýningargestum, sem og öðr- um, gefist kostur á því að hringja í síma 570 77 25 og hlusta á 20 ljóð eft- ir hann. „Ljóðin kallast á við verkin á sýn- ingunni en þó er alls ekki nauðsyn- legt að hafa séð sýninguna til þess að geta hlustað á ljóðin," útskýrir Birgir og bætir við að þetta séu mjög per- sónuleg ljóð. „Þetta er eiginlega mín 39 ára gamla ævi sett fram í ljóðum til þess að sleppa henni.“ Birgir er nú þegar farinn að undir- búa næstu sýningu en hann stefnir á að gefa rafvirkjann upp á bátinn og skella sér fljótlega í listaskóla . „Já, þið eigið pottþétt eftir að heyra meira frá mér, ég er bara rétt að byrja," segir Birgir með ákefð. Það er síðasti séns að sjá akrýlverk Birgis í Gullsól í Mörkinni á laugar- daginn en þá lýkur málverkasýning- unni. Það verður hins vegar hægt að hringja áfram í ljóðasímann og hlusta á tilfmningar Birgis í Ijóðum. -snæ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.