Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999
23
neiiittir
Activision í
samstarf með
Lionhead
Studios
Tölvuleikjafyr-
irtækið
Lionhead Studi-
os hefur gert
samning við hið
þekkta fyrir-
tæki Activision, um að Acti-
vision gefi út tvo nýja titla sem'
Lionhead Studios er að fram-
leiða. Þessi samningur gerir
Lionhead Studios kleift að
dreifa leikjunum betur en þeir
hafa áður getað. Hinn reyndi
leikjahönnuður Peter Mo-
lyneux er framkvæmdastjóri
Lionhead Studios. Peter þessi
hefur meðal annars á saka-
skránni að vera ábyrgur fyrir
guðaleikjunum illræmdu en
hann bjó til leikinn Populous
sem var fyrsti leikur þeirrar
tegundar sem kom út. Næsti
leikur hans er Black&White
sem margir bíða eftir með
óþreyju.
Lyf gegn
kvefi?
Fram er komið
nýtt lyf sem
virðist hafa
talsveröa verk-
un gegn kvefi.
Lyf þetta, sem
ber nafhið pleconaril, virðist
fækka veikindadögum þeirra
sem eru með kvef um 3^4 daga.
Lyfíð, sem var prófað á fólki á
dögunum í Bandaríkjunum, lof-
ar góðu um að hægt verði að
þróa betra lyf gegn kvefi. Ekki
eru neinar teljandi aukaverk-
anir með lyfinu. Lyflð er enn á
öðru prófunarstigi en þarf að
komast í gegnum þriðja stig til
að fara í framleiðslu.
Ellismellir
í andlits-
lyftingu
Það virðist vera
mikið í tísku í
leikjaheiminum í
dag að dusta rykið af
gömlum leikjum og
gefa þá út endurbætta. Jafnvel eru
heilu söfnin af elíismeHum gefm út
í lítt breyttura útgáfum. Einn al-
besti þrautaleikur allra tíma er nú
að fá andlitslyftingu. Það er auðvit-
að hin hreina snilld Tetriz sem nú
mun rísa upp frá dauðum og gera
fólk úrvinda á heilanum upp á nýtt.
Fyrirtækið H20 er þessa dagana að
leggja lokahönd á leikinn fyrir Nin-
tendo 64-leikjatölvuna. Ekki er búið
að breyta leiknum algjörlega heldur
fínissera hann aðeins fyrir nýja öld.
j'Ilyu-
JiájJdj*
Pokémon hefur innreiö sína á íslandi:
Lítil, sæt skrímsli leggja
heiminn að fótum sér
- verða vinsældirnar þær sömu hér á landi?
Jæja, þá fer að
líða að því. Litlu,
geðþekku Poké-
mon-skrímslin
eru að hefja inn-
reið sína á Evr-
ópumarkaðinn og þar með til ís-
lands og verður spennandi aö sjá
hvernig markaðurinn tekur á móti
þeim hérna á skerinu. Þetta fyrir-
bæri, Pokémon, gerði allt vitlaust í
Japan þegar það kom á markað þar
árið 1996 og síðan þá hefur verið
gert strandhögg í Bandaríkjunum
þar sem móttökurnar voru síst
verri.
En hvað er Pokémon? Jú, það er
upprunalega tölvuleikur fyrir Game
Boy-handtölvuna sem byggir að
grunninum til á hlutverkaleikjum
(RPG) eins og Final Fantasy. Sögu-
þráðurinn felst 1 að aðalsögu-
hetjan, Ash, heldur á vit ævin-
týranna í leit að Pokémon-kvik-
indum sem
lifa
villt
úti í náttúr-
unni. Með natni
er hægt að veiða
dýrin og þjálfa þau til bar-
dagaiðkunar. Þjálfunin felst í
að láta þau berjast við önn-
ur dýr og öðlast þannig
reynslu sem verður til að
dýrin þroskast og verða
öflugri. Bardagamir
geta hvort heldur verið
við önnur villt Poké-
Maður getur næstum
heyrt samræðurnar í
frímínútunum: „Hei,
Danni! Þú átt rauðu
útgáfuna, er það ekki?
Mig vantar svo Zap-
dos, ef ég fæ þinn þá
mátt þú fá bæði
Tentacool og Pikachu
frá mér. Þeir eru rosa-
góðir, Pikachu er kom-
inn upp í level 25... “
mon eða við þjálfuð Pokémon ann-
arra söguhetja leiksins. Þetta er ekk-
ert smáverkefni, því Pokémon-dýrin
eru 150 talsins og sum þeirra eru
mjög sjaldgæf.
, Arftaki leikarakort-
anna
Það sem hefur sennilega
I stuðlað hvað mest að ótrúleg-
'um vinsældum Pokémon er
söfnunarmöguleikinn, því
með þvi að tengja saman
Game Boy-tölvur geta Pokémon-
spilarar skipst á dýrum. Þetta hefur
leitt til þess að Pokémon hefur orðið
að eins konar nútímaútgáfu af söfn-
unarkortum sem hafa orðið vinsæl
gegnum tíðina. Munurinn er sá að
slík kort hafa verið með myndum af
leikurum, íþróttamönnum og öðru
slíku, en í Pokémon skiptast spilar-
ar á litlum, sætum dýrum sem þeir
hafa sjálfir þjálfað upp í sveita síns
andlitis.
Og möguleikarnir eru óteljandi,
því eins og áður
sagði eru dýrin 150
talsins og ræður
hvert þeirra yfir
fjórum sóknar- og
varnarmöguleikum
i einu sem geta ver-
ið talsvert mismun-
andi eftir því hvemig dýrið
hefur verið alið upp. Þar að \N4iíÉte
auki hafa framleiðendur leiks-
ins verið svo séðir að gefa leikinn út
í tveimur útgáfum, rauðri og blárri.
Söguþráðurinn er nákvæmlega sá
sami, en nokkrar tegundir Pokémon
er eingöngu að finna í annarri
hvorri útgáfunni. Til að fullkomna
safn sitt verða spilarar sem eiga
bláu útgáfuna því að skipta við
Pokémon-áhugamenn sem eiga
rauðu útgáfuna og öfugt.
Á einhver Pikachu?
Maður getur næstum
heyrt fyrir sér samræðum-
ar í frímínútunum: „Hei,
Danni! Þú átt rauðu útgáf-
una, er það ekki? Mig vantar
svo Zapdos, ef ég fæ þinn
mátt þú fá bæði Tentacool og
Pikachu frá mér. Þeir eru rosagóð-
ir, Pikachu er
kominn upp í
level 25 ...“
Vegna gríðar-
legra vinsælda
Pokémon hafa
fleiri vörur tengdar þessum góðlegu
skrímslum flætt inn á hina ýmsu
markaði. Fleiri tölvuleikir hafa verið
gerðir, m.a. einn fyrir Nintendo 64
sem gengur eingöngu út á að ferðast
um og taka myndir af Pokémon í
sínu náttúrlega umhverfi,
hversu undarlega sem það nú
hljómar. Sjón-
varpsþættir um
Pokémon hafa
notið ótrúlegra
vinsælda í Japan og
í Bandaríkjunum og leikfóng tengd
dýrunum hafa verið rifin út.
Mörgum finnst eflaust að Pokémon
sé einungis fyrir börn, og það var
reyndar tilfinning undirritaðs fyrir
þessu fyrirbæri. Þangað til í síðustu
viku að prufueintak barst hér í hús
og sest var niður til að prófa. Nú, eft-
ir að tólf klukkustundum hefur verið
eytt í leikinn, er enn ekki búið að
veiða meira en 15 af öllum 150 kvik-
indum leiksins og útlit fyrir margar
svefnlausar næt-
ur í viðbót við
veiðar á þeim
sem eftir er. Á
einhver annars
Pikachu sem hann
þarf að losna við?
-KJA
Net-gæsluvellir:
Græn svæði fyrir börn
Sífellt er verið að leita leiða til að minnka líkurnar á að börn geti fengið að-
gang að óæskilegum vefsíðum.
Netið á sér marg-
ar hliðar. Flestar
eru þær góðar og
þar eru fróðleik-
m1 og upplýsing-
ar rnn alla mögu-
lega hluti innan seilingar. Foreldrar
hafa margir samt haft áhyggjur af
því að hleypa börnum sínum á Netið
án þess að fylgst sé með þeim.
Mörg forrit eru til til að hefta að-
gang bama að óæskilegum vefsíðum
á Netinu. Það allra nýjasta í þessum
efnum eru svokölluð græn svæði á
Netinu. Þá hefur verið sett upp síða
fyrir börn og allar tengingar af
henni verið innan þessa græna
svæðis þannig að foreldrar hafa get-
að sett bömin inn á hálfgerða net-
gæsluvelli.
Hið þekkta netfyrirtæki Lycos hef-
ur nú sett upp svona grænt svæði
sem part af þjónustu sinni við við-
skiptavini sína. Á síðunni eru alls
konar leikir og fræðsluefni ætlað
Þá hefur verið sett upp
síða fyrir börn og allar
tengingar af henni ver-
ið innan þessa græna
svæðis þannig að for-
eldrar hafa getað sett
börnin inn á hálfgerða
net-gæsluvelli.
bömum til dægrastyttingar. Slóðin á
þetta græna svæði er www.lycoszo-
ne.com. Ekki er Lycos eina fyrir-
tækið sem heldur úti svona vef, fyr-
irtæki eins og Yahoo!, Walt Disney
og Netscape eru öll með net-gæslu-
velli á sínum snærum. Þessi grænu
svæði hafa fengið sina gagnrýni. Það
helsta sem fólk hefur fundið að er að
stór partur af þessmn síðum eru aug-
lýsingar ýmiss konar. Aðrir hafa
bent á að auglýsingar muni alltaf
fylgja öllu barnaefni, samanber
fjölda auglýsinga á milli bamaefnis I
sjónvarpi.
Hvað villtu
finnaá
Netinu?
Netiö er alls staöar
Fyrirtækin Brit-
ish Telecom og
Excite UK hafa
tekið höndum
saman um að
gera flugfarþeg-
um kleift að
nota Netið um borð í flugvélum.
Fyrirtækin tilkynntu um þessa
ákvörðun sína á flugráðstefnu í Salt
Lake City nú á dögunum. Net-brun
á að verða flugfarþegum opið strax
næsta haust ef allt gengm eftir.
Nítján evrópsk og asísk flugfélög
verða meðal þeirra sem munu bjóða
upp á þessa þjónustu um borð í flug-
vélum sínum. Þar eru meðal ann-
arra flugfélög á borð við Singapore
Airlines, British Airways, Virgin
Atlantic, Malaysia Airlines og
Lauda Air. Netsamskiptin munu
fara fram um gervihnött. British
Telecom hefur einnig í undirbún-
ingi að gera eigendum GSM-síma
kleift að nota símann sinn um borð
í flugvélum. Þessi nýja þjónusta
verðm kærkomin í lengri flugferð-
» leit.is
íslenska leitarvélin á Internetinu