Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 1
a^av;-,-.: __________________.
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
Piparsveinn
slær í gegn
Bls. 19
Netstöðin
á Granda
heimsótt
Bls. 20-21
GSM-símar
skaðlegir
Bls. 18
tölvui tækni og vísinda
PlayStation
Vont að vakna
snemma
Máltækið um að
morgunstund gefi
gull í mund er ef
til vill hreinasta
öfugmæli, a.m.k.
ef mark er takandi á nýrri breskri
rannsókn. Hún leiddi í ljós að þeir
sem vakna fyrr á daginn eru mun
stressaðri en þeir sem sofa fram
eftir, þeir eru líklegri til að kvarta
undan verkjum í vöðvum, kvefi og
höfuðverk, auk þess sem þeir eru
almennt í mun verra skapi. Vís-
indamennimir sem framkvæmdu
rannsóknina fundu einnig út að
hormónið sem veldur hvað mestu
stressi, cortisol, er mun meira i
hinum árrisulu. Þeir geta hins
vegar enn ekki sagt til um það
hvort það séu svefnvenjur fólks
sem leiða til aukins magns af
cortisol, eða hvort það sé aukið
magn hormónsins sem veldur því
að fólk vaknar fyrr.
Varað við flugi
um áramótin
Taskforce 2000,
óháður hópur
áhugamanna um
2000-vandann, gaf
nýlega út viðvar-
anir til Evrópubúa varðandi far-
þegaflug í kringum næstu áramót.
Hópurinn segir að samkvæmt
heimasíðu á vegum hins opinbera
í Bandaríkjunum séu mörg Evr-
ópulönd enn langt í frá viðbúin
2000-vandanum hvað farþegaflug
varðar. Talin eru upp tíu lönd
sem hópurinn telur hættulegt að
fljúga til: Tékkland, Finnland,
Þýskaland, Ungveijaland, Ítalía,
Pólland, Portúgal, Rússland,
Spánn og Sviss. Margir eru þó
gagnrýnir á niðurstöður Task-
force 2000 og segja þar vera á ferð-
inni hræðsluáróður og lítið sé að
marka upphrópanir hópsins.
Talsvert gekk á á
hlutabréfamörkuð-
iLlílJJliÚilli um 1 gær ‘ kj°lfar
1 síðustu atburða í
Microsoft-réttar-
höldunum þegar þeir voru opnaðir
eftir helgina. Seint á fóstudag til-
kynnti nefnilega dómarinn í máli
hins opinbera gegn Microsoft að
hann teldi tölvurisann hafa einok-
unarstöðu á tölvumarkaðnum og
hafa misnotað sér hana á undan-
fomum ámm. Við þetta lækkaði
verð hlutabréfa Microsoft tcdsvert
þegar markaðir vora opnaðir í gær.
Þessi ákvörðun dómarans er tals-
vert áfall fyrir Microsoft, þó svo for-
ráðamenn fyrirtækisins hafi án efa
granað að niðurstaðan yrði þessi á
endanum. Á myndinni hér að ofan
má sjá þá Bob Herbold og Bill Gates
frá Microsoft svara spurningum
blaðamanna á föstudaginn en á inn-
felldu myndinni setur Gates upp at-
hyglisverðan svip þegar ein spurn-
ingin er borin fram. Gates sagði
m.a. að nú væri nauðsynlegt fyrir
Microsoft að finna út hvernig best
sé að ljúka málinu þannig að það sé
sanngjamt gagnvart Microsoft, rík-
isstjóm Bandaríkjanna og umfram
allt neytendum.
Ekki búið enn
Þrátt fyrir að dómarinn hafi til-
kynnt þetta á fóstudaginn er réttar-
höldunum enn ekki lokið. Næsta skref
er að lögmenn verjenda og sækjenda
fá tækifæri til að svara úrskurði dóm-
arans sem síðan gefur lokaniðurstöðu
sina um það hverjir vinni endanlega
málið í byrjun næsta árs.
Sérfræðingar telja hins vegar að í
ljósi úrskurðar dómaróms á fóstudag
muni Microsoft leita allra leiða til að
semja við hið opinbera um málið áður
en því lýkur endanlega fyrir rétti.
Talið er að slíkt væri besti kostur fyr-
irtækisins úr því sem komið er.
En hvernig sem fer er ljóst að þessi
réttarhöld munu úr þessu hafa veru-
leg áhrif á framtíð Microsoft. Að öll-
um líkindum verður að skipta fyrir-
tækinu upp í nokkrar mismunandi
deildir, gefa grunnkóða Windows-
stýrikerfisins frjálsan, banna fyrir-
tækinu að veita afslátt af Windows til
einstakra fyrirtækja eða skipta fyrir-
tækinu upp í nokkur lítil sams konar
fyrirtæki.
:nr
® Nýtt eldhús fyrir jól ®
HÖNNUN OG RÁÐGJÖF
Við veitum fólki ráðgjöf og leggjum fram hugmyndir að því hvernig best er
að haga innréttingunni þar sem þarfir fjölskyldunnar eru hafðar í fyrirrúmi.
ími 530 2800
Þú hefur tímatil 10. nóvember
til að ákveða þig
Líttu inn í glæsilegan sýningarsal
að Lágmúla 8, 3. hæð
og kynntu þér málið.
Opið laugardag frá 10 til 16
FJÖLBREYTT ÚRVAL - STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
Úrval HTH-innréttinganna er mjög fjölbreytt, þar serti útfærslur geta verið
margvíslegar. Afgreiðslutími á HTH-innréttingum er fjórar vikur, en getur
farið í sex vikur ef um sérsmíði er að ræða. Ef þú ákveður þig fyrir 10.
nóvember næstkomandi getur þú fengið innréttinguna fyrir jól.
ÖLL TÆKI í ELDHÚSIÐ
Auk eldhúsinnréttinga er boðið upp á öll tæki, sem þarf í nútímaeldhús, svo
sem eldunartæki hvers konar, viftur, háfa, kæliskápa, frystiskápa, vaska,
blöndunartæki, Ijós o.fl. Séu raftækin keypt með eldhúsinnréttingunni,
bjóðast þau á heildsöluverði.