Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1999, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
Sögusagnir um njósnanet eflast:
Fylgst meo oll-
um fjarskiptum
- er Echelon verkfæri Stóra bróöur?
fjiij
íllSJ'Jil
Flest okkar taka
sögusögnum um
að Stóri bróðir
sé að fylgjast
með okkur dag-
lega sem hverri
annarri aðfarar-
sýki, sem helst eigi heima í vísinda-
skáldsögum. Að undanfömu hafa þó
borist fréttir frá virtum fréttastof-
um um að almenningur um allan
heim sé í alvöru undir smásjánni á
hverjum degi - það sé verið að fylgj-
ast með okkur.
Það sem hér um ræðir er njósna-
netið sem gengur undir nafninu
Echelon. Að því standa Bandaríkin,
Bretland, Kanada, Ástralía og Nýja
Sjáland. Opinberlega neita yfirvöld
allra þessara landa aö Echelon sé
til, en nýlega viðurkenndi Bill
Blick, háttsettur yfirmaður öryggis-
Eins og við er að búast
eru þeir margir sem
taka fregnum afþessu
ofvaxna njósnaneti
ekki fagnandi og sér í
lagi hafa samtök sem
berjast fyrir friðhelgi
einkalífsins og per-
sónuleynd kvartað yfir
Echeion.
mála í Ástralíu, fyrir BBC-fréttastof-
unni að njósnanetið sé engu að síð-
ur staðreynd. Jafnframt hefur
blaðamaðurinn Duncan Campbell
náð með margra ára rannsóknum
fram í dagsljósið ýmsum sönnunar-
gögnum varðandi Echelon sem
renna stoðum undir grun manna
um njósnanetið.
Leitaö aö oröum
En út á hvað gengur Echelon?
Það er enn ekki vitaö fyrir víst en
margir vilja meina að þetta sé mjög
þéttriðið net hlerunartækja sem
fylgist með svo til öllum símtölum,
faxsendingum og tölvupóstsending-
um í heiminum.
Vissulega stórt og mikið verkefni,
en það er framkvæmt m.a. með risa-
stórum loftnetum sem staðsett eru
víðs vegar um heiminn og hlera
sendingar um gervihnetti. Einnig er
talið að gervihnettir séu notaðir til
að hlera fjarskipti. Sérstök hlerun-
artæki sem staðsett eru á lykilstöð-
um á Intemetinu sjá svo um að
fylgjast meö tölvupóstsendingum.
En að sjálfsögðu er svo ekki gríð-
arlegur fjöldi manna sem hlustar á
hvert símtal og les hvern tölvupóst.
Þess í stað leitar Echelon-kerfið að
ákveðnum orðum i samtölum og
skeytasendingum, og ef þessi orð
koma fyrir í samtalinu eða bréfinu
þá fer upptaka af stað og síðan er
samtalinu komið áfram til þeirra
sem hafa umsjón með njósnanetinu.
Þeir em einnig til sem segja að
Meðal þess sem lekiö hefur út um njósnanetiö er aö þaö hafi veriö notaö til
aö hlera samtöl Díönu prinsessu og síöustu vikurnar fyrir andlát hennar hafi
ýmislegt athyglisvert komiö þar fram.
þetta sé ekki rétt lýsing á
Echelon. Njósnanetið
sé vissulega uppbyggt á
þennan hátt, en það sé
ekki fylgst með öllum sam-
tölum og sendingum al
mennings heldur sé ein-
göngu fylgst með einstak-
lingum sem umsjónar-
menn Echelons telja
vera áhugaverða.
Ekki bara þjóðar-
öryggi
Tilgangurinn
með Echelon er
upphaflega
varðveita þjóðar-
öryggi þeirra
ríkja sem að
Netinu
standa, og
enn gegnir það
því hlutverki, en upp-
haf Echelon má rekja
aftur til ársins 1971.
Þjóðaröryggi og barátta
gegn hryðjuverkum
virðist þó ekki vera
eina notagildi
Echelons, því svo virð-
ist sem það hafi einnig
verið nýtt til að tryggja
viðskiptahagsmuni
stórfyrirtækja frá þess-
um löndum. Duncan
Campbell hefur t.d. tek-
ið í umfjöllun sinni
dæmi af símtali frá
Smokkar eru meöal þeirra hluta sem Gary North ráöleggur fólki aö safna aö
sér vegna 2000-vandans. Hann telur aö þeir geti orðiö mikilvægur gjaldeyr-
ir eftir aö bankakerfiö hrynur.
2000-vandinn fer minnkandi:
Tímasprengjan
orðin púðurkerling
- þó enn til menn sem ráðleggja smokkahömstrun
Hræösla fólks viö aö breiöþotum muni rigna af himnum ofan eftir áramót er
meb öllu ástæöulaus aö mati flestra spekinga um 2000-vandann.
Hinn margum-
talaði 2000-
vandi hefur nú
stökkbreyst úr
tifandi alheims-
tímasprengju í
meinlausa púð-
urkerlingu að mati helstu sérfræð-
inga um vandann. Margir þeirra
sem spáðu hroðalegum afleiðing-
um þess á gjörvallt mannkyn þeg-
ar allar tölvur hrynja næstkom-
andi gamlárskvöld eru nú að draga
spár sínar til baka.
Þessir sömu sérfræðingar halda
því nú fram að sökum snilldar
þeirra í að koma auga á vandann og
gera heiminum aðvart um hann
með vel heppnúðum áróðursher-
ferðum geti mannkynið nú slakað á
um áramótin og fagnað þeim
áhyggjulaust. Hvort sem menn
kjósa að kalla þau árþúsundamót
eður ei. Ljós munu áfram loga og
símar munu virka, a.m.k. eftir að
venjubundið áramótaálag á símkerf-
ið hefur minnkað. Breiðþotum mun
ekki rigna af himnum ofan. Sið-
menningin mun ekki líða undir lok,
því þó svo togni kannski aðeins á
hugtakinu rétt á meðan áramóta-
gleðin stendur sem hæst þá ætti
slíkt að jafna sig fyrri hluta janúar-
mánaðar og það án allrar hjálpar
tölvunarfræðinga.
Kostar sitt
En þessi vonandi vel heppnaða
eyðing 2000-vandans er ekki ókeyp-
is. Rannsóknar- og ráðgjafarfyrir-
tækið Gartner Group, sem er leið-
andi i eftirliti með málum tengdum
2000-vandanum, metur það svo að
fyrirtæki um allan heim hafi þurft
að kosta sem svarar 300-600 millj-
örðum dollara (um 22.000 til 44.000
milljörðum króna) við lausn vand-
ans. Annað hátækniráögjafarfyrir-
tæki, IDC, telur að kostnaðurinn sé
hins vegar ívið lægri, eða um 250
milljarðar dollara, þó nógu há sé sú
upphæð nú.
IDC telur aö kapphlaupið við
2000-vandann sé unnið að mestu
leyti, þó svo einhver truflun geti
orðið, sérstaklega ef ofsahræösla
.......
ÍÖIVUr'
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
21
frönsku fyrir-
tæki sem var að
gera tilboð í stórt
verkefni í Brasil-
| íu. Þetta fór ekki
framhjá banda-
ríska armi
Echelons sem
Campbell segir að
hafi lekið þessum
upplýsingum
bandarískan keppinaut hins
franska fyrirtækis sem yfirbauð og
fékk að endingu verkefnið.
Andóf gegn Echelon
Eins og við er að búast eru þeir
margir sem taka fregnum af þessu
ofvaxna njósnaneti ekki fagnandi og
sér í lagi hafa samtök sem berjast
fyrir friöhelgi einkalífsins og per-
sónuleynd kvartað yfir Echelon.
Fjölmargar vefsíður hafa verið sett-
ar upp sem fjalla um þetta mál og
má t.d. nefna Echelon Watch
(http://www.echelonwatch.org)
sem gott dæmi um slíka síðu, en það
eru samtökin American Civil
. Liberties Union sem standa fyrir
henni.
Slík samtök hafa einnig staðið
fyrir baráttudegi gegn Echelon, sem
haldinn var i fyrsta sinn í október á
þessu ári. „Jam Echelon Day“ var
hann kallaður, sem gæti útlagst á
islensku sem „Echelonstífludagur-
inn“. Hann gekk út á að fá sem
flesta til að setja orð sem væru lík-
leg til að vekja áhuga njósnanetsins
inn í tölvupóst sinn og nota þau i
símtölum í þeirri veiku von að
Echelon myndi stíflast af þeim sök-
um.
En það eru ekki bara litlir hópar
áhugamanna um friðhelgi einkalífs
sem hafa áhyggjur af Echelon. Mál-
efni þessa meinta njósnanets eru
farin að dúkka upp á æðstu stöðum
og hefur Evrópuþingið m.a. hafið
rannsókn á þessu máli með dyggri
aðstoð blaðamannsins Duncan
Campbell. Bandaríska þingið hefur
einnig dregist inn í umræðuna en
fulltrúadeildarþingmaðurinn Bob
Barr hefur að undanförnu tekiö
málið upp á þinginu og beðið um
skýringar á stefnu Bandaríkja-
manna í þessum málum.
Hvort honum tekst að ná fram op-
inberri staðfestingu á að Echelon sé
til er enn á huldu, en þangað til ein-
hverjum tekst að komast að hinu
sanna í þessu máli er líklegt að
mörgum finnist eins og Stóri bróðir
fylgist óþægilega vel með sér.
Sögusagnirnar um
Echelon eru margar hverjar
svo stórbrotnar aö
þær ættu helst heima
í sögu um martini-hristarann
James Bond.
„Það munu verða ein-
hver vandræði, hvort
sem það er vegna
2000-vandans, slæms
veðurs eða óskynsam-
legrar hegðunar al-
mennings,11 segir í
skýrslu fyrirtækisins.
„En almenn móðursýki
vegna 2000-vandans
er með öllu ástæðu-
laus.
gríþur um sig meðal almennings og
fólk tekur að hamstra lausafé eða
mat síðustu dagana fyrir áramót.
„Það munu verða einhver vand-
ræði, hvort sem það er vegna 2000-
vandans, slæms veðurs eða óskyn-
samlegrar hegðunar almennings,"
segir í skýrslu fyrirtækisins. „En al-
menn móðursýki vegna 2000-vand-
ans er með öllu ástæðulaus.“
Heimsmarkaðurinn óhultur
Vissulega eru ýmis lönd verr sett
en önnur, þar á meðal risaveldið
Kína, sem hefur takmarkað aöhafst
í lausn vandans. En það mun ekki
koma verulega að sök, því tæknistig
landsins er almennt lágt og þar í
landi reiða menn sig hlutfallslega
lítið á tölvur eða tölvustýrðan bún-
að. í skýrslu IDC kemur fram aö
sennilega muni Suður-Ameríkuríki
og ýmis Asíulönd við Kyrrahafið
verða hvað verst úti, því í þessum
löndum er hátækni talsverð, en
mikið af ólöglegum hugbúnaði í um-
ferö sem ekki hefur verið gerður
2000-hæfur.
Spár um að heimsmarkaðurinn
mimi verða fyrir miklum skakka-
follum af völdum 2000-vandans eru
hins vegar ýktar að mati IDC. í
skýrslu fyrirtækisins kemur fram
að einungis er búist við að fjárhags-
leg áhrif hans muni nema um 25
milljörðum dollara (um 1.800 millj-
arðar króna), sem er einungis brota-
brot af ársveltunni á alheimsmark-
aðinum.
Safnið smokkum
En það eru ekki allir jafn bjart-
sýnir á farsæla lausn og EDC í þess-
um málum. Gary North prófessor
heldur úti heimasíðu um 2000-vand-
ann(http://www.garynorth.com/)
þar sem hann varar við yfirvofandi
stórslysi vegna hans. Hann hefur
flutt ásamt fjölskyldu sinni í strjál-
býl héruð Arkansas-fylkis þar sem
hann hyggst þreyja þorrann meðan
vestræn siðmenning riðar til falls
eftir áramót.
North ráðleggur fólki að hamstra
eldiviö, vatn og mat og segir því að
selja öO hlutabréf sin sem fyrst. Og
menn eiga ekki að hamstra peninga
heldur gull, því bankar munu verða
óstarfhæfir. Ef ekkert finnst gullið,
þá ráöleggur prófessorinn fólki að
safna að sér vöru sem auðvelt verð-
ur að pranga með, eins og t.d. vind-
lingum, munntóbaki, byssukúlum,
smokkum, klósettpappír og öðrum
slíkum vamingi.
Og þá er bara að bíða og vona að
IDC hafi rétt fyrir sér í þessum mál-
um - eöa hefja smokkasöfnunina;
það má þá alltaf nota gúmmíið í ára-
mótagleðinni ef allt fer vel.
í síðustu viku
var opnuð
þjónusta á
Netinu hér á
landi sem
naut svo mik-
illa vinsælda
á fyrstu dögum að netþjónustan
sem hýsti heimasíðu fyrirtækisins
hreinlega réð ekki við gríðarlega
mikinn fjölda heimsókna. Málinu
var þó kippt í liðinn þar á bæ eftir
hrunið og heimasiðan komst í
gang aftrn-.
En hvers vegna var áhugi al-
mennings á viðkomandi þjónustu
svo mikill? Jú, fyrirtækið bauðst
til að greiða fólki beinharða pen-
inga fyrir að horfa á auglýsingar á
Netinu. BePaid
(http://www.beDaid.com/) heitir
fyrirtækið og byggir það á alís-
lenskri hugmynd og hugviti.
„Þessi hugmynd fæddist
snemma á þessu ári hjá okkur,“
segir Ingvar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri BePaid. „Frá því við
útfærðum hugmyndina hafa að
vísu komið á Netið önnur fyrir-
tæki sem bjóða fólki pening fyrir
að hafa auglýsingu á skjánum hjá
sér, en okkar hugmynd er útfærð á
allt annan hátt.“
Áhugasamur áhorfandi
BePaid gengur út á að notendur
setja upp hjá sér lítið forrit sem
tekur við tilboðum frá auglýsend-
um. Tilboðið birtist í vafra notand-
ans og ef hann tekur tilboðinu
horfir hann á auglýsinguna, sem
tekur nokkrar sekúndur, auk þess
sem auglýsingin getur beðið not-
andann að svara einfóldum spum-
ingum. Að þessu loknu leggst á
reikning notandans sú fjárupphæð
sem auglýsandinn bauð notandan-
um í tilboði sínu.
„Auglýsendur eru þama að
greiða nokkuö hærri upphæð á
hvem áhorfanda heldur en með
hefðbundnum auglýsingum, en
það sem þeir fá i staðinn er áhorf-
andi sem hefur áhuga á því mál-
efhi sem verið er að auglýsa. Aug-
lýsandinn getur jafiiframt spurt
áhorfandann spuminga sem getur
veitt honum mikilvægar upplýs-
ingar um vörana sem verið er að
auglýsa eða jafnvel sjálfa auglýs-
inguna,“ segir Ingvar.
Ótrúlegar viötökur
Þegar notandi BePaid skráir sig
í upphafi gefur hann upp helstu
áhugasvið sín, sem leiðir til þess
að hægt er að beina auglýsingun-
um til þeirra sem mestar líkur era
á að hafi áhuga á viðkomandi
vöra. Skráningarkerfi BePaid er
annars nokkuð einfalt og ættu
flestir að geta komist í gegnum það
klakklaust án þess að lenda í vand-
ræðum, ef marka má reynslu DV-
Heims.
En hvernig hafa viðtökumar
verið? „Alveg ótrúlega góðar,“ seg-
ir Ingvar. „Þrátt fyrir hina tækni-
legu erfiðleika í byrjun hefur gríð-
arlegur íjöldi fólks skráð sig, bæði
hér heima og erlendis, og við höf-
Þegar notandi
BePaid skráir sig í
upphafi gefur hann
upp helstu áhuga-
svið sín, sem leiðir til
þess að hægt er að
beina auglýsingun-
um tilþeirra sem
mestar líkur eru á að
hafi áhuga á viðkom-
andi vöru.
um verið að ná allt upp í 10.000
manns á dag hjá okkur. Aug-
lýsendur hafa einnig tekið veru-
lega vel í þennan möguleika og
mjög margir era aö hanna auglýs-
ingar sem þeir ætla að birta hjá
okkur.“
Auglýsingarnar sem notandinn
fær gegnum BePaid era byggðar á
tækni sem gerir kleift að birta
hreyfimyndir sem taka mjög lítið
pláss og tekur því mjög stuttan
tíma að hlaða þeim niður á tölvu
notandans.
Mikil stækkun yfirvofandi
En verður maður ríkur af því að
horfa á auglýsingar með hjálp
BePaid? „Nei, það er
nú hæpið,“ segir Ingv-
ar. „Þegar fram í sæk-
ir má kannski búast
við að hver notandi
fái 10-20 auglýsingatil-
boð á dag sem myndu
kannski taka hann
samtals 2 mínútur að
horfa á ef hann tekur
þeim öllum. Það ætti
að skila honum ein-
hveijum hundruðum
króna, allt eftir eðli
tilboðanna. Þetta gæti
því orðið ágætis búbót, þó ekki
yrði það lifibrauð neins.“
Peninginn er hægt að fá sendan
heim eftir að ákveðinni upphæð er
náð eða gefa hann til góðgerðar-
starfsemi. I framtíðinni er svo
stefnt að því að hægt verði að
leggja peninginn inn á ákveðna
netbanka og nota þá til að panta
vörur gegnum Netið.
Ingvar segir að BePaid stefni
hátt á næstu mánuöum. „Við eram
í dag með sjö starfsmenn, en ætl-
um að bæta verulega við á næst-
unni, sérstaklega erlendis. Mest-
megnis vantar okkur núna auglýs-
ingasölumenn til að kynna þennan
nýja möguleika fyrir fyrirtækjum.
Miðaö við viðtökurnar sem við
höfum fengið og áhugann á BePaid
er alveg ljóst að fyrirtækið mun
stækka verulega á næstunni," seg-
ir Ingvar Guðmundsson að lokum.
-KJA
Skráningar fram-
ar öllum vonum
- stefnt að mikilli Qölgun starfsmanna
Ingvar Guömundsson, framkvæmdastjóri BePaid, hefur í nógu aö snúast þessa dagana, enda stutt síöan fyrir-
tækiö kom fram fyrir sjónir almennings. Hann stefnir aö því aö koma á fót útibúum erlendis sem allra fyrst.
DV-mynd Teitur
BePaid fær góðar viðtökur: