Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1999, Síða 7
24
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
jólanndirbúningurvm í nCT desember.
Jakob Jakobsson fiskifræðingur:
Höfum alltaf
mikla síld á borðum
Jakob Jakobsson fiskifræðingur
og hans fjölskylda heldur fast í þann
sið að hafa rjúpur á borðum á að-
fangadagskvöld.
„Við erum með rjúpur og höfum
haft þær í nokkuð mörg ár. Þessi sið-
ur er kominn frá eiginkonu minni,
en hennar foreldrar höfðu rjúpur á
jólaborðinu. Ég sætti mig mjög vel
við að taka það upp og um það hefur
aldrei orðið ágreiningur. Annars var
ég alinn upp við það hjá foreldrum
mínum að hafa svið og hangikjöt á
jólunum.
Um áramótin hefur þetta verið
svolítið breytilegt hjá okkur. í seinni
tíð höfum við þó oftast verið með
kalkún. Reyndar er það nú svo að
tvö síðustu árin höfum við borðað
hjá krökkunum okkar á jólunum, en
þau aftur hjá okkur á gamlárskvöld
og þá kalkún."
- Kemur þú nálægt eldamennsk-
unni sjálfur?
„Já, ég geri það. Ég er aðstoðar-
kokkur og tek svona vissa hluti að
mér. Þegar við eldum rjúpur, tek ég
bringumar af með góðum fyrirvara.
Konan fær beinin, lappirnar rassana
og allt saman og soðið af því er not-
að í æðislega fína sósu. Ég sé hins
vegar um bringumar og bregð þeim
á pönnu eftir að allir eru sestir. Þá
steiki ég þær í tvær mínútur á hvort
borð og passa að fólkið bíði eftir
matnum, en maturinn ekki eftir þvi.
Kalkúninn tekur lengri tíma að elda.
Konan fyllir hann af klaka sem síðan
bráðnar við steikinguna og viðheld-
ur vökvanum i kjötinu. Hann verður
Jakob Jakobsson fiskifræðingur:
„Síld glergerðarmannsins er hvað vinsælust.11
mjög mjúkur og ljúffengur við þetta.
Síðan útbýr hún fyllinguna sér.
Þá höfum við alltaf humarveislu
annan í jólum. Ekki má heldur
gleyma síldinni, hana verka ég sjálf-
ur,“ sagði Jakob sem var einmitt að
flaka jólasUdina í gærkvöldi. „Ég
flaka hana og legg hana í bleyti í
rúman sólarhring. Þá er hún sett í
mismunandi verkun, eins og sUd
glergerðarmannsins sem er hvað
vinsælust og viskísUd, sérrísUd,
tómatsUd, svona þrjár tU fjórar lag-
anir. Maður verður að passa að gera
þetta með hæfUegum fyrirvara svo
hún verði akkúrat tUbúin á jólunum.
Ég útvega mér aUtaf óflakaða sUd,
því mér finnst hún verkast betur
svoleiðis en ef ég fæ hana flakaða.
Við höfum alltaf mikla sUd á borðum
um hátíðamar og svo gef ég vinum
og kunningjum líka.“ -HKr.
Kristín Magnúsdóttir blómaskreytingameistari:
„Helstu litirnir eru blátt og silfur en annars eru þaö bara meiri skreytingar en gengur og gerist."
Bryndis Hloöversdóttir:
„Svo drekkum viö malt og appelsín
meö öllu saman."
Bryndís Hlöðvers-
dóttir alþingismaður:
Hamborgar-
hryggur og
möndlugjöf
Fagurskreytt borð
um árþúsundamót
- að hætti Kristínar Magnúsdóttur blómaskreytingameistara
Um þessi áramót er
meira við haft í skreyt-
ingum og ýmsu öðru en
venjulega gerist. Ástæð-
an er fyrst og fremst ár-
þúsundamót er ártalið
breytist úr 1999 í 2000.
Kristín Magnúsdóttir
blómaskreytingameistari
hefur haft atvinnu af
ýmiss konar skreytinga-
vinnu sl. 30 ár og miðlar
m.a. nemendum Hótel-
og matvælaskólans af
þekkingu sinni. Hún
starfar einnig í Húsi
blómanna í Birkihlíð í
Kópavogi og segir að í til-
efhi af þessum tímamótum
skreyti fólk áramótaborðin
veglegar en venjulega.
„Helstu litirnir eru blátt
og silfur en annars eru
það bara meiri skreyting-
ar en gengur og gerist."
Kristín tók sig til fyrir
lesendur DV að setja upp
skreytt borð eins og hún
sér fyrir sér að „alda-
mótaborðið“ geti litið út.
-HKr.
„Við ætlum að vera með heit-
an hamborgarhrygg í aðalrétt á
aðfangadagskvöld. Það er komin
hefð á þennan jólamat hjá okkur
fyrir löngu. f forrétt verður
kaldur rækjuréttur sem Hákon
maðurinn minn útbýr jafnan.
Eftirrétturinn er svo alltaf
heimalagaður ís með möndlu og
að sjálfsögðu möndlugjöf fyrir
þann heppna,“ segir Bryndís
Hlöðversdóttir alþingismaður.
„Svo drekkum við auðvitað malt
og appelsín með öllu saman.“
Veisluhöldin halda síðan
áfram á jóladag með hefðbundnu
hangikjöti í hádeginu og jóla-
hlaðborði um kvöldið.
Hvað með gamlárskvöld? „Við
erum að mestu búin að skipu-
leggja matinn á gamlárskvöld en
við borðum alltaf með vinafólki
okkar og þeirra bömum. Eins og
venjulega verður kalkúnn með
öllu tilheyrandi á borðum. Hvað
verður í forrétt og eftirrétt er þó
enn ekki afráðið," segir Bryndís
Hlöðversdóttir.
-aþ
Falleqt og tært kristalsglas
með 24 karata gullskreytingu.
Glasið er gjöt við öll tækifæri
-brúðkaup, afmæli, skírn,
útskriftargjöf, jólagjöf, ofl.
-Einstakur minjagripur
og liklega sa fallegasti.
Tilboðsverð:
2 stk. i kassa kr:3.500.-
m
RISTALL
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
jólaundirbúningurinn i PCT desember.
25
a//o/?m
orona veisiuoorojo
sérvaliö hráefni
fyrsta flokks meðhöndlun
lágmarks fyrirhöfn
KJÖTVINNSLAN ESJA EHF. SMIÐJUVEGI 10 KÓPAVOGI SÍMI 567 6640
Hátíðarmatseðill
í Perlunni 31. desember
Lvstauki á L hæð:
Kampavín
Vestfjarðakvíirtett
(grásleppuhrogn,
marhænuhrogn, silungahrogn
og loðnuhrogn) og jarðarber.
Forréttur:
Grænmeti úr garði Levetzows
greifa á Bessastöðum.
MiHiréttur:
Heiðasúpa úr norðlenskri rjúpu.
Fiskréttur:
Sjávargull úr Breiðafirði.
Aðalréttur:
Himnasending hertogans - önd
undan Esjurótum með skógar-
sveppum frá Hallormsstað.
Eftirréttur:
Finale frá menningarborgum
Evrópu árið 2000, Reykjavík,
Bologna, Santiago De
Compostela, Helsinki,
Bergen, Avignon, Bmssel
og Prag.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona:
„Um þessar mundir hangir tvítaöreykt hangilæri I glugganum hjá mér
og við stelumst í það annaö veifið fram að jólum."
Himnasend-
Steimmn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona:
ing hertogans
Ganua árið verður kvatt og nýju
heilsað í Perlunni eins og víðast
annars staðar á árþúsundamótum.
Þá verður Perlan undirlögð af hátíð-
ardagskrá og kvöldverði i tilefni af
því er Reykjavík tekur síðust níu
evrópskra borga við titlinum Menn-
ingarborg Evrópu árið 2000.
Margrétta matseðill verður á
boðstólum fyrir matargesti og fjöl-
breytt skemmtidagskrá verður
einnig í gangi af þessu tilefni. Þar
verður m.a. boðið upp á söng 90
manna kórs frá borgunum níu og
verður þeim söng sjónvarpað um
allan heim á vegum BBC. Klykkt
verður út með mikilli flugeldasýn-
ingu rétt í þann mund er gamla árið
kveður. Þar verður skotið á loft
flugeldum í litum menningarborg-
anna níu, Reykjavík, Bologna,
Santiago De Compostela, Helsinki,
Bergen, Avignon, Brussel og Prag.
Þórunn Sigurðardóttir er fram-
kvæmdastjóri Reykjavík menning-
arborg árið 2000. Hún segir að þessi
hátíð í Perlunni sé formlegur hluti
af opnun menningarársins. Undir-
búningur að þessu menningarári
hefur staðið í fimm ár. Formleg dag-
skrá menningarársins hefst síðan í
Reykjavík 29. janúar þegar Islend-
ingar verða væntanlega búnir að
jafna sig að mestu á jóla- og ára-
mótagleðinni.
Frönsk saffranfiskisupa og rjúpur
„Ég ætla að hafa saffranfiskisúpu með
kræklingi og laxi í forrétt á aðfangadag. Ég
hef aldrei áður gert hana en ég smakkaði
hana í París um daginn og hún var svo góð
að ég ákvað að prófa hana í jólamatinn,"
segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leik-
kona. „Ég er alltaf með rjúpur í jólamatinn,
með brúnuðum kartöflum, heimagerðu
rauðkáli og ofnbökuðum perum. Svo er
jólamöndlugrauturinn hennar ömmu Guð-
rúnar algjorlega ómissandi á aðfangadag.
Um þessar mundir hangir hins vegar tví-
taðreykt hangilæri í glugganum hjá mér og
við stelumst í það annað veifið fram að jól-
um,“ segir Steinunn brosandi. Hún segist
ekki vera búin að ákveða hvað verði í mat-
inn á gamlárskvöld. Það verði þó örugglega
villibráð, jafnvel hreindýr. „Það er ekkert
mál að steikja villibráð. Maður þarf bara að
hafa trú á sér og hugsa fallega til matar-
gestanna. Annars klúðrast eldamennskan
örugglega," segir Steinunn Ólína. -HG
Menningarborgarmáls-
verður í Perlunni á
gamlárskvöld: