Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000
23
I>V
Sport
íslandsmótið í innanhússknattspyrnu:
Tvöfalt á
afmælisári
- Breiðablik sigraði bæði í karla- og kvennaflokki á 50 ára afmælinu
í *
P||f ' f r
sitti .: febS ^ í
Þaö vantaði ekkert á gleðina hjá Breiðabliksliðunum eftir íslandsmótið t gær. Á stóru myndinni má sjá bæði liðin saman. Á myndinni neðst vinstra megin
fagna stelpurnar góðum og óvæntum sigri á KR í úrslitum en Hákon Sverrisson hefur bikarinn hátt á loft á myndinni hægra megin. DV-mynd Hilmar
Breiðablik, sem fagnar 50 ára af-
mæli á þessu ári, fékk skemmtilega
afmælisgjöf frá meistaraflokkum
karla og kvenna í Laugardalshöll í
gær þegar bæði lið tryggðu félaginu
fyrstu íslandsmeistaratitlana á af-
mælisárinu. Aðeins einu sinni áður
hafa Blikamir fagnað tvöfalt, fyrir
18 árum, árið 1982.
Blikastrákamir gáfu það til
kynna fyrr í þessum mánuði að þeir
myndu mæta sterkir til leiks á ís-
landsmótið er þeir sigruðu á Gróttu-
mótinu. En þar vantaði mörg lið
sem léku í Höllinni um helgina, auk
þess sem titiil í einu móti gefur
aldrei tilkall til annars í öðru móti.
Breiðablik átti í mestu erfiðleik-
um í riðlakeppninni, tapaði fyrir
Fylki 3-0 en vann nauman sigur á
ÍA og Sindra sem dugði því til að
komast í átta liða úrslit. Þar mættu
Kópavogspiltar með hugarfar sigur-
vegarans, lögðu ÍBV 5-2 og mættu
Dalvík í undanúrslitum. Sá leikur
var jafh og spennandi enda Dalvík
kannski það lið sem kom hvað mest
á óvart í keppninni. En Breiðablik
sigraði, 2-1, með mörkum frá Hreið-
ari Bjamasyni og Hjalta Kristjáns-
syni eftir að Atli V. Bjömsson hafði
komið norðanmönnum yfir.
í hinum undanúrslitaleiknum
mættust Fylkir 'og KR. KR-ingar
voru óneitanlega sigurstranglegri
en Fylkismenn höfðu sýnt góðan
leik í riðlakeppninni og komu alls
óhræddir til leiks. Árni Ingi Péturs-
son og Einar Örn Birgisson komu
KR í 2-0 en Eyjólfur Einarsson og
Theódór Óskarsson jöfnuðu. Ámi
Ingi kom KR yfir á ný en Þórhallur
Dan Jóhannsson svaraði að bragði
fyrir Fylki og framlengja þurfti leik-
inn. Ekkert mark var skorað í fram-
lengingunni svo grípa þurfti til víta-
spymukeppni. Þegar hvort lið hafði
tekið tvær spymur varði Þórhallur
frá nafna sínum Hinrikssyni í KR
og Kristinn Tómasson tryggði Fylki
sæti í úrslitaleiknum gegn Breiða-
bliki.
Blikamir áttu óskabyrjun í úr-
slitaleiknum, Hreiðar Bjamason
skoraði á fyrstu mínútu leiksins og
Kristján Sigurðsson bætti við öðru
marki í upphafi seinni hálfleiks.
Kristinn Tómasson minnkaði mun-
inn fyrir Fylki en Hreiðar innsigl-
aði sigur Breiðabliks með góðu
marki og Blikamir fognuðu íslands-
meistaratitlinum.
Erfiö byrjun
„Við byrjuðum erfiðlega, töpuð-
um fyrir Fylki i riðlinum og lentum
í strögli i öðrum leik en svo tókum
við Skagann í riðlinum og komumst
áfram. Um leið og við fórum að
vinna þessa leiki þá fór þetta að
koma,“ sagði Hákon Sverrisson fyr-
irliði Breiðabliks, kampakátur að
leikslokum.
Kvennalið Breiðabliks varð fyrir
talsverðum áfóllum á leið sinni 1 úr-
slitin, þrír lykilmenn síðasta sum-
ars voru meiddir auk þess sem fyr-
irliðinn, Sigrún S. Óttarsdóttir, tók
út leikbann í undanúrslitunum,
vegna rauðs spjalds í síðasta leik
riðilsins sem Blikarnir unnu með
nokkrum yfirburðum.
Breiðablik mætti ÍBV í undanúr-
slitum. Mikillar taugaveiklunar
gætti í báðum liðum en Hrefna Jó-
hannesdóttir og Ema Sigurðardóttir
skoruðu tvö mörk fyrir Blikana án
þess að ÍBV tækist að svara fyrir sig
og tryggðu þátttökurétt í úrslita-
leiknum.
KR, sem lék án nokkurra góðra
leikmanna náði að stilla upp sterku
liði með landsliðskonur í flestum
stöðum, hafði mikla yfirburði í
riðlakeppninni. Þær mættu Val í
undanúrslitum og sigruðu, 3-1, með
tveimur mörkum frá Eddu Garðars-
dóttur og einu frá Elínu Þorsteins-
dóttur. Rósa Júlía Steinþórsdóttir
skoraði mark Vals.
Blikastelpur komu á óvart
Ef litið var á liðin tvö sem mætt-
ust í úrslitaleiknum benti fátt til
annars en hið reynda lið KR myndi
eiga auðvelt með að sigra Blikana.
En Blikastelpumar komu óragar til
leiks þar sem Bára Gunnarsdóttir
fór á kostum í markinu og Hrefna
Jóhannesdóttir bar uppi útispilið.
Jafnt var að loknum venjulegum
leiktíma en Guðlaug Jónsdóttir kom
KR yfir í framlengingunni og flest
benti til þess að titilinn færi í vest-
urbæinn, en Hrefna Jóhannesdóttir
jafnaði þegar 8 sekúndur voru til
leiksloka og vítaspymukeppni
þurfti til að gera út um leikinn. Ást-
hildur Helgadóttir tók fyrstu spyrnu
KR en Bára Gunnarsdóttir gerði sér
lítiö fyrir og varði spymu hennar
og Hrefna Jóhannesdóttir tryggði
síðan Breiðabliki titilinn með ör-
uggri spyrnu.
„Við áttum harma að hefna frá í
fyrra þegar við mættum þeim í arfa-
slökum úrslitaleik og ákváðum að
sýna stuðningsmönnum okkar hvað
í okkur býr. Og það skemmdi ekki
fyrir að strákamir skyldu vinna
líka,“ sagði Sigrún S. Óttarsdóttir,
fyrirliði Breiðabliks.
Staöráönir í aö sigra
„Við vorum staðráðnar í að gera
vel og ákveðnar í að láta það ekki á
okkur fá þó það séu margar meidd-
ar. Það sýndi sig í dag að ungu
stelpurnar okkar eru traustsins
verðar, stóðu sig mjög vel og þurfa
greinilega ekkert á okkur gömlu að
halda.“
En það kom nú ein gömul inn í
liðið fyrir þetta mót?
„Já það var mjög gaman að hafa
Ástu (Gunnlaugsdóttur) með, hún
hefur æft með okkur í vetur og hún
skilar vel reynslu sinni út til liðs-
ins,“ sagði Sigrún.
Ásta tók fram skóna
Ásta B. Gunnlaugsdóttir, sem
ekki hefur leikið með Blikunum síð-
an 1996, tók við íslandsbikamum úr
hendi Halldórs B. Jónssonar, vara-
formanns KSÍ. Hún ákvað að draga
fram skóna í haust og hefur æft með
liðinu síðan, en ætlar hún að vera
með í sumar?
„Ég get ekki svarað þessu öðru-
vísi en þannig að ég taki einn dag í
einu. En þetta er góð líkamsrækt
svo það er aldrei að vita,“ sagði hin
síunga Ásta B. Gunnlaugsdóttir sem
verður 39 ára í vor.
-ih
Urslitin
1. deild karla A-riðill:
Hvöt-Fram . 0-5
Leiftur-Valur .1-4
Fram-Valur . 1-0
Hvöt-Leiftur .2-2
Leiftur-Fram . 1-6
Valur-Hvöt . 2-2
Fram 3 3 0 0 12-1 9
Valur 3 111 6-4 4
Hvöt 3 0 2 1 4-9 2
Leiftur 3 0 1 2 4-12 1
B-riðill:
KR-Daivík . 2-0
Víkingur R.-Keflavík . 4-2
Dalvík-Keflavík .4-2
KR-Víkingur R . 4-2
Víkingur R.-Dalvik . 0-4
Keflavik-KR . 1-3
KR 3 3 0 0 9-3 9
Dalvík 3 2 0 1 8-4 6
Víkingur R. 3 1 0 2 6-10 3
Keflavik 3 0 0 3 5-11 0
C-riðill:
Þróttur R.-Grindavík . 4-3
Víðir-ÍBV . 2-4
Grindavík-ÍBV .0-4
Þróttur R.-Víöir . 5-0
Víðir-Grindavík .2-3
ÍBV-Þróttur R . 5-2
ÍBV 3 3 0 0 13-4 9
Þróttur R. 3 2 0 1 11-8 6
Grindavík 3 1 0 2 6-10 3
Viðir 3 3 0 0 4-12 0
D-riðill:
Fylkir-Breiðablik . 3-0
ÍA-Sindri .4-2
Breiðablik-Sindri .3-2
Fylkir-ÍA 1-1
ÍA-Breiðablik 3-4
Sindri-Fylkir 1-3
Fylkir 3 2 1 0 7-2 7
Breiðablik 3 2 0 1 7-8 6
ÍA 3 1118-7 4
Sindri 3 0 0 3 5-10 0
8-liða úrslit:
KR-Valur .3-1
Fram-Dalvík 0-2
Fylkir-Þróttur R 2-1
ÍBV-Breiðablik 2-5
Undanúrslit
KR-Fylkir 5-6 (vítaspk.)
Breiðablik-Dalvík .2-1
Úrslit
Breiðabik-Fylkir .3-1
1. deild kvenna: A-riðiil:
Fjölnir-KR 0-11
ÍBV-Stjaman 5-1
Sindri-Fjölnir 5-2
KR-lBV 3-0
Stjarnan-Sindri 6-1
Fjölnir-ÍBV 1-7
KR-Stjarnan 9-3
ÍBV-Sindri 10-1
Stjaman-Fjölnir 4-2
Sindri-KR 1-6
KR 4 4 0 0 29-4 12
ÍBV 4 3 0 1 22-6 9
Stjarnan 4 2 0 2 14-17 6
Sindri 4 1 0 3 8-24 3
Fjölnir 4 0 0 4 5-27 0
B-riðiIl:
Haukar-Breiðablik 2-5
ÍA-Valur 1-2
FH-Haukar 1-1
Breiðablik-ÍA 2-0
Valur-FH 4-1
Haukar-ÍA 2-9
Breiðablik-Valur 4-3
ÍA-FH 1-0
Valur-Haukar 3-0
FH-Breiðablik .1-5
Breiðablik 4 4 0 0 16-6 12
Valur 4 3 0 1 12-6 9
ÍA 4 2 0 2 11-6 6
FH 4 0 1 3 3-11 1
Haukar 4 0 1 3 5-18 1
Undanúrslit:
KR-Valur 3-1
Breiðablik-ÍBV .2-0
Úrslit
Breiðablik-KR 2-1 (vítasp.)