Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2000, Síða 10
vikuna
4.2- 10.22000
5. vika
Óheppnasta hljómsveit í heimi er án
efa Red Hot Chili Peppers. Hún hefur
sprautað sig alltofmikið og misst
endalaust af gítarleikurum. En
einhvern veginn ná þessi indjánagrey
sér alltaf á strik aftur. Þeir eru fastir í
fyrsta sæti með lagið Other Side.
Vikur
@ OtherSide Red Hot Chilli Peppers á lista 0 6
02) Sexbomb (Remix) Tom Jones * 6
(03) The Dolphins Cry Live t 10
(04) The Great Beyond R.E.M. t 5
(05) Dr. Love Smokin’ Beats / 3
(06) Okkarnótt Sálin Hans Jóns Míns H 9
(07) Learn to Fly Foo Fighters 7
(08) Under Pressure (Rah Mix) Queen & David Bowie 'l' 6
(09) / Learned from the Best Whitney Houston 8
10) Rainbow Country Bob Marley & Funkstar De Luxe t 4
(77) Viltu hitta mig í kvöld Greifarnir & EinarÁgúst t’ 4
12 Tarfur Quarashi 3
(13) SexxLaws Beck 4» 5
(14) If 1 Could Turn back the Hands of Time R.Kelly ■t 8
(75) What a Girl Wants Christina Aquilera Jr 7
(16) Kerfisbundin þrá Maus 4- 7
(77) Alive Beastie Boys J, 5
(18 ) MariaMaria Santana t 6
(79) GoLetltOut Oasis X 1
(20) DearLie TLC 4- 7
Sætin 21 til 40
Q topplag vikunnar
J hástökkvar/
vikunnar
X nftt á tistanum
stendurlstað
yK hækkar sig frá
1 sl/Ustu viku
J, lækkar sig frá
siðrstu viku
f
fait vikunnar
21. BetterBe Good Páll Óskar t 3
22. The World Is Not Enough Garbage (James Bond) 4, 8
23. Shake YourBonBon Ricky Martin 14 5
24. Show Me the Meaning... Backstreet Boys t 3
25. All The Small Things Blink 182 4, 5 j
26. lAm Selma 4, 9
27. Northen Star Melanie C. t 4
28. Baby Blue Emiliana Torrini 4- 5
29. Girl with The Sparkling Eyes Bellatrix X 1
30. Born to Make You Happy Britney Spears 4 4
31. Hann (“Ben" úr Thriller) VédísHervör (Versló) X 1
32. Re-Rewind The Crowd The Arttul Dodger t 2
33. Don 't Call Me Baby Madison Avenue t 3\
34. U Know What's up Donell Jones t 4
35. Move Your Body Eifell 65 4 4
36. Tonite Phats& Small t 2
37. Radio The Corrs 4- 2
38. Back at One Brian McKnight X 1
39. Glorious Andreas Johnson t 2
40. 1 Have a Dream Westlife X 1 :
ifókus
Skoska hljómsveitin The Beta Band er eitt af þessum böndum
sem enska popppressan fór hamförum yfir á síðasta ári.
Nú virðist sem meðlimirnir verði að fara að leita sér að öðru
starfi því fyrsta albúmið þeirra hefur verið að fá frekar slappa
dóma. Sigur Rós hitaði upp fyrir Beta Band í síðustu viku
og Dr. Gunna fannst því við hæfi að tékka á bandinu.
The Beta Band: „Hver vill horfa á arfaljóta karla eins og okkur? Mynd af sveita-
bæ segöi meira um The Beta Band heldur en mynd af okkur.“
Tónlist
ti
skríða
við
Þrír flippaðir vinir í Edinborg
stofnuðu Beta Band árið 1997. Síðar
bættist enskur bassaleikari í hópinn.
Fáum mánuðum eftir stofnun gerðist
Brian Cannon umboðsmaður sveitar-
innar og þá fór að blása byrlega, enda
Brian innvígður í bransann sem um-
slagahönnuður, ber t.d. ábyrgðina á
flestum umslögum Oasis.
Tónlist Beta Band er algjör hrær-
ingur. Flestar hugsanlega stefnur -
popp, blús, þjóðlagarokk, sækadelía,
hipp-hopp og allt hitt - sullast saman í
lögunum og aldrei er notast við jafn
venjuleg gildi og viðlög, erindi eða
melódíur. Tónlistin er framandi kaos
en einhver galdur samt í gangi. Takt-
urinn er mikilvægur. „Þetta er ekki
taktur sem fær þig til glotta og rífa þig
úr skyrtunni,“ segir bandið. „Taktur-
inn fær þig frekar til að skríða um
eins og padda.“
Fyrst komu þrjár ep-plötur,
„Champion Versions“ 1997 og „The
Patty Patty Sound“ og „Los Amigos
del Beta Bandidos“ ári síðar. Þessi
verk fengu enska poppblaðamenn til
að froðufella og stórfyrirtækið
Parlophone til að fjárfesta í bandinu.
Þá var ep-plötunmn safnað saman á
eitt albúm sem hét einfaldlega „The 3
ep’s“ og er fín fyrir þá sem aðhyllast
framsækið flipp.
Meistaraverk
eða ringulreið?
Síðasta ár lágu Beta-bræður í hljóð-
verum og albúmið „The Beta Band“
kom út sl. sumar. Fyrsta lagið á plöt-
unni, „The Beta Band Rap“, er fyrir-
boði um restina. Lagið byrjar á
sjúskuðum rakarakór, síðan kemur
grínaktugt gangsta rapp um ágæti
sveitarinnar, loks leysist lagið upp í
falskt gól úr lélegum karaoke-Elvis.
Lögin eru tíu og öll jafnfjölbreytt og
framandi og það fyrsta. Það þarf held-
ur betur að hafa sig við til að reyna
að „ná“ plötunni. Og svo er líka
spurning hvort það sé þess virði. Ég er
á báðum áttum en ekki frá því að ég
sé farinn að flla þetta aðeins, a.m.k.
sum lög.
Gagnrýnendur hafa líka ekki alveg
verið með plötuna á hreinu. „Hvorki
meistaraverk né ringulreið heldur
bæði,“ sagði All Music Guide og NME
gaf henni 6 af 10 og tautaði: „Þeir
bjuggu þessa plötu bara til fyrir sjálfa
sig og ef einhver annar elskar hverja
sekúndu af henni út af lífinu er það
ekki bónus heldur kraftaverk."
Lélegar afsakanir
og brjálaðar hugmyndir
Fremstir í flokki viö að úthúða plöt-
unni eru þó þeir félagar sjálfir og eru
þeir með alls konar afsakanir.
„Þetta er klárlega versta platan
okkar og líklega ein versta plata árs-
ins,“ sagði Steve Mason, söngvari og
fyrirliði. „Það er mörg ömurleg lög á
plötunni. Ekkert lag er fullklárað og
ekki einu sinni fullsamið. Þetta eru
bara hálfsamin lög með djammi í
miðjunni."
„Sándið heföi ekki átt að vera svona
drullugt,” sagði bassaleikarinn. Þeir
félagar kenndu plötufyrirtækinu um
og sögðust ekki hafa fengið að klára
plötuna eins og þeir vildu. Uppruna-
lega átti platan að vera helmingi
lengri með tveim háiftíma ambient-
verkum. Plötukarlamir blása auðvit-
að á nöldur Beta bandsins: „Þetta eru
lélegar afsakanir," sagði einn þeirra.
„Bandið fékk allan þann tíma sem það
þurfti og þurfti ekki
að gera neitt sem það vildi ekki.“
Samt viðurkenndi hann að hafa
slátraö einni brjálaöri hugmynd. „Þeir
vildu gera tvöfalda plötu og taka
hverja hlið upp sína í hverri álfunni,
eina í Tokyo, aðra í Mexíkó, o.s.frv.
Við reyndum að koma til móts við þá
en þessi hugmynd hefði kostað allt of
mikið.“
Auðvitað. Beta Band er ekkert stór-
band og seldi t.d. bara 60 þúsund ein-
tök af „The 3 ep’s“. Plötukarlinn reyn-
ir þó að bjarga andlitinu: „Já, bandið
hefði getað gert betur en platan er
ekki eins slæm og það vill vera láta.
Steve veit að hann getur gert betur og
þeir munu koma aftur með plötu sem
er jafnvel betri og það er frábært."
Steve er þó alls ekki sannfærður og
sagði: „Næsta plata verður ennþá
verri.“
Þar höfum við það. Ég spái því að
breska popppressan verði farin að
slefa á eitthvað annað band innan tíð-
ar og meðlimir Beta bands fái vinnu f
fiskbúð. Og þeir verða eflaust hæstá-
nægðir með það enda hafa þeir sagt:
„Aðalmálið með bandinu er að hafa
gaman. Við grípum næsta hljóðfæri og
fórum að lemja það. Við höfum ekki
áhuga á að verða poppstjömur. Hljóð-
list er það sem við fílum."
Viðburðaríkt ár hjá OI’Dirty Bastard:
ur kjaftæðisins
ODB svífur á skýi
Engin byssa fannst og málinu var hent úr
rétti. Frændi ODB, sem var í framsætinu,
sagði að hann hefði verið að teygia sig í far-
símann sinn en ekki byssu. 01' Lucky Bastard
hótaði að kæra New York-borg.
Febrúar
Upprunalegt brot:
Ólöglega lagt
Lokaákæra:
Ólögleg líkamsvörn (hann var í skotheldu vesti)
Aðalvitleysingurinn í Wu-Tang
lætur henda sér svo oft inn í fang-
elsi að það mætti halda að hann fái
ekki að borða neins staðar annars
staðar. Hann var handtekinn næst-
um mánaðarlega á síðasta ári, oft-
ar en við teljum upp, og alltaf eru
lýsingarnar fáránlegar. Brotin
byrja alltaf á sauðmeinlausum um-
ferðarvillum en fyrir sniíli
Bastarðsins enda þau i stálpuðum
stórglæponaákærum.
Janúar
Upprunalegt brot:
Slökkt á framljósum, gáleysislegur
akstur
Lokaákæra:
Morðtilraun á tveimur lögregluþjónum
og ólöglegt vopn. Lögreglan sagði að
þeir hefðu stöðvað hann úti í vegkanti
en þegar þeir ætluðu að tala við hann
stakk hann byssu út um gluggann og
byrjaði að skjóta á þá.
ODB svífur á skýi:
01’ Unlucky Bastard var fyrsti maðurinn sem
var kærður eftir þessum nýju Kaliforníulögum.
Til hamingju!
Mars
Upprunalegt brot:
Ólöglega lagt, engar númeraplötur
Lokaákæra:
Krakkeign
ODB svífur á skýi:
Þegar hann var spurður um nafn sagð-
ist hann vera RZA, félagi sinn úr Wu-
Tang.
JÚIÍ
Upprunalegt brot:
Yfir á rauðu Ijósi
Lokaákæra:
20 pokar, fullir af krakki, og umslag, fullt af
grasi
ODB svífur á skýi
Á þessari stundu var hann á skilorði og búinn
að missa bílprófiö - sjö sinnum að minnsta
kosti. Þegar hann kom fyrir rétt núna í janúar
var hann kærður fyrir að móðga réttinn þegar
hann öskraði að kvensækjandanum: „Do you
find me horny?" og tókst þannig að hafa rangt
eftir Austin Powers. Hann öskraði líka „sperm
donor" að konunnni á meðan hann boraði stíft
í nefiö. Málinu var frestað um mánuð.
10
f Ó k U S 4. febrúar 2000