Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2000, Blaðsíða 19
Lífid eftir vmnu
aöa. Stuflið byrjar klukkan 23.
iKrár
Kaffi Strætó keyrir af stað í Mjóddinni. Blátt
áfram trúbadorast og mjöðurinn rennur I stríð-
um straumum úr krönunum.
Bingó frá Borgarnesi spilar á Fjörukránni.
Fjörugaröurinn blómstrar. Vikingasvertin leik-
ur fyrir þorragesti og hljómsveitin Bingó tekur
svo við.
Hljómsveitin Gammel dansk leikur á Catalínu
I Kópavoginum.
Það verður sól-
arupprás á
Gauknum því
hljómsveitin Á
móti sól mætir
til að gleðja
glaða.
Það er opið mót í pílukasti á Grand Rokk og
um að gera að mæta og fókusera á skífuna
yfir vænni bjórkrús. Mótið hefst klukkan 13.
Um kvöldið spilar stuðsprengjusveitin Miðnes
sem er afsprengi gleðisveitarinnar Geirfugl-
anna.
Hljómsveitirnar King-Creoia og íris leika á Jóa
risa í Breiðholti.
Hljómsveitin Dans á rósum dansar á rósum á
Kaffi Reykjavík.
Njáll úr Víkingbandinu
mætir I Njálsstofu og
leikur löðurmannlega
tóna.
Rúnar Þór leikur á Pét-
urspóbb. Boltinn í beinni
og stór bjór kostar aðeins
350 krónur.
Tríó Geirs Ólafssonar leikur á Rauða Ijóninu
og Geir flaggar íslenskri fyndni. Stuöið hefst
hálftíma fyrir miðnætti.
Dj Albert og dj Siggi sjá um stuöiö á ísafold
Sportkaffi.
Svensen og Halfunkel heimsækja Gullöldina
og gullið glitrar.
Hljómsveitin Sín leikur á Kringtukránni og
snarlíklega veröur roknastuð.
T.H.E.S. frá Ítalíu sér um stuöið á Sirkusi. Big
beat-drum n’bass-teknó.
Dj Albert og Dj Siggi standa fyrir stuöi á ísa-
fold, Sportkaffi. Snyrtilegur klæðnaður er al-
gjört skilyröi.
Stórtrióið Úlrik frá Borgarnesi skapar ótrúlega
rokk-, salsa-, diskó-, pönk- og polkastemmingu
alla helgina á Café Amsterdam.
Böll
Lrnudansaramir sleppa af sér beislinu og
halda dansleik frá 22 til 1. Elsa sér um tónlist-
ina og stuðið. Það eru allir velkomnir svo mái-
iö er bara aö mæta í Auðbrekku 25, Kópa-
vogl.
Á Naustinu í kvöld verður líf og fjör. Söngkon-
an Uz Gammon gólar yfir píanóhamrinu og
hijómsveitin Furstarnlr með Gelr Ólafs í farar-
broddi gerir allt vitlaust. Þeir spila frá kl. 23-kl.
3 og taka engar áhættu því sérstakur gestur
þeirra þetta kvöldið er söngkonan Helga Möll-
er.
Næturgalinn galar og Anna Vilhjálms og Hiim-
ar Sverrison leika.
Klassík
Píanóleikarinn Martino Tirimo frá Kýpur er
meö elnleikstónleika í íslensku Óperunni kl.
14.30. Á efnisskránni eru píanósónötur eftir
Beethoven og prelúdíur eftir Chopin. Forsala
er í versluninni Tólf tónum á Barónsstíg og
Japis, Laugavegi.
Það verður hátíðarsýning á verkinu Lúkretía
svívirt í íslensku óperunni og hefst klukkan
20. Helstu hlutverk eru i höndum: Emmu Bell,
Finns Bjarnasonar, Jan Oplach, Rannveigar
Fríðu Bragadóttur og Ólafs Kjartans Sigurðs-
sonar. Leikstjóri er Bodo Igesz og hljómsveit-
arstjóri Gerrit Schuil. Best að drifa sig því það
verða aðeins nokkrar sýningar.
•Sveitin
Breiöin brosir og Skagahjón líka því hljóm-
sveitin Bros dagsins mætir og spilar á hjóna-
dansleik.
Buttercup endurtekur leikinn í Sjallanum, ísa-
firði, frá kvöldinu áður.
Háskólaneminn og Reykvíkingurinn Elli sér um
að tónlistin verði í lagi á Kaffi Akureyri í kvöld.
Land og synir leggja land undir fót og spila í
Sjallanum á Akureyri.
Arnar Guðmundsson leikur á als oddi á Pizza
67 á Eskifirði. Gleðin stendur til 03. Ókeypis
inn fýrir miðnætti. Miðaverð 500 kr.
Páll Óskai
mætir í Skot
húsiö í Keflavíl
og þeytir skífui
fram á rauðt
nótt. Drag
drottningai
munu einnig
dúkka upp hér
Einar Ágúst og Hebbi úr Skítamóral mæta i
Stúkuna í Neskaupstað. Stuð, stuð, stuð og
miðaverð aðeins krónur 1000.
Hijómsveitin Undryö leikur á stórdansleik á
Hótel Mælifelli, Sauöárkróki. Svakalega und-
ursamlegt og stuðið ræður rikjum á Króknum.
Skemmtistaðurinn Við Pollinn gleður Akureyr-
inga með hljómsveitinni PPK+.
@Leik h ú s
Vér morðingjar er sýnt kl. 20.30 á Smíöaverk-
stæðinu við Lindargötu. Leikritið er eftir Guð-
mund Kamban og þykir vera feikigott. Sýning-
in hefur fengið mjög góöa dóma hjá gagn-
rýnendum sem segja leikarana standa sig
mjög vel. Það eru nokkur sæti laus í kvöld,
síminn hjá miðasölunni er 5511200.
Norski leiklistarhópurinn Bak Truppen sýnir
verkiö Very Good í Norræna húsinu. Leikhóp-
urinn er þekktur fýrir að fara ekki troðnar slóö-
ir í sýningum sinum. Sýningin fer fram á
ensku. Aðgangur 1000 kr.
Jólin eru enn á Akureyri á sviði Leikfélags Ak-
ureyrar. Leikritiö er eftir Arnmund Backman og
er sýnt kl. 20. næst sýðasta sýning.
Fegurðardrottningin frá Línakri er alveg frá-
bær sýning með snilldarleik. Svo segir sagan
allavega. Halldór Gylfason á víst aö standa
sig frábærlega rétt eins og alltaf. En það var
einmitt hann sem reddaði hinni leiðinlegu sýn-
ingu Vorið kallar. Þessi frábæra og yndislega
sýning hefst klukkkan sjö. Einmitt jjegar allir
eru að éta en þetta er víst voöalega fínt. Nærri
því jafn fínt og í útlöndum en bara aðeins
hærra miðaverö.
Koss og keleri í Bíóleikhúsinu Bíóborginni við
Snorrabraut á leikritinu Kossinn eftir Hallgrim
Helgason. Af þessu stykki er hægt að hlægja.
Sýnt kl. 20. Sími miðasölu er 5511384.
Edda Björg-
vinsdóttir lelk-
ur á alls oddi í
Borgarleikhús-
inu en sýningin
Leitin að Vís-
bendingu um
vitsmunalíf í alheiminum veröur á fjölunum.
Sýningin hefst klukkan 20. Nokkur sæti laus.
Litla hryllingsbúðin er sýnd í Borgarleikhús-
inu kl.19. Enn eru nokkur sæti laus þannig aö
það er um að gera aö hringja og panta.
Revían Ó þessi þjóð eftir Karl Ágúst Úlfsson í
leikstjórn Brynju Benediktsdóttur er sýnd í
Kaffileikhúsinu í kvöld kl.21. Gestir geta líka
mætt kl.19.30 og fengið sér kvöldverð. Er
það ekki kjörið? Um aö gera að hafa kvöldið
almennilegt. Síminn er 551 9055.
Gamanieikritið Panodil fyrir tvo eftir Woody
Allen, í þýöingu Jóns Gnarr, er fariö á fullt í
Loftkastalanum með einvalalið grinista í
stafni. Hr. Gnarr er náttúrlega ferlega fýndinn
sem gagnrýnandinn sem vill halda fram hjá
konunni sinni, henni Kötlu Margréti Þorgeirs-
dóttur. Síðan höfum við Þorstein Guðmunds-
son fóstbróður, Ingibjörgu Stefánsdóttur og
Jón Atla Jónasson líka á sviöinu. Frábært,
hljómar vel. Verst aö þaö er uppselt.
Leikfélag MH sýnir Paradísaeyjuna eftir Willi-
am Golding í Tjamarbíól kl. 20.
Salka Valka ástarsaga eftir Halldór Laxness
er sýnd í Hafnarfjarðaleikhúsinu kl. 20. Sushi
í hléi.
Stjörnur á morgunhimni er rússneskt nútíma-
leikrit. Sýningin hefur fengið einróma lof. Sýnt
kl. 20.
Síðasta sýningin á Tveimur tvöföldum er í
Þjóðlelkhúsinu í kvöld kl.20. Uppselt.
SKabarett
Heimsfrægðin heimsækir Broadway í liki
Rogers Whittakers og lýðurinn tryllist. Hljóm-
sveitin Papar leikur fýrir dansi.
Það verður þorrablót fýrir fatlaða í Árseli.
Gleðin hefst klukkan 20 og stendur til 23.
Helgi Páls og Siggi rokk plötusnúðast og fólk
eldra en sextán ára er velkomið. Aögangseyrir
er fjögurhundruðkall.
•Opnanir
Opnuð verður sýning á smámyndum í baksal
Gallerís Foldar kl. 15. Alls eiga 28 listamenn
verk á sýningunni. Sýningin stendur til 20.
febrúar.
Öllum íslendingum er boðið að líta inn í
galleri@hlemmur.is Þverholti 5frá og meö
deginum í dag til sunnudagsins 27. febrúar,
milli klukkan 14.00og 18.00, þó ekki á
mánudögum. Sýningin, sem verður opnuð í
dag klukkan 16, er samvinnuverkefni
listamannanna Helga Hjaltalín Eyjólfssonar
og Péturs Amar Friðrikssonar. Verkefnið ber
titilinn markmið og er meðal annars unnið út
frá ofbeldisfullu sjónarmiði tilverunnar.
Kl. 15 verður opnuð sýning á verkum Gisle
Fröysland í Norræna húsinu. Hér er um að
ræöa innsetningar og vídeólist frá Bergen.
Sýningin stendur til 12. mars. Gisle Frpysland
er fæddur 1961 og býr og starfar í Bergen,
hann er fjölmenntaður myndlistarmaður,
einkum á sviði tölvutækni, auk þess að vera
tónlistarmaður. Hann hefur hlotið
margvíslegar viðurkenningar í heimalandi sínu
Kaffibarinn er á horni Bergstaðastrætis
og Laugavegar og hefur skapað sér
miðjusess í reykvísku skemmtanalífi.
Hann er þó ekki bara skemmtistaður
heldur líka kaffihús. Kaffihúsagagnrýndandi
Fókuss fór og þefaði af kaffinu á
Kaffibarnum, matnum og andrúmsloftinu.
á
]
Kaffibariim er lítiil, vistlegur
og virðist haldinn Amsterdam-
Berlínar-komplex sem er nokkuð
sjarmerandi. Komplexinn felst
m.a. í gömlum þægilegum sófum,
látlausum en smart húsgögntnn
og stórum íburðarmiklum spegl-
um og ljósakrónum. Þetta er evr-
ópskur búllublær og oft hljómár
næs fönktónlist eða mjúkir grúví-
tónar um staðinn. Það er þægilegt
að flatmaga í gömlum sófa á KafEi-
barnum, horfa út um stóra glugga
og á gestina sem geispa letilega í
reykmettuðu andrúmslofti.
Starfsfólkið og vinir þess hanga
mikið á staðnum enda er hann
tvímælalaust fastagestastaður.
Flestir fastagestanna eru mjög
hrifnir þröngum bolum en það
má líka sjá menn í síðum frökk-
um, eins og fjölmiðlamanninn
Egil Helgason. Þetta fólk sem ger-
ir sig heimakomið virkar óneitan-
lega þrúgandi á Jón Jónsson og
Jónu Jónsdóttur svo þau upplifa
staðinn eins og lókal kafíiboð.
Samt eru allir velkomnir á virk-
um tímum því manngreinarálitið
tekur aðeins völdin á djamm-
kvöldum og keyrir þá úr hófi
fram.
Kaffibarinn ber nafn með rentu
því kaflfið er mjög gott, sérstak-
lega café au lait sem er bæði fáan-
legt í boila og glasi og kostar 190
krónur. Pressukaffið er einnig
bragðgott og hálf kanna kostarl80
krónur. Teið er á sama verði en
bolli af kakói með rjóma eða Sviss
Mokka kostar 250 krónur. Ég bað
imKmmmmmimmimmmmmiimmmmmmm
um café melange sem var ekki á
boðstólum en afgreiðslustelpan
vildi gjcUTian búa það til eftir leið-
beiningum.
Ekkert sætmeti bauðst með
kafiinu. Að vísu er Kafiibarskaka
á matseðlinum en hún var búin.
Líklega á sætt bakkelsi illa við
þröngu bolina sem eru yfirleitt í
bamastærð og krefjast þess að
eigandinn liti út eins og heróín-
sjúklingur með anorexíu.
Flestir fastagestanna
eru mjög hrifnir
af þröngum bolum
en það má líka
sjá menn í síðum
frökkum, eins og
fjölmiðlamanninn
Egil Helgason.
Yfirleitt er ágætt að borða á
Kaffibamum. Réttimir em gimi-
legir að sjá, þokkalega bragðgóðir
og í ódýrari kantinum. f þetta
skipti var samt flugvélabragð af
réttinum sem ég pantaði mér en
það vom grillaðar brauðsneiðar
með skinku og osti. Meðlætið var
ólífusalat og rétturinn kostaði 350
krónur.
Á matseðlinum var m.a. klúbb-
samloka á 450 krónur, annaðhvort
með ýmiss konar grænmeti og
salati eða spægipylsu, osti og
Kaffibarinn er betur
þekktur sem skemmtistaður
en kaffihús.
grænmeti. Eina súpan á matseðl-
inum var tómatsúpa með hvít-
lauksbrauði sem kostaði 400 krón-
ur en súpa dagsins var auglýst á
krítartöflu og það var sellerísúpa
á 300 krónur. Tilboð á kritartöflu
em fastur liður á Kafíibamum.
Að þessu sinni var tilboð sem
samanstóð af steiktum samlokum
með grænmeti, salati og kokk-
teilsósu á sexhundruðkall.
Bjórinn er á venjulegu pöbba-
verði. Kranabjór kostar 400-500
krónur og flöskubjór 500-600
krónur. Rauðvíns-, hvítvíns- eða
freyðivinsflaska kostar 2300 krón-
ur og yflrleitt era léttvínin vel
drykkjarhæf.
Annars er Kafiibarinn frekar
þekktur sem skemmtistaðiu- en
kafilhús. Um helgar ríkir stemn-
ing sem kaffihúsagagnrýnandi
kann ekki að festa reiður á og því
verður ekki farið út í klósetthall-
æri né örtröð á bamum. Kaffibar-
inn er hins vegar gott kaffihús.
Þjónustan er ópersónuleg en kurt-
eis, andrúmsloftið þægilega kæru-
laust, maturinn á fínum prís og
vanalega ágætur, tónlistin oftast
fin og síðast en ekki síst er kaffið
dúndrandi gott. Það er líka
skemmtilega sýrt að sjá svona
mikið af fólki í þröngum bolum.
Auður Jónsdóttir
4. febrúar 2000 f Ókus
19