Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Qupperneq 2
20
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000
Sport
Hvað finnst þér?
Hverjir eru aö þínu mati
bestu
körfuknattleiksmenn
landsins í karla- og
kvennaflokki?
- spurt á bikarúrslitaleik
ÍS og Keflavíkur um helgina
Lóa Björg Gestsdóttir:
Anna María Sveinsdóttir er
besta körfuboltakonan og
Friðrik Ragnarsson besti
karlinn.
Björgvin Rúnarsson:
Ég get nú ekki svarað þessu
svo auðveldlega - Teitur
Örlygsson og Guðbjörg
Norðfjörð.
Bergur Eðvarðsson:
Það er ég. Nei, nei, ætli það séu
ekki Guðmundur Bragason og
Anna María Sveinsdóttir.
Hannes Jónsson:
Það eru Teitur Örlygsson og
Anna María Sveinsdóttir.
Hugrún Ásta Björgvinsdóttir:
Grindavík er best og
Rögnvaldur er bestur, ég man
ekki eftir neinni
körfuboltakonu.
Þaö vakti nokkra athygli að allir stuðningsmenn Grindavíkur fengu
greiðan aðgang að leikvellinum strax eftir bikarúrslitaleik Grindavikur og
KR á laugardag og voru fagnaðarlætin slík að mörgum stóð stuggur af,
enda mikið af krökkum sem voru í mikilli hættu á að verða undir öllum
skaranum. Hér er ekkert veriö að gagnrýna það að fagna sigri á skemmti-
legan hátt en nauðsynlegt er að einhverjum lágmarksöryggisreglum sé
sinnt á leik sem þessum og leikmenn Grindavíkur heíðu getað fagnað sigri
saman á vellinum og stuðningsmennimir á sinum stað á pöllunum. -ÓÓJ
Bikarúrslitaleikur í körfubolta um helgina er einstakur þar sem hann
er stigalægsti bikarúrslitaleikur sögunnar því aðeins 114 stig voru
skoruð í leiknum, einu færra en í fyrsta bikarúrslitaleiknum 1970, er KR
vann Ármann, 61-54. Grindavík vann leikinn 59-55, 55 stig komu í fyrri
hálfleik og 59 í þeim seinni. Þriðji stigalægsti úrslitaleikurinn er siðan
frá 1977 er 120 stig voru skoruð í 61-59 sigri KR-inga á Njarðvík. Þá var
þetta í fyrsta sinn sem bikarmeistararnir þurfa minna en 60 stig til að
tryggja sér bikarinn en KR-ingar unnu á 61 stigi 1970 og 1977. -ÓÓJ
Mánudagsviótajift
Anna María Sveinsdóttir bikarmeistari í tíunda sinn:
Meiri háttar
Anna María Sveinsdóttir fagnaði
sinum tíunda bikarmeistaratitli með
Keflavík frá 1988 um helgina en Anna
María hefur unnið 18 stóra titla (ís-
lands- og bikarmeistaratitla) með
Keflavík á sínum ferli sem spannar
orðið sextán ár.
Er eitthvað öðruvlsi að fagna
bikamum í tíunda sinn heldur en
í fyrsta sinn fyrir 12 árum?
„Nei, reyndar ekki, því það er
alftaf meiri háttar stemning að vinna
bikarinn, þetta er bara einn leikur og
allt öðruvísi en aðrir leikir, eins og
leikir um íslandsmeistaratitilinn. “
Er einhver þessara tiu leikja
minnisstæðari en annar?
„Jú, þaö er leikurinn 1997 á móti
KR. Þá náðum við að snúa við töpuö-
um leik i sigur á síðustu sekúndum
leiksins. Ég er ekki í nokkrum vafa
um að það sé einn magnaðasti leikur
sem hefur farið fram í kvennakörf-
unni frá upphafi."
Hvemig skýrir þú gott gengi
Keflavíkurkvenna í bikamum?
„Það er mjög vel haldið utan um
kvennaboltann í Keflavík, sem er
kannski ekki eins hjá mörgum öðr-
um félögum. Við höfum nógan efni-
við og alltaf stelpur sem taka við af
þeim sem hætta. Svo er þetta bara
líka hefðin, við þekkjum ekkert ann-
að og þær eldri smita þetta til þeirra
yngri þegar þær koma inn.“
Hvemig finnst þér kvennakarf-
an hafa verið í vetur?
„Þetta fer versnandi með hveiju
árinu, þvi miður. Það eru þrjú lið í ár
sem eru eitthvað að sýna en hin eru
I lakari kantinum og þetta er mikið
áhyggjuefni fyrir körfuna.“
Sérðu einhver sóknarfæri fyrir
kvennakörfuna?
„Ekki í fljótu bragði, það þyrfti
bæði að taka til hjá KKl og svo hjá
stjórnum félaganna. Þetta liggur
fyrst og fremst í því hvað menn vilja
leggja mikið í kvennaboltann."
Hvemig gengur að samræma
fjölskylduna, vinnuna og körfu-
boltann?
„Það gengur upp og ofan. Það gekk
brösulega fyrir áramót, enda maður
aldrei heima hjá sér, en svo eftir ára-
mót er þetta búið að ganga betur og
er árangurinn eftir því. Þeir sýna
mér báðir mikla þolinmæði og ég á
þeim mikið að þakka aö ég sé enn þá
í þessu því þetta tekur mikinn tíma
frá þeim. Við reynum bara að nýta
þann tíma sem við höfum og þeir
koma yfirleitt á leiki, nema hvað
húsbóndinn er svo stressaður að
hann þorir varla aö fara á þessa
hörkuleiki."
Hvenær vaknaði áhugi þinn á
körfubolta fyrst?
„Ég held ég hafi byrjað um 12 ára
aldurinn og var þá í þessu öllu, fót-
bolta, handbolta og körfu, en svo tók
ég körfuna fram yfir um 15 ára aldur-
inn, enda fór okkur þá að ganga svo
vel að karfan varð á toppnum.
Kvennakarfan var bara að byrja um
sama leyti og Björg Hafsteinsdóttir
dró mig út í þetta en hún var þá
byijuð að æfa með strákunum."
Hefur þú breyst mikið sem
körfuboltaleikmaður?
„Já, það hef ég. Maður heyrir
kannski hingað og þangað: „Hvað,
varstu ekki með í leiknum, þú skor-
aðir ekki 20 stig.“ Maöur er í öllu
öðru núna, fólk horfir kannski bara á
stigin en ég er að gera margt annað
fyrir liðið, gefa stoðsendingar, taka
fráköstin og stjórna, enda leiðtogi í
mínu liði.“
Þú reyndir fyrir þér sem
spilandi þjálfari, stefnir þú á að
fara í þjálfunina aftur?
„Já, það gæti vel verið. Ég held að
það sé tvennt ólíkt að vera spilandi
þjálfari og svo bara þjálfari. Það var
mjög eríitt seinna árið, þá var ég með
ungt lið og maður gat ekkert sinnt
sjálfum sér en fyrra árið var ég með
mjög gott lið í höndunum og þá varð
það allt öðruvísi.“
Hvernig sérðu fyrir þér Kefla-
víkurliðið það sem eftir er vetrar?
„Við ætlum að vinna hina titlana i
vetur líka og ég tel okkur hafa burði
til þess. Ef við mætum tilbúnar í leik-
ina og gefum okkur hundrað prósent
í þetta hef ég trú á að við séum með
besta liðið. Við erum með betri ein-
staklinga heldur en hin liðin en það
er bara að ná þeim saman i lið. Ef við
spilum saman sem ein heild er ekki
nein spuming að við vinnum."
Ertu nokkuð að hætta í vor?
„Það er ekkert ákveðið í þeim efn-
um en mjög líklega er þetta síðasta
tímabilið þó að ég sé ekkert farin að
gefa þetta formlega út og tíminn
verður að leiða það i ljós hvemig
þetta gengur hjá mér.“
Áttu þú eitthvað í pokahominu
sem getur tekið við af körfunni
þegar að því kemur að hætta?
„Já, ætli maður fari ekki í hesta-
mennskuna. Brynjar, maðurinn
minn, er mikið í henni og sonurinn,
Hafliði, er kominn með mikinn
áhuga lika þannig að ég býst við að
skellá mér í hestana." -ÓÓJ