Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000
23
DV
Sport
Petur Guömuncisson
víir ometanlegur tynt
lið sitt, Grindavik, i
bikarúrslitateiknum
um helgina, skoraði
13 stig, spilaði klassa-
vörn og hitti úr 6 at 10
skotum sínum. Hann
tekk þvi ota faðmlögin
i leikstnk.
KR-ingar misstu taktinn í seinni hálfleik:
Sniðugur leikur
- Grindavíkurþjálfarans, sagði Vassell
„Viö misstum taktinn í seinni hálf-
leik þegar þeir beittu svæðisvöm-
inni á okkur og við fengum á okkur
körfu eftir körfu. Mér tókst ekki að
vera eins ákveðinn og sókndjarfur
og í fyrri hálfleiknum og við misst-
um þetta frá okkur. Þetta var snið-
ugur leikur hjá þjálfara Grindavík-
ur (Einari Einarssyni) að breyta i
svæði því við náðum ekki að leysa
það. Við emm með mesta efniviðinn
í landinu og við notum þá af því að
við þörfnumst þeirra, sérstaklega
eftir að við misstum Jónatan Bow.
Ef við leikum vömina jafn vel og í
þessum leik og leysum sóknarleik-
inn betur er ég bjartsýnn á fram-
haldið," sagði Keith Vassell sem tók
22 fráköst og bætti þar með met í
bikarúrslitaleik um 5 fráköst.
Slökuðum á í lokin
„Við fórum að slaka á og létum þá
taka okkur út úr leik sem við vor-
um að spila og það er ekki vænlegt
til árangurs ef það gerist. Þetta er
mjög stór leikur en við erum ungir
og við lærum af þessu. Mér fannst
við berjast í fyrri hálfleik, við náð-
um öllum lausum boltum og þetta
féll fyrir okkur en við bara vorum
ekki nógu ákveðnir og slökuðum á í
lokin og þeir eiga þetta skilið,"
sagði Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði
KR. -ÓÓJ
Okkar skipulag gekk 98% upp
„Við spiluðum vörnina nákvæmlega eins og við ætluðum að gera,
leikskipulagið okkar gekk þannig 98% upp en við hörfuðum frá þeim
þegar þeir fóru 3:2 vörn yfir hálfan völl. Við fórum að sækja á körfuna
frá miðju og maður skorar ekki frá miðju. Liðið gerði annars fma hluti
en því miður tókst okkur ekki klára hlutina í sókninni, áttum
örvæntingarfull skot sem voru kannski ekki langt frá en áttu greinilega
ekki að detta fyrir okkur. Þetta er gríðarleg reynsla fyrir liðið þar sem
meðalaldurinn er um 20 ár og ef framtíðin er ekki okkar megin þá veit
ég ekki hvað,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR-inga. -ÓÓJ
Þriöja landið
„Mér tókst að skila mínu síðustu
mínúturnar en hver minúta nú
er miklu erfiðari en fyrir tíu
árum. Þetta er fyrsti titilinn
minn á íslandi en ísland er
þriðja landið sem ég verð bikar-
meistari í því ég var bikarmeist-
ari á árum áður bæði 1 Sovétríkj-
unum og í Ungverjalandi. Bæði
lið spiluðu góða vörn en svo
duttu niðm* góðar þriggja stiga
körfur hjá okkur i seinni hálf-
leik og við fórum að spila vörn-
ina betur. Kannski hef ég meiri
reynslu en strákarnir og hélt því
ró minni í lokin enda hef ég spil-
að marga spennandi leiki á ferl-
inum og ég var ekki stressaður í
lokin,“ sagði Alexander Ermol-
inskij hjá Grindavík, maður
bikarúrslitaleiksins.
-ÓÓJ
Einar Einarsson, þjálfari Grindvíkinga, umlið sitt eftir sigurinn á laugardag:
Meira en Brenton
„Við bjuggumst við baráttuleik
enda tvö hörkulið eins og kom í
ljós. Við spiluðum ekki vel til að
byrja með en vitum að leikurinn er
40 mínútur og menn verða að haldá
einbeitingu allan tímann. Við
höfðum trú á því að leikurinn
snerist okkur í hag. Við spiluðum
góðan varnarleik en gáfum alltof
mörg sóknarfráköst og um leið og
við hættum höfðu þeir engin vopn.
Sá gamli sterkur
Pétur Guðmundsson var kominn í
villuvandræði og það átti þátt í því
að við breyttum í svæði en svo kom
Alex, gamli karlinn, sterkur inn
undir körfuna og varði ófá skotin.
Fólk má bulla, bulla og buila, við
erum miklu meira en Brenton, við
erum bikarmeistarar, efstir í
deildinni. í guðanna bænum rífið
þið kjaft, við bítum frá okkur. Við
erum ánægðir núna en ekki sáttir,"
sagði Einar Einarsson, þjálfari
Grindavíkur, sem átti snjallan leik
um miðjan seinni hálfleik þegar
hann skipti i svæðisvörn og mátaði
sóknarleik KR-liðsins.
„Þetta er okkar heimavölllur og við
ætlum að halda honum svoleiðis.
Þetta var rosa erfiður leikur. Þeir
komu mjög vel stemmdir. Flestir
höfðu enga reynslu af svona leik en
þeir sýndu og sönnuðu að þeir eru
með sterkt lið. Við vorum svolítið
mikið í einstaklingsframtaki til að
byrja með en ég held af það hafi nú
bara verið það sem þið blaðamenn
voruð að segja, að við værum bara
eins manns lið. Svo áttuðum við
okkm* á því að spila bara okkar
leik og það sýndi sig og sannaði
fyrir öllum að við erum ekki bara
einn maður.
Það að halda þeim í 55 stigum sýnir
hversu sterkir við erum í vörninni
liðsheild. Það spila allir vel í
vörninni og svo eru menn bara
með viss hlutverk í sókninni og við
framkvæmdum þau seinni hluta
leiksins og það virkaði. Gamli
karlinn var seigur og það er kostur
að vera með mann eins og Alex
sem er 2,06 m og getur líka skilað í
sókninni," sagði Pétur Guðmunds-
son sem vann þriðja bikar-
meistaratitlfl sinn með Grindavik
á fimm árum ásamt þeim Unndóri
Sigurðssyni og Bergi Hinrikssyni.
-ÓÓJ