Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000 29* Sport Maxí’i Austurríkismaöurinn Rainer Schönfelder fagnar hér óguriega sigrinum í sviginu í gær sem var hans fyrsti í heimsbikarkeppninni á ferlinum. Heimsbikarkeppnin á skíöum: ■ •• „Mjog erfitt" - sagði Kristinn Björnsson sem varð 24. í sviginu í gær Ólafsfirðingurinn Kristinn Björnsson hafnaði í 24. sæti á 7. heimsbikarmótinu í svigi sem fram fór í Todtnau i Þýskalandi í gær. Austurríkis- maðurinn Rainer Schönfelder sigraði á mótinu en í öðru og þriðja sæti urðu Norðmenn- irnir Kjetil Andre Aamodt og Ole Christian Furuset. Kristinn, sem var með rás- númer 22, varð í 24. sætinu eft- ir fyrri ferðina, 2,40 sekúndum á eftir Norðmanninum Kjetil Andre Aamodt, en þegar Krist- inn renndi sér niður hrautina var hún orðin mjög erflð viðureignar. í siðari ferðinni fór Kristinn 24. af stað og renndi sér af ör- yggi og kom í mark rúmlega 4 sekúndum á eftir Schönfelder. Þar með náöi hann í mikilvæg stig en á tveimur síðustu mót- um náði Kristinn ekki að ljúka keppni. Annar islending- ur var á meðal keppenda á mótinu í gær. Það var Dalvík- ingurinn ungi, Björgvin Björg- vinsson. Hann var með rás- númer 65 og var sá síðasti i röðinni en honum tókst ekki að ljúka ferðinni. Hvorug ferðin góð „Ég er svo ekkert allt of sáttur en samt var betra að ljúka keppni heldur en þurfa að horfa á síðari ferðina í sjónvarpinu. Aðstæður voru 1 . mjög erfiðar. Það var heitt, eða um 10 stiga hiti, og braut- Kristinn in var því fe Björnsson. mjög fljót að t|pP grafast. Ég *' skíðaði ekki nógu ákveðið og hvorug ferðin var góð hjá mér en aðalmálið i síðari ferðinni var að skila sér,“ sagði Krist- inn í samtali við DV í gær. Næsta heimsbikarmót verð- ur um aðra helgi í Adelboden í Sviss en í vikunni og um næstu helgi keppir Kristinn í stórsvigi og í svigi á Evrópu- bikarmótinu. Sigurinn hjá Schönfelder í gær, sem er 22 ára gamall, var hans fyrsti i svigi á heimsbik- armóti. Hann var í níunda sætinu eftir fyrri ferðina en skíðaði síðari ferðinni með glæsibrag. Austurrískir og norskir skíðamenn létu mikið að sér kveða en Austurríkismenn áttu þrjá keppendur í hópi 10 efstu manna og Norðmenn fjóra. Kristinn í 16. sætinu í stigakeppninni Kjetil Andre Amodt er með örugga forystu í stigakeppn- inni í svigi en hann er með 410 stig. Matjaz Vrhovnik er ann- ar með 341 stig og Tomas Stangassinger er þriðji með 309 stig. Kristinn nældi sér í 7 stig í gær og er í 16. sætinu með 110 stig. Austurríkismaðurinn Her- mann Maier er hins vegar efst- ur í samanlögðum greinum en hann er með 1.510 stig, Kjetil Andre Amodt er annar með 1.086 stig og Josef Stobl frá Austurríki þriðji með 687 stig. -GH NBA-DEILDIN Aðfaranótt sunnudags: Washington-Charlotte . .. 102-110 " Richmond 22, Strickland 20, Howard 15 - Campbell 27, Jones 20, Wesley 20. Cleveland-Atlanta ........94-102 Miller 28, Person 18, Murray 15 - Rider 23, Henderson 16, Coles 16. Orlando-Indiana..........107-102 Amaechi 19, Garrity 18, Atkins 17 - Rose 25, Smits 14, Miller 13. Milwaukee-Toronto.........95-98 Robinson 29, Casell 25, Thomas 16 - Carter 30, Curry 16, Davis 12. Denver-Minnesota .........97-105 Posey 23, McDyess 20, LaFrentz 13 - Garnett 30, Jackson 20, Peeler 17. LA Clippers-Dallas......106-119 Taylor 17, Odom 14, Closs 12 - Strickland 24, Nowitski 20, Ceballos 19. 4 Aðafaranótt laugardags: Boston-New Jersey........100-95 Pierce 19, Potapenko 16, K. Anderson 13 - Marbury 20. Newman 15, Burrell 13. Atlanta-Portland ..........90-97 Jackson 25, Henderson 18, Ellis 17 - Smith 21, Sabonis 17, Stoudamire 16. Miami-Washington...........99-92 Mouming 32, Mashbum 23, Hardaway 17 Richmond 21, Strickiand 20, Howard 16. Detroit-Cleveland.........105-96 Hunter 26, Stackhouse 22, Laettner 15 - Kemp 22, L. Murray 19, A.Miller 18. Indiana-Sacramento....... 104-94 * Rose 22, Smits 18, Jackson 15 - Webber 26, Divac 17, Williams 14. Minnesota-Houston ........102-85 Garnett 23, Mitcheii 17, Peeler 13 - Drew 20, Cato 15, W. Williams 14. Vancouver-Chicago ........101-76 Dickerson 20, Bibby 16, Rahim 12 - Kukoc 27, Brand 22, Hawkins 9. Golden State-Denver .... 103-101 Jamison 19, Caffey 17, Marshall 14 - Mcdyess 30, Lafrentz 12, Van Exel 12. Lakers-Utah...............113-67 Shaq 25, Rice 20, Bryant 13 - Malone 14, Ostertag 10, Hornacek 8. Bandariski spretthlauparinn Maurice Green náði um helgina bestum tíma ársins í 60 metra hlaupi á innanhúss- móti í New York um helgina. Green kom í mark á 6,45 sekúndum. Osvaldo Ardiles, fyrrum landsliðs- maður Argentínu í knattspymu, óttast mjög um líf landa síns, Diego Mara- dona, sem dvelur þessa dagana á Kúbu. Þar er Maradona að reyna að vinna bug á fikniefnavanda sinum en hann, þessi gamla knattspymustjama, var djúpt sokkinn í eiturlyfjaneyslu áður en hann kom til Kúbu. „Hann er greinilega mjög veikur og ef hann nær ekki að komast út úr þessum vítahring getur farið illa hjá honum,“ sagði Ardi- 'les, en þeir léku saman á IIM árið 1982. allerman Maier er orð- inn sigursælasti skíða- maður Austurríkis frá upphafi en þessi írábæri skiðamaður vann sinn 27. heimsbikarsigur þeg- ar hann varð hlutskarp- astur í stórsvigi á móti í Todnau í Þýskalandi á laugardaginn. Þar með er Maier kom- inn upp fyrir Franz Klammer en þessi fyrrum brunkóngur vann 26 heimsbik- arsigra á sínum ferli. Svíinn Fredrik Nyberg varð annar í stórsviginu og Svisslendingurinn Michael von Griiningen varö þriðji. Bandaríkjamaðurinn Lenny Krayzel- burg bætti um helgina heimsmetið i 100 metra baksundi á móti í Berlín. Krayzelburg kom í mark á 51,28 sek- úndum og bætti sjö ára gamalt met sem landi hans, Jeff Rouse, átti. Þá bætti Ástralinn Ian Thorpe eigið heimsmet í 200 m skriðsundi þegar hann sigraði á 1:41,10 mínútu. -GH Greg Norman afhentir Lucas Parsons sigurlaunin á mótinu. Greg Norman-mótið í golfi: Parsons bestur Ástralinn Lucas Parsons sigraði á Greg Norman-mótinu i golfi sem lauk í Sydney í gær. Parsons lék á samtals 273 höggum, eða 19 höggum undir pari vallarins, og varð fjórum höggum á undan landa sínum, Pet- er Senior, sem lék á 277 höggum. Svíinn Per-Ulrik Johanson og Bretinn Andrew Coltart komu svo næstir á 279 höggum. „Þetta mót var svolítið sérstakt fyrir mig því Greg Norman hefur ver- ið fyrirmynd mín í golfinu frá þvi ég byrjaði," sagði Parsons eftir að hafa tekið við verðlaunum úr hendi Gregs Normans. Spánverjinn Jose Maria Olazabal, sem sigraði á US-Masters mótinu í fyrra, náði sér ekki á strik á lokahringnum og lék hann á 74 höggum og samtals á 282 höggum. Annar heimskunnur kylfmgur, Þjóðverjinn Bem- hard Langer, náði sér heldur ekki á strik og lék á samtals 286 höggum,- Firmakeppni Fram í fótbolta Laugardaginn 12. og sunnudaginn 13. febrúar næstkomandi fer fram firmakeppni Fram í fótbolta í Framhúsinu. Fjöldi liða verður aðeins 20. Leikið verður í fjórum 5 liða riðlum, fjórir inná í einu og spilað er á handbolta- mörk. Tvö lið úr hverjum riðli fara áfram í úrslita- keppni sem leikin verður fimmtudaginn 27. febrúar. Þátttökugjald er kr. 20.000,- pr. lið. Veitt verða mjög vegleg verðlaun. 1. sæti: Flugfarseöill fyrir fjóra til og frá London meö Samvinnuferöum-Landsýn 2. sæti: Úttekt hjá Bræörunum Ormsson aö fjárhæö kr. 20.000,- V Allar nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 533 5600, 863 1602 eða email gusti@fram.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.