Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Síða 10
88
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000
Sport unglinga
DV
Jónas Páll Viðarsson, að ofan, var eini strákurinn á
mótinu en vonandi fylgja fleiri í kjölfar hans enda
skautarnir heillandi og krefjandi iþróttagrein.
Hér til vinstri eru allir keppendurnir í flokki 10-11 ára B
en keppt var í A- og B-flokkum á mótinu eftir því
hversu langt krakkarnir eru komnir.
íslandsmót barna og unglinga í listhlaupi á skautum
Skautadísir
- gleðin í fyrirrúmi í skautahöllinni um síðustu helgi
- Það voru tignarlegir og glæsilegir
dansar sem keppendur á íslandsmóti
barna og unglinga á skautum sýndu
um síðustu helgi. 73 keppendur
reyndu sitt besta að heilla dómarana
en þrjú félög sendu fólk sitt á mótið,
SR, Björninn og SA, en Skautafélagið
Björninn sá um framkvæmd mótsins
að þessu sinni.
Margt gefur til kynna að í skaut-
ana sæki fleiri og fleiri krakkar og
ljóst að eftir að yfirbyggingin kom i
Laugardalnum hefur orðið sprengja
hvað varðar fjölda iðkenda og
áhuga á greininni.
Það er ekki langt frá því að
keppendur leiði áhorfendur
inn í draumaveröld því
glæsilegri og þokkafullri tón-
list er fylgt eftir með tilþrifum
á svellinu og svo láta keppend-
ur ekki sitt eftir liggja hvað
varðar fallega og skemmtilega
keppnisbúninga.
Framkoma krakkanna er
lika til hreinnar fyrirmyndar
og ljóst að til þess að ná tök-
um á skautunum og svellinu
er agi og virðing fyrir öðrum
keppendum og aðstæðum
nauðsynlegur.
SR hefur haft sterk tök á ís-
landsmeistaratitlunum síð-
ustu ár og nú varð engin
breyting á því SR-fólk vann tíu
af ellefu gullverðlaunum en
Björninn, sem er í stöðugri sókn á
öþessu sviði, kom sex keppendum inn
á pall en Bjarnarmenn sendu
keppendur á mótið.
Hjá þeim sem lengst eru komnar
vann Sigurlaug Árna-
dóttir þriðja árið í
röð eftir harða
keppni við Lindu
Viðarsdóttur en
Sigurlaug hefur
leitt hópinn sem
fremsta skauta-
kona landsins.
*» *
Þrjár snjallar
Hér eru samankomnir á
mynd þrir íslandsmeistar-
ar unglinga á
skautum.
Allar
koma
stúlkurnar úr SR. Frá
vinstri Hildur Ómarsdótt-
ir, Islandsmeistari 10 til 11
ára, Halla Karí Hjalte-
sted, íslandsmeistari 12
til 13 ára, og loks yngsti
meistarinn, Ragnhildur
Eik Árnadóttir, íslands-
meistari 9 ára og yngri en
hún er enn bara 8 ára. All-
ar njóta þær liðsinnis þjálf-
arans færa, Olgu Bara-
novu ,sem hér að
móta þrjár fram-
tíðar skauta-
drottningar í
* SR.
.ÆÉjk.
-ú
■
zs-
■
Urslitin
á íslandsmóti barna og
unglinga á skautum
9 ára og yngri B
1. Ragna Margrét Brynjarsd. . . . SR
2. Guðbjörg Guttormsdóttir . . . . SR
3. Rakel Steinsen..............SR
10-11 ára B
1. Sigríður María Fortescue . . . . SR
2. Lilja Runólfsdóttir...........SR
3. Guðbjörg Eva Rafnsdóttir . . . SR
10 ára og yngri B
1. Jónas Páll Viðarsson..........SR
12-13 ára B
1. Sunna Björk Mogensen........ SR
2. Hildigunnur Halldórsdóttir . . SR
3. Guðbjörg Grönvol ............ SR
14-15 ára B
1. Guðrún Lilja Kristinsd......SR
2. Kristrún Ingadóttir . . Björninum
3. Dröfn Ragnarsdóttir . Björninum
Kvennaflokkur B
1. Sara Huld Örlygsdóttir . . . Björn.
2. Sunna Dís Pétursdóttir ... Björn.
3. Dagrún Þórný Kristjánsd. Björn.
9 ára og yngri A
1. Ragnhildur Eik Árnadóttir . . SR
10-11 ára A
1. Hildur Ómarsdóttir ...........SR
2. Berglind Gunnarsdóttir......SR
3. Sylvía Rán Andradóttir . . Björn .
12-13 ára A
1. Halla Karí Hjaltested........ SR
2. Sunna Dóra Einarsdóttir .... SR
3. Anna Brá Bjarnadóttir.......SR
14-15 ára A
1. Arna Varðardóttir............ SR
2. Eva Katrín Sigurðardóttir . .. SR
3. Sólveig Andrésardóttir...... SR
Kvennaflokkur A
1. Sigurlaug Árnadóttir...... SR
2. Linda Viðarsdóttir...........SR
3. Snædís Lilja Ingadóttir .... SR
Verðlaunahafar
hjá 12 til 13 ára.
Frá vinstri:
Sunna Dóra Ein-
arsdóttir, Halla
Karí Hjaltested
og Anna Brá
Bjarnadóttir en
aliar koma þær úr
SR.
Ragnhildur Eik Arnadóttir skautaöi til sigurs í
fiokki 9 ára og yngri og hér skautar hún
sigurhringinn sinn.
Svo gaman
að keppa
Halla Karí Hjaltested úr SR varð ís-
landsmeistari 12 til 13 ára og það þrátt
fyrir að keppa í A-flokki í fyrsta sinn
og hafa aðeins æft skauta í hálft þriðja
ár.
Að eigin sögn heillar það að keppa
Höllu mest. Hún er örugg á svellinu
enda var hún áður keppnismanneskja
í fimleikum og þekkir því að standa ein
fyrir framan áhorfendur. Halla varð að
hætta í fimleikum vegna bakmeiðsla og
er sjálf viss um að þar hafi hún fengið
góðan grunn hvað varðar jafnvægi,
styrk og liðleika.
Halla fór á vegum frænku sinnar á
fyrstu skautaæfinguna fyrir tveimur og
hálfu ári og hefur haldið áfram siðan
en hún er 13 ára.
Auk skautanna er hún mikil áhuga-
maður um hestamennsku. Hún fékk
hest í fermingargjöf og er ákveðin að
hella sér í hestamennskuna jafnframt
því að stunda skautana á fullu en
Halla Karí æfir nú þrisvar í viku.