Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Side 12
*30
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000
Sport
yfir 4,31
Vala Flosadóttir.
Vala
Vala Flosadóttir náöi
besta árangri sínum ,á
árinu í stangarstökki
þegar hún vann yflr-
burðasigur á sænska
meistaramótinu sem
fram fór í Bollnás i gær.
Vala fór yfir 4,31
metra en á dögunum fór
hún yfir 4,30 metra á
móti í Þýskalandi.
Vala hefur byrjað
timabilið mjög vel og
það lofar góðu fyrir Evr-
ópumeistaramótið sem
fram fer í Gent í Belgíu
i lok mánaðarins.
Vala keppir á móti í
Frakklandi á fimmtudag
og keppir svo á Global-
leikunum í Stokkhólmi
17. febrúar.
-GH
íslandsmótið í badminton um helgina:
Þiju unnu tvofalt
- Elsa vann einliðaleik kvenna í áttunda sinn
Bland í
Ágúst Már Jónsson, fyrrum
leikmaður KR og landsliðsins, verður
aðstoðarmaður Péturs Péturssonar,
þjálfara KR, frá og með 1. maí í
sumar. Ágúst hefur þjálfað yngri
flokka KR og einnig hefur hann
þjálfað meistaraflokk karla og
kvenna hjá Aftureldingu í
Mosfellsbæ.
Elsa Nielsen kom, sá og sigraði á
meistaramótinu í badminton sem
lauk í TBR-húsinu í gær. Elsa vann
tvo íslandsmeistaratitla. Hún sigraði
Rögnu Ingólfsdóttur í úrslitum í
einliöaleik kvenna og sigraði svo
með Brynju Pétursdóttur í
tvdiðaleiknum en þær höfðu betur
gegn Vigdísi Ásgeirsdóttur og Rögnu
Ingólfsdóttur, 17-14 og 15-7.
Kom ekki á óvart
„Þessi sigur kom mér ekki á óvart,
ég vissi það að ég myndi hafa þetta
ef ég næði að halda mínu spili. Fyrri
lotan var jafnari enda vorum við þá
báðir jafnhressir. Mér fannst ég
klúðra meiru í fyrri lotunni en svo
snerist dæmið við í þeirri seinni,“
sagði Tómas Viborg, íslandsmeistari
í einliðaleik karla, eftir að hafa lagt
Svein Sölvason að velli, 15-11 og
«15-4, í úrslitum íslandsmótsins sem
fram fóru í gær.
Fyrir fram mátti telja Tómas, sem
var mættur til að verja íslandsmeist-
aratitilinn, sigurstranglegri en
Sveinn kom mjög frískur til leiks og
hélt Tómasi á tánum alla lotuna.
Tómast komst í 5-1 en Sveinn jafnaði
og komst yfir, 7-6. Tómas kom sterk-
ur til baka og sigraði 15-11. Það var
aldrei spuming hvor myndi sigra í
seinni lotunni, slíkir voru yfirburðir
Tómasar. En í hverju liggur munur-
inn á þeim tveimur sem leikmönn-
um?
Hélt upp meiri hraða
„Það er að minnsta kosti ekki út-
haldið, því ég held að Sveinn sé með
’ betra úthald en ég. En mér tekst að
halda uppi meiri hraða í spilinu
heldur en hann og þess vegna gerir
hann Qeiri mistök,“ sagði Tómas
Viborg sem kom hingað heim til að
taka þátt í íslandsmótinu en hann
æfir allajafna í Svíþjóð. Tómas er
einn þeirra badmintonmanna ís-
lenskra sem hafa sett stefnuna á
Ólympíuleikana í Sydney. Hvemig
gengur að ná því markmiði?
„Það eru enn þá möguleikar á að
komast þangað og ég stefni enn þá að
því. Ég tel að það gæti skýrst í lok
apríl hvort það tekst en til þess að
það gangi þá þarf ég að komast inn á
Evrópumótið í apríl og helst í átta
liða úrslit. Þetta lítur kannski ekki
t svo rosalega vel út en það eru enn þá
möguleikar,“ sagði Tómas Viborg.
í kvennaflokki mættust Elsa Niel-
sen og Ragna Ingólfsdóttir. Elsa, sem
var að taka þátt í 10. úrslitaleik
sínum var heldur sigurstranglegri
Tómas Viborg og Elsa
Nielsen vöröu íslands-
meistaratitla sína í ein-
liðaleik karla og kvenna á
íslandsmótinu í badmin
ton um helgina,
enda var Ragna að taka þátt í fyrsta
úrslitaleik sínum og það einkenndi
fyrstu lotuna nokkuð. Ragna var
taugaóstyrk á meðan Elsa hélt jafn-
vægi í leik stnum þrátt fýrir að géra
óvenju mörg mistök miðað við síð-
ustu níu úrslitaleiki. Enda fór svo að
Elsa sigraði 11-4 og 11-5 og fagnaði
áttunda íslandsmeistaratitli sínum.
Ekki æft mikiö
„Ég hef ekki æft mikið núna frek-
ar en i fyrra, aðeins tvisvar sinnum
í viku. Ég bjóst við meiri mótspymu,
sérstaklega frá Brynju (Pétursdótt-
ur) í undanúrslitunum," sagði Elsa
Nielsen. Hún sigraði Brynju Péturs-
dóttur 11-7 og 11-3 í undanúrslitun-
um en þær tvær léku til úrslita í
fyrra.
„Það munaði miklu að ég var að
leika 10. úrslitaleik minn en Ragna
sinn fyrsta svo það má segja að
reynslupakkinn hafi skilað sér, enda
gerir það mikið í svona leik.“
Hvemig finnst þér staðan vera í
íþróttinni í dag?
„Mér finnst þetta vera á uppleið,
við erum mjög jafnar núna, fáar en
jafnar. Það er ekki þannig núna, eins
og oft hefur verið, að það séu tvær á
toppnum heldur erum við fleiri og
það er jákvætt," sagði Elsa Nielsen,
íslandsmeistari í einliðaleik kvenna
í badminton.
I tvíliðaleik karla unnu Sveinn
Sölvason og Tryggvi Nielsen mjög
öruggan sigur á Guðmundi
Adolfssyni og Óla Birni Zimsen. Þeir
Sveinn og Tryggvi gerðu út um
leikinn í tveimur lotum, 15-5 og 15-2.
I tvenndarleik unnu þau Tómas
Viborg og Brynja Pétursdóttir þau
Elsu Nielsen og Njörð Ludvigson,
6-15, 15-10, 15-6.
Það em því Elsa Nielsen, Tómas
Viborg og Brynja Pétursdóttir sem
unnu öll tvöfalt á íslandsmótinu í
badminton í ár.
-ih/GH
Elsa sigursæl
Elsa Nielsen vann áttunda ís-
landsmeistaratitil sinn í einliða-
leik kvenna um helgina en auk
þess vann hún tvíliðaleikinn sjö-
unda árið í röð.
Elsa vann fyrst á sautjánda
ári, 1991, og hefur unnið öll ár
frá þeim tíma nema árin 1996 og
1997. Elsa, sem verður 26 ára í
sumar, hefur unnið flesta ís-
landsmeistaratitla í kvenna-
flokki frá upphafi en vantar enn
þá 5 til að jafna met Brodda
Kristjánssonar frá 1998. -ÓÓJ
Jos Heyligen rekinn
- Boskamp tekur viö í vikunni
Jos Heyligen var sagt upp starfi sínu sem þjálfari
Belgíumeistaranna í knattspyrnu í RC Genk í gær. Það má
segja að höfuð hans hafi verið undir fallöxinni í nokkrar
vikur. Hann virtist hafa bjargað sér með sigri RC Genk á
Anderlecht en tapið á laugardag fyllti mælinn. Jos
Heyligen var ráðinn þjálfari RC Genk sl. sumar í staðinn
fyrir hinn vinsæla Aimé Anthuenis.
Undir stjóm hans hefur liöið þótt sýna slaka
knattspymu og hann fékk fljótlega leikmenn á borð við
Þórð Guðjónsson og fleiri upp á móti sér. Johann
Boskamp tekur við, vinsæll Hollendingur sem þjálfaði áður
Anderlecht og Gent. -KB
Afríkubikarinn í knattspyrnu:
Kamerún og S-Afríka
í undanurslitin
Kamerún og Suður-Afríka tryggðu sér sæti í und-
anúrslitum Afríkubikarsins í knattspymu í gær.
Kamerún vann Alsír, 2-1, og mætir annaðhvort
Egyptalandi eða Túnis í undanúrslitaleik á fimmtu-
dag. Eto’o og Foe skoruðu mörkin fyrir Kamerún í
fyrri hálfleik en Kamrúnar máttu þakka fyrir und-
ir lokin þegar sókn Alsíringa var sem höröust. Suð-
ur-Afríka sigraði Gana, 1-0, og mætir Nigeríu eða
Senegal. Það var Novetmi sem skoraði sigurmarkið.
Seinni tveir leikimir í 8 liða úrslitum keppninnar
fara fram í dag. -ÓÓJ/GH
Jón Arnar Magnússon er í 2. sæti á
heimslistanum i sjöþraut innanhúss
á þessu ári, samkvæmt lista Alþjóöa
frjálsíþróttasambandsins, en Jón
hlaut 6149 stig á móti í Tallinn í
síöasta mánuði. Efstur er Tékkinn
Roman Sebrle meö 6358 stig sem
hann náöi á sama móti i Tallinn.
Forráðamenn KR og Keflavíkur
hittast á fundi í dag þar sem reynt
veröur að ná lendingu varðandi
félagaskipti Gunnleifs Gunnleifs-
sonar markvarðar úr KR í Keflavík.
KR-ingar vildu fá Eystein Hauksson
í skiptum fyrir Gunnleif en Eysteinn
hafnaöi því og vill vera um kyrrt hjá
Keflavík.
Daninn Wilson Kipketer setti í gær
heimsmet í 1000 metra hlaupi
innanhúss þegar hann hljóp
vegalengdina á 2:15,25 mínútum.
Helgi Sigurðsson og félagar hans í
Panathinaikos skutust á topp grisku
A-deildarinnar í knattspyrnu í gær
með því aö sigra Trikala á útivelli,
1-3. Helgi var ekki á meðal
markaskorara en hann var i
byrjunarliðinu en var skipt út af á 72.
mínútu. Arnar Grétarsson lék
síðustu 6 minúturnar þegar AEK
sigraði Paok, 2-0. Panahinaikos er
með 47 stig í efsta sæti, Olympiakos
er með 45 stig en á leik til góða. OFI
er með 42 stig og AEK er í fjórða sæti
með 31 stig. -GH
Það getur vertið erfitt að sætta sig
við tap og hér sést argentínski
landsliðsmaðurinn Gabriel, í
undir 23 ára liði Argentínu, bíta í
það súra epli að tapa gegn Chile i
undankeppni Ólympíuleikana,
0-1, sem þýddi að Chile komst til
Sydney. Reuters
n
1. DEILD KARLA
Selfoss-Breiðablik . ..
Valur-ÍBV............
Höttur-Stafholtstungur
Þór Þ. 12 11 1 1010-774 22
ÍR 13 11 2 1111-906 22
Valur 12 8 4 901-785 16
Stjarnan 12 7 5 922-864 14
Iv 11 7 4 860-900 14
Breiðablik 12 6 6 824-831 12
Stafholtst. 12 3 9 796-993 6
Selfoss 12 3 9 892-999 6
ÍS 14 3 11 935-1060 6
Höttur 12 2 10 797-936 4