Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2000, Blaðsíða 7
24
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2000
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2000
25
Sport
íslandsmótiö í keilu:
Elín og Steinþór
urðu meistarar
Steinþór G. Jóhannsson úr KR
varð á laugardag íslandsmeistari í
keilu karla og Elín Óskarsdóttir,
Keilufélagi Reykjavíkur, íslands-
meistari i kvennaflokki.
I öðru sæti hjá körlunum varð
meistari fyrra árs, Freyr Bragason,
KFR, og í þriðja sæti lenti Jón Helgi
Bragason, ÍR. Hann lék frábærlega í
undanúrslitum mótsins þegar hann
náði fellum í öllum römmunum.
Jón Helgi er þriðji einstaklingurinn
hér á landi til að ná þessum ár-
angri. Hinir eru Ásgeir Þór Þórðar-
son sem reyndar hefur náð þessum
árangri í tvígang og Sigurður Lár-
usson.
I öðru sæti í kvennaflokki varð
Jóna Gunnarsdóttir úr KFR og í
þriðja sæti varð Ágústa Þorsteins-
dóttir, KFR, en hún hafði fyrr i mót-
inu leikið sérlega vel.
Það verða því Steinþór og Elín
sem verða fuhtrúar íslands á Evr-
ópumóti landsmeistara sem haldið
verður í Bergen í Noregi i septem-
ber í haust.
-JKS
Elín Óskarsdóttir og Steinþór G. Jóhannsson, íslandsmeistarar í keilu, með
verðlaun sín í mótslok. DV-mynd S
Stórt skref Þórs
aó úrslitakeppni
- er liðið sigraði KFÍ á Akureyri
Leikur Þórs og KFÍ
var bráðskemmtileg-
ur. Leikurinn var
mjög jafn. KFÍ var
sterkara í byrjun
leiks. En þegar fyrri
leikhlutinn var hálfn-
aður náðu Þórsarar
góðri forystu sem þeir
létu ekki af hendi.
Bæði lið spiluðu
góðan varnarleik og
sést það á stigaskor-
inu. Lou Moore var
bestur í liði KFÍ en
hann skoraði helming
stiga KFÍ í seinni leik-
hlutanum. Hafsteinn
Lúövíksson og
Maurice Spillers voru
bestir í liði Þórs. „Ég
er mjög ánægður með
leikinn. Þettavarenn
einn mikilvægasti
leikurinn okkar. Við
erum núna í mjög
vænlegri stöðu en við
erum ekki 100% örugg-
ir enn þá með að kom-
ast í úrslitakeppnina.
Það er bjart fram und-
an og þau markmið
sem við settum okkur
eru innan seilingar",
sagði Ágúst Guð-
mundsson, þjálfari
Þórs, eftir leikinn.
-jj
ÞórAK (39) xxx - KFÍ (33) xx
4-0, S-6, 8-11, 14-17, 16-21, 21-25, 25-25, 31-27, 35-29, 39-29, (39-33), 46-35, 50-40,
Maurice Spillers 22
(10 iráköst, 7 stoðs., 8 stolnir)
Hafsteinn Lúðvíksson 20
(9 aflO í skotum, 8 fráköst)
Magnús Helgason 11
Hermann Hermannsson 8
Sigurður Sigurðsson 7
Óðinn Ásgeirsson 3
Einar öm Aðalsteinsson 2
Einar Hólm Davíðsson 1
), 63-52, 70-52, 72-58, 74-61.
Fráköst: Þór 45(19-26), KFÍ
21 (4-17), Þór tók 68%.
3ja stiga: Þór 17/3, KFÍ
17/6.
Dómarar (1-10): Leifur
Garðarsson og Helgi
Bragason (8).
Gæói leiks (1-10): 8.
Víti: Þór 13/7, KFÍ 12/7.
Áhorfendur: 200.
Lou Moore 21
(11 fráköst, 10 af 21 í skotum)
Hrafn Kristjánsson 12
Haltdór Kristmannsson 10
Tómas Hermannsson 7
Baldur Jónasson 6
Pétur Sigurösson 2
Tom Hull 2
Þórður Jensson 1
Maður leiksins: Hafsteinn Lúðvíksson, Þór
DV DV
Sport
Evrópumótinu í frjálsum íþróttum
innanhúss lauk í borginni Gent í Belg-
íu í gær. Þegar litið er á árangur ís-
lensku keppendanna kom Guðrún
Arnardóttir skemmtilega á óvart þeg-
ar hún setti tvö íslandsmet, í 60 metra
grindahlaupi og í 400 metra hlaupi,
með tuttugu mínútna millibili.
Þessi framganga Guðrúnar sýnir að
hún er á réttri leið eftir meiðslin í
læri sem háðu henni mikið á síðasta
tímabili. Guðrún varð í níunda sæti í
400 metra hlaupi á 53,14 sekúndum og
13. i 60 metra grindahlaupi á 8,36 sek-
úndum.
Vala Flosadóttir keppti í gær í úr-
slitunum í stangarstökki kvenna og
náði sér ekki á strik. Hún stökk létti-
lega yfir 3,90 metra og 4,05 metra en
síðan í þriðju og síðustu tilraun yfir
4,20 metra. Vala virtist vera að rétta
úr kútnum er hún stökk nokkuð létti-
lega yfir 4,30 metra en hærra fór hún
ekki. 4,35 metrar var of mikil hæð og
Vala varð því að gera sér fjórða sætið
að góðu. í raun ágætur árangur en
búið var að byggja upp miklar vonir
fyrir mótið og þvi olli það nokkuö
miklum vonbrigðum að hún skyldi
ekki komast á verðlaunapall.
Brotlending Jóns Arnars er
bronsið blasti við
Jón Arnar Magnússon virtist stefna
hraðbyri á bronsverðlaunin í sjö-
þrautinni þegar hann kenndi sér
meins í baki eftir 60 metra grinda-
hlaupið á siðari keppnisdegi.
Meiðslin urðu þess valdandi að
hann varð að hætta keppni og draum-
urinn um verðlaun varð þar með úr
sögunni. Jón Amar leitaði til sérfræð-
inga og kom þá í ljós að taug hafði
klemmst i bakinu. Mun Jón vera á
góðum batavegi og verður nær örugg-
lega meö á Stórmóti ÍR sem fram fer
um næstu helgi.
Jón Amar byrjaði sjöþrautina á því
að hlaupa 60 metra grindahlaup á 6,93
sekúndum, hann stökk 7,49 metra í
langstökki, varpaði kúlu 15,89 metra
og stökk yfir 1,98 metra í hástökki. Á
laugardeginum hljóp hann 60 metra
grindahlaup á 8,09 sekúndum og fór
ekki lengra sökum meiöslanna. Hann
reyndi að mæta til leiks í stangar-
stökkinu en það gekk ekki og þar með
hætti hann keppni. Mikil vonbrigði og
einnig olli árangur Jóns nokkrum
vonbrigðum, til að mynda í langstökk-
inu, hástökkinu og kúluvarpinu.
Tomas Dvorak frá Tékklandi sigr-
aði í sjöþrautinni og setti nýtt Evrópu-
met. Hann hlaut alls 6.424 stig og var
52 stigum frá núgildandi heimsmeti.
Annar varð landi hans Roman Seberle
með 6.271 stig og Eistinn Erki Nool
varð í þriðja sæti með 6.200 stig.
Einar Karl Hjartarson, sem var að
taka þátt í sínu fyrsta stórmóti, fór
yfir 2,11 metra og notaði til þess tvær
tilraunir. Hann reyndi síðan þrívegis
við 2,16 metra en felldi. Einar Karl er
maður framtíðarinnar og þátttaka á
mótinu í Belgíu mun vera honum góð
reynsla í framtíðinni.
Árangur Guðrúnar mjög já-
kvæður og metin góð
„Það er mjög jákvætt að sjá hvað
Guðrún er að bæta sig í þeim greinum
þar sem hún setti íslandsmet. Hún
sýnir að hún er á réttri leið í hraðan-
um þannig að hún getur verið mjög
bjartsýn á sumarið ef hún sleppur við
meiðsli. Ég er ánægður fyrir hennar
hönd að hún kom svona vel út og ekki
langt frá því að komast í úrslit í 400
metra hlaupinu sem ekki nokkur mað-
ur bjóst við að henni tækist," sagði
Vésteinn Hafsteinsson, fararstjóri á
Evrópumótinu og verkefnisstjóri
Sydney-ólympíuhóps FRÍ, í samtali
við DV í gær.
Vésteinn sagði enn fremur að inn-
anhússtími Guðrúnar í 400 metra
hlaupinu þýddi einfaldlega að hún
ætti að geta orðið mun sterkari utan-
hús i 400 metra grindahlaupi en hún
hefur nokkum tíma verið.
„Guðrún hefur að minu mati mikla
möguleika á að komast í úrslit í Sydn-
ey miðað við það sem hún hefur verið
aö gera undanfarin ár. Hún er núna
komin inn í hlaupahóp með tveimum
þekktum þjálfurum í Atlanta og þaö
virðist hafa haft góö áhrif á hana,“
sagði Vésteinn.
Vésteinn sagði það leiðinlegt að Jón
Amar hefði þurft að hætta keppni því
hann átti orðið möguleika á að vinna
bronsverðlaun. Þá hefði litlu mátt
muna að Vala næði að tryggja sér sæti
á verðlaunapalli.
Miklar kröfur
Miklar kröfur em gerðar til kepp-
enda okkar og að þessu sinni munaði
í raun ekki miklu að keppendumir
stæðu undir öllum þeim væntingum
sem gerðar vora. Árangurinn var góð-
ur en miðað við þau orð sem féilu fyr-
ir mótið hlýtur útkoman að valda tölu-
verðum vonbrigðum.
-JKS/-SK
Jón Arnar Magnússon var nokkuð frá sínum besta árangri en samt í
baráttu um verðlaun þar til meiðsli settu strik í reikninginn.
Guðrún
Arnardóttir stóð
sig vel á EM í
Belgíu og setti tvö
íslandsmet á
tuttugu mínútum.
Vala Flosadóttir sagði eftir Evrópumótið í Belgíu að hún hefði í raun aldrei náð sér á strik í úrslitunum í stangarstökkinu. Litlu munaði að hún kæmist á verðlaunapall.
- Vala Flosadóttir stökk 4,30 metra og varö
fjórða í stangarstökkinu og missti af verölaunum
Egerbara
bjartsýn á
framhaldid
- segir Guðrún Arnardóttir sem keppir
á Stórmóti ÍR um næstu helgi
„Ég get ekki verið að kvarta á meðan maður er að bæta
sig. Markmiðið hjá mér var að bæta mig hér á Evrópumót-
inu og þetta er allt samkvæmt áætlun og núna er bara að
halda sér heilli og vonandi að það gangi eftir. I fyrrasumar
kom ekki út úr mér það sem átti að koma vegna meiðsla svo
ég átti þetta inni. í vetur er ég búin að æfa vel þannig að
þetta horfir vel,“ sagði Guðrún Amardóttir sem setti tvö ís-
landsmet í Gent um helgina.
- Heldurðu kannski að þú sért komin á beinu brautina?
„Maður tekur því með fyrirvara en maður reynir auðvit-
að að notfæra sér góðan árangur en hann hvetur mann að
sjálfsögðu áfram. Ég kem heim til íslands en um næstu helgi
tek ég þátt í stórmóti ÍR og hlakka ég mikið til. Að því loknu
held ég að nýju til Atlanta í Bandaríkjunum og tek upp þráð-
inn við æfingar."
- Hvað er síðan fram undan hjá þér?
„Það tekur við tveggja mánaða uppbygging og eins og
staðan er í dag byrja ég að keppa 29. aprO á móti við Karíba-
hafið í 400 metra grindahlaupi. Ég ætla að reyna að ná lág-
mörkunum fyrir Ólympíuleikana sem fyrst en ég veit ekki
hvort það tekst á fyrsta mótinu. Síðan ætla ég að taka þátt í
nokkrum mótum í sumar áður en ég held til Ástralíu í byrj-
un september. Ég er bara bjartsýn á framhaldið, svo framar-
lega sem engin meiðsl koma upp,“ sagði Guðrún Arnardótt-
ir í samtali við DV.
„Læt þetta ekki slá mig út af laginu“
„Ég er öllu skárri í bakinu eftir mikla meðferð hjá
pólskum sjúkraþjálfara en ég þarf á meiri meðferð að
halda þegar ég kem heim. Bakið á mér hefur verið nokk-
uð stíft síðari hluta vetrar og kannski ekki meðhöndlað
sem skyldi. Maður er ekkert öðruvísi en bíll og þarf að
fara í stillingu af og til. Ég var búinn að standa mig
svona þokkalega í sjöþrautinni þegar ég varð að hætta.
Það var súrt að þurfa að hætta en úr því sem komið var
átti ég alla möguleika á að hreppa bronsverðlaun," sagði
Jón Amar Magnússon í samtali við DV.
Jón Arnar sagði að hann stefndi að þátttöku í Stór-
móti ÍR um næstu helgi og vonandi yrði hann orðinn
góður í bakinu fyrir þann tíma. Hann sagði þetta ekki
vera tognun í bakinu og því væri hann bjartsýnn á að
geta verið með.
„Fram undan hjá mér eru síðan æfingar og aftur æf-
ingar. Ég geri ráð fyrir að fara í æfingabúðir til Banda-
ríkjanna í maí og næsta mótið erlendis verður þátttaka
í hinu árlega móti í Götziz í Austurríki fyrstu helgina í
júní. Eftir það tek ég þátt í nokkrum mótum fyrir
Ólympiuleikana," sagði Jón Arnar.
- Hvemig er staðan hjá þér núna?
„Það hefur gengið mjög vel í vetur og ég hef komist
vel frá meiðslum og þakka ég það góðri þjálfun og und-
irbúningi. Við höfum lagt mikla áherslu á kúluvarp og
stangartsökkið, langstökkið er að koma aftur og hraðinn
einnig. Ég get ekki annað en verið þokkalega bjartsýnn
á framhaldið. Ég ætla ekki að láta þessa uppákomu hér
í Gent slá mig út af laginu," sagði Jón Arnar Magnús-
son.
-JKS