Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2000, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2000, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2000 27 - Maður leiksins: Jón Karl Björnsson, Haukum. :-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------.------------------------------------------------------------------------------------------------------------- DEiLD KakLA - Afturelding 17 12 1 4 438 403 25 Fram 17 10 2 5 439-416 22 KA 16 9 2 5 427-367 20 Haukar 17 8 3 6 451-426 19 Valur 17 9 1 7 389-375 19 IBV 17 8 2 7 400-400 18 Stjarnan 16 8 1 7 381-372 17 HK 17 8 1 8 418410 17 FH 17 7 3 7 385-386 17 ÍR 17 6 3 8 401-417 15 Víkingur R. 17 3 5 9 408450 11 Fylkir 17 1 0 16 368475 2 ■ Andri Úlfarsson í ÍR sækir að vörn Eyjamanna þar sem Svavar Vignisson er fyrir. Meistararnir kjoldregnir - Haukarnir unnu stóran sigur á meisturum Aftureldingar, 28-22 „Þetta var mjög þýðingarmikill sigur enda munar um hvert stig í þessari jöfnu deild. Við náðum upp góðri vörn og mark- vörlu í seinni hálfleik og það lagði grunn- inn að sigri okkar. Við megum hins vegar ekki halda að við séum neitt öruggir í úr- slitakeppnina. Það er mikið eftir og verð- um að hafa fyrir hlutunum,“ sagði Jón Karl Bjömsson, hornamaðurinn snjalli í liði Hauka, við DV eftir sigur á íslands- meisturum Aftureldingar, 28-22, í Strand- götunni í gærkvöld. Leikur liðanna var hörð rimma og oftar en einu sinni munaði litlu að upp úr syði. Dómaramir misstu nokkuð tökin i síðari hálfleik og á tímabili voru aðeins þrír Haukamenn inni á vellinum. En Haukam- ir héldu haus og með Petr Baumruk fremstan i ílokki í sterkri Haukavörn í seinni hálfleik skomðu heimamenn sex mörk í röð, breyttu stöðunni úr 20-19 i 24-19 og gerðu þar með út um leikinn. Haukarnir voru eins og gestirnir í vand- ræðum með vamarleik sinn í fyrri hálfleik en í þeim síðari var allt annað upp á ten- ingnum. Baumruk náði að binda vörnina vel saman, Jónas hrökk í stuö í markinu og Haukamir refsuðu meisturunum grimmt með hraðaupphlaupum. Liðsheild- in var miklu sterkari hjá Haukum. Baumruk átti mjög góðan leik, ekki bara í vörninni heldur var hann atkvæðamikill í sókninni, Jón Karl var mjög drjúgur í hominu og hraðaupphlaupunum og þeir Óskar Ármannsson og Halldór Ingólfsson voru mjög ógnandi. Haukunum hefur gengið vel á nýju ári. I fjórum leikjum er uppskeran þrir sigrar og eitt jafntefli og lærisveinar Guðmundar Karlssonar þjálf- ara hafa því ekki tapað eftir að tilkynnt var að Viggó Sigurðsson tæki við starfi Guðmundar í sumar. Mosfellingar hófu leikinn af krafti og virtust til alls líklegir en smátt og smátt dró úr kraftinum líkt og hjá Heklu gömlu. Varnarleikurinn var í molum og í síðari hálfleik komust meistararnir lítt áleiðis gegn sterki vöm Hauka. Valdimar Þórsson lék einna best í liði Aftureldingar og Lithá- amir Gintas og Gintaras vom spækir í fyrri hálfleik. Það er ljóst að Mosfellingar eiga erfitt með að fylla skarð Bjarka Sig- urðssonar, sem er meiddur, og ekki bætti úr skák að homamaðurinn sterki, Jón Andri Finnsson, tók út leikbann í gær. Lið Aftureldingar hefur verið hálfvængbrotið eftir áramótin og ljóst er að Skúli þjálfari Gunnsteinsson þarf að hressa vel upp á sitt lið ef það ætlar alla leið, líkt og í fyrra. -GH Eyjamenn á siglingu - unnu ÍR örugglega, 21-26 Eyjamenn hafa verið á góðu skriði í 1. deildinni í hand- knattleik undanfarið og héldu því áfram með sannfærandi fimm marka sigri á ÍR-ingum í Austurbergi. Það var frábær kafli Eyjamanna um miðjan síðari hálfleik sem tryggði þeim sigurinn en leikurinn hafði verið jafn fram að því. Fyrri hálfleikur var jafn allan tímann. Þeir Erlendur Stefánsson hjá ÍR og Audinas Fravolas héldu uppi flugeldasýn- ingu fyrir sín lið og gerðu báðir öll sín mörk í fyrri hálfleik. Fravolas meiddist reyndar um miðjan hálfleikinn og lék ekkert eftir það. Að því loknu tóku Miro og Ragnar Óskarsson við í skotkeppninni og gerðu þeir sín fimm mörkin hvor í fyrri hálfleik. Eyjamenn höföu eins marks forystu í leikhléi. I síðari hálfleik breyttu Eyjamenn vöminni hjá sér, komu lengra út í skytturnar og tóku Ragnar Óskarsson nánast úr umferð. Þetta hafði mjög lamandi áhrif á sóknarleik ÍR-inga og skyttumar Erlendur og Ingimundur skoruðu ekki mark í hálf- leiknum, né heldur Einar og Róbert sem komu inn á til að leysa þá af. ÍR-ingar náðu þó að halda í horfinu fram undir miðjan hálfleikinn en í stöðunni 17-17 gerðu Eyjamenn fimm mörk í röð og refsuðu ÍR-ingum fyrir byrjendamistök í sókn- inni en þau voru mörk. Eftir þaö var aldrei spurning um sig- urinn, ÍR-ingar gáfust upp og eftirleikurinn var auðveldur. Það er allt annað að sjá til Eyjaliðsins nú en í upphafi tíma- bilsins og virðist Boris Bjarni vera að gera góða hluti með lið- ið. Miro var sem fyrr atkvæðamestur í liðinu en auk hans átti Daði Pálsson frábæran síðari hálfleik og 19 ára leikstjórnandi, Hannes Jónsson, átti góða innkomu. ÍR-liðið hmndi gjörsam- lega í síðari hálfleik og virðist illa mega við því að Ragnari Óskarssyni sé kippt úr sóknarleiknum. Hrafn Margeirsson markvörður var yfirburðamaður í sínu liði. -HI Ójafnt í Árbænum Fedrouhine Auztoli, þjálfari bikarmeistara Fram, lét varalið sitt að mestu leyti um aö afgreiöa falllið Fylkis þegar liðin áttust viö í Safamýri í gærkvöldi. Framarar byrjuðu leikinn af miklum krafti, skoruðu úr 13 af 15 fyrstu sóknum sínum og höfðu þægilegt 7 marka forskot í leikhléi. En ólíkt höfðust þeir að i síöari hálfleiknum, þá var sóknarnýting Framara aðeins 33% fyrstu 15 mínúturnar þar sem þeir skoruöu úr 4 af fyrstu 12 sóknum sínum. Fylksmenn gengu á lagið og breyttu stöðunni í 22-18. En lengra komust þeir ekki Framárar bættu leik sinn og unnu sannfærandi sigur, 30-23. Þessi leikur veröur fljótur að gleymast öllum þeim er á horfðu og mér er til efs að leikmenn muni leggja hann neitt sérstaklega á minniö, nema ef vera skyldi þeir leikmenn Fram sem hafa lítið leikið með í vetur en fengu tækifæri i þessum leik til að sýna hvað í þeim býr. Kristján Þorsteinsson var bestur í liði Fram en hjá Fylki var Tjörvi Ólafsson bestur. Sport i>v Magnús lagði grunn - að fyrsta sigri FH-inga á árinu gegn HK, 23-20 Magnús Ámason, markvörður FH- inga, lagði gruxminn að fyrsta sigri sinna manna á þessu ári þegar FH lagði HK í Digranesi, 23-20. Magnús skellti FH-markinu í lás í síðari hálfleik og varði hvað eftir annað meistaralega. Hann varði 14 skot í seinni hálfleiknum, þar af tvö vítaköst og mörg dauðafæri Kópa- vogsmanna sem töpuðu sínum fyrsta deildarleik á árinu eftir að hafa unn- ið þrjá í röð. Leikurinn bar þess merki aö mikið var í húfi þar sem hörð barátta er um að komast í úrslitakeppnina. Barátta, klaufalegar sóknarvillur og á köflum taugaveiklun einkenndi leik beggja liða sem skiptust á að hafa forystu lengi vel en eftir að FH-ingar skoruðu fiögur mörk í röð og náðu þriggja marka forystu þegar 6 mínútur voru til leiksloka var ljóst að sigurinn félli þeim í skaut. Markvarsla Magnúsar réð úrslitun- um í þessum leik. Valur Arnarson lék einnig vel fyrir FH sem og Guðmund- ur Pedersen og þá léku gömlu jaxlarn- ir Gunnar Beinteinsson og Hátfdán Þórðarson lykihlutverk i vöminni. Óskar E. Óskarsson var eini leik- maður HK sem náði sér virkilega á strik. Aðrir lykilmenn liðsins eins og Sverrir Bjömsson, Alexander Amar- son, Hlynur markvörður og Sigurður Sveinsson náðu sér ekki á strik og við því má Kópavogsliðið alls ekki. -GH Haukar 28(14) - Afturelding 22(14) 1-0, 2-2, 2-5, 4-7, 8-10, 12-10, 12-12, 14-12, (14-14), 15-14, 16-16, 18-16, 20-19, 26-19, 26-21, 27-22, 28-22. Jón Karl Bjömsson 9/3, Halldór Ingólfsson 6/1, Óskar Ármannsson 5/1, Petr Baumruk 3, Aliaksandr Shamkuts 2, Sigurjón Sigurðsson 1, Kjetil Ellertsen 1, Sigurður Þórðarson 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 1, Jónas Stefánsson 9. Brottvisanir: 14 mínútur. Rauö spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 5 af 6. Áhorfendur: Um 500 Gœöi leiks (1-10): 6. Dómarar (1-10): Gunnlaugur Hjálmarsson og Arnar Kristinsson. (4). Valdimar Þórsson 7/4, Gintas Savukynas 5, Gintaras í■ Galkauskas 4, Einar Gunnar Sigurðsson 2, Magnús Már Þóröarson 2, Alexei Troufan 1, Hilmar Stefánsson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 11/1. Brottvisanir: 12 mínútur. Rauö spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 4 af 5. Fram 30 (18) - Fylkir 23 (11) 2-0, 5-1, 6-2, kA, 10-6, 14-7, 16-9, 18-9, (18-11), 18-13, 20-15, 21-17, 24-18, 27-20, 29-22, 30-23. • Kenneth Ellertsen 6/5, Kristján Þorsteinsson 4, Vilhelm G. Bergsveinsson 4, Vilhelm S. Sigurðsson 4, Guðjón Drengs- son 3, Róbert Gunnarsson 3, Guðlaugur Amarsson 2, Gunn- ar Berg Viktorsson 2/2, Robertas Pauzuoliz 1, Njörður Áma- son 1. Varin skot: Magnús Erlendsson 16/3. Brottvisanir: 8 mínútur. Rauö spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 7 af 7. Áhorfendur: 84. Gœöi leiks (1-10): 3. Dómarar (1-10): Ólafur ö. Haraldsson og Guðjón L. Sigurðsson. (7). IR 21 (12) - IBV 26 (13) 1-0, 2-2, 4-3, 5-7, 7-8, 8-10, 10-11, (12-13). 13-16, 16-16, 17-22, 20-23, 21-26. Ragnar Óskarsson 9/5, Erlendur Stefánsson 5, Ragnar Helgason 3, Ingimundur Ingimundarsson 2, Ólafur Sigurjónsson 1, Finnur Jóhannsson 1. Varin skot: Hrafn Margeirsson 15/1. Brottvísanir: 12 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 5 af 6. Áhorfendur: 200 Gœöi leiks (1-10): 7. HK 20 (11) - FH 23 (11) 1-0, 2-2, 4-4, 6-4, 8-6, 8-9, 11-10, (11-11). 11-13, 14-13, 16-15, 16-17, 17-17, 17-21, 18-22, 19-23, 20-23. Óskar E. Óskarsson 8/3, Sigurður Sveinsson 3/1, Guðjón Hauksson 2, Már Þórarinsson 2, Atli Þór Samúelsson 2, Al- exander Amarson 1, Jón B. Ellingsen 1, Samúel Ámason 1. Varin skot: Hlynur Jóhannesson 8, Kristinn Guðmundsson 1. Brottvísanir: 10 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vítanýting: Skorað úr 4 af 6. Dómarar (1-10): Hlynur Jóhannesson og Anton Pálsson. (6). Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson. (6). Áhorfendur: 250 Gceöi leiks (1-10): 6 Þ. Tjörvi Ólafsson 7/1, Ólafúr Ó. Jósepsson 4/1, David fl|Cl Kekelja 3, Ágúst Guðmundsson 3, Eymai Kruger 2. '/ Július Sigurjónsson 2, Sigmunur P. Lárusson 1, Elís Þór Sigurðsson 1. Varin skot: Örvar Rudolfsson 5, Jóhannes Lange 2. Brottvisanir: 12 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 2 af 5. Maöur leiksins: Kristján Þorsteinsson, Fram. Miro Barisic 8/4, Daði Pálsson 6, Hannes Jónsson 4/1, Audinas Fravolas 3, Guðfmnur Kristmannsson 2, Arnar Richardsson 1, Erlingur Richardsson 1, Sigurður Bragason 1. Varin skot: Gísli Guðmundsson 11. Brottvisanir: 18 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vítanýting: Skorað úr 5 af 6. Maður leiksins: Hrafn Margeirsson, ÍR. Guðmundur Pedersen 7/5, Valur Amarson 5, Brynjar Geirsson 2, Sigursteinn Amdal 2, Sigurgeir Ægisson 2, Lára Long 2, Knútur Sigurðsson l, Hálfdán Þórðarson 1, Sverrir Þórðarson 1. Varin skot: Magnús Ámason 22/2 Brottvísanir: 12 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 5 af 5. Maöur leiksins: Magnús Árnason, FH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.