Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2000, Side 12
30
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2000
Jóhannes og Brynjar.
Gull og brons
íslendingar
náðu hreint frá-
bærum árangri á
Norðurlandamót-
inu í snóker sem
lauk um helgina.
Jóhannes B.
Jóhannesson
náði að tryggja
sér gullverðlaun-
in í einstak-
lingskeppninni
með því að sigra
Danann Allan
Norvark í úrslit-
um, 6-2. Brynjar
Valdimarsson
vann til brons-
verðlauna í ein-
staklingskeppn-
inni með því að
sigra Svíann
Kevin Zarakani,
5-3.
Islendingar
urðu Norður-
landameistarar i
liðakeppni og ár-
angur liðsins á
mótinu var mjög
góður.
-SK
Bland í poka
Kristinn Magnússon frá Ak-
ureyri varð í 43. sæti i svigi á
heimsmeistaramót pilta í
Kanada um helgina. Björgvin
Björgvinsson frá Dalvík féll úr
keppni i fyrri ferð.
Mikil slagsmál brutust út í
upphafi leiksins hjá Stoke City
og Wigan í 2. deildinni um helg-
ina. Enska knattspyrnusam-
bandið er með málið til rann-
sóknar en talið er að stuðnings-
menn Stoke hafl átt upptökin að
óeirðunum.
1R stefnir hraóbyri að úr-
valsdeildinni í körfuknattleik
eftir eins árs veru í 1. deildinni.
Um helgina komust ÍR-ingar þó í
hann krappan er þeir unnu
Stjörnuna með aðeins eins stigs
mun, 96-95. Þá unnu Eyjamenn í
ÍV öruggan sigur á liði Staf-
holtstungna, 84-69.
Þýska liöiö Kiel skreið áfram
í undanúrslit meistarakeppni
Evrópu í handbolta með þvi að
vinna ísraelska liðið Hapoel Ris-
hon í Þýskalandi í gær, 26-22.
Lasko frá Slóveníu komst áfram
með 26-20 sigri gegn Ademar
Leon frá Spáni. Þá sigraði
Barcelona úkraínska liðið Za-
poroskye með sjö marka mun á
heimavelli sínum á Spáni en
lokatölur uru 27-20.
-SK
KFÍ nær
örugt
í úrslitin
KFÍ tryggði sér lykilstöðu í barátt-
unni viö Tindastól um fjórða sætið í
úrslitakeppni kvenna í körfubolta.
KFí og Tindastóll skiptu með sér
sigrunum í tveimur leikjum liöanna í
1. deild kvenna um helgina, Tinda;
stóll vann fyrri leikinn, 72-77, en KFl
þurfti 10 stiga sigur í seinni leiknum
til að standa betur í innbyrðisviður-
eignum liöanna og tókst það þvl liðið
vann leikinn, 74-62.
Þetta var langþráður sigur hjá lið-
inu sem hafði tapað átta leikjum í röð
en dugar nú tveir sigrar á heimavelli
gegn neðsta liði deildarinnar, Grinda-
vík, til aö tryggja sér sæti i úrslita-
keppninni í fyrsta sinn.
KFÍ-TindastóU 72-77 (41-39)
Stig KFÍ: Ebony Dickinson 43 (19 frá-
köst), Helga Salóme Ingimarsdóttir
10, Tinna B. Sigmundsdóttir 9, Hafdis
Gunnarsdóttir 6, Sólveig Pétursdóttir
2, Elísabet Samúelsdóttir 2.
Stig Tindastóls: JUl WUson 37 (13
fráköst 9/6 i þriggja), Bima Eiríks-
dóttir 15, Dúfa Ásbjörnsdóttir 13,
HaUdóra Andrésdóttir 5, HafnhUdur
Kristjánsdóttir 5, Aníta Sveinsdóttir
2.
KFÍ-TlndastóU 74-62 (38-31)
Stig KFÍ: Dickinson 48 (16 fráköst),
Tinna 12 (4 stoðsendingar), Anna Sig-
urlaugsdóttir 4, Helga 4, Sesselja Guð-
jónsdóttir 3, Hafdís 2, Sólveig 1. Stig
Tindastóls: Birna 18, WUson 17, HaU-
dóra 14, Dúfa 7 (5 fráköst, 6 stoðsend-
ingar), Ingibjörg Björgvinsdóttir 4,
Efemia Sigurbjörnsdóttir 2.
1. DEILD KVENNA
KR 17 15 2 1257-743 30
Keflavík 17 15 2 1277-886 30
ts 18 11 7 1053-958 22
Tindastóll 16 6 10 933-1109 12
KFÍ 18 4 14 1039-1362 8
Grindavík 18 1 17 785-1286 2
Létum niðurlægja okkur
„Við höfum verið að spUa ágætis bolta en svo kemur að þeim tímapunkti
í leikjum sem menn ætla að fara gera þetta upp á eigin spýtur sem gengur
ekki. Við spiluðum þokkalega í fyrri hálfleik en í þeim seinni fóru menn
bara í sitt eigið horn og spiluðu eins og bjánar og við létum niðurlægja
okkur,“ sagði Helgi Jónas Guðfinnsson sem var stigahæstur í liðinu.
Vinna á veikleikunum
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Svona lið refsa okkur fyrir að eiga slæma
kafla eins og við eigum í upphafi seinni hálfleiks. Maður getur ekki farið
að benda á ákveðna hluti svona strax eftir leik þegar maður er ekki búinn
að renna honum í gegnum hausinn en við verðum bara að halda áfram að
vinna á veikleikum okkar,“ sagði Friðrik Stefánsson. -ÓÓJ
Endurspeglaði veikleikana
„Ég var alveg sannfærður um að þetta væri möguleiki fyrir okkur og
lagði það upp fyrir leikinn. Við sýndum það í fyrri hálfleik en svo bara
ræðst leikurinn í síðari hálfleik. Þeir byrja mun betur en við og þá er eins
og það komi .upp þessi ótti og hræðsla við að gera mistök sem hefur því
miður einkennt okkur. Við erum að spila einungis gegn þjóðum sem eru
fyrir ofan okkur í styrk og við viljum reyna að vera áfram i þessum hópi
en til þess þurfum við að sýna betri leik en í síðari hálfleik. Seinni
hálfleikurinn endurspeglaði þá veikleika sem við eigum við að glíma í
íslenskum körfuknattleik og það er ljóst að margt gott hefur gerst en
íslenskur körfubolti þarf að taka sig taki og menn þurfa að leggja meira á
sig. Við erum ekki nógu klókir, ekki nógu sterkir á svellinu,
framkvæmdaatriði sóknarleikins eru bara hreinlega út í hött og jafnvægi
milli þolinmæði og áræðni er ekki til,“ sagði Friðrik Ingi þjálfari. -ÓÓJ
Friörik Ingi Rúnarsson og lærisveinar hans í landsliðinu leggja á ráðin í leikhléi gegn Portúgal. DV-mynd Hilmar Þór
Til skammar
icílanwí*
Helgi Jónas Guöfinnsson hóf leik-
inn frábærlega, hitti úr fjórum fyrstu
skotum sínum, þar af þremur þriggja
stiga og setti niður 13 stig á fyrstu 6
minútum leiksins. Eftir það mátti
hann þó bíða í 21 mínútu eftir næstu
körfu kappans og gerði hann samtals
fimm stig siðustu 34 mínútumar.
Friörik Stefánsson og Fannar
Ólafsson gerðu sitt í baráttunni und-
ir körfúnni og tóku samtals átta sókn-
arfráköst og skiluðu þar af þremur
körfum strax í framhaldinu. Alls
gerðu þeir 22 stig og hittu úr 6 af 10
skotum sínum og 10 af 16 vítum.
Portúgal vann seinni hálfleikinn
46-27 í stigum, 10-2 í stoðsendingum,
8-2 i stolnum boltum og 11-4 í skoruð-
um körfum. Islenska liðið tapaði 9
boltum í hálfleiknum, hitti aðeins úr
4 af 25 skotum, þar af engu þriggja
stiga skoti (af 9) og gerði 67% stiga
sinna af vítalínunni (18 af 27).
íslenska liöiö tók 56% frákasta í
leiknum (30 gegn 24), alls 15 sóknar-
fráköst og gerði 18 stig eftir aö hafa
fengið annan möguleika í framhaldi
af sóknarfrákasti en það dugði lítið.
Portúgal hóf seinni hálfleikinn með
því að skora fimm fyrstu stigin og
vann fyrstu flmm mínútur hálfleiks-
ins, 16-2. -ÓÓJ
Island (41) 68 - Portúgal (41) 87
5-0, 5-2, 7-2, 7-6, 12-6, 17-11, 19-13, 19-17, 21-17, 21-26, 23-28, 29-28, 29-33, 33-38
41-39, (41-41), 4H6, 43^6, 43-57, 51-58, 51-66, 56-71, 63-75, 63-80, 65-80, 68-87.
Fráköst: Island 30 (15-15),
Portúgal 24 (7-11).
3ja stiga: ísland 21/5,
Portúgal 13/5.
Sergio Ramos
Paulo Pinto
Carlos Sebtas
Nuno Marcal
Nuno Perdiago
Luis Silva
Miguel Miranda
Raul Santos
Nuni Manarte
Luis Gomes
Helgi Jónas Guönnnss. 18
Teitur örlygsson 12
Friðrik Stefánsson 12
Fannar Ólafsson 10
(7 fráköst á 18 minútum)
Herbert Amarson 10
(0 af 4 í þriggja stiga skotum)
Gumundur Bragason 2
Falur Harðarson 2
Birgir Öm Birgisson 2
Domarar (1-10): Lars
Klaar, Svíþjóð og Paul Den
Hartog, HoUandi (6).
Gœði leiks (1-10): 2.
Víti: Island 28/21, Portúgal
33/24.
Áhorfendur: 500.
BIRGIRJRI
«r
-19 stiga tap gegn Portúgal á heimavelli og aðeins fjórar körfur síðustu 20 minúturnar
Vonin um fyrsta sigur íslenska
körfuknattsleikslandsliðsins í undan-
úrslitariðli Evrópumótsins fékk
þungan skell í Höllinni á laugardag
þegar Portúgalir unnu 19 stiga sigur
og íslenska liðið gekk niðurlútt af
velli, flmmtánda leikinn á EM í röð.
íslenska liðið hefur átt slæma
kafla til þessa í keppninni en aldrei
þó heilan hálfleik eins og gerðist á
laugardaginn. Leikur liðsins hrundi
bara til grunna í seinni hálfleiknum
eftir að byrjun leiksins hafði lofað
góðu og jafnt hafi verið eftir fyrri
hálfleikinn, 41-41.
Frammistaða liðsins í seinni hálf-
leik var bara í einu orði sagt til
skammar. Að tapa hálfleik með 19
stigum og skora aðeins fjórar körfur
utan af velli á 20 mínútum er eitt-
hvað sem væri hugsanlega hægt að
sætta sig við gegn stærstu og bestu
körfuknattleiksþjóðum heims á úti-
velli en ekki gegn Portúgal á heima-
velli, liði sem við álitum fyrir leikinn
næst því að vera okkar jafningja í
riðlinum.
Töpin eru nú orðin fimmtán í röð,
þar af tíu með 20 stigum eða meir og
það verður bara að viðurkennast að
áhuginn I kringúm liðið dvínar með
hverju tapinu á fætur öðru og þrátt
fyrir að ókeypis sé á hvern leik fækk-
ar bara áhorfendum mOli leikja.
Friðrik Ingi Rúnarsson hefur
reynt að færa meiri aga og yfirvegað-
an leik inn i liðið en útkoman til
þessa er aðeins sú að sóknarleikur
liðsins er bitlaus, þungur og leiðin-
legur og við sem einu sinni fengúm
að sjá fullt af þriggja stiga körfum,
hraða og skemmtun þurfum að sætta
okkur við vítaskot, villur og vand-
ræði ofan á þessi stórtöp.
Portúgalir sýndu í raun hvemig
útfæra á „draumsýn" Friðriks Inga á
leikstíl byggðan á aga og útsjónar-
semi því hverjum mistökum islensku
strákanna var refsað með einfaldri
hraðaupphlaupskörfu eða galopnu
skoti. Einn leikmaður bar af á veUin-
um eftir fyrstu 6 mínútumar en
Helgi Jónas gerði 13 stig á þessum
fyrstu mínútum. Sergio Ramos hitti
úr 10 af 13 skotum, 10 af 11 vítum og
gerði 32 stig á 32 mínúum.
Hvað er til ráða? Það biða ungir
og stórefnilegir strákar handan við
hornið og vissulega bendir frammi-
staða Guðmundar Bragasonar og
Fals Harðarsonar í þessum leik til
þess að hægt sé að skipta þeim strax
inn í landsliðið. Tveir af reyndustu
leikmönnum liðsins gerðu þannig
samtals aðeins 4 stig og hittu 2 af 10
skotum sínum á 47 mínútum. Leita
þarf úrbóta og það strax því annars
fer illa. -ÓÓJ