Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 4
Umtalaðasta atriðið í íslensku kvikmyndinni Fíaskó eftir Ragnar Bragason et þegar Björn Jörundur hoppar í sjóinn af togara og syndir í land. Það er reyndar ekki Björn sjálfur sem hoppar heldur íslenskur áhættuleikari að nafni Ásgeir Guðmundsson. Snæfríður Ingadóttir hitti ofurhugann sem minnir óneitanlega á Gretti sem á sínum tíma synti úr Drangey til lands. Islenski áhættuleikarinn Asgeir Guömundsson er meö 6 tatto og or a viðkvæmum stað eftir likamsgotun. Heimasiða hans er www.superhigway.is/ace. Ripped Fuel inniheldur efni sem er náskylt amfetamíni. GRIM r cndurborivm Það er ósjaldan sem nýtt tískudóp kemur til landsins. Stundum er um að ræða hörð ólögleg efni sem kemur þeim sem smygla þeim inn í fangelsi í nokkur ár og svo eru það „daufu“ efnin sem eru ólögleg vegna þess að þau eru óholl og ávanabindandi en ekki alveg jafn hættuleg og skilgreind fíkniefni. Nýjasta efhið í þess- um síðarnefnda flokki er efedrín en það er náskyllt am- fetamíni og í miklu magni veit- ir það nánast sömu áhrif. Þessu efni er smyglað inn til landsins, bæði hreinu og í formi lyfs sem heitir Ripped Fuel. Það lyf er selt sem vítamín fyrir fólk í íþróttum, þá sem vilja megra sig og bara þá sem eru alltaf þunnir og eiga erfitt með að vakna á morgnana. Samkvæmt upplýs- ingum frá Lyfjaeftirliti ríkisins er sæmilegasta magn af efedríni í Ripped Fuel og tengja menn þar neyslu lyfsins við íþróttafólk. „Það er mjög vafasamt að nota þetta efni því þú veist ekki hvað þú ert að láta ofan í þig,“ sagði Guðrún Eyjólfsdóttir hjá Lyfjaeftirlit- inu þegar Fókus hafði samband við hana. Hún staðfesti að það virðtst vera auðvelt að verða sér úti um þetta en Fókus fékk þær fréttir frá neytendum að margir hverjir hefðu keypt þetta á líkamsræktarstöðvum (þó ekki af fyrirtækjunum sjálfum). En þeir sem neyta lyfjanna segjast blása á for- dóma Lyfjaeftirlitsins og benda á að lyfið sé selt úti í næstu búð í Ameríkunni. VAft EG ÖUiNN Aö TATTÚlO MITT ? NEI... SYNA |>eR NTJA „Atriðið var tekið upp kl. 6 að morgni í 11 stiga frosti. Ég stökk þrisvar úr skipinu og svo voru tekin nokkur skot af mér þegar ég var að synda í átt til lands. Sjálft stökkið var ekkert mál en öldu- hæðin var svo mikil að ég drakk töluvert úr Reykjavikurhöfn,“ seg- ir Ásgeir sem var alveg örmagna eftir tökurnar og lagðist á bakk- ann og ældi. Honum varð þó ekki meint af volkinu, enda ýmsu van- ur þó hann sé aðeins 25 ára. Vann í sirkus Ásgeir er Kópavogsbúi í húð og hár en hefur verið mikið erlendis síðustu árin. Eftir að hafa gefist upp á menntaskólanum fór hann m.a. að vinna í sirkus á Bretlandi, var á tímabili á sjó, vann á tattó- stofu í Reykjavík, lærði líkamsgöt- un í Kanada, var rótari fyrir Sól- dögg og fór í áhættuleikaraskóla á Flórída. „Draumurinn um áhættuleik- inn hafði lengi blundað í mér þeg- ar ég skellti mér loksins í nám til Flórída og ég vonast til að geta unnið við áhættuleik í framtíð- inni,“ segir Ásgeir sem lærði alls kyns trix i skólanum og var m.a. látinn hlaupa 4 km á hverjum morgni yfir fenjasvæði með snák- um og krókódílum. Atvinnutæki- færin fyrir áhættuleikara á ís- landi eru reyndar ekki mörg og því vinnur Ásgeir fyrir sér sem sviðsmaður á Skjá einum svona dagsdaglega. Hrifinn af bílaatriðum Fíaskó er ekki fyrsta myndin sem Ásgeir leikur í þvi hann mátti m.a. sjá í kvikmyndinni Óeðli og í Egils orku-auglýsing- unni með Friðriki 2000. Sjálfur segist hann vel geta hugsað sér að fara í nám í leikstjórn til að hafa með áhættuleiknum. Er eitthvert áhœttuatriöi sem þú vœrir ekki til í aö gera? „Nei,“ svarar Ásgeir eftir örlitla umhugsun. „Ég er mest spenntur fyrir bílaatriðum. Að velta, stökkva og svo framvegis, það finnst mér langskemmtilegast.“ Veistu hver dánartíönin er í þessum bransa? „Finnst þér að ég ætti að vita það?“ svarar Ásgeir og hlær. „Áhættuleikari kallast ekki áhættuleikari fyrir ekki neitt, því fylgir sannarlega áhætta, en það sem mestu máli skiptir er að hafa öryggisatriðin á hreinu. Maður þarf ekki eingöngu að vera í góðu formi heldur verður hugurinn að fylgja. 90% af þessu er hugurinn." Hvaö segir kœrastan þín, er henni alveg sama þó þú leggir líf þitt aö veöi? „Hún ber virðingu fyrir því sem ég er að gera, enda verður maður að vera samkvæmur sjálfum sér og þetta er það sem ég vil gera,“ segir Ásgeir sem viðurkennir þó að hann væri varla til í að synda i íslenskum sjó marga daga í röð. f Ó k U S 17. mars 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.