Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 6
Dömu Flestar konur myndu gjarnan vilja sleppa við öll þau óþægindi og umstang sem fylgir því aö fara á túr ef þær mættu velja. Sam- kvæmt banda- I ríska lækna- tímaritinu Lancet er þessi möguleiki fyr- ir hendi þvi með sérstökum p-pillum geta konur algjör- lega sloppið við að fara á túr. Það eina sem stendur í vegi fyrir þessu eru læknar með gamaldags viðhorf sem vilja ekki gefa konum þessa pillur þrátt fyrir að það sé sann- að að þær séu algjörlega óskað- legar. Sam- * kvæmt greininni í Lancet eru . N : rök lækna . oglyfja- framleið- anda þau að það sé andlega hollt fyrir konur að fara á túr og þess vegna séu p- pillur framleiddar þannig að konur fari mánaðarlega á blæð- ingar þó þaö sé í raun hægt að hafa pillumar þannig að blæð- ingamar séu gjörsamlega strok- aðar út. Þetta era alveg ótrúleg- ar fréttir í ljósi þess hve margar konur raunvemlega þjást og hata þessa blóðrauðu daga mán- aðarins og myndu svo gjaman vilja eiga þess kost að sleppa al- veg við blæðingar. fl Pál 1 óskar Fyrsta íslenska vís- indaskáldskapar- kvikmyndín verður frumsýnd í Há- skólabíói í kvöld. Það hefur tekið þrjú ár að búa myndina til. Hún er þó að- eins 10 mínútna löng og að mestu leyti tekin upp í Rauðhólum. Runai og Grímur hafa búið til fyrstu íslensku Seí-fi-stutí myndina. Myndin fjallar um geimverur sem nær- ast á hljóðum en lands- tagið á Islandi er kjorií fyrir kvikmyndagerð af þessu tagi. Drengírnir eru ekki alveg grænir hvað kvikmyndagerð varðar en stutt- mynd þeirra félaga. . Klósettmenning'. fékk 1. verðlaun á fvU-TV-stuttmynda- í Dan- mörku 1996. arqeimverur IslensTjT í Rauonolum „Það eru bara svona basic-tækni- brellur í myndinni. Við fengum að- stoð hjá Edda sprengju sem sá t.d. um eldinguna í Myrkrahöfðingjan- um eftir Hrafn Gunnlaugsson. Þetta eru einfaldar og auðveldar sjónrænar brellur enda er þetta alls ekki svona tæknibrellumynd sem bara er gerð tæknibrellnanna vegna,“ segir hinn 23 ára Rúnar Rúnarsson um stuttmyndina Oiko logos sem frumsýnd verður í Há- skólabíói í kvöld, á undan Fíaskó, en það eru Rúnar og félagi hans og jafnaldri, Grímur Hákonarson, sem standa á bak við myndina. Hlegið að handritinu Sögusvið Oiko logos er samfélag undarlegra vera á hljóðlausri plánetu. Þrátt fyrir að plánetan sé hljóðlaus nærast verurnar á hljóð- um og þurfa því að leita út fyrir plánetu sína eftir fæðu. Myndin segir frá einni slíkri ferð og örlaga- ríkum áhrifum sem hún hefur á samfélag þeirra. Myndin verður sem sagt fyrsta íslenska vísinda- skáldskaparmyndin. „Menn hlógu að handritinu til að byrja með. Við fórum m.a. með það til Svíþjóðar á námskeið í hand- ritagerð og þar var breskur sér- fræðingur sem las yfir öll handrit- in sem þátttakend- umir höfðu gert og hann talaði við alla í hópnum nema okkur. Straumarnir sem við fengum frá honum voru þeir hvað þessir litlu strákar haldi eiginlega að þeir geti gert, segir Grimur og glottir. „Á tímabili voram við að spá í að gera teiknimynd úr handritinu þar sem viö sáum ekki fram á að við gætum hrint öllum okkar hug- myndum og óskum í framkvæmd en með góðra manna ráðum og hjálp sáum við að þetta var alveg mögulegt," bætir Rúnar við, en þess má geta að Evrópusambandið hafði trú á þeim og styrkti gerð myndarinnar. Allir leikararnir 160 cm Leikaramir I myndinni era all- ir á aldrinum 11 til 12 ára og eru allir, nema einn, nákvæmlega 160 cm háir. Það er eiginlega enginn aðalleikari í myndinni og þeir eru allir i búningum og með grímur. Nú eruö þiö ekki lœröir í kvik- myndagerð og ekki vaöið þiö heldur i peningum. Er mynd- in raunveruleg? „Það er hvergi í myndinni svona gervilegur fílingur, við sleppum alltaf fyr- ir hom,“ svarar Grím- ur. Þrátt fyrir að við notumst við ódýrar og einfaldar úrlausnir þá er ekki svona skólaleikritablær yfir þessu. Búningamir eru t.d. ekki úr álpappír og sokkabuxum," segir Rúnar og undirstrikar að myndin hafi bæði söguþráð og boð- skap. Nú höfum viö þetta speisaöa landslag hér á íslandi, af hverju haldiö þiö aö þaö hafi ekki veriö gerö íslensk sci-fi-kvikmynd fyrr? „Ætli menn mikli þetta ekki bara fyrir sér,“ segir Rúnar en þessi 10 mínútna mynd þeirra hef- ur tekið þrjú ár í framleiðslu. Reyndar skal það tekið fram að drengirnir hafa ekki unnið við hana dag og nótt. Stuttmyndin verður frá og með kvöldinu í kvöld sýnd á undan öllum sýningmn á Fíaskó. ky n 1 í f Dr. Love er sjálfskipaður kynlífsfræðingur götunnar. Hann leysir úr tílfínningafíækjum lesenda Fókuss og gesta Fókusvefsins á Visi.is. Einungis er hægt að svara völdum bréfum en þeir sem ern virkilega þurfandi geta leitað á náðir Dr. Love í síma 908 1717. Bréf til Dr. Love: Kærl Dr. Love! Fyrir þrem árum var ég skiptinemi í Barcelona á Spáni. Mánuöi áöur en ég átti aö fara heim hitti ég draumaprinsinn minn, og varö ás tfangin upp fyrir haus. Þetta voru yndistegustu dagar lífs míns, hann var svo fullkominn og yndislegur. Þegar ég kom heim héldum viö sambandi í gegnum síma og e-mail. Viö þaö varö ég bara enn meira ástfangin, og ég varö aö hitta hann aflur. Á sex mánuöum tókst mér aö feröast fjór- um sinnum til Spánar, alltaf þegar færi gafst, þótt ekki væri nema í helgarfrí. Ég var alvarlega aö hugsa um aö flytjast búfertum. Nema hvaöl Fyrir aigera tilviljun er mér boöiö í partí hjá einni spænskri vinkonu minni, og gettu hver er þar, nema minn eini rétti - og einhver frönsk stelpa meö honum - og þau voru auöséö meira en vin- ir! Gæjanum varauövitaö brugöiö viö aö sjá mig þama. Þá segir vinkona mín mér aö þetta sé kærastan hans, og aö þau séu búin aö vera saman í meira en TVÖ ÁR! Ég fékk taugaáfall á staönum og geröi eitt sem ég heföi ekki átt aö gera: Ég sagöi frönsku stelpunni allt um mig, og hún BRJÁLADIST. Allir fóru aö hnakkrifast í partíinu (sem var auövitaö gjörónýtt) atlir blöör- uöu eitthvaö á frönsku eöa spænsku og ég skildi ekki neitt - nema hvaö aö mér var sagt aö fara bara aftur heim til íslands og finna mér kærasta þar. Og svo var MÉR hent út fyrir aö eyöileggja partíiö! Eftir þetta reyndi ég aö hringja í hann, aftur og aftur, en hann svaraöi aldrei. Svo varö ég aö fará heim aftur, og hef aldrei séö hann síöan. Stuttu seinna skipti hann um símanúmer og e-mail, þannig aö - öll sund lokuö! Vandamáliö er aö ég er ENN ÁSTFANGIN AF HONUM. Ég hef ekki litiö viö öörum karimönn- um síöan, þeir eru alllr eitthvaö svo ömurlegir miöaö viö hann. Ég er svo einmana aö ég er aö farast. Ég verö aö hætta aö skrifa þetta bréf áöur en ég byrja aö gráta. Plís, hvaö getur maöurgert í svona stööu? Meö von um gott svar. Ein íslensk og ástfangin. Svar Dr. Love Elsku íslenska dramadrottning. Maður byrjar bara á því að segja „Ó MÆ GOD!“. Ertu brjáluö, manneskja? Hvernig dettur þér í hug ab eyöa allri þinni orku í mann sem vill vera svona vondur við þig? Það sem hann geröi við þig er eiginlega ófýrirgefanlegt! Það ætti að gefa út veiðileyfi á svona náunga. íslenskir karl- menn með mosavaxnar tennur og á sauð- skinnsskóm gætu aldrei orðið jafn ömurlegir og þessi geðsjúki sþangólandi sþanjóli frá Julio Ig- lesias-tandi! Heyrirðu það? Máliö er að það er ekki hægt að verða ástfang- inn af manneskjum - heldur aðeins stundunum sem maður deilir með þeim. Stundirnar verða svo seinna að minningum sem hægt er að orna sér við á dimmum vetrarkvöldum og finna þannig gamla ástarneista úr hjartanu. Þannig getur maður þlatað sigtil að halda að maður sé enn þá ástfanginn, horft á „TITANIC" vídeósþól- una sína 300 sinnum og haldið að þessi mynd hafi verið gerð um sig, og sungið hástöfum með Celine Dion „My Heart Will Go Ooonnl". Nú er mál að linni, beibf! Það nennir þessu eng- inn lengur, ekki þú, ekki hjartað þitt, ekki þínir verðandi íslensku vonbiðlar, fjölskylda þín eöa vinir. Faröu til sálfræðings! Ég er ekki að djóka. Að skrifa bréf til mín er auðvitað göfugt spor í rétta átt, en þú þarft meiri hjálp, af því aö þú ert einfaldlega orðin „krónískt keis*! Þú ert enn þá að komast yfir sjokk sem þú fékkst fyrir fokking ÞREM ÁRUM síðan, og ef ekkert er að gert verða þau orðin ÞRJÁTÍU áöur en þú getur sagt svo mikið sem „HALLÓ halló halló halló..." (og þessi þrjú síðustu „halló* eru ekki íbúarnir á Dvalarheimili aldraðra þar sem þú færð aö pipra á ævikvöldinu - og spilar gamlar Spán- arplötur frá 1997). Ég get lofaö þér því að þú ert ekki ástfangin af þessum gæja, Þú ert ástfangin af fjarlægðinni á milli ykkar. Fjarlægðin gerir fjöllin blá, og karl- menn sem halda fram hjá að brúneygum dýrð- lingum. í fjarlægð hefur þú fullt frelsi til aö ímynda þér einhvern mann og allt það sem þið HEFÐUÐ getað gert saman, og jafnvel hvaða mann hann hefur að geyma. Núna ert þú búin að fokka svo mikið I hausnum á þér að þú ert oröin tilfinningalega háö þessari einu ástar- ímynd, og getur ekki stofnað til sambands með karlmönnum af holdi og blóði. Af því að þú ert ástfangin af manni - SEM ER EKKI TIL! Svo mikiö er víst að mannhelvítið stofnaöi til þessara kynna við þig af ásettu ráði og af full- um ásetningi. Honum tókst að „krossfesta* saman tvær konur í lífi sínu - og næstum kom- ast upþ með það. Þú mátt vita þaö aö þú brast alveg rétt við þarna í partíinu, með því að láta það gossa framan í frönsku kærustuna. Þetta var eina leiðin til að stoppa þetta ferli hjá hon- um. Hann hlýtur að fýrirlíta konur, úr því að hann vill koma svona fram við konur. Hann er ekki rómantískari en það. Þú getur farið til sál- fræðings eins lengi og þú vilt, en að fenginni reynslu, þá er eina leiðin til að komast yfir svona sjokk (höfnun + niðurlægingu) að hitta aftur þann sem orsakaði sjokkið - face to face! Já, ég er aö segja þér að hafa uþþá honum, fara aftur til Spánar, og díla við þetta fyrir fram- an hann. Sagan endaði nefnilega aldrei, og þú ert enn hangandi í lausu lofti. Þú lagðir á þig alla vinnuna í þessu sambandi (eyddir öllum þínum tíma til að fara út og hitta hann - á meö- an hann kom ALDREI til Islands, af hveiju held- uröu?) Þannig aö þú ættir að enda þetta líka sjálf, og líða mun betur á eftir. Þú einfaldlega „Vandamálið er að ég er ENN ÁSTFANGIN AF HONUM. Ég hef ekki litið við öðr- um karlmönnum síöan, þeir eru allir eitthvað svo ömurlegir miðað við hann. Ég er svo einmana að ég er að farast. Ég verð aö hætta að skrifa þetta bréf áður en ég byrja að gráta.“ hefur upp á mannfýlunni í gegnum símaþjónust- una „Erlend símanúmer*. Þar gefa þeir upp nú- verandi skráð slmanúmer og heimilisföng. Þú manst örugglega fullt nafn hans, er það ekki? Nú, eða bara haft uþþá honum með aðstoð fiöl- skyldunnar sem þú bjóst hjá í Barcelona. Þú þarft bara að vera smáleynilögga, that's all. Svo hringir þú í hann, segist vera á leiðinni og viljir heimsækja hann (“ekkert en..“) og ferð upp í flugvél. Það fyrsta sem þú munt komast að er hvað hann hefur breyst og elst um aldur fram (fólk breytist á þrem árum), hvað hann er eitthvað ekki lengur sjarmerandi, hvað hann er hræddur viö þig af því að hann er fullur sektar- kenndar, og að hann hefur þyngst um 7 kíló. Svo kynnir hann þig örugglega fýrir börnunum sínum, eins og tveggja ára, sem hann átti í framhjáhaldi með kærustu númer tvær milljón- ir sjö hundruð og átta þúsund fimm hundruð tuttugu og tvö. Eftir fimm mínútur hugsar þú: „Húrra, ég er frjáls!" og ferð út á lífið í Barcelona og gerir það mikilvægasta í lífinu, dansar frá þér allar þínar sorgir. HASTA LA VISTA, BABY DR. LOVE 6 f Ó k U S 17. mars 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.