Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 15
í þá gömlu góðu daga þegar Ómar hafði hár kunni fólk að meta alvöru einlægni. Ómar söng og sagði það sem honum bjó í hjarta og þjóðin hlustaði. Jón Páll kraftakarl náði líka til íslendinga með tærri einlægni og fáir fara fram úr Hemma Gunn sem sagði hreinlega: „Veriði hress og ekkert stress, bless bless.“ Nú orðið þora fáir að vera einlægir og þótt Maggi Scheving sýni tilþrif þá eru þau ekki ekta. Raggi Bjarna sýnir að vísu lit en fáir fara fram úr konungi kokkteiltónlistarinnar André Bachmann Hann er einn af síðustu mó.híkönunum sem Ijóma ávallt af einlægri gleði og er ekki við eina fjölina felldur. André er söngvari hljómsveitarinnar Gleðigjafar, strætóbílstjóri, heimilisfaðir, ræstitæknir, markaðsmaður og afi. Fókus fylgdist með degi í iífi gleðigjafans. ©09.50-11.25: „Viö Jóhannes fórum á Hótel Grand til aó undirbúa skemmti- dagskrá fyrir brúðkaup og fimmtugsafmæli - og hitta Gunnar Möller. Viö vorum aö reyna aö fá hann meö okkur sem umboðsmann og tæknistjóra. Gunn- ar ætlaöi aö hugsa máliö og koma öllu í gang.“ OÓ9.35-09.50: „Þegar akstrinum lauk fór ég beint aö hitta Jóhann- es bróöur minn sem mér þykir rosa- lega vænt um. Hann er yngsti bróöir- inn af átta systkinum en ég er elstur og viö vinnum mikið saman í skemmtanabransanum. Jóhannes er sendiferðabílstjóri og Jógi trúður. Hann er líka svakalega mikill rokkdansari og var íslandsmeistari í rokkdansi í mörg ár.“ O 06.00-09.30: „Ég mæti alltaf til vinnu upp úr sex því ég vil hafa góöan tíma til aö hita strætóinn upp en ég keyri morgunferöir á leið 110. Þaö eru hraöferöir úr Árbæ og niður á Lækjartorg. Farþegarnir eru alveg svakalega fínir og bjóöa alitaf góöan daginn - og ég er auövitað alltaf hress og kátur. Mér fannst vænt um aö farþegarnir spuröu hvar ég heföi verið en ég var í nefaðgerö.“ 05.15-05.30: „Ég vakna alltaf eld- hress klukkan 05.15 og sofna eld- hress á kvöldin. Þennan dag vaknaöi ég líka hress og byrjaöi á því aö setja kaffikönnuna á „play“, burstaöi tennurnar á meöan kannan hellti upp á og sneri mér svo aö morgunverðinum. Ég fæ mér ýmist brauð meö osti eöa brauö meö osti eöa bara brauð meö osti og morg- unmaturinn tók kortér aö vanda.“ 0„Undanfarna mánuði hef ég veriö í þrem- ur eöa fjórum aögeröum vegna þess að ég var meö aðskotahlut í nefinu. Þess vegna lagðist ég inn á háls-, nef- og eyrnadeild Landspítalans í Fossvogi og auk þess hef ég veriö í tveggja mánaöa meðhöndlun hjá Ein- ari Thoroddsen. Hann fann aöskotahlutinn upp í nefinu en náöi honum ekki út nema meö aögerö. En þá var komin ofholdgun og örvefur sem þýöir að ég er búinn aö missa lyktarskynið. Þaö er jákvætt aö því leytinu aö ég finn ekki lengur skítalykt." O 16.30-24.00: „Viö Emelía höfum ræst Náttúrufræöistofnun íslands í tíu ár og ég horfi á starfið sem líkamsrækt. Þarna svitna ég og fæ borgað fyrir þaö. Losna þannig viö aö kaupa mér kort í World Class. Þetta er svo leiðinleg vinna aö maður verður aö hugsa jákvætt og sjá aðrar hliöar á henni. Ég fékk nægan skammt af leiöindum sem barn en þá þurfti ég aö fara í 19 aögeröir vegna þess að ég var holgóma meö skarö í vör. Því er ég alltaf hress og kátur enda er gaman aö fara í góðu skapi í vinnuna og koma í góöu skapi heim. Vandamálin eru til að leysa þau og erfiðleikar til aö sigrast á þeim. Eftir vinn- una fórum viö heim að boröa kvöldmat, slappa af og sofa.“ ©11.25-13.00: „Eftir fundinn fiýtti ég mér heim og haföi fataskipti. Síöan hitti ég Bjarna Ármannsson, forstjóra Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, sem tók mér afskaplega vel og viö ræddum átaksverkefni fyrir barnaspítala Hrings- ins. Ég hef unnið soldið viö aö afla fé til tækjakaupa og þá meina ég TÆKJAKAUPA en ekki huröa-, fægiskóflu- og gluggakaupa.“ O 13.00-14.00 „Ég haföi lofað dótt- ur minni, írisi Evu, aö passa barna- börnin og fór til dagmömmunar aö sækja stúlkurnar, Ágústu Ýr og Emelíu Björt Ásgeirsdætur. Svo ég sótti stelp- urnar sem eru alltaf í góðu skapi þegar afi kemur þótt ég komist ekki meö tærnar þar sem konan mín hefur hæl- ana. Konan mín, Emelía Ásgeirsdóttir, er nefnilega æöisleg amma og engri lík. Hún er betri helmingurinn eða eins og krakkarnir segja: „Hún er cool.“.“ O 14.00-16.30: Ég passaöi stelp- urnar heima og Em- elía Björt horföi á Indiana Jones sem hún dýrkar og kallar vídeó-Jones. Á með- an sat ég meö Ágústu í fanginu og tíkin Bella vildi nátt- úrlega fá sína at- hygli. Þegar stelp- urnar kvöddu fór ég niður á Náttúrufræði- stofnun tii aö ræsta húsnæöiö með Emel- ■u, konunni minni. lífi André Bachm 17. mars 2000 f Ó k U S 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.