Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Side 8
3 haf fréttlr m —- i másmsa v amaaiiM ^ ( + ár.aaiíi / *** ETæiAabiH amsetm J. __ —s- ;; . 31BMgí Hl* Fókus- vefurinn talar Eins og alltaf er allt að gerast á Fókusvefnum. Þau Eiríkur og Hrund þvælast um Asíu og hafa lent í ýmsum ævintýrum nú þeg- ar. Umferðarómenning Reykja- vikurbúa bliknar við hliðina á umferðinni í Delhi. Þau eru nú um þessar mundir stödd í ein- hverjum 2000 metra háum hæð- um fyrir utan Delhi og hittu þar fólk sem hefði sómt sér vel í torf- kofum okkar íslendinga. Gettu enn betur leikurinn sem taflst hefur um tíma er nú kominn á fullt og hægt er að vinna sér miða á stórmyndina Man on the Moon. Nú, fólk með vandamál, hvort sem þau eru popp- eða kynlífstengd, getur haft samband við þá doktora tvo, Gunna og Love, og mxmu þeir reyna eftir sinni bestu getu að greiða úr flækjum ykkar þrúguðu sálna. Ef eitthvað skal halda út á líflð þá er upplagt að leita eftir því á vefnum okkar því að þar er allt það helsta sem er i gangi flokkað niður í notendahæfar umbúðir fyrir ykkur að kanna hvað er í gangi og hvar. Leikhús, mynd- listar- og bíódómar eru settir beint inn á veflnn um leið og þeir birtast á prenti, stundum jafnvel áður, og ef einhver er í vandræðum með hvaða sýningu á að velja er Fókusvefurinn reiðubúinn að hjálpa. Leiðist þér en nennir ekki út úr húsi og ert of kvefaður til að tala í símann, skelltu þér þá á Fókusspjallið og pikkastu á einhvem skemmtileg- an. Svo em alls konar próf og greinar og almennt heljarinnar fjör. Aldrei dauð stund á Fókus- vefnum. ecco Flestir sem æfa eða hafa ein- hvem timann æft íþróttir kannast við fíflalætin sem einkenna and- ann í búningsklefanum. Handklæð- in skella á rössunum og nærbux- umar eru rækilega feldar uppi á skáp. En þó svo að oftast sé einung- is um að ræða góðlátlegt grín vilja menn oft tapa sér í hita leiksins og fara út fyrir velsæmismörkin. Sög- ur af hlandsprengjum og öðrum óhugnaði hefur loðað við búnings- herbergin frá ómunatíð. Einnig vilja margir meina að einelti blóm- stri á þessum stað enda snýst hann urn lítið annað en hreina karl- mennsku. Er þetta satt eða hreinn uppspuni og ofnotkun imyndun- araflsins? Hvað segja iþróttamenn- imir um það? Klassísk stríðni „Það er auðvitað ýmislegt sem fer fram í búningsklefanum og margt af því fer alls ekki út fyrir klef- ann. Þetta er yfirleitt góðlátlegt grín og karl- mennsku- stælar þó stundum verði úr því heiftarlegt stríð,“ segir Einar Örn Birgisson, k n a t t - spyrnumað- ur hjá KR. „Flest af þessu gríni hjá okkur í IHt fer aðal- lega fram munnlega frekar en verklega. Ég man eftir einu skemmtilegu atviki þegar skór eins leiksmannsins voru teknir og negldir fastir við bekkinn í bún- ingsklefanum. Sólamir eyðilögðust og hann var að sjálfsögðu ekki mjög hress með þetta. Til að launa viðkomandi hrekkjalómi klippti hann buxumar hans í tætlur dag- inn eftir og fékk vin sinn sem er lögreglumaður til þess að banka upp á hjá honum í kjölfarið til að hræða hann aðeins,“ rifjar Einar öm upp. Hvað með þessar ógeðfelldu sögur um hlandsprengjur og perraskap? „Ég veit dæmi þess að menn hafi pissað á hvor annan í sturtunni og þá er tækifærið notað þegar ein- hver er að þvo sér um hárið. Það er „Það er meira um þessa hegðun hjá yngri flokkunum." Einar Örn Gangur lífsins nú samt meira um þessa hegðun hjá yngri flokkunum og svo vaxa menn upp úr þessu,“ segir Einar Öm og Júlíus Jónasson, handbolta- maður hjá Val, er sammála honum þar: „Það að strákar pissi utan í hvor annan er búið að viðgangast lengi og er svona klassískt dæmi inn þá stríðni sem fram fer í bún- ingsklefanum. Einnig var vinsælt ef einhver stóð í sturtunni og þvoði á sér hárið að hella enn meira sjampói í hárið á honum án þess að hann tæki eftir því. Þannig að hann stóð undir bununni enda- laust og náði því ekki að skola sápuna burt.“ Runkukeppnin mikla Júlíus kann þó fleiri sögur en þessar: „Það er ein sem ég veit ekki hvort er sönn eða ekki. Hún gerð- ist í yngri flokki. Einn daginn þeg- ar æfingu lauk þustu allir inn í búningsklefann á ógnarhraða með glott á vör. Þjálfaranum fannst þetta undarlegt og ákvað að athuga hvað ylli þessum asa. Þegar hann stakk hausnum inn í búningsklef- ann voru allir í óðaönn að fróa sér í keppni um hver fengi fullnæg- segir Július og tekur ingu fyrstm-,‘ fram að hann selji hana ekki dýrar en hann keypti hana. Á g ú s t Gylfason, knattspymu- maður hjá Fram, hefur einnig orðið var við margt misjafnt í gegnum tíðina. „Ég man eftir einu skemmtilegu „Þaö að strákar pissi utan í annan er búiö að viðgangast lengi.“ Júlíus Jónasson atviki sem gerðist þegar ég spilaði með Val. Það vom tveir strákar í liðinu sem voru alltaf með meting. Þetta byrjaði sak- leysislega hjá þeim en smám saman stigmögnuðust hrekkimir og metnaðurinn að baki þeim. Einn daginn var stríðið toppað þegar annar þeirra setti lifandi krabba í buxnavasann hjá hinum. Sá varð skiljanlega ekkert sérstak- lega hrifinn að smeygja sér í buxurnar og finna eitthvað skuggalegt iða slepjulega á vægast sagt vafasömum stað. Þetta atvik varð þó til þess að binda enda á erjumar þeirra á rnilli," segir Ágúst og bætir við: „Þetta em nú samt engin einsdæmi, þessi húmor í bún- ingsklefanum viðgengst hvar sem er í heiminum og ég hef heyrt að þeir á Englandi séu manna verstir." Þeir hæfustu... En fá þeir sem minna mega sín verri útreið? Ekki nóg með það að íþróttaumhverfið snúist eingöngu um karl- mennsku og keppn- isskap heldur horfa margir fram á beinan og breiðan veg til velgengni og frægðarljóma. Þannig hljóta ein- hverjir að verða fyr- ir einelti. „Ég veit ekki hvort það er hægt að flokka eitthvað af þessari stríðni undir einelti þar sem það er sjaldan sama manneskjan sem er tekin fyrir marga daga i röð. Auð- vitað eru menn misgóðir félagar inn- an hópsins," segir Einar Örn. „Annar setti lifandi krabba í buxurnar hjá hinum.“ Ágúst Gylfason Ágúst tekur hins vegar undir með Darwin og segir: „Sumir liggja ein- faldlega betur við höggi en aðrir.“ Þessar fáu sögur úr búningsklefum íþróttamannanna benda til þess að ekki sé um óhóflegan óhugnað eða gargandi perraskap að ræða heldur saklaust grín. Sú staðfesting hefur verið fengin að grínið getur farið úr böndunum en þau tilfelli virðast til- heyra undantekningum; Þannig ætti okkur að vera óhætt að halda áfram að hampa kempunum sem svitna til þess að við getum sagt: „Koma svo, strákar. Massa þetta mál.“ Leikarinn Larry Hagman, betur þekktur sem Dallaskóngurinn JR, er furðulega likur íslenska söngvaranum Páli Óskari. Þetta eru svipsterk- ir menn og svipbrigði þeirra eru nánast þau sömu. Þeir glotta báðir óræðu og góðlátlegu glotti, hafa sama reffilega, sjálfsörugga yflrbragð- ið og augnaráð þeirra er stríðnislega íbyggið. Líklega er gott að koma sér upp svona svipbrigðum ef maður vill ná langt í liflnu sem skemmti- kraftur. Það hefur að minnsta kosti reynst þeim vel. Auk þess eru þeir svo sætir saman að það er spuming hvort þeir félagamir yrðu ekki gott par! Og þó, hann Larry hefur ekkert í hann Palla okkar. Larry Hagman leikari. Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari. Það er eitthvað rotið innan íþróttageirans. Undarleg dulúð hvílir jafnan yfir því sem fer fram í búningsklefum karlmanna fyrir og eftir kappleiki eða æfingar. Oftar en ekki ganga sögur um það að þeir fari offari í perraskap í búningsklefunum en hvað fer fram er ekki á hreinu. Fókus fór á stúfana til að komast til botns í þessu undarlega máii. a mig nálfviti! f Ó k U S 31. mars 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.