Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Qupperneq 12
vikuna
30.3-6.42000
13. vika
Öskurstelpan frá Harlem, hin
rauðhærða Kelis, fikrarsig lymskulega
upp listann. Hún er nú samt búinn að
vera 8 vikur á listanum en
manneskjan er einfaldlega svo reið að
hún er engan veginn að fara að gefast
upp.
Topp 20
(07J American Pie Madonna a i/sta © 6
02 Orginal (órafmagnað) Sálin Hans Jóns Míns n 8
(03) The Ground Beneath Her U2 6
(04) Run The Water Live sl^ 1
(05) Caught Out There Kelis t 8
(06) Ex-Girlfriend No Doubt / 3
(07) Never Be The Same Mel C & Lisa Left Eye n 1
(08) Freistingar Land Og Synir 7
(09) Pure Shores All Saints (The Beach) 'l' 7
(10 ) In Your Arms (Rescue Me) Nu Generation It 4
(77) Other Side Red Hot Chilli Peppers J' 14
(Í2) Hann (Ben úr Thriller) Védís Hervör Árnad. 4, 9
(73) Sexbomb (Remix) Tom Jones 14
®sm Macy Gray 4
(75) Say My Name Destiny's Child t 5
(16) 1 Regret It Selma 4, 5
(17) Don't Wanna Let You Go Five X 1
(W) Stand Inside Your Love Smashing Pumkins \ 4^ 2
(79) Feelin'So Good Jennifer Lopez t 6
(20) Hryllir (Thriller) Védís Hervör Árnad. 4, 5
0 topplag vikunnar
J hástðkkvari
vikunnar
nýtt á lis tanum
M stendurlstað
<r-t/
vk hækkarsig frá
' slðrstu viku
r lækkar sig frá
siðjstu viku
faif vikunnar
Sætin 21 til 40
21. Go Let It Out Oasis t 9
22. Only God Knows Why Kid Rock 7
23. Bag It Up Geri Halliwell t 4
24. Crash And Burn Savage Garden 4* 3
25. You Can Do It lce Cube X 1
26. Cartoon Heroes Aqua 4- 8
27. Freakin'lt Will Smith n 2
28. He Wasn't Man... Tony Braxton t 2
29. The Last Day Of Summer Cure K 4
30. Never Let You Go Third Eye Blind t 4
31. Kiss (When The Sun..) Vengaboys ? 8
32. The Time Is Now Moloko t 2
33. Búinn Að Fá Nóg Buttercup 1 X 1
34. Be With You Enrique Iglesias 4- 3
35. Don't Give Up Chichane&Brian A. t 2
36. Amazed Lonestar 4- 4
37. Maria Maria Santana : 4» 14
38. Are You Still H. Eagle Eye Cherry t 2
39. Show Me The M... Backstreet Boys | 4- 11
40. Vertu Hjá Mér Á Mót Sól X 1
Sautjánda plata
AC/DC er nýkomin
út og boðar
afturhvarf í blús-
ræturnar.
Dr. Gunni tékkaði
á þessum áströlsku
doberman-hundum
rokksins.
Einu sinni voru meðlimir
AC/DC í viðtali. Spyrillinn var
langskólagenginn og spurði alvar-
legur: „Hvaða áhrif hefur bandið
haft á þróun nútímasamfélags?"
Þetta fannst AC/DC asnaleg
spurning og þeir svöruðu: „Við
skiljum ekki spuminguna. Við
spilrnn rokk og ról!“
Þetta og fleiri tilsvör hafa gert
AC/DC að gríðarlega vinsælli
hljómsveit. Þetta „við spilum
rokk og ekkert kjaftæði“-viðhorf
er rækilega undirstrikað með tón-
listinni. Lögin eru nánast alltaf
eins: byija á svölu og þungu gítar-
riffi frá Angus Young. Svo byrjar
Brian Johnson að veina með
rödd sem er ekki ósvipuð og hjá
Gunnsa í Prúðuleikurunum. Svo
mætir bandið og rokkar örugglega
þar til lagið endar með góðum
hvelli. Tveggja sekúndna þögn og
þá byrjar næsta lag. AC/DC spilar
aldrei ballöður og notar aldrei
fiðlur, hljóðgervla, píanó eða neitt
annað en gitar, bassa og trommur.
AC/DC er einfaldlega rokk í sinni
dýrslega fullkomnu mynd. Þeir fé-
lagar hafa gnótt af húmor fyrir
sjálfa sig og taka sig aldrei alvar-
lega sem er glæpur sem allflestar
þungarokkssveitir fremja. Húmor-
inn er ekki síst að ftnna í töffara-
legum textunum sem alltaf gefa
meira í skyn en þeir segja. Það er
alltaf gröð tvöfeldni í gangi hjá
AC/DC og skiptir engu þó með-
limimir séu að nálgast fimmtugt.
Félagslega heftur
söngvari
AC/DC yar stofnuð árið 1973 í
Sydney í Ástralíu og var í hróp-
andi andstöðu við ríkjandi
montrokk með sínu einfalda
rokki. Stofnandinn var Malcolm
Young sem hafði spilað á gítar
með The Velvet Underground
(ekki sama grúppa og starfaði í
NYC). Hann fékk bróður sinn,
Angus, með sér í bandið. Angus
var bara 15 ára og systir hans
stakk upp á að hann væri í skóla-
búningnum á sviði. Hann hefur
ekki farið úr þeim galla síðan,
enda skólabúningurinn
löngu orðinn vörumerki
bandsins. 1 Sydney gaf
AC/DC út eina smáskífu
með fyrsta söngvaranum,
Dave Evans. Bandið fluttist
til Melbourne 1974 og bíl-
stjóri bandsins, Bon Scott,
varð söngvari þegar fýla
hljóp í Dave og hann neitaði
að fara á svið. Bon hafði
áður verið trommari í
áströlskum poppböndum og
átti skuggalega fortíð, var
með nokkra dóma á bakinu
fyrir minni háttar afbrot og
hafði verið neitað um inn-
göngu í herinn fyrir að vera
„félagslega heftur". Þessi
fortíð, graðir textamir og of-
beldisfull ímynd gerði
AC/DC að eftirsóknarverð-
um rokkhrottum í augum
aðdáendanna sem fjölgaði
ört í Ástralíu við útkomu
Rock We Salute You, hékk á topp-
um vinsældalista vikum saman.
Með næstu plötu, Flick of the
Switch, frá 1983, fór að halla und-
an fæti, en bandið náði sér aftur á
strik með The Razor’s Edge sem
kom 1990. Þó að bandið sé langt í
frá jafn vinsælt og áður hefur það
haldið haus á tónleikaferðalögum,
enda tónleikar AC/DC geggjuð
upplifun fyrir trausta rokkhunda.
Árið 1995 kom Ballbreaker, sem
Rick Rubin hljóðvann, og varð
hún nokkuð vinsæl. Safnkassinn
Bonfire kom 1997 og innihélt
fimm diska frá Bon Scott-tímabil-
inu en annars var hljótt um
AC/ÐC síðustu árin. Nú eru
gömlu rokkhrottamir snúnir aft-
ur með „Stiff Upper Lip“.
Festast aldrei
í drullunni
Nýja platan, sú 17., boðar aftur-
hvarf til blús- og boggieáhrifanna
sem bandið var imdir í byrjun.
Kannski ekki að furða því enn
einn Young-bróðirinn, George
Young, er á tökkunum. George er
gamall í hettu ástralska rokksins,
var í The Easybeats sem átti
smellinn Friday on my Mind á 7.
áratugnum og tók upp fyrstu plöt-
ur bræðra sinna. Platan hefur
fengið frábæra dóma, enda þykir
skortur hafa verið á almennilegu
rokki, án kjaftæðis og stæla. Karl-
amir hafa alltaf staðið fastir á
sínu rokki og gáfu Beastie Boys
t.d. ekki leyfi til að nota bút af
lagi. Þeir eru ekkert hræddir um
að passa ekki inn í popplandslag-
ið i dag þar sem unglingapopp og
rokk-rapp ræður ríkjum.
„Það er það besta við okkur,“
segir Angus, „við festumst aldrei í
drullunni i kringum okkur. Við
höfum alltaf spilað rokk og það
skiptir engu hvað meirihlutinn er
að fíla. Það má líkja músík við
hunda: Það em alls konar sætir
kjölturakkar í boði en fólk mun
samt alltaf fá sér doberman-hunda
líka.“
Doberman-hundar rokksins
þurfa heldur engu að kvíða. Nýja
platan fór beint í sjöunda sæti í
Bandaríkjunum og hefur verið í
fyrsta sæti í mörgum Evrópulönd-
um. Bandið fékk götu nefnda eftir
sér í Madrid nýverið og hyggst
spila stíft í sumar. Þá geta aðdá-
endurnir búist við stórsýningu.
„Við reynum alltaf að koma
með eitthvað sem tengist síðustu
plötu,“ segir Angus. „Við vorum
með stóra bjöllu fyrir Hells Bells,
fallbyssu fyrir For Those about to
Rock og múrbrotskúlu fyrir Bcill-
breaker. Aðalmálið er auðvitað
tónlistin sjálf en við reynum að
koma með eitthvað sem virkar
sterkt fyrir augun líka.“ „Ætli það
verði ekki bara nokkrir strippar-
ar á næstu tónleikaferð," segir
Brian og hlær, „það myndi alla-
vega passa við píötuna!"
„Fólk mun alltaf fá sér doberman-hunda.
platnanna High Voltage og „TNT“
1974 og ’75.
Bon drukknar
í eigin ælu
Efni af þessum plötum var
blandað saman og gefið út í
Bandaríkjimum og Evrópu sem
„High Voltage" árið 1976. í kjölfar-
ið fengu rokkarar í þessum lönd-
um að sjá háklassa rokktónleika
þegar AC/DC mætti vel slípað eft-
ir áralanga þjálfun í Ástralíu.
„Dirty Deeds Done Dirt Cheap"
kom út í árslok 1976 og um haust-
ið ‘77 kom Let there Be Rock sem
Þetta fannst
AC/DC asnaleg
spurning og þeir
svöruðu: „Við
skiljum ekki
spurninguna. Við
spilum rokk og róli“
varð fyrsta AC/DC-platan til að
fara á vinsældalista í Bandaríkj-
unum. Bandið var óstöðvandi og
Powerage kom um vorið 1978, en
nýjum hæðum í vinsældum náði
bandið með Highway to Hell sem
kom út 1979. Mulningsvél AC/DC
hökti aðeins við andlát Bon Scott
sem drukknaði í eigin ælu 20.
febrúar 1980. Nýr söngvari, Brian
Johnson, var þó kominn í bandið
í mars og í apríl var Back in
Black tekin upp. Sú plata er sölu-
hæsta plata AC/DC, fór í yfir 10
milljón eintökum í Bandaríkjun-
um einum, enda stórsmellurinn
You Shook Me All Night Long
innanborðs. Nú varð AC/DC orðið
eitt vinsælasta rokkband heims
og næsta plata, For Those about to
Young-bræður og borgarstjórinn í Madrld
fagna nýju AC/DC-götunni.
12
f Ó k U S 31. mars 2000