Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Blaðsíða 15
an upp á dekki í fiskimannsbux- unum í glampandi sól með nagla- þjölina og skipstjórinn hló mikið að mér,“ segir Örn og fullyrðir að sjómennskan hafi verið góða reynslu og bætir við: „Allt það sem ekki drepur þig gerir mann bara sterkari." Saumar sína eigin kjóla Síðustu fimm mánuðina hefur Örn verið að vinna á barnum á Thomsen og vakið mikla athygli gesta, ekki síst þegar hann mætir í vinnuna stífmálaður og í kven- mannsfötum. Örn er síður en svo óvanur að leika konu en hann hefur verið viðloðandi drag meir og minna síðustu árin og var val- inn dragdrottning íslands árið 1999. „Ég ákvað að taka þátt í drag- keppninni með tveggja daga fyrir- vara og þá hafði ég ekki hugmynd um það hvaða lag ég ætlaði að taka eða í hverju ég ætlaði að vera,“ segir Örn sem skutlaði saman dressi úr bókaplasti á síð- ustu stundu og gerði allt vitlaust. Siðan hann vann titilinn er hann búinn að hafa nóg að gera í drag- inu. Hann var m.a. sendur til Þýskalands í nóvember sem einn af fulltrúum íslands á Iceland show of culture en þar var menn- ingarborgin Reykjavik kynnt. „Það eru svo margir sem eru með ranghugmyndir um dragið. Það er alveg drag þegar fólk sér strák í kjól í 5 cm háum hælum með rauðan varalit í einhverju steggjapartíi, en þannig drag fer illa með ímyndina. Ég er listamaður og tek starf mitt alvarlega. Þegar ég er í dragi þá læt ég það alltaf líta glæsilega og kvenlega út og vanda alltaf það sem ég geri. Þó ég sé búinn að ganga í 12 cm háum hælum í 18 tíma á marmaragólfi þá er hugsunarhátturinn: „l’m a queen, I can do it.““ „Það eru margir sem verða ringlaðir þegar þeir sjá mig og eiga erfitt með að átta sig á því hvort ég sé virkilegur kvenmaður. Útlit mitt hefur hreinlega nærri því valdið hjónaskilnuðum." Örn mætti í rauðum galakjól og söng íslensk lög við frábærar und- irtektir. „Ég hef mjög gaman af dragi en ég held þó að söngurinn skipti mig meira máli. Ég elska að syngja og ég fila alla tónlist allt frá Thunderdome til Mariu Callas,“ segir Örn sem stefnir á frama innan tónlistargeirans og væri til í að vinna með eigið efni í framtíöinni. Örn fær ekki bara útrás fyrir söng- og danshæfileika sína í draginu heldur einnig sköp- unargleðina en hann er ótrúlega hugmyndaríkur og hannar og saumar flesta af sínum búningum sjálfur. „Þetta er vissulega dýr bransi en ég fæ náttúrlega líka pening í staðinn og ég er mjög duglegur við að nýta mér ýmsa hluti og breyti t.d. gjarnan göml- um fötum eða gardínum í dýr- indiskvöldkjóla," segir Örn og það má til gamans geta að kjólinn sem Örn er í, á myndinni hér á síðunni, var saumaður úr göml- um dúk. „Það eru svo margir sem eru með ranghugmyndir um dragið. Það er alveg drag þegar fólk sér strák í kjól í 5 cm háum hælum með rauðan varalit í einhverju steggjapartíi, en þannig drag fer illa með ímyndina. Ég er lista- maður og tek starf mitt alvarlega. Þegar ég er í dragi þá læt ég það alltaf líta glæsilega og kvenlega út og vanda alltaf það sem ég geri. Þó ég sé búinn að ganga í 12 cm háum hælum í 18 tíma á marm- aragólfi þá er hugsunarhátturinn: „I’m a queen, I can do it,“ segir Órn sem er aldrei i sama dressinu þegar hann treður upp og leggur mikinn metnað í það sem hann er að gera. Með svarta beltið í Tai kwondo Það er ekki bara kjólasaumur, dans og tónlist sem eru áhugamál Arnar heldur hefur hann einnig mjög gaman af því að teikna og hefur hannað ófá tattómynstur- inn fyrir vini sína. Vinnan sem yfirþjónn á Thomsen er einnig hans líf og yndi. „Ég kann mun betur við mig í þjóninum heldur en á sjónum og ég hreinlega elska Thomsen. Nýju eigendurnir eru líka alveg rosa- lega góðir yfirmenn," segir Örn og talið berst að lífinu á bak við barborðið sem getur verið ansi skrautlegt ekki síst þegar hann mætir á barinn sem ofurgellan Venus. „Það eru margir sem verða ringlaðir þegar þeir sjá mig og eiga erfitt með að átta sig á því hvort ég sé virkilegur kvenmað- ur. Útlit mitt hefur hreinlega nærri því valdið hjónaskilnuð- um,“ segir Örn og rifiar upp sögu af hjónum sem komu einu sinni á barinn. Maðurinn byrjaði að gefa honum hýrt auga en eiginkonan varð alveg brjáluð enda ekki hrif- inn að bóndinn væri að reyna við einhverja barstelpu. Þau fóru út í hörkurifrildi. „Það eru einnig margir skápakarlmenn sem koma á barinn og ég hef oft lent i því að þeir skrifi símanúmerið sitt á posanótuna þegar þeir borga með korti en mér finnst það alveg „off,“ segir örn og bætir hlæjandi við: „Karlmenn segja einnig oft við mig: „Venus, veistu hvað það er svekkjandi að þú skulir vera karlmaður? Þeim finnst það svo mikil synd því þegar ég er kom- inn í galakjólinn og með Dior- skartgripina þá er ég náttúrlega afskaplega glæsileg, þó ég segi sjálf frá“. Það er þó vissarra að vera ekki að abbast mikið upp á Venus því kvensan getur sparkað duglega frá sér ef út í það er farið enda er örn með svarta beltið í Tai kwondo. En af hverju kallaröu þig Ven- us? „Mér finnst nafnið í fyrsta lagi afskaplega fallegt en ég lít samt síður en svo á mig sem einhverja ástargyðju. Ég er hins vegar fædd- ur í nautsmerkinu og perónuein- kenni mín eru Venus allan hring- inn og það er rosalega sjaldgæft," segir Örn sem, eins og ástargyðj- an Venus, nær alltaf að heilla. 31. mars 2000 f ó k u s 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.