Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2000, Blaðsíða 4
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2000
I>V
Sálfræðingurinn og Húsvíkingurinn Ingþór Bjarnason pólleiðangursfari við DV:
Ég hef mikla trú á að
Haraldur Örn komist
- leiðangurinn að verða hálfnaður þrátt fyrir að 75 prósent leiðar séu enn eftir!
DV-MYND E.ÓL.
Gott var aö komast í rúm
Ingþór segir pólfara gjarnan dreyma um einfalda hluti - aö boröa góöan mat ogjafnvel aö sitja á stól! Hann segir þaö
hafa veriö afskaþlega notalegt aö komast í venjulegt rúm eftir aö hann neyddist til aö halda á ný til byggöa.
„Ég tel að við getum verið mjög
bjartsýn á að þetta takist hjá Haraldi
að komast alla leið. Það er ekki nema
upp komi bilun á búnaði, brotinn
sleði eða skíði eða líkamleg áfoll sem
kæmi í veg fyrir slíkt. Ég hef mikla
trú á að Haraldur örn komist. Hann
hefur greinilega mjög gott sjálfs-
traust," sagði Ingþór Bjamason, pól-
leiðangursfari og sálfræðingur frá
Húsavík sem kominn er heim til Is-
lands með kal á 9 fingrum.
25 dagar búnfr - um 35 eftir
Ingþór segir að þó svo að Haraldur
Örn Ólafsson félagi hans, sem hann
skildi við á ísnum fyrir rétt rúmri
viku, hafi „aðeins" lagt að baki sam-
tals tæpa 200 kílómetra - og tæpir 600
kílómetrar séu eftir á norðurpólinn -
sé í raun hægt að líta svo á að einung-
is rétt rúmur helmingur leiðangurs-
ins sé eftir í tíma talið.
Þannig segir Haraldur að leiðang-
urinn hafi nú staðið yfir í 25 daga en
ekki sé óvarlegt að áætla að 35 dagar
séu eftir. Ástæðan fyrir þessu er sú
að langtorfærasti kafli leiðangursins
fari brátt að verða að baki. Þetta
skýrist fyrst og fremst með því að
ferðum yfir erfiðustu íshryggina fer
að ljúka, þyngstu byröarnar eru að
segja má líka að baki og mesta
myrkrið og harðasta frostið enda
hækkar sól á lofti og frost minnkar
eftir því sem norðar dregur.
„Haraldur Örn er af þessum ástæð-
um farinn að frnna hvað það er
Leiörétting
Ekki var rétt eftir Guðmundi Guð-
bjamarsyni haft í DV á mánudag að
hann hefði setið í 20 manna samn-
inganefnd, svokallaðri stóru samn-
inganefnd. Hið rétta er að í nefnd-
inni, sem hann á sæti í, sitja 140
manns. Þá var rangt haft eftir Guð-
mundi að 5 félög stæðu að Flóabanda-
laginu. Hið rétta er að Efling, Hlíf og
Verkalýðs- og Sjómannafélag Kefla-
víkur standa að Flóabandalaginu.
Annað í viðtalinu við Guðmund þar
sem hann segir verkalýðshreyfing-
unni illa stjómað og að verkalýðsfor-
kólfar nenni ekki að semja um boðleg
kjör stendur óhaggað. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
örvandi hvemig dagleiðirnar lengjast
núna,“ sagði Ingþór sem er bjartsýnn
á að hann sjálfur nái sér að mestu á
strik eftir kalið á fingrunum níu.
Verður þá fyrstur íslendinga
tll að ganga á pólinn
Ingþór er sálfræðingur og býr á
Húsavík en Haraldur örn er lögfræð-
ingur í Reykjavík. Ingþór sagði við
DV í gær að hann hefði unnið við
meðferð unglinga fyrir norðan. „Ég
hef líka reynslu af að aðstoða íþrótta-
menn hugrænt," sagði pólfarinn og
kinkaði kolli með bros á vör þegar
blaðamaður spurði hvort hann væri
orðinn „sérfræðingur í keppnis-
hörku“ - ekki síst í óbyggðum.
„Auðvitað má segja að þetta sé bil-
un að einhverju leyti,“ sagði Ingþór
aðspurður um allt þetta álag og
áreynslu að freista þess að ganga á
norðurpólinn. „Þetta er eitthvað sem
menn fá löngun til að takast á við.
Þetta er hluti af lífinu."
Ingþór segir að komist Haraldur
Örn félagi hans á norðurpólinn verði
hann fyrsti Islendingurinn til að kom-
ast þangað gangandi og einn af fáum
í heiminum sem bæði hafa gengið á
norður- og suðurpólinn.
Haraldur er á brotnum skóm
Ingþór segir að Haraldur sé á
brotnum skóm en
gera við þá.
„Hann á eftir að
komast langt á
þeirri viðgerð,“
sagði Ingþór. Har-
aldi Emi verða
send aðfóng að
líkindum mánu-
daginn 17. apríl.
- Nú er lífið
þarna norður frá
mjög frumstætt.
Hvað dreymir
menn mest um að
gera þegar þeir
koma aftur til
byggða?
„Ótrúlega
venjulega hluti
eins og að borða
góðan mat, fara í
bað og jafnvel bara að sitja á venju-
legum stól - ekki að sitja ailtaf fiötum
beinum. Þegar ég kom til byggða aft-
ur í síðustu viku fann ég notalegheit-
in við að sofa í góðu rúmi. Það er
ofsalega gott að geta búið við það að
vera í hlýju ástandi."
Er ekki vont að sofa og
ísbirnir...?
Ingþór segir að því lengra sem
dregur frá eyjunum í Norður-Kanada
minnki líkumar á að pólfarar mæti
ísbjömum.
- En er ekkert óþægilegt að leggjast
til svefns og vita að ef ísbjöm er í ná-
grenninu þá er ekkert annað en tjald-
dúkur á milli þín og óargardýrsins?
„Líkurnar á að ísbirnir séu þama
era afar litlar. Svo litlar að menn
hafa sagt við okkur að það taki því
ekki að hafa af því áhyggjur. Hins
vegar þegar ísbimir gera sig heima-
komna fara þeir fyrst að matnum sem
er á sleðanum fyrir utan tjaldið. Þá
ætti manni að gefast tími til að at-
huga sinn gang á meðan," segir Ing-
þór Bjamason en minnist þó á að eitt
sinn hafi Breti þurft að skjóta ísbjöm
í gegnum tjaldið hjá sér. -Ótt
hann hafi náð að
Haraldur Orn
Ólafsson
Takist honum
ætlunarverk sitt
í byrjun maí aö
ganga á noröur-
pólinn veröur
hann fyrsti ís-
lendingurinn til
aö gera slíkt.
Snæugla í
Kelduhverfi
DV, AKUREYRI:_
Snæugla sást í
Kelduhverfi í
Norður-Þingeyj-
arsýslu um helg-
ina. Hún var
frekar spök og
menn gátu fylgst
nokkuð vel með
henni um stund
áður en hún hóf
flugið.
Snæugla er
með allra
stærstu ugluteg-
undum sem til eru í heiminum. Þær
geta orðið allt að 70 cm á hæðina og
vænghafið á þriðja metra. Gunnar
Hallgrímsson hjá Náttúrufræði-
stofnun segir að ávallt sé eitthvað
um að snæuglur sjáist hér á landi
og þá sé um að ræða flækingsfugla
sem hafi hér viðkomu og oftast
komi þeir frá Grænlandi eða
Kanada. Gunnar sagði þó að árið
1994 hefði eitt snæuglupar verpt og
komið upp ungum hér á landi, á
Vestíjörðum, en þá voru liðin um 30
ár siðan síðast var vitað um að slíkt
hefði gerst. -gk
Pitsusendill
og konur slegin
Eitthvað virðist hann hafa verið
vanstilltur maðurinn sem fékk
senda heim pitsu í Þingholtin í
Reykjavík í gærkvöldi. Eftir að
pitsusendillinn hafði afhent mann-
inum pitsuna sló hann sendilinn í
andlitið. Sendillinn slapp nokkuð
vel frá þessu en árásarmaðurinn
var handtekinn.
I Breiðholtinu voru tvær líkams-
árásir kærðar og i báðum tilfellum
vom karlar sökudólgar en konur
fómarlömbin. Lögregla upplýsti í
morgun að vitað væri hverjir þama
hefðu verið að verki. -gk
RARIK til Akureyrar:
Stuðningur
Skagfirðinga
DV. AKUREYRI:_______
Byggðarráð sveitarfélagsins Skaga-
fjaröar hefur samþykkt áskorun til
yfirvalda um að höfuðstöðvar Raf-
magnsveitu ríkisins verði fluttar tfl
Akureyrar. Áður hafði borist stuðn-
ingur við málið víðar að, m.a. frá
Austurlandi.
„Byggðaráð skorar á iðnaðarráð-
herra og ríkisstjóm að sjá tfl þess að
þetta mikflvæga mál nái fram að
ganga,“ segir m.a. í ályktun byggðar-
ráðs um þetta mál. -gk
Veðrið í kvöld
Vaxandi SA-átt
Spáö er hægri suðvestlægri átt. Stöku skúrir
fram eftir degi en síöan skýjaö með köflum.
Hiti 1 til 6 stig, mildast sunnan til. Vaxandi
SA-átt og fer aö rigna allra syðst og vestast I
nótt. Á morgun veröur SA-átt, 10-15 m/s og
rigning sunnan og vestan til en hægari og
skýjaö á Noröausturlandi. Hiti 1 til 6 stig.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólartag í kvöld 20.32 20.20
Sólarupprás á morgun 06.27 06.07
Siðdegisflóð 19.06 23.39
Árdeglsflóö á morgun 07.22 11.55
Skýringar á ve&urtðknum
)*-~VINDÁTT —HITI -io° '^YVINDSTYRKUR VconcT S metrum á sokúndu HEIÐSKÍRT
o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAO
SKÝJAÐ
0*0 W ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
S -'9 ==
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Greiðfært
Greiöfært er í nágrenni Reykjavíkur.
Hálkublettir eru á Hellisheiöi og í
Þrengslum en hálka er á Bröttubrekku
og Holtavöröuheiöi. Á Austurlandi er
víöa hált.
■ GREIÐFÆRT H ÞUNGFÆRT
HÁLT BBÖFÆRT
Rigning sunnan og vestan til
Gert er ráö fyrir suöaustanátt, 10-15 m/s og rigningu sunnan og
vestan til. Búist er viö hægara og skýjuöu veöri á Norðausturlandi.
Hiti 1 til 6 stig.
Föstudagur
Vindur: \ V'S
10-15 J
Hiti 1° til 6° AVö
Gert er ráö fyrir fremur
hægri suðlægrl átt og
skúrum en sunnan 10 til
15 m/s og fer að rlgna
vestan tll stðdegis.
Hltl 1 tll 6 stlg.
Laugarda
Vindur:
8-13
Hiti 2
\*j0
!° til 7° AV?
Sunnuda
Vfndun / N
8-13 m/i-J L , J
Hiti2°tH7° 4 ð ð
Suðvestan 8 til 13 m/s og
skúrir vestan tll en
Suövestan 8 til 13 m/s og
skúrir vestan tll eii
léttskýjað á Austurlandl.
Hltl 2 tll 7 stlg, hlýjast
austan til.
léttskýjað á Austuriandl.
Hltl 2 til 7 stlg, hlýjast
austan til.
Veðrið kl. 6
AKUREYRI alskýjað 3
BERGSTAÐIR alskýjaö 3
BOLUNGARVÍK alskýjaö 3
EGILSSTAÐIR 2
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 4
KEFLAVÍK skýjaö 3
RAUFARHÖFN alskýjaö 1
REYKJAVÍK úrkoma 3
STÓRHÖFÐI skúrir 3
BERGEN úrkoma -2
HELSINKI rigning 3
KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 1
OSLÓ léttskýjaö —3
STOKKHÓLMUR snjókoma O
PÓRSHÖFN léttskýjaö 4
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma -4
ALGARVE
AMSTERDAM skýjaö 4
BARCELONA skýja& 11
BERLÍN þokumóöa 7
CHICAGO heiöskírt 0
DUBLIN léttskýjaö -3
HALIFAX skúrir 9
FRANKFURT rigning 9
HAMBORG rigning 2
JAN MAYEN skýjaö -2
LONDON skýjaö 3
LÚXEMBORG rigning 6
MALLORCA skýjaö 14
MONTREAL þoka 4
NARSSARSSUAQ -1
NEW YORK hálfskýjaö 9
ORLANDO heiöskirt 14
PARÍS rigning 4
VÍN alskýjaö 9
WASHINGTON léttskýjaö 4
WINNIPEG léttskýjaö 3