Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2000, Blaðsíða 9
9
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2000
I3V
Fréttir
Níu konum sagt upp hjá rækjuvinnslu Nasco í Bolungarvík:
Neydd til aö
fara suður
Falleg fermingargjö f
SWAROVSKI
Mikið úrval
af hinum heimsþekktu
SWAROVSKI skartgripum
Silfurkristalskrossinn
Kr: 8.850.-
y ^RISTALL
Kringlunni - Faxafeni
- segir ein þeirra, 3ja barna einstæð móðir
„Þetta er lágkúruleg framkoma
hjá forráðamönnum fyrirtækisins,
ekki síst i ljósi þess að þeir eru
með fullt af Pólverjum í vinnu,“
sagði Þuríður Guðmundsdóttir í
Bolungarvík við DV í gærkvöld en
hún er ein níu kvenna sem sagt var
upp hjá rækjuvinnslu Nasco í Bol-
ungarvík sl. fóstudag. Konumar
níu hafa séð um öll þrif I verk-
smiðjunni.
„Fyrir hálfum mánuði fengum
við tvo valkosti - annaðhvort að
þeir lækkuðu launin okkar eða að
okkur yrði sagt upp,“ sagði Þuríð-
ur. „Við erum með sjö tíma fyrir
þrifin en þeir vildu fækka um eina
konu og fækka tímunum niður í
sex. Við höfnuðum allar launa-
lækkuninni og var því sagt upp.“
Þuríður er búin að vinna hjá fyr-
irtækinu i 15 ár. Aðrar hafa unnið
þar allt að tíu árum. Þuríður er
einstæð móðir með þrjú börn.
„Þetta þýðir það að ég þarf að fara
úr bænurn," sagði hún og kvaðst
vera farin að gera ráðstafanir til
brottflutnings. „Ég ætla suður, það
er ekki um annað að ræða. Ég
neyðist til þess.“
Aðrir starfsmenn rækjuvinnsl-
unnar sem DV ræddi við i gær-
kvöld sögðu að mikil ólga væri
meðal íslenska starfsfólksins þar.
Það hefði heyrt utan að sér að til
stæði að segja fleiri upp, a.m.k. tíu
manns til viðbótar.
Agnar Ebenesersson, fram-
kvæmdastjóri rækjuvinnslunnar,
sagði við DV að uppsagnirnar
væru vegna endurskipulagningar
og breytingar á störfum. Verið
væri að breyta húsinu og vinnutil-
höguninni. Því hentaði ekki lengur
það fyrirkomulag sem hefði verið.
Miklar líkur væru á að konurnar
yrðu ráðnar aftur. Ekki hefði þó
neitt verið fastákveðið enn í þeim
efnum né hvort til frekari upp-
sagna kæmi.
„Við höfum rætt um að fækka
starfsfólki en ekki með uppsögnum
heldur með því að ráða ekki í stað
þeirra sem hætta,“ sagði hann.
Um 90 manns vinna nú í rækju-
vinnslunni, að sögn Agnars, þar af
a.m.k. 15 Pólverjar. Hann sagði að
margir þeirra væru með græna
kortið. Því væri ekki hægt að segja
þeim upp fremur en íslendingum.
Þeir hefðu sama rétt. Agnar kvað
ekki á döfinni að ráða fleiri Pól-
verja til vinnu. -JSS
RARIK til Akureyrar:
Stuðningur Skagfirðinga
DV, AKUREYRl:_________________________
Byggðarráð sveitarfélagsins
Skagafjarðar hefur samþykkt áskor-
un til yfirvalda um að höfuðstöðvar
Rafmagnsveitu ríkisins verði fluttar
til Akureyrar. Áður hafði borist
stuðningur við málið viðar að, m.a.
frá Austurlandi.
„Byggðaráð skorar á iðnaðarráð-
herra og rikisstjóm að sjá til þess
að þetta mikilvæga mál nái fram að
ganga,“ segir m.a. í ályktun byggð-
arráðs um þetta mál.
-gk
Orðrómur um að Japis sé til sölu:
Höfum ekki
falboðið fyrirtækið
- segir framkvæmdastjóri. Nokkrir kaupendur líklegir
„Ég kannast ekki við þetta,“
sagði Birgir Skaptason, fram-
kvæmdastjóri Japis, þegar hann
var inntur eftir því hvort fyrirtæk-
ið væri til sölu að hluta eða öllu
leyti. Heimildir DV herma að und-
anfarið hafi verið leitað eftir
áhugasömum kaupendum að Japis
urinn, s.s. tækjasviöið og tónlistar-
og afþreyingarsviðið. Það er nú
kannski ekki komið á það stig að
skipta fyrirtækinu í tvennt en það
getur verið að þetta sé sprottið út
af einhverjum slíkum málum. Við
höfum verið að vinna að ýmsum
verkefnum í rekstrinum eins og
Japis
Rótgróið fyrirtæki í afþreyingariðnaði.
og myndi fyrirtækið þá selt annað-
hvort í einu lagi eða i tvennu, þ.e.
tónlistarbúðimar og tækjabúðim-
ar. „Þetta getur kannski byggst á
einhverjum misskilningi. Mis-
skilningurinn er kannski sá að við
höfum verið að skoða það að að-
greina enn frekar hjá okkur rekst-
gengur og okkur sýnist að við get-
um náð meiri árangri með þvi að
hafa skarpari einbeitingu á hvoru
sviði fyrir sig. Þessar einingar
hafa verið aðgreindar í rekstrin-
um hjá okkur undanfarið og við
erum bara að skoða ýmis tækifæri
en við höfum ekki verið að fal-
bjóða fyrirtækið,“ segir Birgir
Skaptason. Ef til kæmi að Japis
væri til sölu verður líklegt að telj-
ast að fyrirtæki eins og Heimilis-
tæki og Bræöurnir Ormsson hefðu
áhuga á að kaupa tækjasvið þess
en líklega væri Skifan eini aðilinn
sem keypt gæti tónlistar- og af-
þreyingarsviðið. -hdm
MÁ B JDÐA ÞÉR SÆTI?
SVARTUR•LJÓ5BRÚNN
DÖKKBRÚNN•DÚKKBLÁR
STÆRD: 2DDX245 CM
bak: B6 cm
orruno hornsófi
Ledur á slitflötum
OPIÐ:
TM - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 -Sími 568 6822
N's-- tevintýri líkust