Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2000, Blaðsíða 24
36
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2000
- Tilvera I>V
lí f iö
Húsdýra og fjölskylduleikja
unnendurnir í Url stíga á stokk
og trukka upp stuðið á Gauk á
Stöng. Búfénaður velkominn.
POPP________________._________
■ LAGMENNINGIN SNYR AFTUR
Landsmenn gleðjist því lágmenning-
borg er komin á ný. Kiddi í Hljóma-
lind viröist seint þreytast á því að
gefa okkur góða hluti. Núna mun
Papa M starta Lágmenningarhátíð
og er þar maður í þungavigtarflokki
á meðal póst-rokkmanna. Hann hef-
ur meðal annars verið í böndum
eins og Slint og Tortoise. Hann
mætir viö fimmta mann og spilar í
Kjallara leikhúss.þjóöarinnar. Upp-
hit sér fólkiö í MÚM um. Þessi tón-
listarveisla kostar skitnar 1200 kr.
Þetta álíka og aö kaupa sér bjór í
Prag þar sem maður borgar 30kall
fyrir guðaveigar. Sem sagt, himnesk
sæla fyrir smáaura.
■ STÓRTÓNLEIKAR í BORGAR-
LEIKHUSINll Hljómsveitin Dúndur-
fréttir tekur að sér það stóra verk-
.. efni að flytja meistaraverk hljóm-
' sveitarinnar Plnk Fioyd, Dark Side
of the Moon, í heild sinni í Borgar-
leikhúsinu. Haldnir verða tvennir
hljómleikar. Sá fyrri er klukkan 20
og sá seinni klukkan 22.30. Forsala
aðgöngumiða er í Japis í Kringlunni
og Japis á Laugarvegi. Aðgangseyrir
er 1973 krónur.
Klúbbar
■ BREAKBÉAT.IS A 22 Fvrsta mið-
vikudagskvöldiö í hverjum mánuði
getið þið gengið að þykkustu og
ferskustu drum & bass og ex-
perimental breakbeat tónunum vís-
um á efri hæð veitingahússins 22.
Að þessu sinni er gestur kvöldsins
dj Kristinn. Þeir Addi, Eldar og
Reynir verða síðan á sínum stað.
300 kall fyrir 23 og 500 kall eftir.
18 ára aldurstakmark. Nánari upp-
lýsingar á www.breakbeat.is.
Krár
■ HERB A SIRKUS Herb Legowitz,
öðru nafni Maggi Legó, sér um
skífuþeytingar á Sirkus.
■ HILMAR ÖRN Á NÆSTABAR
Kvikmyndatónskáldið Hilmar Orn
Hilmarsson mun ásamt félögum sjá
um aö miðvikumót renni Ijúflega í
gegn hjá gestum Næsta bars. 01 í
krús og kvikmyndatónlistarfílingur
fara vel saman. Frítt inn sem fyrr.
. ■ UÚFT Á CAFÉ ROMANCE Breski
* píanóleikarinn Simone Young leikur
fýrir gesti Café Romance.
■ UÚFT Á NAUSTINU Alltaf rólega
heita stemmning á Naustlnu þegar
söngkonan og píanóleikarinn Liz
Gammon leikur Ijúfa tóna.
Klassík
■ HASkOLAKORINN Háskólakór-
Inn undir stjórn Eglls Gunnarssonar
flytur lög eftir Kjartan Olafsson m.a.
við Ijóð eftir Hannes Pétursson á
Háskólatónleikum í Norræna hús-
inu. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30.
og standa í um hálftíma. Aðgangs-
eyrir er kr. 500, en ókeypis er fyrir
handhafa stúdentaskírteinis.
■ VORTÓNLEIKAR í SALNUM Vox
academica heldur vortónleika í
Salnum í Gerðarsafni, listasafni
Kópavogs, og hefjast þeir kl. 20.30.
Stjórnandi korsins er Egill Gunnars-
son. Efnisskrá veröur einstaklega
fjölbreytt. 1200 kr. aögangseyrir.
Leikhús
DYRIN I HALSASKOGI - BANNAÐ
BORNUM Leikfélag Flensborgar-
skóla sýnir Dýrin í Hálsaskógi -
bannað börnum, eftir Thorbjórn
Egner, klukkan 20. Sýningin sem er
bönnuð börnum sviptir hulunni af
þessu sígilda norska barnaleikriti og
leiðir í Ijós spillt samfélag þar sem
fámenn valdaklíka svífst einskis til
* að fullnægja dýrslegum hvötum og
drepa hvers kyns andóf í dróma.
Einelti og ofsóknir eru klædd kufli
trúar, vonar og kærleika sem blekkir
sálirnar stórar og smáar enda ekki
allt sem sýnist í Hálsaskógi þar sem
dýrin eru menn.
SJá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísí.is
Hljómsveitin Dúndurfréttir flytur Dark Side of the Moon:
Tónlistin sem við höfum
mest gaman af að hlusta á
- segir Pétur Örn Guðmundsson, söngvari og hljómborðsleikari
í kvöld mun hljómsveitin Dúnd-
urfréttir flytja á tvennum tónleikum
í Borgarleikhúsinu annað af tveim-
ur meistarverkum Pink Floyd, Dark
Side of the Moon (hitt verkið er The
Wall). í nokkum tíma hefur veriö
unnið að undirbúningi tónleika
þessara og er ekkert sparað til að
gera þá sem glæsilegasta. Full-
komnu hljóökerfi hefur verið komið
fyrir auk ljósa og bætt hefur verið
við hljómsveitina saxófónleikaran-
um Jens Hanssyni og söngkonunum
Andreu Gylfadóttur, Regínu Óskars-
dóttur og Guðbjörgu Magnúsdóttur
sem munu syngja bakraddir. í dúnd-
urfréttum eru Matthías Matthías-
son, söngur/gitar, Pétur Örn Guð-
mundsson, hljómborð/söngur, Ólaf-
ur Hólm, trommur, Einar Þór Jó-
hannsson, gítar, og Ingimundur
Óskarsson, bassi. Einn af forsprökk-
um Dúndurfrétta er Pétur Örn og
var hann fenginn í spjall og fyrst
spurður um tilurð Dúndurfrétta:
„Dúndurfréttir urðu til þegar ég
og félagi minn, Matthías Matthías-
son, sátum eitt sinn á kaffihúsi og
vorum tala um hvaða músík okkur
þætti skemmtilegast að hlusta á og
við komumst að því að við flluðum
báðir sömu tónlistina. Þar sem við
höfðum báðir verið í hljómsveitum
og syngjum báðir þá ákváðum við
að stofna hljómsveit sem eingöngu
spilaði lög sem okkur þætti
skemmtileg. Það gaf auga leið að þá
urðum við að fmna menn með okk-
ur sem höfðu sama smekk og við.
Þannig urðu Dúndurfréttir til. Nú
eru fjögur ár síðan og það hafa orð-
ið smámannabreytingar í hljóm-
sveitinni en kjaminn er alltaf sá
sami.“
Pétur segir að
viðtökurnar hafi
strax verið mjög
góðar: Það var
greinilegt að það
voru fleiri en við
sem vildu gjarn-
an hlusta á þessa
tónlist öðruvísi en af plötum og var
okkur strax vel tekið og við höfum
starfað allan þenna tíma, en þó með
hléum, reynum að hafa gott hlé á
milli tónleikasyrpna svo við þreyt-
um ekki fólk um of. Þetta er fyrst og
fremst hobbíhljómsveit, við erum
allir í einhverju öðru. Ég held að
það skili sér til áhorfenda að við
höfrnn gaman af því sem við erum
að gera og þá er að passa sig á því
að fá ekki sjálfur leið á tónlistinni."
Hverjar skyldu svo vera uppá-
haldshljómsveitir Dúndurfrétta-
manna? „Auðvitað er Pink Floyd
þar á blaði, en það vill nú svo til að
það er nánast tilviljun að við spilum
eingöngu lög fjögurra hljómsveita,
Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep
Purple og Uriah Heep. Við vorum
Dundurtrettir a ætingu
Þaö var hvergi siakaö á á æfingu á Dark Side of the Moon.
ekkert að hugsa sérstaklega um
þessar hljómsveitir þegar við byrj-
uðum en það kom fljótlega í ljós að
þau lög sem við höfðum mest gam-
an af voru leikin af þessum böndum
svo við höfum eingöngu leikið
þeirra lög og hefur það gefist vel.“
Snilld sem aldrei fyrnist
Dark Side of the Moon er stærsta
verkefnið sem þeir félagar í Dúnd-
urfréttum hafa tekið sér fyrir hend-
ur: „Hugmyndin kviknaði mjög
fljótt eftir að við hófum að spila. Það
hefur bara aldrei geflst tími til að
framkvæma þessa hugmynd. Við
vinnum allir hver í sínu homi, ef
svo má að orði komast, og það er
tímafrekt að æfa upp svona stórt
verk. Það er að svo mörgu öðru að
huga en bara að spila verkið þegar
efnt er til stórtónleika á borð við
þessa. Við komum þó alls ekki að
verkinu í fyrsta sinn í kvöld. Við
höfum flutt það tvisvar áður á
Gauki á Stöng og það gekk mjög vel
og í kjölfarið var ákveðiö að gera
þetta með stæl, efna til tónleika með
öllu tilheyrandi."
Pétur segir tónlistina á Dark Side
of the Moon hafa staðist tímans
tönn og vel það: „Þetta er klassík,
ein af þessum plötum sem olli
straumhvörfum og hefur mótað
rokksöguna og haft mikil áhrif.
Tónlistin er jafn fersk i dag og hún
var þá enda selst platan í stórum
upplögum á geisla. Nú, tónleikamir
skiptast í tvennt. Eftir hlé flytjum
við verkið en fyrir hlé munum viö
Pétur Orn Guömundsson
Dúndurfréttir stofnuö svo hann og fétagar hans gætu spilaö þá tónlist sem
þeim þykir skemmtilegust.
vera með góða upphitun á góðum
Pink Floyd lögum af öðrum plöt-
um.“
Þegar Pétur er spurður hvort
erfitt sé að flytja Dark Side of the
Moon, segir hann það ekki vera eins
erfitt og i fljótu bragði virðist vera:
„Þetta er nokkuð erfitt tæknilega.
Það er mikið af hljóðum sem eru
ekki beint spiluð á hljóðfæri og
kannski liggur snilldin einmitt í því
að verkið er ekki mjög flókið, ég
tala nú ekki um ef við miðum það
við The Wall sem er öllu erfiðara í
flutningi."
Að lokum er
Pétur spurður
hvort hann kvíði
ekki fyrir: „Það
er alltaf spenn-
ingur í manni þegar kemur að tón-
leikum á borð við þessa. Ég búinn
að upplifa marga súra drauma að
undanfömu. Það má segja að
ástandi mínu sé best lýst með þvi að
segja að í mér sé blanda af stressi og
tilhlökkun."
-HK
Dark Side of the Moon:
25 milljón eintök seld
24. mars 1973 var eitt af meist-
araverkum rokksögunnar, Dark
Side of the Moon, sett á markaðinn
og má segja með sanni að þá hafi
verið markað spor í tónlistarsög-
unni því aldrei áður hafði veriö
gefin út poppplata áður sem sam-
anstóð af einu fljótandi verki sem
náði einnig almennum vinsældum.
Þar fór saman popp og list eins og
best verður á kosið. Verkið var
hljóðritað í Abbey Road hljóðver-
inu á tímabilinu júní 1972 til janú-
ar 1973. Roger Waters samdi alla
texta sem unnir voru út frá þeim
boðskap að stressið i daglegu lífi geti
leitt til geðveiki og vann þá áður en
tónlistin var sett við en hana sömdu
Pink Floyd
Svona iitu þeir út fjórmenningarnir Nick
Mason, Richard Wright, Roger Waters og
David Gilmore á þeim árum þegar Dark
Side of the Moon leit dagsins Ijós.
allir hljómsveitarmeðlimimir sam-
an og hver í sínu lagi. Platan var
ekki aðeins tónlistarlegt meistara-
verk heldur einnig tæknilegt und-
ur því þrátt fyrir einfaldleikann,
sem yfir henni er, lágu hljómsveit-
armeðlimir yfir upptökunum öll-
um stundum til að bæta verkið
ásamt tæknimanni sínum, Alan
Parsons (einn sá frægasti í faginu
sem stofnaði síðan eigin hljóm-
sveit, Alan Parsons, Project).
Til að gera langa sögu stutta þá
sló Dark Side of the Moon rækilega
í gegn og var á bandaríska Billbo-
ard-listanum yfir 200 mest seldu
plöturnar í 724 vikur samtals eða
um fjórtán ár, þar af í 591 viku
samfellt. Þrátt fyrir þennan árangur
var platan aðeins eina viku á toppi
listans.
Dark Side of the Moon er ein af
mest seldu plötum allra tíma og
kannski verður hún um síðir sú
mest selda því platan hefur þegar
verið seld í yfir 25 milljón eintökum
og selst enn þá grimmt.
Hugmyndin að baki Dark Side of
the Moon er spumingin: Hvað er
það sem gerir fólk vitstola? Á plöt-
unni má heyra spumingar og svör,
meðal annars: Hve lengi hefur þú
verið geðveikur? Hefur þú einhvem
tímann sýnt ofbeldi? Ertu hræddur
við að deyja? Hvenær kýldirðu síð-
ast mann? Hafðir þú rétt til þess?
Svörin er svo að finna á tónleikun-
um.
-HK