Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2000, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2000
Viðskipti
I>V
Umsjón: Viðskiptablaðið
Þrjú fyrirtæki mynda Median hf.
Sameining á sviði raf
rænna viðskipta
- áætlað markaðsvirði nýs félags um 1 milljarður
Nýtt og öflugt fyrirtæki á sviði
rafrænna viðskipta og greiðslumiðl-
unar varð til í gær er undirritaður
var samrunasamningur á milli
Korta hf„ Rafrænnar miðlunar hf.
og Smartkorta ehf. Hið nýja samein-
aða fyrirtæki hefur nafnið Median
hf. Atli Öm Jónsson, framkvæmda-
stjóri Median, segir að félagið verði
stærsta fyrirtæki sinnar tegimdar
hér á landi með um 215 milljónir í
hlutafé og að áætlað markaðsvirði
sé um 1 milljarður króna.
Að hinu nýja félagi standa öílug
hugbúnaðar-, fjármála- og fjar-
skiptafyrirtæki og fyrirtæki í versl-
un og þjónustu, svo sem Opin kerfi,
Skýrr, EUROPAY ísland, íslands-
banki-FBA, SPRON, Landssíminn,
Baugur, Kaupás, Flugleiðir, Sjóvá-
Almennar og VlS og olíufélögin
þrjú, ESSO, Skeljungur og OLÍS.
Fjárfestingarbanki atvinnulifsins
stuðlaði að þessum samruna og
hafði milligöngu í samrunaferlinu.
Atli Örn segir að það sé stefna
Median að skapa fyrirtækjum hag-
kvæmar lausnir í rafrænum við-
skiptum. „í þeirri viðleitni okkar
ætlum við að vera leiðandi afl á
Frá undirritun samnings um samruna Rafrænnar miðlunar, Smartkorta og
Korta í Median hf.
sviði greiðslumiðlunar og smart-
kortatækni og skapa viðskiptavin-
um forskot og sérstöðu i samkeppni.
Sérstök áhersla verður lögð á
færslumiðlun í greiðslukorta-
viðskiptum og kortalausnir fyrir
fyrirtæki og stofnanir. Við hyggj-
umst tryggja okkur forystu á þessu
sviði með markvissri hugmynda- og
þróunarvinnu, svo og nánu sam-
starfl við öflug fyrirtæki hérlendis
og erlendis. Þá stefnir Median að
viðtæku samstarfl við aðila á fjár-
málamarkaði og kortafyrirtæki um
lausnir á sviði greiðslumiölunar.
Hins vegar ætlum við okkur ekki í
Sameinast
Vöku-Helgafelli
Stjómir Máls og menningar hf.
og Vöku-Helgafells hf. hafa lýst
yfir vilja sínum til að stofna sam-
eiginlegt félag sem yfirtaki rekstur
beggja félagaima. Miðað er við að
hvor aðili eignist 50% hlut i félag-
inu. Stefnt er að undirritun endan-
legs samnings um sameininguna í
næsta mánuði.
Hagnaður Sparisjóðs Vest-
mannaeyja 18,4 milljónir
Sparisjóður Vestmannaeyja var
rekinn með 18,4 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári en hagnaður
sjóðsins fyrir skatta nam 48,1 millj-
ón króna. Heildarrekstrartekjur
voru 375,8 milljónir en heildar-
rekstrargjöld 327,6 milljónir, að
meðtöldum afskriftum.
Rofar
og tenglar
Eigið fé Sparisjóðsins var í árslok
1999 314,3 milljónir og hafði aukist á
árinu um rúmlega 10%. Eiginfjár-
hlutfall samkvæmt CAD-reglum var
11,7% en má lægst vera 8% af út-
reiknuðum áhættugrunni.
Langstærstu útlánaflokkamir
vom eins og áður til einstaklinga
og íbúðarlána eða tæplega 51% cif
útlánum á móti 52% í árslok 1998.
Hlutur sjávarútvegs f heildarútlán-
um hækkaði úr 33% í ársbyrjun í
35% í árslok. Hlutfall útlána til
verslunar og þjónustustarfsemi
var um 10% sem er heldur hærra
hlutfall en árið áður. Hlutfall lána
Sparlsjóður Vestmannaeyja.
til iðnaðar- og byggingastarfsemi
lækkaði úr tæpum 4% í 3%. Lán til
ríkis og bæjarfélaga vom áfram
liðlega 1%.
Olegrand Mosaic
Ef þið eruð orðin þreytt
á gömlu Ticino tenglunnm,
þá bjóðum við einfalda
og smekklega lausn
fyrir þig.
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Landsteinar styrkja stöðu
sína í Danmörku
- kaupa hugbúnaðarfyrirtækið JMA
Landsteinar Intemational hafa
keypt allt hlutafé í danska hugbúnað-
arfyrirtækinu JMA A/S. Jafnframt
hefúr verið ákveðið að sameina starf-
semi JMA og Landsteina DK í Árósum
undir nafiii hins síðamefnda. í frétt frá
Landsteinum kemur fram að sameinað
fyrirtæki verður eitt öflugasta hugbún-
aðarfyrirtæki Danmerkur á sviði
heildarlausna fyrir verslunar- og þjón-
ustufyrirtæki sem em byggðar á
Navision Financials-hugbúnaðin-
um frá Navision Software A/S.
Markmiðið með kaupunum
og sameiningu við Landsteina DK
er að styrkja möguleika félagsins á að
markaðsetja lausnir sem þróaðar hafa
verið af báðum fyrirtækjunum, bæði í
Danmörku og á alþjóðlega vísu, í gegn-
um önnur dótturfélög Landsteina
Intemational. Kaupin á JMA skapa
einnig forsendur til að nýta mikla
vaxtarmöguleika á þeim mörkuðum
sem fyrirtækin þjóna.
„Landsteinar hafa verið starfandi í
Danmörku frá árinu 1997 og sérhæft
sig í lausnum fyrir verslunargeirann.
Undanfarið hefur fyrirtækið verið að
hasla sér vöO á sviði lausna fyrir við-
haldsþjónustu og em kaupin á JMA
beinn liður í þeirri þróun. JMA er
mjög sterkt á því sviði og hefúr vaxið
mjög hratt á undanfómum árum.
Landsteinar og JMA hafa unn-
ið saman að þróun-
arverkefnum og
uppsetningum og
em þessi kaup því
mjög eðlilegt fram-
hald af góðu sam-
starfi. Landsteinar
DK verða með
þessu eitt sterkasta
Navision-lausnasetrið
fyrir verslunar- og
þjónustufyrirtæki í
Danmörku, með mikla
vaxtarmöguleika, og styrkir
því mjög Landsteina-samstæðuna í
heOd sinni. Þetta er enn eitt skrefið í
stækkun Landsteina og í samræmi við
þau markmið að gera fyrirtækið að öfl-
ugasta þjónustuaöila Navision á
heimsvisu og að skrá það á hlutabréfa-
markað. Eins og áður hefúr komið
fram á félagið i viðræðum við fleiri að-
Oa í þessu skyni sem of snemmt er að
greina frá að svo stöddu," segir Aöal-
steinn Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri Landsteina Intemational.
Þetta heist
samkeppni á sviði kortaútgáfu,"
segir Atli.
Sóknarfærl erlendis
Atli Örn segir að félagið muni
nýta sóknarfæri og selja samkeppn-
ishæfar lausnir á erlendum mörk-
uðum. „Við erum í samstarfi við
mjög öflug erlend félög, svo sem
Ingenico, stærsta posaframleiðanda
í Evrópu, Gemplus, stærsta korta-
framleiðanda í Evrópu, og Giesecke
& Devrient, samstarfsaðila KLINK-
verkefnis meö fslenskum bönkum
og sparisjóðum, og Thyron. Auk
þessa bjóðum við upp á TPOS-hug-
búnaðinn sem þróaður hefur verið
hér á landi. Þessi búnaður gerir
kleift að afla viðbótarupplýsinga,
auk þess að sinna hefðbundinni
heimildaöflun og færslumiðlun i
greiðslukortaviðskiptum. Þessi bún-
aður er í notkun við rekstur sér-
korta stórra fyrirtækja, svo sem
Fyrirtækjakort Flugleiða (Corpora-
te Card) og Flugkort Flugfélags ís-
lands. Þá byggist Innkaupakort rík-
isins á sama hugbúnaði en flestar
netverslanir á íslandi nota einnig
lausnir frá þessu nýja félagi sem
verður til við þennan samruna
I
EEmiMaBEsaL
HEILDARVIÐSKIPTI 1.456 m.kr.
- Hlutabréf 604 m.kr.
- Húsnæðisbréf 400 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
©íslandsbanki: 207,4 m.kr.
© Fjárfestingarb. atv.lífs. 145,0 m.kr.
O Landsbanki Islands: 31,2 m.kr.
MESTA HÆKKUN
O Delta 38,89%
O íslenski fjársjóöurinn 14,45%
© Pharmaco 11,59%
MESTA LÆKKUN
O Nýherji 11,63%
O íslenski hugb.sjóöurinn 5,25%
ö SÍF 5, 05%
ÚRVALSVÍSITALAN 1849
- Breyting © 0,15%
Ahrif sameiningar innifalin
Gríðarlega mikil viðskipti voru í
gær með bréf íslandsbanka og FBA.
Hins vegar hækkuðu bréfln ekki
eins og margir höfðu búist við. Lik-
legasta skýringin er sú að væntan-
legur ávinningur af samrunanum
hafl þegar verið kominn inn í geng-
ið. Bréfln hækkuðu mikið í síðustu
viku þegar tilkynningin kom um að
sameiningarviðræður væru í gangi.
Lækkun í gær gefur þetta a.m.k. til
kynna en spennandi verður að sjá
hvernig markaðurinn tekur hinum
nýja banka. Ljóst er þó að vænting-
amar eru miklar.
MESTIj VIÐSKIPTl @ síðastlitna 30 daea
© Össur 1.071.450
0 FBA 1.005.297
© Landsbanki 982.321
© íslandsbanki 930.028
© Marel 725.665
nnaisri^Hiiap síðastliðna 30 daea
© Isl. hugb.sjóöurinn 53%
© Delta hf. 41%
© Össur 36%
© íslandsbanki 34%
© Pharmaco 28%
Kiavjmimap síðastliðna 30 daga
1 © Opin kerfi -76%
: © Stálsmiöjan -20%
| © Rskiðjus. Húsavíkur -16 %
© Hraöf. Eskifjarðar -14%
© Skagstrendingur -13 %
Hrun tæknifyrirtækja
Mjög miklar lækkanir hafa verið á
gengi tæknifyrirtækja að undan-
fómu. Nasdaq-vísitalan hefur undan-
fama daga lækkað mikið og er gildi
hennar nú komiö undir 4.000 stig.
Hluti þessarar lækkunar er rakinn til
mikillar lækkunar á hugbúnaðar-
risanum Microsoft en dómstóll hefur
úrskurðað að fyrirtækið hafi sýnt
einokunartilburði. Microsoft hyggst
áfrýja dómnum en líklega er langt í
að endanleg niðurstaða fáist.
O 0,42%
O 0,64%
ÍS&P 1494,73 O 0,75%
iNASDAQ 4148,89 O 1,77%
DOWJONES 11175,08
20462,77
Enikkei
ÖSftse “dax I lcAC 40 6427,00 O 0,54% 7488,82 O 0,45% 6160,70 O 0,98%
05. 04. 2000 kl. 9.15
KAUP SALA
Hil Dollar 73,040 73,420
feJ^Pund 116,510 117,110
I*Í Kan. dollar 50,170 50,480
BSIpönskkr. 9,4460 9,4980
Norsk kr 8,6290 8,6760
E5 Sænsk kr. 8,4580 8,5050
Fl. matk 11,8277 11,8987
B B Fra. franki 10,7208 10,7853
1 i i Belg. frankl 1,7433 1,7538
Sviss. ffanki 44,6600 44,9000
CShoII. gyllini 31,9117 32,1035
J Þýskt mark 35,9562 36,1722
Oh. líra 0,036320 0,036540
ZjAust. sch. 5,1107 5,1414
Port. escudo 0,3508 0,3529
1 Spá. poseti 0,4227 0,4252
ULÍJap. yen 0,693500 0,697700 |
1 1:1 írskt pund 89,293 89,829
SDR 98,340000 98,930000 |
Oecu 70,3242 70,7467 ;