Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Page 4
4 _________________________________MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 Fréttir Aðild íslands að ESB: Lífsgæðin kosta sitt - bein útgjöld rílcissjóðs yrðu meiri en tekjurnar samkvæmt skýrslu utanríkisráðherra Kostnaöur og tekjur Islands vegna EFTA/EES-samnings og hugsanlegrar inngöngu í Evrópusambandið Án þátttöku Noregs *'i Útgjöld Tekjur I *Á.*Á í nýrri skýrslu Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráð- herra er lagt mat á hugsan- legan kostnað og hag ís- lands af inngöngu í Evrópu- sambandið. í skýrslu utanríkisráð- herra segir að efnahagsleg lífsgæði séu meiri hér á landi en þau eru að meðal- tali innan ESB. Það eitt veldur því að framlag ís- lands yrði hærra en sú fjár- hæð sem kæmi aftur inn í íslenskt efnahagslíf úr sjóð- um ESB. Þannig gæti fram- lagið orðið á bilinu 7 til 8 milljarðar og hugsanlega gætu fimm milljarðar ratað til baka í formi styrkja til landbúnaðar, sjávarútvegs og byggðamála. Breytt staöa EFTA og EES EES-samningurinn, sem íslend- ingar eru aðilar að, var undirritað- ur í Oporto í maí 1992. Á þeim tíma hefur samstarf ríkja innan Evrópu- sambandsins tekið mjög veigamikl- um breytingum. Þrjú ný aðildarríki, sem öll voru aðilar að EES-samn- ingnum, hafa gengið í Evrópusam- bandið og þrettán til viðbótar hafa nú formlega verið viðurkennd sem umsóknarríki. í skýrslunni segir að póli- tískt og efnahagslegt vægi EFTA/EES-ríkjanna sé ekki hið sama og áður og með því hefur aðstaða þeirra til áhrifa á þróun mála innan Evrópska efna- hagssvæðisins einnig breyst. Framtíöarhorfur og EES-samningur Vandinn er m.a. sá að meginhluti þess kostnaðar sem til fellur EFTA/EES- megin hefur fallið á Sviss og Noreg. ísland greiðir nú 9% kostnaðar vegna rekstr- ar ESA og EFTA-dómstóls en 3,81% kostnaðar vegna starfsliðs EFTA-skrifstof- unnar. Umfang starfsemi mundi minnka verulega við brotthvarf Noregs. Miðað við helmingi minni stofnanir mætti gera ráð fyrir lið- lega fimmfóldun framlags íslands eða fimm til sex hundruð milljón- um, talsvert lægri upphæð en vænt- anleg aðildargjöld að Evrópusam- bandinu. Ekki hefur verið gerð sérstök út- tekt á áhrifum EES-samningsins á islenskan fjármagnsmarkað. Hins vegar er ekki talinn nokkur vafi á því að aðild íslands að EES-samn- ingnum hefur orðið islenskum fjár- magnsmarkaði til góðs. Greiöum þegar til ESB ísland greiðir nú þegar hluta af kostnaði við rekstur starfsemi ESB í tengslum við EES samninginn. Is- land greiddi árið 1999 samtals rúmlega 220 miUjónir króna til rekst- urs starfsemi ESB. Sam- kvæmt fjárlögum og fjáraukalögum ársins 1999 greiddi ísland til stofnana EES-samnings- ins og í þróunarsjóð EFTA-ríkjanna samtals 210 m.kr. Samtals greið- ir ísland því 430 miUjón- ir króna vegna EES- samningsins. Til viðbót- ar fellur til ýmis kostn- aður vegna rekstrar, þýðinga, ferðakostnaðar við fundasókn o.fl. sem innan ESB er greitt úr sameiginlegum sjóðum. Aðild að ESB gæti því kostað ríkissjóð u.þ.b. 8 miUjarða króna (+/- 500 miUjónir króna) um- fram það sem ísland greiðir í dag vegna EES- samningsins eða u.þ.b. 7,5 milljarða (+/- 500 miUjónir króna) miðað við þær regl- ur sem verða í gUdi árið 2004. Vik- mörkin eru sögð koma til vegna óvissu um ijárhæð toUtekna með upptöku samræmdrar tollskrár ESB. -HKr. Halldór Ásgrímsson ísland greiöir nú þegar hluta af kostnaöi viö rekstur starf- semi ESB í tengslum viö EES-samninginn. Ríkislögreglustjóri kaupir Motorola fjarskiptabúnað: í fremstu röð í nútímalegum fjarskiptum - kerfið gegnir lykilhlutverki við Kristnitökuhátíð í sumar Embætti Ríkislögreglustjóra gekk í gær frá samningi við IRJU ehf. um kaup á stafrænum fjarskiptabúnaði frá Motorola af nýjustu og fuUkomnustu gerð. Þetta kemur í kjölfar þess að gengið var til samninga um rekstur TETRA kerfis, stafræns fjarskiptakerfis, og efndi Ríkis- kaup fyrir hönd Ríkislögreglu- stjóra til útboðs á hand- og bíl- stöðvabúnaði. Samningurinn við IRJU hljóðar upp á kaup á 260 stöðvum fyrir tæplega 28 miUjón- ir króna. Kerfi þetta er eitt hið fyrsta sinnar tegundar og kem- ur embættinu í fremstu röð hvað varðar nútímaleg tjar- skipti sem byggð eru á staf- rænum grunni, eftir því sem DV-MYND ÞOK Gengiö frá kaupum á nýjum fjarskiptabúnaöi Embætti Ríkislögreglustjóra gekk í gær frá kaupum á stafrænum fjarskiptabúnaöi af IRJU ehf. Kerfi þetta er eitt hiö fyrsta sinnar tegundar og kemur embættinu í fremstu röö hvaö varöar nútímaleg Ijarskipti sem byggð eru á stafrænum grunni. kemur fram í fréttatilkynn- ingu. í fyrsta áfanga mun kerfið ná yflr svæðið frá Þjórsá í austri til Hvalfjarðar i vestri en stefnt er að kaupum á fleiri stöðvum svo hægt verði að ná tU aUra landsmanna á næst- unni. Kerfi þetta nýtist öUum þeim sem koma að neyðar- og viðbragðsþjónustu, samræmir Qarskipti þeirra og ryður þar með úr vegi þeim göUum sem fylgt hafa ólíkum talstöðvar- kerfum fram að þessu. Er stefnt að því að nýja kerflð gegni lykilhlutverki við um- ferðarstjórnum og skipulag í tengslum við Kristnitökuhátíð í sumar. -hdm Lamb heimt af fjöllum DV, DALVÍK: Þrír menn á vélsleðum sóttu gimbrarlamb fyrir síðustu helgi upp í Mjóadal sem liggur inn af Þorvalds- dal. Að sögn Amars Gústafssonar, bónda á Brimnesi, eins leiðangurs- manna, varð lambsins vart helgina áður er vélsleðamenn voru þar á ferð. Arnar segir að lambið hafl verið ljón- styggt og erfltt að ná þvi en það er til- tölulega vel fram gengið eftir vetrar- vist á fjöUum. Ekki sáust merki um að fleira fé hefði verið á þessum slóðum. Lambið er í eigu Jósavins Gunnarsson- ar í Litla-Dunhaga í Hörgárdal. hiá ÚA og verkfalliö: Búið að binda tvo togara DV, AKUREYRI:___________________ Tveir ísfisktogarar Utgerðarfélags Akureyringa, Kaldbakur og Árbakur, hafa verið bundnir við bryggju vegna yfirvofandi verkfaUs Verkamannasam- bands íslands. Þriðji ísfisktogari félagsins, Harð- bakur, er á veiðum og er ljóst að þegar þeirri veiðiferð lýkur verður afla skipsins landað á markað á höfuðborg- arsvæðinu, komi tU verkfaUs VMSÍ og það verði ekki leyst þá. -gk Leiðrétting: Poppmessan er eftir viku Poppmessan i Bústaðakirkju er ekki í kvöld, eins og ranglega var hermt í DV i gær, heldur á miðviku- daginn eftir viku, nánar tiltekið 19. aprfl. Fyrri messan hefst kl. 20 og sú seinni kl. 22. Lesendur eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. sm REYKJAVIK AKUREYRI Dregur úr vindi Undir kvöld dregur úr vindi og léttir til norðaustanlands en snýst í suövestan 5-8 norðvestan til. Frost 1-8 stig, kaldast til landsins, en víða frostlaust með suöur- og vesturströndinni yfir daginn. Léttskýjað og norðaustan 8-13 m/s á höfuðborgarsvæðinu. Sólarlag í kvöld Sólarupprás á morgun Síödegisflóð Árdegisflóö á morgun 20.53 20.44 06.02 05.40 12.59 17.32 01.37 06.10 Skýmga? á ve&urtáknuan ‘♦^.VlNDÁTT 10V-HITI VV. -10° '“^SViNDSTYRKUR S mfitrum & sekóndu Vfrost HBÐSKÍRT e o LÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAD AISKÝJAÐ Q Q RiGNING SKÚRiR SIYDDA SNJÓKOMA ===== ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNÍNGUR ÞÖKA W5 Hálkublettir á heiðum Ágæt færð er um Suöurnes en hálkublettir eru á Hellisheiði. Góö færö er um Suðurland og Borgarfjörð. Fært er orðiö um Klettsháls. Hálkublettir eru á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og víöa á norðaustan- veröu landinu. Unnið er við hreinsun á fjallvegum á Norðausturlandi, Austurlandi og Steingrímsfjaröarheiði. GREIÐFÆRT ■■ ÞUNGFÆRT H .: HÁLT hkÓFÆRT •ittsti tfjl'3 ■! >i •; r:< mre Hæg breytileg átt Gert er ráö fyrir hægri vestlægri eða breytilegri átt. Skýjað verður meö köflum vestan til en annars léttskýjað og þurrt um mestallt land. Hiti verður 0 til 5 stig yfir daginn en víða næturfrost. Fostiulogiir g Vindur: /O —O 13-18 / Vindur: /O 5-10 m/s 33 Hiti 0° tii -3° Hiti O" til -8“ Snýst í N eöa NA 13-18 N- og NA-átt. Él noröan- og meö snjókomu eöa éljum austanlands en lengst af noröan- og austanlands. bjart veöur sunnan- og Skýjaö en úrkomulítiö vestanlands. Frost 0 til 8 suövestan til. Kólnandi stlg en frostlaust syöst á veöur og frost um kvöldiö. landinu yfir daginn. Siniiuida mt- Vindur: /-^ 3-8 nv"s Hiti 0° til -1” Hæg noröaustan- og síöar austanátt. Bjartviðri víöa um iand en dálítil snjó- koma og síöar rlgning vlö austur- og suöaustur- ströndina. Hægt hlýnandl. 1 Veörið kl. 6 AKUREYRI léttskýjað -5 BERGSTAÐIR léttskýjaö -6 BOLUNGARVlK léttskýjaö -6 EGILSSTAÐIR -5 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -5 KEFLAVÍK léttskýjaö -4 RAUFARHÖFN alskýjað -A REYKJAVÍK léttskýjaö -5 STÓRHÖFÐI rykmistur -3 BERGEN léttskýjaö 3 HELSINKI rigning 2 KAUPMANNAHÖFN þokumóða 3 ÓSLÓ 3 STOKKHÓLMUR þokumóöa 2 ÞÓRSHÖFN skýjaö 1 ÞRÁNDHEIMUR rigning 4 ALGARVE skýjaö 12 AMSTERDAM rigning og súld 5 BARCELONA léttskýjaö 12 BERLÍN þoka 4 CHICAGO þokumóöa 1 DUBLIN rigning 3 HALIFAX alskýjað 2 FRANKFURT skúr 7 HAMBORG þokumööa 5 JAN MAYEN snjóél -7 LONDON rigning og súid 2 LÚXEMBORG skýjaö 3 MALLORCA léttskýjaö 9 MONTREAL þoka 2 NARSSARSSUAQ alskýjaö 2 NEWYORK ORLANDO PARÍS VÍN WASHINGTON WINNIPEG þokumóöa hálfskýjaö skýjaö skýjaö alskýjaö léttskýjaö 6 17 3 10 11 -5 ■ig.HHOWMiilltnfiMBilfliaWtllHB.'l.a

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.