Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Qupperneq 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 X>V Samkomulag í nánd Clinton og Barak eru bjartsýnir á aö senn veröi samiö um friö. Clinton og Barak ræðast við Bill Clinton og Ehud Barak, for- sætisráðherra Israels, áttu fund saman í Washington í gærkvöldi. Ræddu þeir aðallega friðarferlið í Miðausturlöndum en fundur þeirra fór verulega fram úr áætluðum tíma og stóð í fjóra klukkutíma. Snerist umræðan að mestu leyti um að flýta friðarferlinu þannig að unnt væri að ljúka 7 ára samninga- viðræðum sem hófust í Osló á sínum tíma fyrir 13. maí næstkom- andi. Að fundi loknum sagði Bill Clint- on að aukinn kraftur hefði færst í viðræðurnar og tóku ísraelar í sama streng og lýstu yfir ánægju sinni með fundinn. Viðræður um varanlegan frið í Miðausturlöndum munu halda áfram á næstunni og enn sem fyrr fyrir milligöngu Bandaríkjamanna. Ættingjarnir I Miami svíkja gefin loforð Ekkert virtist í morgun ætla að verða af endurfundi kúbverska drengsins Elians Gonzalez og föður hans í Washington í dag. Banda- rískir fjölmiðlar greindu frá því í gær að ættingjar Elians í Miami myndu koma með drenginn á fund föður hans í Washington í dag. Nokkrum klukkustundum síðar birti svo sjónvarpsstöðin NBC frétt um að frændi Elians hefði komið út úr húsi sínu í Miami og sagt að drengurinn færi ekki til fundar við föður sinn í Washington í dag. „Elian býr hér. Hann sagði mér að hann ætlaði ekki til Washington, sagði frændinn, Lazaro Gonzalez, við mannfjöldann fyrir utan hús hans. Mannfjöldinn fagnaði ákaft yf- irlýsingu frændans. í morgun var enn óljóst hvort ætt- ingjarnir sjálfir myndu samt halda til Washington til að ræða við föður- inn, Juan Miguel Gonzalez. Ættingj- ar Elians, sem tóku hann til sín þeg- ar hann fannst á gúmmíslöngu und- an strönd Bandaríkjanna í nóvember síðastliðnum, reyna enn að koma í veg fyrir endurfund feðganna. Móðir Elians drukknaði á flótta frá Kúbu ásamt 10 öðrum. Elian var einn þeirra þriggja sem björguðust. Litlir frændur Eiian, til hægri, og lítill frændi hans skoöa málverk af björgun Elians undan strönd Bandaríkjanna í nóvember síöastliönum. Faðir Elians kom til Bandaríkj- anna f síðustu viku ásamt eigin- konu sinni og ungum syni til að endurheimta Elian. Janet Reno, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hafði aflýst ferð sinni til Miami í dag vegna fyrir- hugaðrar komu ættingja Elians til Washington. Ekki er vitað hvar og hvenær fundur dómsmálaráðherrans og ætt- ingjanna verður haldinn. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti f gær yf- ir stuðningi við þá sem telja það best fyrir Elian að fara með fóður sínum heim til Kúbu, að því er AFP fréttastofan greinir frá. Annan lýsti þessu yfir eftir að hann kom til Havana þar sem hann situr leið- togafund þróunarlandanna. „Það er persónuleg skoðun mín að Elian eigi að vera hjá föður sín- um,“ sagði Annan í lok ræðu sem hann flutti í háskólanum í Havana. A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, var sagður á atkvæðaveiðum þegar hann lýsti því yfir að Elian ætti að fá bandarískan ríkisborgararétt. Voru ummæli hans þvert á stefnu bandarískra yfirvalda. Gleðilegt sumar í orlofshúsum og tjaldvögnum VR VR auglýsir eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum félagsins sumarið 2000. VR hefur nú til leigu alls 51 orlofshús auk þess sem 33 tjaldvagnar eru nú til útleigu. Fleiri geta því notið þess að dvelja í húsunum en áður þó félagið geti því miður ekki sinnt nema hluta umsókna. Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum: Húsafelli í Borgarfirði • lllugastöðum í Fnjóskadal • Kirkjubæjarklaustri • Stöðvarfirði • Flúðum í Hrunamannahreppi • Einarsstöðum á Völlum • Furulundi á Akureyri • Miðhúsaskógi í Biskupstungum • Stykkishólmi • Eyjólfsstaðaskógi við Einarsstaði • Súðavík Tjaldvagnar Einnig geta félagsmenn leigt tjaldvagna til 6 eða 13 daga. Tjaldvagnarnir eru leigðir frá miðvikudegi til þriðjudags. Leigugjald Vikan í Miðhúsaskógi og í Húsafelli með heitum potti kr. 12.000,- Vikan annars staðar...............................kr. 10.500,- Tjaldvagn 6 dagar.................................kr. 8.500,- Tjaldvagn 13 dagar................................kr. 17.000,- Úthlutunarreglur Réttur til úthlutunar fer eftir félagsaldri í VR að frádregnum fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur eru á skrifstofu VR, í VR blaðinu og á vefnum, www.vr.is. Umsóknareyðublöð Hægt er að sækja um á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu félagsins í Húsi verslunarinnar, 1. hæð eða senda umsókn úr VR blaðinu bréfleiðis eða á faxi, 510 1717. Einnig er hægt að sækja um á vefnum, www.vr.is. Ekki er tekið á móti umsóknum símleiðis. Umsóknarfrestur er til 14. apríl nk. Svör verða send umsækjendum bréfleiðis 28. apríl. Starf okkar eflir þitt starf Prófessorinn ánægöur Bandaríski prófessorinn Deborah Lipstadt var aö vonum glöö í gær þegar breski sagnfræðingurinn David Irving tapaöi meiöyröamáli gegn henni. Lip- stadt haföi sakaö Irving um aö afneita helför gyöinga. Fujimori sækist eftir endurkjöri Alberto Fujimori, for- seti Perú, hefur fengiö tæp 50 prósent atkvæða í forsetakosningum sem fram fóru þar í landi fyrr í vikunni eftir að 91 pró- sent atkvæða hafa verið talin. Helsti andstæðing- ur forsetans, Alejandro Toledo, sem einnig sæk- ist eftir embættinu, hef- ur fengið rúm 40 prósent. Toledo, sem hefur mikið fylgi meðal frumbyggja Perú sem mynda meirihluta kjós- enda hefur sagt að hann muni ekki sætta sig við niðurstöður kosning- anna ef Fujimori fær hreinan meiri- hluta og ekki kemur til annarar umferðar í kosningunum. Hafa Bandaríkin tekið í sama streng. Fujimori, sem hefur verið við völd í Perú síð- astliðin 10 ár, er sagður hafa dregið verulega úr óreiðu 1 efnahag lands- ins og einnig mun hann hafa fengið lof fyrir að ráðast harkalega gegn glæpum í landinu. Hann hefur hins vegar verið gagnrýndur fyrir að draga úr lýðræði þar í landi. Niðurstöðu kosninganna er að vænta í dag. Kosningar í Perú Háværar ásakanir eru um kosningasvindl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.