Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Side 24
68______
Tilvera
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
DV
lí f iö
Ellen á mið-
vikumótum
Hin vikulegu miðvikumót verða
haldin hátíðleg á Sportkaffi í kvöld
eins og venjulega. Að þessu sinni
eru það Ellen Kristjánsdóttir, Þórð-
ur Högnason og Eðvarð Lárusson
sem sjá um ljúfa stemningu fyrir
gesti. Tónlistardagskrá þremenn-
inganna hefst kl. 22 og aðgangur er
ókeypis.
Krár
■ GAUKUR Á STÖNG Jómfrúrtónleik-
ar hljómsveitarinnar Spútnik
verða á Gauki á Stöng og er með
sanni hægt að segja að hún ræðst
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur.
Leikhús
■ DÝRIN I HALSASKOGI - BANN-
AÐ BORNUM Leikfélag Rensborg-
arskóla sýnir Dýrin í Hálsaskógi -
bannað börnum, eftir Thorbjörn
Egner, klukkan 20. Tónlistarstjóri er
Kristján Eldjárn en leikstjóri Stefán
. -■% Jónsson.
■ STJÖRNUR Á MORGUNHIMNI
Rússneska nútímaverkið Stjörnur á
morgunhimni veröur sýnt klukkan
23 í lönó. Miðapantanir eru í síma
530 3030.
Sídustu forvöd................
■ LAS VEGAS LEGENDS Eftirherm-
urnar í Las Vegas Legends
skemmta í Bíóborginni. Sýningin
byrjar kl. 20. Athugið: Lokasýning.
Fundir
fessor við háskólann í Árósum, flytur
fyrirlesturinn: „Introduktion til
funktionel grammatlk“ í boöi heim-
spekideildar Háskóla íslands í stofu
101 í Lögbergi kl. 17.15.
■ AÐALFUNDUR TOK Aðalfundur
FOK (Foreldra- og kennarafélags
Breiöholtsskóla) verður haldinn kl.
20.00 í hátíöarsal Breiöholtsskóla.
Fundarstjóri verður Stefán Jóhann
Stefánsson hagfræöingur. Sérstakur
gestur fundarins verður Stefán Her-
mannsson borgarverkfræðingur.
■ BORN MEÐ SERÞARFIR Ki. 20
verður haldið fræðslukvöld í Engi-
dalsskóla íHafnarfiröi á vegum
FABS og Skólaskrifstofu Hafnar-
fjaröar. Fræðslukvöldið er ætlaö að-
standendum barna meö sérþarfir.
Tvö vönduð erindi verða flutt af þeim
Valgerði Baldursdóttur geðlækni og
Andrési Ragnarssyni sálfræðingi. Er-
att indin fjalla um fötlun barns - áhrif á
heilsu foreldra og fjölskyldu.
■ ÍSLENSK FEGURD í BÓK-
MENNTUM Félag íslenskra fræöa
stendur fyrir fundi í Skólabæ, Suður-
götu. Birna Bjarnadóttir mun flytja
fyrirlestur sem nefnist íslensk feg-
urö: Frá brennandi ást rómantískra
skálda til skapandi feigöar í skáld-
skap Guðbergs Bergssonar. Eftir
framsögu Birnu munu fara fram al-
mennar umræður. Fundurinn er öll-
um opinn.
w BÍÓ
■ JAPONSK KVIKMYNDAHATIÐ
SADAKO'S STORY klukkan 18 í
Háskólabíói. Leikstjóri er Seljiroh
Kohyama og myndin segir frá ungri
stúlku sem þjáist af hvítblæði af
völdum kjarnorkusprengjunnar. Aö-
gangur er ókeypis en sýningin er á
vegum JAM, japönsku menningar-
miðstöðvarinnar.
SJá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Jóhannes Snorrason
Kann vel við sig í eigin tölvuhljóðveri innan um tölvur og rafhljóðfæri.
Jóhannes Snorrason sendir frá sér plötu með rafrænni tónlist
Bræði saman slatta
af stíltegundum
Tölvan og hljóðgervlar hafa breytt
umhverfmu hjá mörgum tónlistar-
manninum og margir hverjir hafa að-
lagast nýjum tækifærum í tónlistar-
sköpun og fá útrás fyrir sköpunargáf-
una innan um ýmis tæki og tól. Einn
þeirra er Jóhannes Snorrason sem
lengi hefur verið viðloðin tónlistina
og lék mikið áður fyrr á gítar, en hef-
ur sinnt kennslu undanfarin ár. Jó-
hannes er þessa dagana aö senda frá
sér plötu með eigin tónsmíðum sem
hann kallar Snerting. Jóhannes kem-
ur víða við í tónlistarheiminum og má
fmna í lögum hans áhrif frá rokki,
techno, electro, drum&bass, djass og
klassík. í stuttu spjalli var Jóhannes
fyrst spurður hvort hann hafi lengi
verið með plötuna í vinnslu:
„Ég hef verið að vinna þessa plötu
síðastliðinn þrjú ár. Ég hef víða kom-
ið við á mínum ferli sem tónlistar-
maður og því má segja að á plötunni
sé allt það sem hefur haft áhrif á mig,
tek slatta af stíltegundum og bræði
það saman og mynda minn eigin
hljóðheim, en þegar á heildina er litið
má kalla það raftónlist. Segja má að
tónlistin á Snertingu sé það sem
sprettur fram þegar ég sest við hljóð-
færin og tölvuna."
Jóhannes sér sjálfur um allan tón-
listarflutning á plötunni og notast við
gítara, hljóðgervla (analog og digital),
hljóðherma, hljóðsarpa og ýmiss kon-
ar slagverkshljóðfæri auk hljóðbreyta:
„Ég á mitt eigið tölvuhljóðver þar sem
ég hef getað dundað við tónlistarsköp-
unina, er með öfluga tölvu og öflugt
hljóðkort og allskonar hljóðfæri. Þeg-
ar ég var komin með þetta allt saman
í eigið hljóðver ákvað ég að fara alla
leiðina sjálfur, vinna einn að plötunni
og fékk svo Skífuna til að framleiða og
dreifa henni. Ég hef þó alltaf stundað
aðra vinnu með, kenni á rafgítar í
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og sé
um rekstur á tölvuhljóðveri sem er í
eigu skólans. Sjálfur bý ég í Kópavogi
þar sem ég er með mitt hljóðver."
Síðastliðin tuttugu og flmm ár hef-
ur Jóhannes verið að leika við ýmis
tækifæri. Gítarinn hefur verið mitt
aðalhljóðfæri, þá aðallega rafgitar. Ég
hef einnig lokið prófi í klassískum gít-
ar frá Tónskóla Reykjavíkur. Hef ég
aðallega verið að leika með djass- og
rokktríóum á pöbbum og veitingastöð-
um. Nú hef ég að mestu lagt það til
hliðar og kennslan tekið við auk þess
að sinna upptökum á eigin tónlist."
Jóhannes nefnir tölvuhljóðver sitt
Hljóðheima: „Ég hef eingöngu notað
það sjálfur hingað til en það getur vel
komið til greina að ég leigi það út í
framtíðinni til upptöku á efni annarra
og er að kanna það. Sjálfur mun ég
halda áfram á þeirri braut sem ég er
byrjaður á og er strax farinn að huga
að nýjum lögum."
-HK
Afmæli á smiðjugólfi
í gær varð Félag járniðnaða-
manna 80 ára. Meðal þess sem gert
var í tilefni af afmælinu var að efnt
var til óformlegrar afmælishátíðar í
húsnæði fyrirtækisins Marels. í
ávarpi í byrjun hófsin sagði Öm
Friðriksson, formaður Félags
járniðnaðarmanna meðal
annars: „Með því að fagna af-
mæli félagsins á smiðjugólfi í
stað hátimbraðra veislusala
viljum við meðal annars
minna á að verðmætasköpun-
in í þjóðfélaginu verður ekki
síst til á vinnustöðum sem
þessum og reyndar miklu
fremur en í kauphöllum verð-
bréfanna".
Þegar sautján járniðnaðar-
menn stofnuð Sveinafélag
jámiðnaðarmanna 11. apríl
1920, félag sem síðar varð Fé-
lag Járniðnaðarmanna, var
vinnudagur járnsmiðsins sex
að morgni til sex að kvöldi,
sex daga vikunnar. Dagvinnu-
tíminn var því 72 klukku-
stundir á viku. Atvinnuörygg-
ið fólst í snapvinnu, orlofs-
rétturinn enginn og járnsmið-
urinn var launalaus í veikind-
um. Miklar breytingar hafa
orðið á högum jámsmiða sem
og annarra iðnaðarmanna
síðan þá, og hefur kostað á
stundum hörð átök sem þó
hafa á löngu ferli leitt til góða.
-HK
DV-MYNDIR: TEITUR
Formaöurinn á 80 ára afmæli
Félags járniðnaðarmanna
Örn Friöriksson ávarpar gesti sem komu í
höfuöstöðvar Marels til að fagna afmælinu.
Málmblástur
Það var við hæfi að nokkur ungmenni mættu í sloppum járnsmiða og léku
lög á málmblásturshljóðfæri.
Menntamálaráðherra og fjórir forkólfar atvinnulífsins
Björn Bjarnason menntamáiaráöherra flutti tölu í afmælisveislunni. Með
honum eru fjórir forsvarsmenn atvinnulífsins, taldir frá vinstri: Örn Friö-
riksson, formaður Félags járniðnaðarmanna, Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, Finnur Geirsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Ari Edwald,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.