Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Qupperneq 13
13 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 DV__________________________________________________________________________________________________________________________Menning Umsjón: Siija Aöalsteinsdóttir Auga í pant fyrir kvenlega visku . ,|M 1KB| mf aay .«B| -JBBeý 5S& A*| a . jMpuý ,»| >«4-^1^ S8|« :jaa^^a|.ut| osfss* ■***■*»* wji a-.ii| v«|.,giit|.i>ift|-yw| jg£|| am æs| ia«| a :j«af jnf jsb| »| a ,ivf ^JB^.-iaaiiás^.atf —-Hg --f- Öfug mynd Mynd Önnu Jóelsdóttur, Húmar á dúkinn, var því miður á hvolfi með grein Aðalsteins Ingólfssonar í blað- inu í fyrradag. Hér birtist hún rétt. Hún lítur ekki út fyrir að vera alltaf með nefið grafið ofan í göml- um bókum og rykugum handrit- um, svona Ijóshœrð og litfríð, en það er hún samt. Hversdags situr hún á Stofnun Árna Magnússonar á styrk þaðan og frá menntamála- ráðuneytinu og þýðir fornaldarsög- ur á móðurmál sitt, dönsku. Hún heitir Annette Lassen og undirbýr sig undir að vinna meistaraprófs- ritgerð sína áfram til doktorsprófs en sú fjallaði um augu - sjón og blindu og táknrœna merkingu þeirra ífomum norrænum text- um, einkum norrœnni goðafrœði. Annette talar góða íslensku og af þvi hún er ekki af íslenskum ættum svo vitað sé var hún fyrst spurð hvenær hún hefði fengið áhuga á mál- inu. „Það voru íslenskar nútímabókmenntir sem kveiktu áhugann - nánar tiltekið þegar Einar Már Guðmundsson fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Engla alheimsins. Ég las útdrátt úr bókinni í Weekendavisen og fannst sagan svo spennandi að ég pantaði bókina í jóla- gjöf. Þegar ég var búin að lesa hana hugsaði ég að það hlyti að vera meira að hafa úr þessari átt. Þá var ég komin í nám í dönsku við Hafnarháskóla og var að vísu búin að fá hugmynd um íslenskar miðaldabókmenntir. - Og ég verð líka að geta þess að þegar ég var lítil skrifaði ég bók um ís- land!“ Annette tók námskeið í íslenskum nútímabók- menntum hjá Bergljótu Kristjánsdóttur sem þá var lektor í Kaupmannahöfn, það var svo frjótt og gefandi að eftir námskeiðið dreif hún sig til ís- lands. Þar tók hún námskeið i goðafræði hjá Vé- steini Ólasyni - og þá vissi hún hvað hún vildi. „Eftir það hætti ég alveg í nútímabókmenntum," segir hún og hlær. Hið kvenlega og karllega - Hvað var það við goðsögurnar sem kveikti svona í þér? „Fyrst og fremst eru þetta ótrúlega skemmtileg- ar sögur - hjá Snorra og Saxo og í eddukvæðun- um. Það er svolítil klisja að tala um uppruna og svoleiðis en ég held að flestir sem byrja í norræn- um bókmenntum hafi áhuga á að vita meira um uppruna menningar okkar. Það sem kemur i ljós er að þó að margt hafi breyst þá lifa ýmis mótíf og hugmyndir áfram og eru alþjóðleg - sem er líka skemmtilegt. Blinda í fornnorrænum bók- menntum er til dæmis tákn um skort á karl- mennsku, tengt við geldingu. Þetta tákn er ennþá gilt til dæmis í bandarískum bókmenntum. And- stæður hins karllega og kvenlega ganga í gegnum bandarískar bíómyndir og líka goðafræðina, og augnaráð hans. Hann er helsti fulltrúi hins karllega," segir Annette og er nú snúin aftur til íslenskunnar, „enda er hann alltaf að berjast á móti óreiðunni - kaos - berja á jötnum og öðru illþýði sem ógnar siðmenningunni. Á hin- um endanum er svo Höður hinn blindi sem drepur bróð- ur sinn óviljandi - hann er kaos.“ DV-MYND ÞÖK Annette Lassen, bókmenntafræöingur og fílológ Áhuginn á íslensku kviknaöi þegar Einar Már Guömundsson fékk bók- menntaverölaun Noröurlandaráös fyrir Engla atheimsins. margt í rokkaramenningunni kannast maður við úr norrænu níði.“ - En ef sjón er tákn karlmennsku, hvernig ber þá að skilja að Óðinn skuli vera blindur á öðru auga? Er hann þá bara hálfur karlmaður? Þegar kemur að sjálfu sérsviðinu og aðaláhuga- málinu - Óðni - verður Annette að grípa til dönskunnar: „Vatn er tengt hinu kvenlega í nor- rænni goðafræði og hin yfimáttúrlega viska sömuleiðis," segir hún á móðurmáli sínu. „Sam- kvæmt gerð Snorra af sögunni um auga Óðins þá viil Óðinn ná tengslum við hið kvenlega og kom- ast yfir viskuna og í staðinn lætur hann Mimi jöt- un hafa hluta af karlmennsku sinni - augað - í pant og það er geymt í Mímisbrunni. Þar með hef- ur hann bæði hið kvenlega og karllega á valdi sínu. Ef við tökum Þór til samanburðar þá er alltaf tekið fram hvað hann er með ofsalega hvöss augu og víða er þvi lýst hvernig fólk lamast við Þykir skrýtin bæði þar og hér í doktorsritgerð sinni ætlar Annette að einbeita sér að Óðni sem ekki hefur verið rannsakaður fyrir alvöru að hennar mati. „Ég ætla að safna öllum dæmum sem til eru um Óðin í gömlum textum, raða þeim eftir aldri og eðli og reyna að komast að því hvers konar guð hann er eiginlega - því hann er mjög flókinn. Margar bækur og ritgerðir eru til um Loka sem er jafnflókinn og Óðinn og líka tengdur jafnt því karllega og kvenlega, en það merkilega við Óðin er að hann skuli vera æðstur guða þrátt fyrir sitt margslungna eðli. Til dæmis er hann bæði guð berserkja og stjórnlauss stríðsæðis og hins skipulagða striðsrekstrar. Hann er tvö- faldur hvar sem á hann er lit- ið.“ Annette hefur fengið þriggja ára styrk til að vinna doktorsritgerðina við Árna- stofnun í Kaupmannahöfn en hún ætlar líka að fara til Bandaríkjanna. Merkilegustu fræðimennimir í goðafræði eru þar, John Lindow í Berkeley sem reyndar er væntanlegur hingað til lands í haust og Joseph Harris í Harvard. „Þeir reyndust mér frjóastir þegar ég var að skrifa MA- ritgerðina mína,“ segir Annette. - Þykir fólki heima hjá þér þú ekki vera skrýt- in stelpa að vera að pæla í þessum gömlu sögum? „Jú, en að vísu hér líka!“ segir Annette og bros- ir blítt. „Það er á vissan hátt í tísku núna „að leita að sjáifum sér“ og fólk segir gjarnan að auð- vitað komi ég til með að skilja sjálfa mig betur eftir þessar rannsóknir. En ég hef meiri áhuga á að skilja 12. og 13. aldar fólk hér á íslandi og úti í Skandinavíu, átta mig á hvaða skilning það lagði í þessar sögur og tákn þeirra. Ég hef áhuga á að vita hvemig það tók á móti þessu efni frem- ur en að ég sé í persónulegri ferð um minn innri mann. Ef fólk almennt vissi hvað þessir textar eru skemmtilegir þá myndi því ekki fmnast ég svona skrýtin!“ Fyrirlestur um glerlist Bandaríkjamaðurinn Dale Chi- huly, einn þekktasti glerlistamaður heims, heldur fyrirlestur í Listahá- skóla Islands í Laugarnesi á morg- un kl. 12.30 í stofu 024. Sýning á verkum hans, helguð minningu Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, verður opnuð á Kjarvalsstöðum á fóstudag. Einnig eru hingað komin 6oo glerform sem listamaðurinn lét blása í Finnlandi og ætlar að koma fyrir úti í náttúrunni í nágrenni Reykjavíkur. Síðar munu koma út bók og myndband með myndum af þessari innsetningu. Orgeltónleikar í IMstskirkju Annað kvöld kl. 20 verða tónleikar i Kristskirkju Landa- koti i tilefni af því að gagngerri viðgerð á orgeli kirkjunnar er nú lokið. Flytj- endur á tónleikun- um verða: Úhik Óla- son organleikari Kristskirkju, Mart- einn Hunger Friðriksson organleik- ari Dómkirkjunnar, Douglas A. Brotchie organleikari Háteigskirkju og Sigurlaug S. Knudsen söngkona. Snillingar frá Kraká Kraká í Póllandi er ein af menn- ingarborgunum níu og þaðan kem- ur Tríó Cracovia sem leikur i Saln- um í Kópavogi annað kvöld kl. 20.30. Tríóið skipa Krysztof Smiet- ana á fiðlu, Julian Tryczynski á selló og Jacek Tosik Warszawiak á píanó, allir hátt skrifaðir tónlistar- menn á sínu sviði. Á efnisskránni er Trio Elegiaque í g-moll eftir Sergej Rachmaninoff, Trio í D-dúr op. 70 nr. 2 „Ghost“ eftir Ludwig van Beethoven og eftir hlé Piano Trio eftir Artur Malawski. Trio Cracovia hefur þegar gefið út tvær geislaplötur og haldið tón- leika í Póllandi, Bretlandi, Banda- ríkjunum og nú i fyrsta sinn á ís- landi. Heimspeki og börn Geðveikislegur hlátur Á tónleikum í Salnum í Kópavoginum á sunnu- dagskvöldið gekk Marta G. Halldórsdóttir söng- kona inn á sviðið tautandi og áhyggjufull á svip- inn. Síðan hófst hið undarlegasta eintal sem sam- anstóð af skrækjum, hvísli, geðveikislegum hlátri, smellum og fleiru og minnti atriðið á teiknimyndaþættina um Línuna. Ekki greindi undirritaður textann, nema stöku ensk orð, en leikrænir tilburðir og nákvæm raddbeiting vógu þar upp á móti og var útkoman hin skemmtileg- asta. Þetta var Sequenza III eftir ítalska tónskáldið Luciano Berio (f. 1925), en hann hefur samið þrettán slík verk á löngu tímabili, tólf þeirra fyr- ir einleikshljóðfæri. Caput-hópurinn flutti sjö sequenzur á tónleikunum í Salnum, en orðið „sequenza" er ítalska og þýðir „röð“. Vísar það til forms tónlistarinnar, ,,“röð“ hljóma eða hljóm- svæða og eiga hinir ýmsu þættir tónlistarinnar rætur í þeim,“ svo vitnað sé í útskýringarnar i efnisskránni. Oft byrjar tónlistin á einum löngum tóni sem er endurtekinn í sifellu og fer svo að bergmála í nágrannatónum. Þetta er gjaman rauði þráðurinn en inn á milli eru hlaup og stutt- ar hendingar sem eru endurteknar aftur og aftur. Er útkoman oft hnitmiðuð, því tónlist sem bygg- ist mikið á endurtekningum hlýtur að vera auð- skiljanleg. Gailinn er sá að Berio hefur tilhneigingu til að endurtaka sig að óþörfu eins og gerist í Sequenzu XI fyrir gítar sem Kristján Eldjám flutti. Maður heyrði það sama aftur og aftur án teljandi um- breytinga og hefði litríkari túlkun kannski getað gert tónlistina áhugaverðari. Kristján er þó ágæt- ur gítarleikari sem hefur gott vald á hljóðfærinu, það virtist bara ekki duga til. Mun áhugaverðari var Sequenza I sem Kol- beinn Bjamason flautuleikari flutti af miklum glæsibrag. Tónlistin var í fyrstu óróleg og jafnvel tryllingsleg, síðan tók við rósemi sem var heill- andi ópersónuleg, og þegar tónarnir runnu ísmeygilega saman við óræða þögnina voru áhrif- in mögnuð. Einnig var píanóverkið Sequenza IV hið áheyrilegasta, hljómamir afar framandi og pedalnotkunin úthugsuð. Daníel Þorsteinsson pí- anóleikari sýndi mikla leikni og nákvæmni og flutti verkið sérlega vel. Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari spilaði átt- undu Sequenzuna af fltonskrafti, enda aðgengi- legt virtuósaverk sem lék í höndunum á einleik- aranum. Guðni Franzson klarinettuleikari sýndi ótrúlegt vald á styrkleikabrigðum í Sequenzu IXa og sömuleiðis lék Eydís Franzdóttir óbóleikari Sequenzu VII ágætlega. Verkið er einhvers konar tilbrigði við „frumtóninn", sem ómaði í bak- grunni, og var útkoman á köflum áhugaverð þó í heild væri tónlistin nokkuð langdregin. í stórum dráttum voru þetta athyglisverðir tón- leikar. Eins og áður sagði em Sequenzur Berios samdar á löngu tímabili og gefa þannig ágæta mynd af ferli og þroska eins þekktasta tónskálds samtimans. Jónas Sen Nú er vika bókarinnar með alls konar uppá- komum og þar að auki myndar- legri bókaútgáfu. Stærsta verkið sem gefið er út í vikunni er hið mikla þjóðsagna- safn Vöku-Helga- fells sem nánar verður lýst síðar. Meðal nýrra og merkilegra bóka er Heimspeki og börn eftir Gareth B. Matthews sem Skúli Pálsson heim- spekingur þýddi og Sóley gefur út. Höfundurinn er lika heimspekingur og lýsir í bókinni heimspekilegum samtölum við börn. Bókin er ætluð öllum sem vinna með börnum og lýs- ir þvi hvernig megi rækta meðfædda forvitni barna og leikgleði. Hann vitnar beint í raunveruleg samtöl við börn og tengir hugleiðingar þeirra á skemmtilegan hátt við kenningar hinna miklu heimspekinga sögunn- ar. Eitt meginhlutverk bókarinnar er að kenna fullorðnu fólki að virða börn sem vitsmunaverur. HLIMSPLKl OGBÖRN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.