Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2000, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
Fréttir I>V
, LIV-|VITINL>
600 Islendingar smitaöir af lifrarbólgu.
„Mig langar ekkert til þess að deyja, mig langar til þess aö eiga gott líf, “ segir ungur fyrrverandi fikniefnaneytandi sem uppgötvaöi í meöferöinni i vetur aö
hann er smitaöur af lifrarþólgu C.
Lifrarbólgu C-sjúklingur segir frá reynslu sinni:
Smitaðist af
neyslufélaga sínum
Hann er 19 ára fíkill sem hefur ver-
ið edrú í tæpa fimm mánuði. En líflð
fram undan er ekki eins bjart og það
gæti verið. Hann smitaðist af lifrar-
bólgu C i vetur, skömmu áður en
hann hætti neyslu.
„Ég smitaðist annað hvort í gegn-
um félaga minn eða í gegnum frænku
mína. Viö vorum neyslufélagar,"
sagði pilturinn í nýlegu samtali við
DV. Hann óskaði eftir nafnleynd, þar
sem miklir fordómar ríkja gagnvart
smituðum.
Lifrarbólga C er veirusýking sem
er læknanleg í einungis 20 til 30 pró-
sent tilvika. Hún getur valdið iifrar-
skemmdum, lifrarskorpu, gulu og lifr-
arkrabbameini. Eins veikir hún
ónæmiskerfið og fær sá sem sýktur er
því oftar flensu og aðra sjúkdóma. Um
síðustu áramót var vitað um 600 ís-
lenska lifrarbólgu-C-sjúklinga sem
flestir hafa smitast í gegnum fikni-
- hræddur við að
efnaneyslu. Tiltölulega litlar líkur eru
á því að smitast af þessari tegund lifr-
arbólgu i gegnum kynmök eða snert-
ingu við lítil sár.
Þar sem ekki er hægt að fara í lyfja-
meðferð fyrr en tæpu ári eftir að
neyslu eiturlyfja er hætt veit piltur-
inn ekki hvort hann mun ganga með
sjúkdóminn alla ævi.
„Fyrst ætlaði ég ekkert að fara í
lyfjameðferð. Mér fannst lifið bara
búið, ég vildi deyja. Mér fannst þetta
vera eitthvað óhreint þarna innan í
mér sem væri ekki hægt að þrífa í
burtu,“ sagði pilturinn. „Sjokkið var
svo mikið, mér var alveg skítsama en
núna er mér ekkert sama. Mig langar
ekkert til þess að deyja, mig langar til
þess að eiga gott líf.“
Nú orðið er hann hræddastur við
að smita aðra. „Þetta bremsar mann
af í sumum tilvikum, ég er hræddur
um systkini mín því ég er til dæmis
smita systkini sín
með tannbursta heima hjá mömmu og
ég vil ekki smita þau,“ sagði pilturinn
sem er elstur sex systkina.
Oftast hreinar sprautur
Þessi ungi Reykvíkingur er búinn í
meðferð og er nýbyrjaður í eins árs
eftirmeðferð. Saga hans er lík sögu
margra annarra sem verða flkninni
að bráð. Hann byrjaði að drekka 14
ára, fór svo út í neyslu harðari efna og
sprautaði sig í 10 mánuði áður en
hann fór í meðferð.
„Ég notaði oftast hreinar sprautur
en svo var mér bara orðið alveg skít-
sama. Þegar engin hrein var til þá
notaði ég sprautur félaga míns og
frænku minnar en ég vissi að þau
voru bæði með lifrarbólgu C,“ sagði
pilturinn.
Lifrarbólga C hefur mikil áhrif á
hinn sýkta en mun auðveldara er að
lifa með henni ef hinn sýkti er edrú
þvi áfengi fer mjög illa með lifrina.
Ungi maðurinn hefur séð frænku
sína, sem hefur verið fíkill í nokkur
ár, mjög veika af völdum lifrarbólgu
C. Þegar hún fékk gulu í fyrra fór
hann í heimsókn til hennar á sjúkra-
húsið.
„Að sjá frænku mína svona veika,
það hræddi mig alveg rosalega. Mér
brá við að sjá hana,“ sagði ungi mað-
urinn og bætti því við að hann ótt-
aðist það að detta aftur í það, þar sem
hann hefur séð hvaða áhrif lifrarbólga
C getur haft.
Þar sem hann er tiltölulega nýsmit-
aður er hann ekki farinn að finna
mikið fyrir lifrarbólgunni, nema ef
hann er svangur en þá segist hann
verða þungur og finna fyrir vanlíðan.
„Ég bara reyni að gera gott úr
þessu og þetta hjálpar mér tvímæla-
laust við að vera edrú,“ sagði piltur-
inn. -SMK
Fíklar og lifrarbólga C:
Miklar líkur þegar fólk sprautar sig fyrst
Samkvæmt tölum SÁÁ eru 15
prósenta líkur á að smitast af lifrar-
bólgu 10 fyrstu skiptin sem fólk
sprautar sig með fikniefnum. Þessi
háa tala stafar af því að fólk sem er
aö fikta við sprautur kann ekki að
sprauta sig og sprautar sig því ekki
eitt, sagði Þórarinn Tyrfmgsson, yf-
irlæknir á Vogi, sjúkrahúsi SÁÁ.
„Það er mjög mikil hætta á sýk-
ingu þegar fólk er að fikta og
sprauta sig örsjaldan af því að það
sprautar sig ekki eitt. Það fær til
þess leiðbeiningar og oft eru þeir
sem leiðbeina með óhrein áhöld eöa
eru smitaðir sjálfir," sagði Þórar-
inn.
Lifrarbólga C er langvinnur, erf-
iður sjúkdómur sem getur leitt til
skorpulifrar og lifrarkrabbameins.
Um 600 manns eru smitaðir á ís-
landi og hafa flestir smitast í gegn-
um eiturlyfjaneyslu. HlV-veiran,
sem veldur alnæmi, getur einnig
smitast í gegnum eiturlyfjaneyslu
en lítið hefur verið um HlV-smit
með sprautum hér á landi.
Þórarinn sagði að á Vogi hefði
ekki orðið nein sérstök íjölgun á ung-
um sprautufíklum á síðustu árum en
þvi væri hins vegar ekki að neita að
mikil auking er á neyslu eiturlyfja á
íslandi. Á meðan hæg stígandi hefur
verið seinustu árin í fjölda þeirra
sem neyta fikniefna í sprautuformi
hefur verið griðarleg aukning á
kannabis- og amfetamínneyslu, sagði
Þórarinn. -SMK
Sjúkrahúsið
Nygræöingum hætt viö sýkingum
Þórarinn Tyrfingsson, yfidæknir á Vogi, segir aö mikil hætta sé á að fólk sem
er að fikta viö aö sprauta sig meö eiturlyfjum smitist af lifrarbólgu C.
Horður Kristjánssori
netfang: sandkom@ff.ls
????????
Þær fréttir berast
nú sandkornsritara
að Dalla Ólafsdótt-
ir Grímssonar for-
seta hafi verið ráð-
in til fyrirtækisins
sem gerði fóður
hennar að forseta,
GSP almanna-
tengsla. Stúlkan er
alls ekki óvön því að leggja sitt af
mörkum við að koma sínu á fram-
færi því hún hefur um árabil farið
mikinn í kosningabaráttu félags-
hyggjufólks í Háskólanum. Nú fer í
hönd kosningabarátta hjá sitjandi
forseta gegna Ástþóri Magnússyni
friðarhöfðingja en engar fréttir hafa
enn borist af því að Ólafur Ragnar
hyggist nýta sér þjónustu GSP í
þetta skiptið. Þær sögur ganga aftur
á móti fjöllunum hærra að leyni-
vopn Ástþórs i kosningabaráttunni
verði einmitt fyrirtækið sem for-
setadóttirin starfar hjá...
Allt Gauja að kenna!
Guðjóni Þórð-
arsyni, Stoke
City-stjómanda,
tókst ekki að
„meika það“ eins
og islenskir fjár-
festar vonuðust
til. Milljónaíjár-
festingin í félag-
inu verður því
ekki sá skyndigróði sem margir
hugðu. Stoke komst ekki í úrslit og
verður áfram í annarri deild.
Munu ýmsir hafa svitnað hressi-
lega við þessi tíðindi. Telja hag-
spekingar Sandkorns augljóst að
fall á hérlendum hlutabréfamark-
aði verði skrifað beint á reikning
Guðjóns. Þá er eins vist að fyrst
menn eru á annað borð byrjaðir að
stíla reikningana á Guðjón í Stoke
komi Páll Pétursson líka með
reikningabunka vegna hrikalegra
afialla á húsbréfum...
Stórt skip
Flaggað var fyrir
nýju hafrannsókna-
skipi í fyrradag
sem hlotið hefur
nafn fyrirrennara
síns, Áma Friðriks-
sonar RE. Nýja
skipið hefur sko
alls ekki hlaupið í
meðforum því nú
hefur Ámi Friðriksson lengst um
28 metra og breikkað um 4. í
áhöfninni verða 32 í stað 10 á
gamla skipinu. Þykir ljóst að
gömlu kempunni Jakobi Jakobs-
syni fiskifræðingi ætti nú ekki að
verða skotaskuld úr því að finna
meiri þorsk í sjónum en leitin að
þeim gula hefur gengið fremur dap-
urlega þrátt fyrir kvótakerfi og
meinta friðun. Segja gáungarnir að
nú hljóti að finnast fiskur einhvers
staðar undir skipinu sem spannar
orðið hálft Atlantshafið...
Fennti á kaf
Trausti Jóns-
son veðurfræðing-
ur vakti athygli
fyrir að vera dúð-
aður þykkri vetr-
arúlpu með hettu
yfir haus er hann
lýsti sólarmeti
sem var við þaö
að falla í Reykja-
vík fyrir nokkru. Sagði hann að
lengsta samfellda sólskinstímabil í
sögu mælinga væri bara hið versta
veður. Gerðu menn grín að þessu
úlpustandi Trausta. Sjónvarpsmað-
urinn snjalli Gísla Sigurgeirsson
á Akureyri fór á dögunum aðra
leiö í veðurlýsingum. Lýst Gísli
berhöfðaður i hástemmdum orðum
hitamollunni og sólskinsflæðinu í
höfuðstað Norðurlands dag eftir
dag. Gárungar hafa bent á að Gísla
hefði verið nær að vera í úlpu eins
og Trausti, enda sýnist þeim sól-
skinið hafa fennt í kaf í norðanbál-
inu að undanförnu...