Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Blaðsíða 3
g f n i Nú þegar sumar gengur í garð klæðir Skjár 1 sig í stuttbuxurnar og kynnir nýja þætti sem verða á dagskrá í sumar. Einum þessara þátta verður stjórnað af Ásgrími Sverrissyni og heitír hann Lifandi. Fyrsti þátturinn verður sýndur sunnudaginn 4. júní kl. 22. Fókus hringdi í tappann og forvitnaðist. Stýrður spuni í „Þátturiim heitir Lifandi og efnið gengur út á stýrðan spuna. Við fámn nokkra leikara í þáttinn og þeir fá úthlutað karakter sem hefur eitt- hvert ákveðið markmið án þess að vita hvað hinir karakteramir stefna að. Þættimir em allir í beinni út- sendingu þannig að það verður spil- að út á þessar óvæntu uppákomur og endalok sem þetta form býður upp á,“ segir Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðamaður um nýja þáttinn sinn á Skjá 1. „Þessir þættir verða teknir hér og þar í bænum í alvöruumhverfi, ekkert stúdíóvesen. Fyrsti þátturinn verður sýndur 4. júní og síðan er seinasti þátturinn í júlí þannig að þetta er tveggja mán- aða prógramm." Of upptekinn fyrir dómarasæti Stuttmyndadagar verða haldnir núna um helgina. Aðspurður hvort hann ætlaði að kíkja á keppnina sagði hann ekki svo vera. „Það var búið að biðja mig um að vera í dóm- nefnd en ég þurfti því miður að af- þakka það. Ég er hreinlega bara alltof upptekinn þessa dagana. Fyrir það fyrsta var ég að eignast barn fyrir stuttu, er að stjóma þessum þætti og siðan er ég að fara að leik- stýra í bíómynd." Nú, hvaöa mynd er þaö? „Hún heitir Villiljós og er skrifuð af Huldari Breiðfjörð. Þetta eru fimm sögur sem gerast á sama tíma. Fyrir hverja sögu er sér leikstjóri og Ásgrímur er upptek- inn maður þessa dag- ana. Hann er nýbak- aður faðir, sér um sjónvarpsþátt og er að fara þreyta frumraun sína í kvik- myndaleikstjórn. auk mín leikstýra þau Ragnar Bragason, Inga Lísa Middleton, Dagur Kári Pétursson og Einar Þór Gunnlaugsson. Það er stefnan að frumsýna myndina um næstu jól. Það er samt ekkert öruggt með það enn sem komið er.“ Basic upptökugræjur fyrir hárft bílverð Aðspurður hvemig honum lítist á stöðuna í bíómálum ansar Ásgrímur því að þau mál standi bara helvíti vel. „Það er rosaleg gróska í gangi og skriða af nýjum leikstjórum er að koma inn á markaðinn. Þetta eru átta til tíu ný andlit. Ástæðan er sumpart þessari nýju digital- tækni að þakka. Nú getur fólk komið sér upp basicgræjum fyrir hálft bílverð, þó má nú ekki gleyma að það kostar meira ef á að sýna myndina. Síðan er það einnig tilvilj- un sem ræður því að þessi nýju nöfn koma öll á svip- uðum tíma. Það er búið að ákveða þessar myndir fram í tímann og síðan lenda þær allar á sama tíman- um.“ Jimmy Ronald Routley: Fymim hermað- ur kenn- ir sparkbox Eggert Ketilsson er ■ betur þekktur sem: Eddi sprenaja. effekt Eddi eldur 7 íslendingar slá í gegn á www.uglypeople.com Dagbjört Reginsdóttir: „Stelpur fá barbí- dúkkur, strákar bíla.“ Eminem: Kjaftfor og komplexað ur hvítingi Aðsóknartölur í fótboltanum: KR er lang- vinsælasta liðið Þorsteinn Guðmunds son er faðir Dorritar B B ■_ ■_ neimunnn Vindva Mei gefur út disk. Markhóp- ur: páfagaukar sem vilja tjilla. Hann var alla vega ekki dauður þó hann hefði bara legið þarna líkt og hann væri lamaður. Dr. Gunni sló á þráð- inn til Péturs og Rúnars og fékk nánari útskýringu á fyrirbærinu. Pétur og Rúnar eru einu meðlimir Vindva Mei, sem er hljómsveit. Vindva Mei heitir tveggja manna sveit. Pétur og Rúnar heita með- limimir og eru starfandi þótt Rún- ar búi í Kaupmannahöfn en Pétur í Reykjavík. Fire-samsteypan gaf á dögunum út fyrsta diskinn, „Vinda Mei on Fire“. „Hljómsveitin var stofnuð 1994 og ekki í neinum sérstökum til- gangi,“ segja þeir. „Við höfðum einhvem veginn ekkert betra við tíma okkar að gera og svo fannst okkur við heldur ekkert of góðir til þess. Heimurinn átti þetta skilið.“ Kraftwerk-gír Tónlistin á disknum sveiflast úr því að vera melódísk og taktfost og í góðum Kraftwerk-gír yfir í að vera þverhníptar rafpælingar. „Efnið á disknum var tekið upp á frekar löngum tíma. Hluti eru upptökur frá 1996, hinn helmingur- inn er frá 1999. Þróunin á tímabil- inu liggur fyrst og fremst í breyttu vinnulagi með öðruvísi tækjum en kveikjan að hugmyndunum er alltaf sú sama. Við greinum tölu- verðan mun á eldra og nýrra efni, án þess að það sé endilega svo gott að benda á nákvæmlega í hverju sá munur liggur. Þetta hefur bara breyst. Ef til vill er þetta allt sam- an tímalaust?" „Tónlistin okkar er frekar líkam- leg,“ segja Vindva-menn. „Hún þarf ekki að vera hátt stillt til að gera viðkvæmt fólk árásargjamt og ill- H I M ^ I T I Ly C/ L l Cl vígt gagnvart tónlistinni en þeir sem hafa gaman af þessu lita á þetta sem ljúfa tóna, eins konar dá- leiðslu, eða bara eitthvað til að komast í ham við.“ Páfagaukurinn lifir Hvernig fólk viljiði aö hlusti á Vindva Mei? „Við viljum helst að fólk kunni að meta okkur eins og páfagaukur, vinur okkar, gerði. Við vorum að hlusta á tónleikaupptökm- á þokka- legrnn styrk og fyrr en varði tókum við eftir því að páfagaukurinn var lagstur. Fyrst héldum við að hann væri dauður þar sem hann iá á annarri hliðinni en svo sámn við að hann var bara að tjilla við Vindva Mei. Það var eins og hann væri lamaður. Það er svona sem við viljum að fólk hlusti á Vindva Mei.“ Einmitt! Og hvaö er svo fram undan? „Fullt af plötum. Hugmyndalega séð er nóg fram undan. Við getum búið til plötur utan um ýmsarhug- myndir sem eru vel til þess fallnar að koma út og setjast upp i hillur plötuverslana en við höfum ekki ákveðið neitt enn þá. Við komum sennilega til með að spila eitthvað á tónleikum hvort sem við komum fram saman eða sitt í hvoru lagi. Það er skemmtilegra fyrir okkur að spila saman því þá gerist meira af óvæntum hlutum.“ í vitlausri vinnu: Fólk með 4 0 ónýtta -Lv/ menntun 14 Listakrakkar: Listin er ekki eintóm sæla 10- 1 f 1 0 Brúðuieikhús fyrir fuilorðna Mínus lofar svita í pvttinum Eiaendaskipti á 22 Allt um Stuttmvndadaaa DV í Revkiavík Forsíðumyndina tók Hilmar Þór af Dagbjörtu Reginsdóttur. 2. júní 2000 f Ó k U S 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.