Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Blaðsíða 11
KR-bullum fjölgar mest Áhorfendum á ís- lenska fótboltaleiki fjölgar ár frá ári. En það merkir ekki að áhuginn sé almennt að aukast á íþróttinni heldur virðist aukningin leggjast að lang- mestu leyti á aðeins eitt Reykjavíkurlið. Þeir sem halda ekki með KR elska að hata það. En þeir sem elska svart- hvítu mennina sína geta glaðst yfir þvl að þar er aðalvaxtarbroddur fót- boltabullna. Á árunum ‘94-’99 íjölgaði áhorf- endum úrvalsdeildar um vel rúmlega 20 þúsund. Fóru úr 56.836 áhorfend- um ‘94 og upp í 80.762 í fyrra. En það sem kemur á óvart er að af þessum áttatíu þúsund voru 36.404 að horfa á KR keppa við eitthvað annað lið. Til samanburðar má skoða ÍA. í fyrra mættu rétt rúm fjórtán þúsund til að horfa á gulu kempumar. Normið um 17.000 manns Það má líta á að eðlilegur fjöldi áhorfenda á fótboltaleik liða í topp- baráttu úrvalsdeildarinnar (heitir Landssímadeildin núna eins og allir vita en hét Trópí eða Sjóvá á þeim tíma sem mælingar áttu sér stað) sé um 17 þúsund. Ef við tökum dæmi af mætingunni ‘94, en þá hófust mæl- ingar, voru KR efstir í mætingatölum með rúm 18 þúsund, ÍA næstir með tæp 15 og Fram voru í því þriðja með 13.500 áhorfendur. Síðan rokkar þetta svona þar til 1998. Þá koma allt í einu 25 þúsund og fimm hundruð á leiki KR en á eftir þeim koma ÍBV með 17.500 áhorfendur. í fyrrasumar brýt- ur KR svo allar reglur með sínum 36.404 áhorfendum en ÍBV er í öðru sæti með 17.910 áhorfendur og á eftir eyjapeyjum koma Frammarar með 17.221 áhorfenda. KR í tísku Niðurstaðan sem má fá úr þessum tölum sem Fókus fékk hjá Knatt- spymusambandi íslands er að af þessari aukningu frá ‘94-’99, fór úr 56.836 áhorfendum í 80.762 og er því um að ræða aukningu upp á 23.926 áhorfendur, eiga KR-leikirnir um 20.000. Þetta er því ekki aukinn áhugi fólks á Landssímadeildinni nema að litlu leyti heldur aukinn áhugi lands- manna á KR. Og á fyrsta leik ÍA og KR nú i ár mættu til að mynda tvö þúsund manns en á fyrsta leik þess- ara liða i fyrra mættu einungis 1.383. Það má því með sanni segja að KR sé í tísku. Alla vega dettur engum í hug að halda að þessa aukningu megi bara rekja til borinna og barnfæddra vesturbæinga. Lennon fær „nudd“ í nýlegri ævisögu um John Lennon, „Nowhere Man“ eftir Ro- bert Rosen, kemur ýmislegt nýtt fram enda er bókin byggð á dag- b ó k u m Lennons frá árunum 1975 til dauða hans árið 1980. Meðal ann- ars kemur í ljós að Yoko Ono s e n d i gamla bítilinn til S-Afríku í „karma-lega hreinsun á innra sjálfl“. Á hótelherbergi stnu í Cape Town fór Lennon strax að leita að auglýsingum frá „nudd- stofum“ í blöðunum. Daginn eftir heimsótti hann nuddstofu en varð fyrir vonbrigðum. Nuddkonan vann bara vinnuna sína en var ekki að fíla djobbið. Lennon gafst ekki upp og sneri aftur næsta dag. Þá var hann kynntur fyrir Louise nokkurri sem æsti hann upp úr öllu valdi. Hann sneri i herbergið sitt karma-lega fullnægður og sæll. Robert, Mick og Billy fara í pásu Þessa dagana eru átakanlega margir popparar að hætta, til bráðabirgða a.m.k. Robert Smith hef- ur löngum talað um að The Cure sé að hætta og sagði m.a.s. einu sinni að bandið myndi hætta áður en hann yrði fertugur. Hann er nú 41 árs og bandið á fullu á tónleikatúr. Ro- bert hyggst þó slátra bandinu eft- ir túrinn og er þegar farinn að gera sólóplötu sem væntanlega kemur út á næsta ári. „Það er plata sem verður ekki spiluð mikið í útvarpi,“ segir hann. Ro- bert efast um að spila sólólögin á tónleikum. „Ég er búinn að eyða næstum 25 árum í tónleikaferðir og vil bara vera heima,“ segir hann. Svipað ró- lyndi er hlaupið í íslandsvininn og rauðhausinn Mick Hucknell. Eft- ir 15 ár i bransanum hefur kapp- inn keypt sér hús í París og ætlar að flytja þangað til að „slappa af‘. Hann er þó búinn að koma fyrir flygli. „Ég ætla að sitja þama, glápa út um gluggann og búa til lög,“ segir Mick og býst við að frí- ið vari a.m.k. í tvö ár. „Ég verð guðs lifandi feginn að sleppa við athygli fjölmiöla," bætir hann við. Tíminn er líka að renna út fyrir The Smashing Pumpkins. Aðal- gaurinn, Billy Corgan, hefur lýst yfir að bandið hætti síðar á árinu. Síðasta plata þeirra, „Machina“, hefur selst lítið og valdið miklum vonbrigðum. Billy er þvi búinn að gefast upp og kvartaði sáran yfir því að „það sé vonlaust að keppa við allar Britney-arnar“. Vantar þig aukaorku í vinnunniP Meira úthaldP Aukna árvekniP Fáöu þér sopa og settu þig í gang <‘33CL 112 FLOZ T' 2. júní 2000 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.