Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Blaðsíða 10
vikuna
1.6-8.6 2000
22. vika
MC Lyte kom fyrst fram á sjó-
narsviðið á níunda áratugnum og var
þá ein af fáum konum í rappheimum.
Fyrir nokkrum árum seldi hún sál sina
Mammoni og húkkaði upp með Puff
Daddy. Það er þó ekki jafn slæmt og
að nota meistara Mariey sér til fram-
dráttar. Skamm, skamm.
Topp 20
(01) The Ballad Of Chasey L.
Bloodhound Gang
á lista
© 9
(02) Tell Me Einar Ágúst & Telma J, 8
(03) Jammin' Bob Marley & MC Lyte t 2
04j Freestyler Boomfunk MC's Jr 6
(05) Oops 1 Did Again Britney Spears t 7
06) Bingo Bango Basement Jaxx t 7
(07) He Wasn't Man Enough Toni Braxton 11
(08) Riddie MtMtKttKU En Vogue 4r ^
(09) Eitthvað nýtt Land og Synir X 1
(70) There You Go Pink -f. 6
(77) Mr. Bongo Housebuilders t 2
'12) Fool Again Westlife 9 u
(73) Vertu Hjá Mér Á Móti Sól 4,10
14j Freakin' It Will Smith 4*11
(75) Thong Song Sisqo 4r 6
(76) Are You Still... Eagle Eye Cherry n 11
(77) I Wanna Mmm The Lawyer 4,9
18) Dirty Water Made in London n 4
(19) Hvort sem er Sóldögg x 11
(20) If 1 Told You That Whitney H./George M. X 1
Sætin 21 til 40
© topplag vikunnar 21. Hvar er ég? írafár X 1
. 22. Mambo Italiano Shaft n 7
4 vikunnar 23. My Heart Goes Boom French Affair 4, 9
24. Fill Me In Craig David f 7
X nýtt á listanum 2fi Ex.Gjrlfrjend No Doubt 4, 12
jöj stendurístað 26. Say My Name Destiny’s Child 4- 14 H
+ hækkarsigfrá 27 ■ Broadway Goo Goo Dolls t 2
1 sífljstu viku 28. Shackless Mary Mary t 4
lækkar sig frá 29. Now Or Never si&istu viku 30. Sól ég hef sögu... Tom Novy & Lima t 3
Sálin... X 1
fall vikunnar 31. Mama Told me... Tom J./StereP. 4, 8
32. Sunshine Reggae Laid Back 4, 6
33. Everything Vertical Horizon 3
34. Lucky Star Superfunk 4- 3
35. Just Around The Hill Sash 4. 5
36. Run To The Wather Live 4, 13
37. Flowers Sweet Female Attitude t 2
38. Daily TQ X 1
39- Búinn að fá nóg Buttercup 4, 10
40. |f Only Hanson X V
Ifóku
Kraftmikill, kjaftfor
„Helmingurinn af
því sem ég segi
er skáldskapur
sem ég sýð upp
til þess eins að
gera fólk brjálað.
Það getur kysst
á mér nakið hvítt
rassgatið." Úpps,
Eminem er kominn
aftur, brjálaðri en
nokkru sinni fyrr.
ko in p I GXðo u tr
hvítinai
Platan heitir „The Marshall
Mathers LP“. Að vanda er Eminem
(Marshall Bruce Mathers III) i miklu
stuði og hlífir engum þegar hann
skvettir úr sínum fúla orðapytti.
Hann froðufellir ónotum eins og
Bólu-Hjálmar á sterum og meðal
þeirra sem fá það óþvegið í þetta
skiptið eru Britney Spears, stráka-
bandið ‘N Sync, Will Smith, Christ-
ina Aguilera, lamaða ofurmennið
Christopher Reeve, hin látnu glys-
menni Sonny Bono og Gianni Ver-
sace, Puff Daddy og Jennifer
Lopez, hljómsveitin Insane Clown
Posse sem kemur eins og Eminem frá
Detroit og guðfaðirinn sjálfur, hann
Dr. Dre, fær líka smáspark í rassinn.
Eins og heimilisofbeldi
Þetta „diss“ er allt á „léttu“ nótun-
um. Tvær grímur renna þó á hlust-
andann þegar Eminem byrjar að
rappa um konuna sína, Kim. Þar
æpir Eminem eins og geðsjúklingur
að hann ætli að kála Kim eða sjálfum
sér af því að hún hélt fram hjá, eða
svo segir hann. Það er akkúrat ekkert
fyndið við þetta lag (,,Kim“) og álíka
„gaman“ að hlusta á það og að verða
vitni að heimilisofbeldi.
„Já, hún Kim virkilega hatar þetta
lag,“ segir Eminem. „Þegar hún
heyrði það leit hún á mig og sagði:
„Þú ert geðveikur. Þú ert í alvörunni
geðveikur!" En ég sagði henni: „Mér
Eminem og mamma hans áður en
hún kærði.
leið bara svona. Það hafa komið
stundir sem mig hefur langað til að
kála þér.“ En lagið var gert í fyrra
þegar við vorum að ganga í gegnum
eriitt tímabil. Þaö er allt i fmu hjá
okkur núna. (Þau eiga 4 ára dóttir og
eru nýlega gift.) Lagið er eins og al-
vörurifrildi hjá okkur. Þegar ég
hlusta á plötuna mina sleppi ég þessu
lagi því það minnir mig einum of
mikið á hvernig mér leið á þessum
tima.“
Með mömmu og ömmu á
hælunum
Eminem, sem er 25 ára, skaust upp
á stjömuhimininn í fyrra með smell-
inn „My Name Is“ af plötunni „The
Slim Shady LP“. Hann hafði rembst
eins og rjúpa við rappstaur og gert
plötu árið 1996, hina slöppu „Infmite"
sem margir líktu við rapparana AZ
og Nas. Kappinn kallar þá plötu „til-
raun“ í dag og segist ekki hafa verið
búinn að fmna sig.
Skömmu síðar gerði Eminem smá-
skífu, „The Slim Shady EP“ sem Dr.
Dre heyrði og tók í framhaldinu
pirraða hvítingjann upp á arma sína.
Með síðustu plötu varð Eminem vin-
sæll og mjög umtalaður, sérstaklega
fyrir hrikalegan óhróður sem hann
viðhafði um mömmu sína. Mamman
fór í mál og heimtaði pening (10 millj-
ón dali) og ein amman er að spá í að
fara í mál líka.
„Ég get ekki talað mikið um þetta,“
segir Em, „því málið er enn fyrir
rétti. En ég get ekkert gott sagt um
ömmu mína. Það er hellingur af fólki
sem hefur hótað að kæra mig. Það er
verst þegar fjölskylda manns kærir
mann, fólk sem hefur ekkert gert úr
lffi sínu og sér mig í sjónvarpinu.
Auðvitað hugsar það: „Hann er for-
ríkur andskoti og ég er skyld honum.
Ef hann gefur mér ekkert þá ætla ég
bara að hrifsa það af honurn". Eða
eitthvað. Ég nenni ekki að velta mér
upp úr þessu.“
Ég er ekki dúkka!
Eminem komu á óvart þau nei-
kvæðu viðbrögð sem síðasta plata
fékk.
„Ég hélt að fólk myndi hlusta á
plötuna og taka henni eins og hún er:
Fyrst og fremst grófur húmor. Ég hélt
að fólk myndi fatta hvað ég væri að
segja í alvörunni og heyra að annað
væri of fáránlegt til að hægt væri að
taka það alvarlega."
Hverju vildi Eminem nú fram með
nýju plötunni?
„Ég vildi að sjálfsögðu toppa sjálf-
an mig og líka að fara með tónlistina
í nýjar áttir. Mér fmnst alvarlegri fíl-
ingur á þessari plötu en þeirri síð-
ustu. Ég hef gengið í gegnum meiri
skít á síðasta ári en áður. Ég hef séð
líf mitt snúast á hvolf. Mér finnst enn
gaman að grínast og fíflast en þessi
reynsla hefur vakið upp hjá mér al-
varlega hlið.“
Heldur Eminem að þeim sem hann
rappar um flnnist ekki bara svalt að
vera í textunum hans, jafnvel þó þaó
sé neikvœtt?
„Kannski. Ég heyrði að ‘N Sync
halda að ég sé ekki að „dissa“ þá.
Auðvitað er ég að „dissa“ þá. Mér
frnnst þeir virkilega ömurlegir. Allar
þessar stelpu/strákagrúppur eru
virkilega ömurlegar. Mér fmnst þessi
bönd vera svindl. Það eru feitir, sköll-
óttir karlar sem semja öll lögin og
þessir krakkar eru bara syngjandi
dúkkur í höndum á þeim.“
En samt er næstum sami hlustenda-
hópur sem ú diska með ‘N Sync,
Christina Aguilera og þér!
„Það er ótrúlegt! Ég sé engin tengsl
milli mín og þessara dúkkna en samt
er ég alltaf settur í sama bás. Það ger-
ir mig virkilega óðan! Ég sem mína
eigin texta. Ég sem megnið af tónlist-
inni minni. Ég hljóðstýri sjálfur. Ég
er ekki að reyna að hljóma eins og
einhver annar heldur þvert á móti.
Enginn kenndi mér að rappa eða seg-
ir mér hvað ég á að segja. Ég geri
minn eigin skít, en hitt draslið ...
þetta er svo algjörlega hæfileikalaust.
Þetta er ömurlegt. Þetta er vælu-
kjóatónlist, maður. Heimurinn er
ekki svona helvíti hamingjusamur."
Dr. Gunni
i
f Ó k U S 2. júní 2000