Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Side 4
t
Miðar á
/ ■ /
og gomma
af diskum
Fókusvefurinn:
Jimmy Ronald Routley er 33 ára sparkbox-
kennari frá London sem nýlega varð íslenskur
ríkisborgari. Hann settist niður með Heiðari
Sumarliðasyni yfir orkudrykk og sagði honum
frá enska hernum, listaháskólanum og
sparkboxinu.
Heyr á endemi! Nú er til mikils
að vinna. í dag fer í loftið glænýr,
ufsaferskur, Gettu enn betur-
spurningaleik-
ur á Fókusvefn-
um á visir.is
sem fjallar um
Tónlistarhátíð-
ina. Að
smni eru vinn-
ingarnir glæsi-
legri en
nokkru sinni
fyrr. Þeir sem eru
i Ftmm efstu sætunum á hádegi á
þriðjudag fá nefnilega miða sem
gildir á laugardeginum á Tónlist-
arhátíð í Reykjavík, Reykjavík
Music Festival, auk Tónlistarhá-
tíðardisksins sem hefur að geyma
rjómann af lögum listamannanna
á hátíðinni. Eins og flestir vita
kosta miðamir á
þessa glæsilegu
hátíð slatta. Þá
ætti nú að vera
ódýrara að logga
sig inn á vefmn. Á
þriðjudaginn fer
ný útgáfa af leikn-
um í loftið sem
verður dregið úr á
föstudaginn eftir viku. Sami hátt-
ur veröur á vinningunum, fimm
efstu fá laugardagsmiða inn á Tón-
listarhátíðarsvæðið og diskinn.
En þar með er sagan ekki öll
sögð. Fókus ætlar einnig að gefa
öllum þeim sem eru ekki nógu
klárir í leiknum, en kunna á póst-
forritið sitt, Tónlistarhátiðar-
diskinn. Þúsund fyrstu vefverjarn-
ir sem skrá sig á póstlista Fókuss,
sem fer einnig í loftið á forsíðu
vefsins í dag, fá gefins eintak af
disknum. Það sem skiptir máli er
að vera nógu snöggur á vefinn.
Allir á Fókusvefinn!
GRIM
Jet Li og Jackie Chan eru
í miklu uppáhaldi hjá
Jimmy sem kennir spark-
box í Dugguvoglnum.
Listrænn
b3ixl3C|ðka
„Ég kom fyrst til íslands með ís-
lenskri kærustu minni fyrir 5 eða 6
árum. Ég vissi ekkert um ísland en
þar sem ég kom hingað að sumri tU
líkaði mér dvölin vel,“ segir Jim-
my Ronald Routley sem talar nú
orðið sæmUega íslensku. „Þegar
vetur skcdl á fann ég mig ekki nógu
vel og fannst ég þurfa að komast
heim tU London. Þar sem fyrrum
vinnuveitandi minn hafði svikiö
mig um greiðslu hóf ég að þrífa
skemmtistaði tU að eiga fyrir far-
inu heim. Samstarfsfélagi minn
þar kynnti mig fyrir manni sem
var með svarta beltið í karate. Sá
vUdi ólmur fá mig tU að berjast við
sig. Það gerði ég og afgreiddi hann
á skömmum tíma. Þannig vann ég
mér inn virðingu hans og hann
bauð mér vinnu við að kenna
sparkbox, sem ég þáði. Ég sneri
samt fljótlega aftur tU London."
Dvöl Jimmys í London varð hins
vegar styttri en hann hafði áætlað.
„Mér var boðið að koma aftur tU ís-
lands tU að kenna. Ég þáði það boð,
enda kærastan mín á íslandi."
Eftir það hefur Jimmy ekki litið
um öxl og hefur skotið rótum á Is-
landi og eignaðist hann nýlega,
ásamt kærustunni, sitt fyrsta bam.
Fann fyrir fordómum
Við fyrstu sýn gæti fólk verið dá-
lítið smeykt við hinn krúnurakaða
og ofurmassaða Jimmy. Við nánari
kynni kemur hins vegar í ljós að
hann er mjög vingjarnlegur og hef-
ur greinUega mikla ánægju af því
aö deUa með fólki þekkingu sinni á
bardagaíþróttum.
„Það erfiðasta við að koma hing-
aö var að vinna íslenska fólkið yfir
á mitt band. Það þekkti mig auðvit-
að enginn og höfðu sumir fordóma
gagnvart mér. Þegar ég byrjaði að
kenna breyttist þetta aUt saman.
Fólk byrjaði að kynnast mér og sá
hvað ég gat gert. Þannig myndaðist
gagnkvæm virðing og hef ég eign-
ast marga vini í gegnum sparkbox-
ið,“ segir Jimmy sem hefur komið
víða við um ævina. „Ég var í enska
hernum um tíma en þangað var ég
fenginn vegna hæfUeika minna í
bardagaíþróttum. Eftir það var ég í
listaháskóla en málaralistin er mitt
helsta áhugamál, fyrir utan líkams-
ræktina og bardagaíþróttirnar."
Opnar líkamsræktarstöð
Jimmy ólst að mestu leyti upp í
London en hreimur hans, þegar
hann talar ensku, gefur til kynna
að hann hafi fariö víða. „Mamma
mín er frá Sierra Leone og eyddi ég
nokkrum tíma þar á uppvaxtarár-
unum. Þess vegna er blærinn á
enskunni sem ég tala eins konar
blanda af breskum, frönskum og
afrískum hreim,“ segir Jimmy,
sem á mikið af bræörum og systr-
um sem eru dreifð víðs vegar um
heiminn.
„Þegar ég var stráklingur fóru
bræður mínir oft með mig í bíó.
Sérstaklega hafði ég gaman af
hasarnum I kúrekamyndum sem
ég lifði mig mikið inn í. Þegar ég
var 10 ára komst ég fyrst í kynni
við Bruce Lee og hreifst mikið af
honum. Það varð til þess að pabbi
minn, sem lést árið 1989, skráði
mig á námskeið í bardagaíþróttum.
I dag hrífst ég mikið af Jet Li og
Jackie Chan. Það er sennilega
vegna áhrifa frá þessum mönnum
sem mig hefur alltaf langað að
verða hasarmyndaleikari," segir
Jimmy sem að minnsta kosti hefur
líkamsbygginguna og útlitið í
hasarmyndastarfið.
Hjá Jimmy hafði einnig lengi
blundað sá draumur að opna sína
eigin líkamsræktarstöð. „Fyrir
tveimur vikum keypti ég mér hús-
næði í Dugguvogi 12. Þar mun ég á
næstu mánuðum opna sparkbox-
stöð sem ég hef skýrt „Pumping
Iron“. Persónulegt handbragð mitt
mun verða yfir kennslunni og ætla
ég að kynna nýtt afbrigði af spark-
boxi sem ég kalla stökkbox. Einnig
verða lóð og æfmgatæki á svæð-
inu.“ Þar af leiðandi geta framtíð-
arkúnnar Jimmys, áhyggjulausir,
orðið alveg hrikalegir í
vextinum, á milli þess
sem þeir misþyrma
boxpúðum af kappi.