Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000 21 DV Sport Enn eitt tapið hjá Itölum ítalska landsliðið í knattspymu beið skipbrot í undirbúningi sínum fyrir Evrópukeppnina þegar liðið tapaði fyrir Noregi, 1-0, í Ósló á laugardaginn. Norðmenn voru betri aðilinn og hefðu hæglega getað unniö stærri sigur. Það var John Carew, sem leikur með spænska liðinu Valencia á næsta ári, sem skoraði sigurmark norska liðsins á 53. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Vegard Heggem. Til að bæta gráu ofan á svart fyrir landsliðsþjálfara Ítalíu, Dino Zoff, meiddist aðalmarkvöröur liðsins, Gianlugi Buffon, á hendi í leiknum og er óvist hvort hann verður klár í slaginn þegar Evrópukeppnin hefst þann 10. júní næstkomandi. Schmeichel skoraði FH-ingar misstu flugið í 1. deildinni á föstudag: Hinn litríki markvörður Dana, Peter Schmeichel, var heldur betur í sviðsljósinu á laugardaginn þegar Danir og Belgar mættust á Parken í Kaupmannahöfn. Leikurinn end- aði með jafntefli, 2-2, og skoraði Schmeichel, sem jafnframt er fyrir- liði, seinna mark Dana úr vita- spyrnu á 61. mínútu. Áður hafði Jon Dahl Tomasson komið Dön- um yfir, 1-0, með marki á 37. minútu en Lorenzo Staelens jafnaði metin fyrir Belga úr vítaspyrnu á 53. mínútu. Þá var röðin komin að Peter Sch- meichel en á 73. mínútu náðu Belgar að jafna öðru sinni og var þar að verki Marc Vilmots. Leikurinn þótti skemmtUegur og sýndu bæði lið góð tilþrif. Hetja Dana, Peter Schmeichel, sem lék sinn 121. landsleik, var ánægður eftir leikinn og sagði að Danir hefðu átt skUið að sigra. „Við lékum oft og tíðum frábæra knattspyrnu og í mín- um huga er það alveg ljóst að við getum mætt fiUlir sjálfs- trausts tU leiks í Evrópukeppn- inni,“ sagði þessi frábæri mark- vörður. Önnur úrslit um helgina: Rúmenía-Grikkland ............2-1 1-0 Liviu Ciobotariu (8.), 2-0 Florentin Petre (80.), 2-1 Nikos Limperopouios (85.) Sviþjóð-Spánn.................1-1 0-1 Josip Guardiola, víti (43.), 1-1 Roland Nilsson, víti (76.) Þýskaland-Tékkland............3-2 1-0 Carsten Jancker (38.), 1-1 Pavel Kuka (54.), 2-1 Oliver Bierhoff, viti (62.), 2-2 Patrick Berger (80.), 3-2 Oliver Bierhoff (90.) Ungverjaland-ísrael ..........2-1 1-0 Bela Illes (46.), 2-0 Ferenc Horvath (51.), 2-1 Pini Balili (90.) Wales-Portúgal................0-3 0-1 Luis Figo (21.), 0-2 Sa Pinto (44.), 0-3 Nuno Capucho (66.) Sendum ípóstkröfu samdægurs. Jói útherji Ármúla 36, Reykjavík, sími 588 1560 Peter Schmeichel skokkar ánægöur til baka eftir aö hafa skoraö úr vitaspyrnu gegn Belgum um helgina. Hóröur Magnússon, FH-ingur, sést hér í baráttu viö Próttarann Vigni Sverrisson f leik liöanna á föstudagskvöld. Höröur bjargaöi andliti sinna manna meö því aö fiska og skora úr vítaspyrnu sem tryggöi FH eitt stig. DV-mynd Hilmar Þór Slakir Englendingar mörðu Möltu England bar sigurorð af Möltu, 2-1,1 síðasta æfingaleik sínum fyrir Evr- ópukeppnina í Valletta um helgina. Enska liðið var ekki sannfærandi í leiknum en náði samt forystu á 23. mínútu þegar Martin Keown skoraði með skalla eftir aukaspymu frá David Beckham. Leikmenn Möltu jöfnuðu metin úr vitaspymu sex mínútum síðar og það var svo ekki fyrr en á 75. mínútu sem Englendingum tókst að skora sigurmarkið í leiknum en það gerði Emile Heskey eftir frábæran undirbúning hjá Nick Barmby. Undir lok leiksins varði svo Richard Wright, sem lék sinn fyrsta landsleik fyrir England, vítaspymu frá Carabott og tryggði Englendingum sigur. Topuð stig hjá FH í Krikanum þegar Þróttur náði sinu fyrsta stigi O-l Björgólfur Takefusa (18.) 1-1 Hörður Magnússon (82., vlti) FH-ingar töpuðu tveimur mikilvæg- um stigum í toppbaráttu 1. deildar með því að gera jafntefli við Þrótt, 1-1, í fyrsta heimaleik sínum í sumar á fostudagskvöldið. FH, sem hefúr endað í þriðja sæti deildarinnar síðustu þrjú ár, hafði byrjað vel og unnið tvo fyrstu leikina en frammistaða liðsins gegn Þrótti sýndi að liðið á langt í land með að komast aftur í hóp þeirra bestu. Það var aðeins fyrir þrautseigju Harðar Magnússonar, framherja liðs- ins, að annað stigið kom í hús því miðja FH-inga var ein sú slakasta sem sést hefúr í Firðinum í langan tíma og Hörður var sá eini sem reyndi að láta bolta ganga og keyra á Þróttarvömina. Hörður fiskaði þannig vítið sem bjargaði stiginu fyrir Hafnfirðinga. Þróttarar lágu aftur á völlinn allan leikinn og treystu á lipra framherja sína, þá Björgólf Takefúsa og Charlie McCormick, og frábær samvinna þeirra virtist lengi vel ætla að duga til þess að ná í öll þrjú stigin. McCormick lagði nefnilega upp mark Björgólfs og var oft nálægt því framan af leik að skapa fleiri góð færi fýrir félaga sína. Pressa FH-inga jókst þegar á leið, enda með miklu betra lið, en aðferðimar við uppbyggingu sóknanna voru þungar og seinvirkar. Boltinn stoppaði ailtaf á Heimi Guðjónssyni og Þrótturum gafst þá ávallt tækifæri til að stifta upp í skipulagða vöm meðan hann setti í sinn gír. Vöm Þróttara hélt út og færði þeim fyrsta stigið í sumar en liðið ógnar þó afar lítið í sóknarleiknum. Hlutverk þessara liða ættu að verða ólík í sumar en æth FH sér upp þarf Logi Ólafsson þjálfari að endurskoða miðjuspiliö. Maður leiksins: Hörður Magn- ússon, FH. -ÓÓJ I. DtlLD KflRtfl Staðan eftir 3 umferðir: ÍR 3 2 1 0 6-3 7 FH 3 2 1 0 5-3 7 Valur 3 2 0 1 9-3 6 Víkingur R. 3 1 2 0 4-3 5 KA 3 1 1 i 4-4 4 Dalvík 3 1 0 2 5-5 3 Skallagr. 3 1 0 2 3-6 3 Sindri 3 0 2 1 1-2 2 TindastóU 3 0 2 1 2-5 2 Þróttur 3 0 1 2 2-7 1 Markahæstir: Amór Guðjohnsen, Val............4 Bjami Gaukur Sigurðsson, ÍR . . .. 4 Arnar Hrafn Jóhannesson, Val... .3 Höröur Magnússon, FH............3 Pétur Bjöm Jónsson, KA.........3 Nœsta umferð fer fram 9. júní en þá mætast Skallagrímur-Valur, Dalvík-Þróttur, ÍR-Sindri, Vikingur-KA og Tindastóll-FH. ÍR-Dalvík: ÍR á toppinn 1- 0 Heiöar Ómarsson (4.) 2- 0 Bjarni G. Sigurðsson (19.) 2-1 Atli V. Bjömsson (69.) ÍR sigraði Dalvík 2-1 á heimavelli á fostudagskvöldið og er nú í efsta sæti 1. deildar ásamt FH. ÍR-ingar hófu leikinn með mikilli sókn en þegar Dal- víkingar höfðu fótað sig á veUinum settu þeir í gírinn og sóttu af miklum krafti á kostnað vamarinnar. Eftir seinna mark ÍR gáfu Dalvíkingar eftir og leikurinn einkenndist af miðjuþófi fram yfir miðjan seinni hálfleik en þá juku Dalvíkingar pressuna tU muna og eftir mark þeirra lá sókn þeirra þungt á ÍR-markinu en vöm ÍR-inga stóðst raunina og hrósuðu þeir sigri. Heiöar Ómarsson og Bjami G. Sigurðsson vom duglegir hjá ÍR en hjá Dalvík var Jónas Baldursson traustur í vöminni en einnig vakti ungur leikinn leikmaöur, Hermann Albertsson, athygli. Maður leiksins: Heiðar Ómarsson, ÍR. -RG KA-Tindastóll: Tilþrifalítiö 0-1 Kristmar Geir Bjömsson (66.) 1-1 Pétur Bjöm Jónsson (76.) Leikur KA og Tindastóls ein- kenndist af baráttu og taugaveikl- un beggja liða. Vorbragur er enn merkjanlegur á leik liðanna þar sem knettinum var lítið leikið á miUi manna en þeim mun meira var um hálofta- spymur. Það var KA sem réð leiknum í fyrri hálfleik en einhæf- ir sóknartUburðir liðsins strönd- uðu oftar en ekki á vöm Tinda- stóls. Tindastólsmenn komu betur inn í leikinn í síðari háifleik með skemmtUegu spUi snjallra miðju- manna sinna og uppskám laun erfiðisins á 66. mínútu. Eftir hraða sókn og góða samvinnu Joe Sears og Kristmars Bjömssonar skoraði sá síðamefndi gottt mark. KA- menn rönkuðu við sér eftir mark- ið og jöfnuðu metin á 76. mínútu þegar Pétur Bjöm Jónsson af- greiddi auðveldlega knöttinn í net- ið af markteig. Maður leiksins: Kristmar G. Bjömsson, Tindastóli. -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.