Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 4
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000 Sport DV Gunnar Bender og Stefán Kristjánsson fijnrncGnn væn bleikja í tökustuði í Fiskilækjarvatni J J Bræöurmr Gretar og Bragi Veiði í Fiskilækjarvatni í Leirársveit hófst 1. júní og var veiði ágæt fyrsta daginn er DV-Sport leit við og rabbaði við veiðimenn. Um 20 veiðimenn voru við veiðar í vatninu og fengu sumir mjög góða veiði. Jón Jónsson hafði til að mynda byrjað að veiða ásamt syni ssínum um mörguninn og var kominn með fjórar failegar bleikjur upp úr hádeg- inu. Tvær þeirra voru hátt i fjögur pund. „Þetta eru skemmtilegir flskar. Sigurössynir meö fallegan Bleikjan hefur verið að Þriggja punda urriöa sem tók taka ágætlega og ég hef svartan Tot)y spón. misst væna fiska. Bleikjan tekur vel kúluhausinn og þessa síðustu bleikju fékk ég á Watson Fancy kúluhaus,“ sagði Lúðvík Bjömsson úr Reykjavík en hann lenti í skemmtOegri töku ásamt syni sínum, Heimi Magnúsi. Hreistriö Fréttir af stanga- veiói og skotveiði verða framvegis á heilli síðu í DV-Sport á mánudögum. Að auki veröa í DV-Sport vikulegir veiðiþættir, alla daga vikunnar. Birt- ar verða ferskar fréttir frá lax- og sil- ungsveiði, nýjar veiðitölur úr ám og vötnum, viðtöl við veiðimenn, veiði- sögur og margt fleira. Opnun Norðurár: Mun lakari en í fyrra „Stjóm Stangveiðifélags Reykjavik- ur endaði i 8 löxum í Norðurá og hann var 14 pund sá stærsti. Hollið sem byrjaði í gær er komið með 7 laxa,“ sagði Guðmundur Viðarsson kokkur í veiðihúsinu við Norðurá í samtali við DV í gærdag, er við spurðum frétta af veiðiskapnum. Opnunarholl skipað stjómarmönnum veiddi 8 laxa fyrstu dagana og er það til muna lakari veiði en í fyrra. Þá veiddi opnunarhollið 43 laxa, þar af um 15 á fyrstu morgunvaktinni. Ef vatn eykst i Norðurá og aðstæður aðrar batna má búast við því fljótlega að veiði glæðist verulega. Helstu áhyggjur veiðimanna þessa dagana er kuldinn sem virðist ekkert vera á undanhaldi, þrátt fyr- ir spár veðurfærðinga um annað. Þegar hitastigið er ekki nema 4-5 gráður og veiðiáin með lægra hita- stig, er ekki von á góðu. Laxinn er ekkert að flýta sér uppí veiðiámar í slíku veðurfari sem verið hefur síð- ustu daga. Fátt viróist koma í veg fyrir að Laxá á Ásum opni seinnipartinn á miðvikudaginn 7. júní þrátt fyrir fullyrðingar um annað. Bíða menn spenntir eftir því hvort laxinn sé mættur, en þeir sem hafa kikt hafa séð lltið sem ekkert. Opun Norðurár i Borgarfirði er oft vísirinn af því hvemig veiðin verð- ur um sumarið. í fyrra veiddist vel i ánni en sumariö var alls ekki gott i laxveiðinni. Núna var ennþá minni veiði og þýðir kannski eitt- hvað allt annað. Gott sumar fyrir veiðimenn? Vel gengur meö bókina um Islensk- ar laxveiðiár, sem unnið er að þessa dagana. Menn vora að mynda við opun Norðurár i bókina á fullu. Og það á víst að mynda við opnun fleiri veiðiáa næstu vikumar. Þeir sem hafa veitt í Litluá í Keldu- hverfi hafa mikið spáð í hver hafi komið með tilboð í ána fyrir skömmu siðan. Bændur hafa sjálf- ir selt veiðileyfi í hana svo lengi sem elstu menn muna. Það skyldi þó ekki vera að fyrsti stafurinn sé Á, annar r, þriðji n og sjá fjórði i? Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Við opnun Norðurár reyndi hver veiðimaðurinn af öðram hinar þekktu Frances flugur en laxinn leit ekki við þeim að þessu sinni. Hins vegar veiddust fyrstu þrír laxarnir í Norðurá á Black Sheep túbu, Þing- eying túbu og Randalín. Björn G. Sigurösson meö stærsta fltkinn úr Litluá (Kelduhverfi, 9 pund urriöa, nokkrum mínútum eftir aö hann landaöi honum. Mjög dauf byrjun í Þverá „Það veiddist einn lax í morgun og hann veidd- ist i Ármótakvörn á svarta og silfraða flugu og hann var 12 pund,“ sagði Jón Ólafsson í veiðihúsinu við Þverá í gærdag, en áin opnaði í gærmorgun. „Veiðimenn voru sam- mála um að laxar hefðu sést víða um ána en hún er ekki vatnsmikil og fiskur er mjög styggur. Það sáust laxar meðal annars uppí gljúfri,“ sagði Jón ermfremur. Ekki verður annað sagt en að veiði byrji ró- lega í Þveránni en hún skilaði flestum löxum á síðusstu veiðivertíð. Opnuninni var frestað um nokkra daga í Þverá en veiði hefur jafnan haf- ist þann 1. júní ár hvert. Níu punda urriði á land úr Litluá í Kelduhverfi „Það var skemmtilegt að byrja sumarið svona vel í Litluánni. Við fengum 8 fiska og sá stærsti var 9 pund og veiddist á maðkinn,“ sagði Björn G. Sigurðsson, en hann var við veiðar í ánni á öðrum degi. Góð veiði hefur verið siðan áin opnaði og flestir hafa fengið eitthvað. „Það var ekki nóg að ég veiddi þennan stóra, heldur setti ég annan stærri og var með hann á í töluverðan tíma. Sá fiskur var vænn og tók vel í. Veiðimenn voru að fá fiska á öll- um svæðum, nema einu. Viö urðum værir við mikið af físki, en það var kalt við veiðiskapinn," sagði Bjöm ennfremur. Þessi fiskur Björns er sá stærsti ennþá í ánni. I Pálmi Gunnarsson og fleiri sendu inn tilboð til1 veiðifélags Litluár, en nokkrir fleiri höfðu áhuga eins og Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Árni Bald- ursson og Lax-á, Ármenn og Jörundur Markús-1 son. Veióin hefur verió ágæt i Svinavatni í Húnavatnssýslu og þá mest i netin. Bændur á bænum Auðkúlu voru við veiðar í vatninu fyrir fáum dögum og veiddu þá vænan urriða, fiskurinn var 13 pund. Stangaveiði hefur líka verið góð í vatninu en fiskarnir hafa ekki verið svona stórir á stöngina. Veiði er halin í Fremi-Laxá sem rennur úr Svinavatni. Þaó er mikiö talaö um það þessa dagana, að eitthvað verði að gera með hrafninn, en skot- veiöi hefur fækkað honum stór- lega um allt land. Æðarbændur hafa skotið mikiö af honum, enda hefur hann verið skaðvald- ur i varplöndum. Heilmildar- menn okkar segja að þúsundir hrafna haföi verið skotnir síðustu ár. Nú er krammi kominn á vá- lista Náttúrufæðistofnunar og einhverjar likur eru á því að þessi glysgjami fugl verði alfrið- aður á næstunni. Vonandi nær Sif Friðleifs- dóttir, umhverfismálaráð- herra, áttum i málinu en vitað er að mjög margir eru alfarið andvígir því að friða Hrafninn. Væri þá skynsamlegra að friða fugl- inn einhvern tima ársins en hingað til hefur Hrafninn verið réttdræpur allan árs- ins hring.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.